Morgunblaðið - 09.05.2011, Page 32
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 129. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Myndir af Pippu vekja athygli
2. Meistaratitill blasir við Man. Utd
3. Ágústa Ósk léttist um rúmt kíló
4. Beckham slapp úr bílslysi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Wild Beasts er áhrifamesta,
áhugaverðasta og allra mest
heillandi sveit sem hér starfar. Mjög
líklega erum við með plötu ársins í
höndunum,“ segir Mike Diver hjá BBC
um þriðju plötu Wild Beasts. »27
Wild Beasts með
plötu ársins?
Sýning Lisu
Milroy verður
opnuð í Gang-
inum, Rekagranda
8, klukkan 17-19 í
dag og verður
listakonan á
staðnum. Milroy
fæddist í Vancou-
ver í Kanada 1959
og hefur sýnt víða en einkum í Bret-
landi. Hún vakti fyrst athygli um
1980 þegar hún birti teikningar sínar
af skóm og öðrum nytjahlutum.
Lisa Milroy opnar
sýningu í Ganginum
Frelsissveit Nýja Íslands kemur
fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múl-
ans í Norræna húsinu í kvöld og þeir
hefjast klukkan 21. Hauk-
ur Gröndal stofnaði
hljómsveitina í árs-
byrjun 2010 og mark-
mið hennar er að
leika frumsamda ís-
lenska tónlist.
Fyrsti geisladiskur
sveitarinnar er
væntanlegur á
árinu.
Frelsissveit Nýja
Íslands á tónleikum
Á þriðjudag Austlæg átt með skúrum víða um land, einkum þó
suðaustanlands. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast á Vesturlandi.
Á miðvikudag Snýst í norðanátt með dálítilli vætu norðan- og
austanlands, en víða bjart sunnan heiða. Kólnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-13 m/s og skúrir, einkum sunnan-
lands. Hiti 7 til 17 stig, svalast við austurströndina.
VEÐUR
Umdeilt mark á síðustu
mínútu færði KR-ingum stig
gegn Keflvíkingum í Pepsi-
deild karla í fótboltanum í
gærkvöld. Óskar Örn Hauks-
son jafnaði, 1:1, þegar leik-
maður Keflavíkur lá á vell-
inum, meiddur á höfði.
Valsmenn eru einir á toppi
deildarinnar en þeir unnu
Grindvíkinga 2:0 suður með
sjó, eru með sex stig eftir
tvær umferðir og hafa ekki
fengið á sig mark. »3-5
KR jafnaði með
umdeildu marki
Aron Pálmarsson
lét mikið að sér
kveða í
úrslitaleik
þýsku
bikar-
keppn-
innar í hand-
bolta í gær.
Hann skoraði
6 mörk þegar
Kiel, undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar,
vann Flensburg,
30:24. „Ég er mjög
ánægður og nýti
mér það traust
sem ég fæ frá
þjálfaranum,“
sagði Aron við
Morgunblaðið. »1
Nýti mér það traust sem
ég fæ frá þjálfaranum
Auðunn Jónsson fékk um helgina
bronsverðlaun í réttstöðulyftu á Evr-
ópumótinu í kraftlyftingum í Tékk-
landi og var nálægt því að fá líka
bronsið í samanlögðu. „Þetta var
ægileg keppni og í mjög háum gæða-
flokki en þessir karlar verða bara
teknir í bakaríið næst,“ sagði Auðunn
í samtali við Morgunblaðið að mótinu
loknu. »1
Þessir karlar verða
teknir í bakaríið næst
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Anna Svava Knútsdóttir, Ásta
Briem og Ómar Jabali halda til
Tógó nú í byrjun júní. Þar mun
Anna Svava starfa með SPES-
samtökunum, sem reka barnaheim-
ili fyrir börn frá nokkurra mánaða
aldri. Á meðan munu þau Ásta og
Ómar taka upp heimildarmynd um
dvölina.
„Ástu vinkonu mína, sem er kvik-
myndagerðarkona, langaði að gera
heimildarmynd og mig hefur alltaf
langað að starfa við hjálparstarf.
Við ákváðum því að slá þessu saman
og gera heimildarmynd um hjálpar-
starf. Kvikmyndagerðarmaðurinn
Ómar Jabali slóst síðan einnig í
hópinn með okkur. Við fengum vil-
yrði hjá hjónunum Nirði P. Njarð-
vík og Beru Þórisdóttur að koma og
taka þátt í hjálparstarfinu SPES
sem þau reka ásamt öðrum hjónum.
Við verðum í höfuðborginni Lomé
en þar búa 132 börn á heimili sam-
takanna. Mitt helsta verk verður að
sýna börnunum einstaklingsathygli
sem er mikilvægt til að örva þau fé-
lagslega,“ segir Anna Svava.
Stíf frönskukennsla
Þær stöllur munu dvelja í Tógó í
um þrjá mánuði og Ómar hluta tím-
ans. Tógó er frönskumælandi land
og hafa þær Anna og Ásta því báðar
verið í stífri frönskukennslu.
Anna Svava segir að lík-
legast muni hugmyndir
um hvernig myndin verði
byggð upp breytast þeg-
ar á hólminn verði komið.
Þó verði miðað að því að
segja sögu barnanna og
fylgja þeim eftir í sínu
daglega lífi. Einnig verði
rætt við starfsfólk
heimilisins til að heyra
ástæður þess að fólk
helgi líf sitt slíku
starfi. Enn sem komið er hefur hóp-
urinn ekki hlotið beina styrki til
verkefnisins en verður veitt fæði og
húsnæði af SPES á meðan á dvöl-
inni stendur. „Okkur langar til að
taka eins mikið með okkur og við
getum. Sérstaklega vantar okkur
kennslugögn til að kenna líffræði en
draumurinn væri að fara út með lík-
an af mannslíkamanum, svo að það
væri frábært ef einhver kennari
ætti gamalt dót sem hann væri
tilbúinn að láta af hendi,“ segir
Anna Svava. Börnin eru á fram-
færslu samtakanna til 18 ára aldurs
en hljóta þá áframhaldandi stuðning
þar sem 10% mánaðargreiðslna frá
styrktarforeldrum renna í há-
skólasjóð. Hér á landi styrkja nærri
50 styrktarforeldrar samtökin.
Mannslíkami í farteskinu
Heimildarmynd
gerð um SPES-
samtökin í Tógó
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjálparstarf Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir verður í sviðsljósinu þegar hún heldur til Tógó í byrjun júní.
Lýðveldið Tógó er ríki í Vestur-
Afríku og er höfuðborgin Lomé á
suðurströnd ríkisins við Benín-
flóa. Njörður P. Njarðvík átti frum-
kvæðið að stofnun SPES-
samtakanna sem er
skammstöfun fyrir heiti
samtakanna á frönsku,
Soutien Pour l’Enfance
en Souffrance. Njörður
og Bera eiginkona hans
stofnuðu samtökin í
samstarfi við frönsk vinahjón árið
2000. Samtökin fagna því áratug-
ar starfi um þessar mundir en
helsti tilgangur þeirra er að byggja
og reka þorp fyrir foreldralaus
börn. Við SPES starfar nú fólk
bæði frá Tógó og öðrum löndum
víðs vegar um heim. Samtökin
hafa aðsetur í Frakklandi en stofn-
aðar hafa verið sérstakar SPES-
deildir í fimm löndum, Íslandi,
Frakklandi, Belgíu, Tógó og Spáni.
Bygging barnaþorpa
SAMTÖKIN