Morgunblaðið - 20.06.2011, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fannst látinn
2. Vann 26 milljónir
3. Sigurðarsel fundið
4. Bjargað úr fönn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í nýjustu bók sinni fjallar Einar Már
Guðmundsson um íslenskan samtíma.
„Í þessari bók - Bankastræti núll -
fann ég skáldskapinn í veruleikanum,
það er ekkert bókmenntaform sem
slær veruleikanum við.“ »28
Morgunblaðið/Eggert
Fann skáldskapinn
í veruleikanum
Hljómsveitin
Amazing Creat-
ure spilar á Café
Rósenberg frá kl.
21 til 22 í kvöld.
Sveitin mun
spila lög af óút-
gefinni plötu
sinni, The Dark-
ness, en að sögn
hljómsveit-
armeðlima er um að ræða frekar lág-
stemmd og þung akústísk lög. Inn á
tónleikana kostar 1.000 kr.
Amazing Creature á
Café Rósenberg
Hin árlega sólstöðuganga á höfuð-
borgarsvæðinu verður gengin í Viðey
á morgun, þriðjudag. Þór Jakobsson
veðurfræðingur o.fl. leiða gönguna
en sagt verður frá sólstöðum og há-
tíðum og hefðum í tengslum við þær
auk þess sem stiklað verður á stóru í
sögu Viðeyjar. Gangan, sem tekur
tæpa tvo tíma, er ókeypis og
hefst um kl.
19.30
við Við-
eyj-
arstofu.
Allir velkomnir á
sólstöðuhátíð í Viðey
Á þriðjudag og miðvikudag N og NA 3-10 m/s, en hægari vindur
sunnanlands. Skýjað með köflum og sums staðar skúrir á S- og
SV-landi. Hiti 4 til 13 stig, mildast sunnan heiða.
Á fimmtudag og föstudag N-átt og rigning. Hiti 5 til 15 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Líkur á stöku síðdegisskúrum á Suðurlandi.
Hiti 5 til 18 stig, hlýjast SV-til en svalast við N- og A-ströndina.
VEÐUR
Emi Hallfreðsson og sam-
herjar hans í Verona
tryggðu sér í gær sæti í
ítölsku B-deildinni í fót-
bolta. Mikill hiti var í stuðn-
ingsmönnum andstæðinga
þeirra í Salernitana sem
köstuðu dósum, símum og
kínverjum inn á völlinn og
létu ófriðlega fyrir utan
leikvanginn. Þegar Morg-
unblaðið ræddi við Emil
beið hann í óvissu inni á
leikvanginum. »1
Emil og félagar
lokaðir inni á velli
Íslenska 21 árs landsliðið í knatt-
spyrnu var einu marki frá því að kom-
ast í undanúrslit Evrópukeppninnar í
Danmörku. „Ég sá fyrir mér að
draumurinn væri að rætast,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson þjálfari um
hinar æsispennandi lokamín-
útur í sigurleiknum gegn
Dönum, 3:1, í Ála-
borg. »2-3
Sá fyrir mér að draum-
urinn væri að rætast
Frjálsíþróttakonan Hafdís Sigurðar-
dóttir tók þátt í að vinna 42 stig fyrir
Ísland í Evrópubikarnum á Laug-
ardalsvellinum um helgina. Íslenska
liðið endaði þar í fjórða sæti. „Auð-
vitað hefði verið gaman að fara upp
en árangur okkar hér var samt frá-
bær. Margir bættu sig og það er ótrú-
lega góður andi í liðinu,“ sagði Hafdís
við Morgunblaðið. »4-5
Auðvitað hefði verið
gaman að fara upp
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þó að veðrið hafi verið gott sunnan-
lands í gær er enn kalt fyrir norðan.
„Kuldinn hefur verið mikill og aðeins
einu sinni hefur hitastig farið yfir tíu
gráður í júní,“ segir Bjarni Sigurður
Aðalgeirsson, bóndi á Mánárbakka á
Tjörnesi. Kuldann segir hann hafa
slæm áhrif á sprettu á túnum ekki
síður en sálarlíf norðanmanna.
Bjarni, sem segist nánast ekkert
hafa séð til sólar í 5-6 vikur, man síð-
ast eftir slíkri tíð árið 1979 þegar
veðrið var jafnvel verra. Ekki er þó
útséð um sprettu þar sem mikil væta
er í jörðinni, einungis vanti sólina.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
bendir þó á bloggi sínu á að norðan-
áttin sem hefur verið ríkjandi í júní
sé ekki vísir að slæmu sumri. Árin
1897 og 1952 einkenndust bæði af
stífri norðanátt í júní. Hitastig
beggja sumranna var nærri með-
allagi þó að þau hefðu að öðru leyti
verið ólík. Trausti segir veðurfar í
júnímánuði því engan fyrirboða um
hvernig muni viðra í júlí eða ágúst.
Kalt fyrir norðan –
heitt fyrir sunnan
Bjarni bóndi á Mánárbakka hefur
vart séð til sólar í fimm til sex vikur
Morgunblaðið/Eggert
Kuldi Embla Margrét og Hörður Sölvi þurftu að klæða sig vel þegar þau gáfu Hrússa að drekka á Þorkelshóli í Vestur-Húnavatnssýslu í gær.
Morgunblaðið/Ernir
Hiti Þessi ungi drengur klæddi af sér hitann í blíðunni í bænum gær.