Morgunblaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
FRÉTTASKÝRING
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Starfshópur ráðuneyta um eldsneyt-
isverð mun skila af sér lokaskýrslu
eftir um það bil tvær vikur. Þetta seg-
ir Huginn Freyr Þorsteinsson, að-
stoðarmaður Steingríms J. Sigfús-
sonar fjármálaráðherra, en Huginn
fer fyrir hópnum.
Steingrímur hefur þegar farið með
minnisblað fyrir ríkisstjórn sem var
unnið upp úr drögum að skýrslu
starfshópsins. Gerði hann ríkisstjórn-
inni grein fyrir hvernig vinnu hópsins
hefur verið háttað og á hvaða lausnir
hann bendir. Aðspurður vill Huginn
ekki upplýsa hverjar niðurstöðurnar
eru þar sem starfi nefndarinnar er
ekki enn lokið. Ekki náðist í Stein-
grím í gær.
Ákváðu að gera lokaskýrslu
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, gagnrýndi starfshópinn í Morg-
unblaðinu á þriðjudag og sagði að
hann hefði átt að skila niðurstöðu fyr-
ir einum og hálfum mánuði, en enn
hefði ekkert heyrst. Huginn segir
þetta í raun hvorki rétt né rangt hjá
Runólfi. Hópurinn hafi átt að skila
samantekt á vinnu sinni til fjármála-
ráðherra í maí og það hafi hann gert.
Ekki hafi verið mælt fyrir um neina
opinbera lokaskýrslu frá hópnum í
skipunarbréfi hans, en samt hafi ver-
ið ákveðið að gera slíka skýrslu. Full
þörf hafi verið á að taka málið til
heildstæðrar skoðunar.
„Það verður þá viðameiri skýrsla
sem tekur heildstætt á þróun elds-
neytisverðs í heiminum, leggur mat á
hvað er að gerast og hvað er líklegt að
gerist og ber saman eldsneytisverð á
milli landa. Líka hvernig álagningin
er hjá hinu opinbera og hvað menn
hafa gert í öðrum löndum til að mæta
vandanum sem hækkandi bensín- og
olíuverð orsakar,“ segir Huginn
Freyr.
Fulltrúar sex ráðuneyta
Hann segir það mat flestra að elds-
neytisverð haldi áfram að hækka. Í
skýrslunni sé leitað svara við því
hvernig megi bregðast við því til
langs tíma við skipulagningu sam-
göngukerfisins og svo hinu, hvernig
megi milda áhrifin af hækkuninni til
skamms tíma. „Hátt bensínverð er
komið til að vera,“ segir hann.
Hópinn skipa, auk Hugins, Stefán
Einarsson frá umhverfisráðuneytinu,
Þorsteinn Rúnar Hermannsson frá
innanríkisráðuneyti, Margrét Sæ-
mundardóttir frá efnahags- og við-
skiptaráðuneyti, Erla Sigríður Geirs-
dóttir frá iðnaðarráðuneyti og svo
Sigurður Snævarr hagfræðingur,
sem er jafnframt efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra. Sigurður var feng-
inn inn í starf hópsins nokkru eftir að
hann var skipaður, þar sem talin var
þörf á því að fá meiri hagfræðiþekk-
ingu inn í hópinn vegna þess hvaða
mynd vinnan var að taka á sig. Í
hópnum sitja því fulltrúar sex ráðu-
neyta, en þegar Steingrímur J. Sig-
fússon tilkynnti um nefndina í
febrúar hafði hann aðeins
fjögur ráðuneyti í huga.
Tryggvi Þór Herberts-
son alþingismaður hefur
lagt fram frumvarp um
lægri álögur á elds-
neyti, sem myndi
leiða til 28 króna
lækkunar á lítra-
verði bensíns og
um 20 króna
lækkunar á opin-
berum álögum á
lítrann.
Bensínskýrsla birt
eftir hálfan mánuð
Fjármálaráðherra hefur kynnt minnisblað í ríkisstjórninni
Morgunblaðið/Frikki
Fyll’ann af 95? Nefndin skoðar hvort vega má á móti hækkandi eldsneytis-
verði í bráð og svo hvernig miða má samgöngukerfið við það til langs tíma.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta var tæpt hálft kíló af sígar-
ettustubbum sem við tíndum og vor-
um einungis á annarri gangstétt-
inni,“ segir Birgir Sveinbergsson
sem tók sig til ásamt sjö ára barna-
barni sínu, Eik Baldursdóttur, og
tíndi vindlingastubba í Vesturbæ
Reykjavíkur áleiðis að miðborginni..
Birgir segir hugmyndina hafa
kviknað eftir umræðu sem hann
heyrði í danska ríkissjónvarpinu um
sígarettustubba á strætum Kaup-
mannahafnar. „Þeir segja aukningu
á sígarettustubbum á götum Kaup-
mannahafnar nema fjórum millj-
ónum á dag, svo mér datt í hug að
athuga hvað væri mikið um þá hér,“
segir Birgir og bætir við að hann
hafi jafnframt viljað vekja fólk til
umhugsunar og stuðla um leið að
bættu umhverfi.
„Það er hroðalegur sóðaskapur
að sjá þetta úti um allt,“ segir Birgir
og bætir því við að það taki stubbana
um fjögur ár að brotna niður í nátt-
úrunni.
Birgir segir miðbæ Reykjavíkur
heldur druslulegan og vísar m.a. til
tyggjóklessna á gangstéttum sem og
veggjakrots sem sé áberandi á hús-
veggjum. „Það mætti þrífa betur.
Ég sit hér á Ingólfstorgi og hér
fjúka sígarettustubbar og pappír um
allt. Það er alveg klárt að hér mætti
ganga betur um.“
Hann segist ætla að halda pok-
anum góða, sem inniheldur afrakst-
ur dagsins, þar til skilagjald fæst á
sígarettustubbum. „Ef sett er skila-
gjald á stubbana, þá verða engir
stubbar á götunni,“ segir Birgir og
mælir með skilagjaldi sem nemur
tuttugu krónum á pakka. „Við vær-
um orðin rík eftir daginn ef svo
væri,“ segir hann.
Hálft kíló af vind-
lingastubbum
af gangstéttinni
Hvetur til að sett verði á skilagjald
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Framtakssöm Birgir og barnabarn hans, Eik, hafa fengið nóg af sóða-
skapnum á götum borgarinnar og tóku því málin í sínar hendur í gær.
Andri Karl
andri@mbl.is
„Eins og spáin er núna held ég að
það verði áframhaldandi norðaust-
anátt og það verði ekkert lát á því,“
segir Trausti Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands. Í færslu
á vefsvæði hans kemur einnig fram
að hryggur yfir Grænlandi sé líkleg-
ur til að viðhalda norðlægri átt í há-
loftunum eitthvað áfram.
Einna kaldast er veður á Norð-
austurlandi og samkvæmt lang-
tímaspá á norska veðurvefnum yr.no
eiga íbúar þar ekki von á góðu. Þeg-
ar litið er til Norður-Múlasýslu verð-
ur hiti ágætur í dag og á morgun en
um helgina kólnar og í næstu viku
fer hiti varla upp fyrir tvær gráður.
Steininn tekur úr fimmtudaginn 30.
júní en þann dag er spáð snjókomu
allan sólarhringinn, hiti fer ekki upp
fyrir frostmark og á hádegi verður
tveggja gráða frost.
Setja verður þó nokkra fyrir-
vara við langtímaspár sem þessar og
þó svo að Trausti hafi séð ámóta töl-
ur segir hann að lítið geti verið að
marka spár svo langt fram í tímann.
Veðurfarið hefur mikil áhrif á
daglegt líf á svæðinu. Bjarnveig
Skaftfeld hjá ferðaþjónustu bænda á
Ytra-Álandi í Þistilfirði, milli Þórs-
hafnar og Raufarhafnar, segist ekki
mikið verða vör við ferðamenn. Hún
tekur þó fram að mikið sé bókað í
næsta mánuði og júní sé oft daufur.
„En þetta er eitt af því sem menn
verða að sætta sig við og geta ekki
breytt.“
Útlit fyrir áframhaldandi
kuldatíð á Norðausturlandi
Spáð frosti og
snjókomu undir
lok júnímánaðar
Kalt Frost og snjókoma er í spá-
kortum fyrir næstu viku á NA-landi.
Morgunblaðið/Kristján
Álögur á jarðefnaeldsneyti eru
ýmislegar. Á hvern lítra er í
fyrsta lagi lagt kolefnisgjald,
sem er 3,80 krónur á bensín en
4,35 krónur á dísil.
Einnig er lagt 23,86 króna
vörugjald á hvern bensínlítra og
þar að auki er annað sérstakt
vörugjald, sem kallast einfald-
lega bensíngjald, en það nemur
38,55 krónum á lítrann af blý-
lausu bensíni. Bensín sem not-
að er á flugvélar er hins vegar
undanþegið þessum vörugjöld-
um. Þá er lagður á 25% virðis-
aukaskattur ofan á þetta allt
saman og nemur hlutur ríkisins
þá um helmingi bensín-
verðsins. Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra
hefur sagt að ef þessi
gjöld verði lækkuð þurfi
að finna aðrar tekjur á
móti annars staðar.
Fern gjöld
á bensínið
HELMINGUR TIL RÍKISINS
Huginn Freyr
Þorsteinsson
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225