Morgunblaðið - 21.07.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011
Yfirvinnubanni flugmanna var af-
lýst með undirritun nýs kjara-
samnings milli Félags íslenskra
atvinnuflugmanna og Icelandair.
Nýi samningurinn var kynntur fé-
lagsmönnum í gær og stendur at-
kvæðagreiðsla nú yfir.
Jón Einarsson, formaður samn-
inganefndar FÍA við Icelandair,
telur félagsmenn almennt vera
sátta með nýja samninginn og
kveðst hann fremur vongóður um
að samningurinn verði sam-
þykktur í atkvæðagreiðslu. Að
sögn Jóns var ákveðnum atriðum
breytt sem ósætti ríkti um á með-
al félagsmanna. Hann segir nýja
samninginn fela í sér bætt starfs-
öryggi meðal yngri flugmanna en
það var ein helsta krafa þeirra. Er
þetta annar kjarasamningurinn
sem undirritaður er á milli full-
trúa flugmanna og Icelandair, en
fyrri samningurinn var felldur
með einungis þremur greiddum
atkvæðum. Atkvæðagreiðslu fé-
lagsmanna lýkur klukkan tíu
næstkomandi miðvikudag.
khj@mbl.is
Kosið um
kjara-
samning
Kosning Atkvæðagreiðsla um nýjan
kjarasamning stendur nú yfir.
Aukið atvinnu-
öryggi flugmanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á talsvert af fíkniefnum,
m.a. nokkra tugi kannabisplantna,
tæplega 100 gr. af amfetamíni og
rúmlega 200 gr. af hassi, í níu hús-
leitum í Hafnarfirði fyrir helgi.
Lögreglan tók einnig í sína vörslu
fjölmarga muni sem stolið var í inn-
brotum á höfuðborgarsvæðinu. Þýf-
ið er úr a.m.k. níu innbrotum, bæði í
heimahús og fyrirtæki.
Unnið er að því að koma hinum
stolnum munum aftur í réttar hend-
ur. Fimm voru handteknir í
tengslum við rannsókn lögreglunnar
á innbrotunum.
Fundu fíkni-
efni og þýfi
„Niðurstaða
fundarins var sú
að lögð verði
áhersla á að nú
þegar verði hafin
vinna við heildar-
skipulag varnar-
mannvirkja á
Markarfljótsaur-
um,“ segir Ísólfur
Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri í
Rangárþingi eystra. Hann boðaði til
fundar í gær vegna deilunnar um
farveg Markarfljóts við Fljótshlíð og
Merkurbæi undir Eyjafjöllum. „Síð-
an sameinast allir aðilar um að finna
fjármagn til að hægt verði að byggja
og styrkja varnarkerfi Markarfljóts
til framtíðar, sem þjóni hagsmunum
bæði landeigenda og allra íbúa á
svæðinu,“ segir Ísólfur. Hann segir
málið að miklu leyti velta á pen-
ingum en reynt verði að vinna það
eins hratt og framast er kostur. Sá
hængur var reyndar á að fulltrúa
Vegagerðarinnar vantaði á fundinn.
Þar kynnti Anna Runólfsdóttir,
verkfræðingur og bóndi á Fljótsdal,
hugmynd um garða sem láta fljótið
renna sem næst miðjum aurunum og
bakkavörn sunnan megin svo að sem
minnst gróið land fari undir fljótið
við allar venjulegar kringumstæður.
„Menn skoða tillöguna af mikilli
athygli,“ segir Ísólfur. Nokkur sátt
sé um hana en „menn gera sér líka
grein fyrir því að þetta kostar tals-
vert mikið,“ segir hann.
Bændur í Fljótshlíð breyttu ný-
verið farvegi árinnar við Þórólfsfell,
svo hún flæddi yfir land Stóru-
Merkur III sunnan megin árinnar
og sauðfé varð innlyksa á milli ála.
Þurfti bóndinn þar að bægja vatninu
aftur í fyrri farveg af þeim völdum.
Markarfljót
fari í miðju
farvegsins
Sátt á fundi í gær
Ísólfur Gylfi
Pálmason
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Þetta var mjög ánægjulegt. Það kom mér bara á
óvart að fá upphringingu frá þeim í borginni, að bjóða
mér í veiði,“ sagði Jónína Jóhannesdóttir eftir að hafa
krækt í maríulaxinn sinn í Elliðaánum í gær. „Ég
ákvað að skella mér í þetta og hugsaði með mér að ég
skyldi nú bara hafa gaman af þessu,“ segir Jónína,
sem ekki hefur lagt stund á stangveiði áður.
Hún starfar á skammtímavistun fyrir fötluð börn
í Álfalandi 6 í Reykjavík og völdu borgaryfirvöld hana
úr hópi starfsmanna borgarinnar að þessu sinni, til að
hljóta veiði í Elliðaánum að gjöf fyrir vel unnin störf,
sem eins konar hvunndagshetja. Svið og stofnanir
borgarinnar voru beðin um að tilnefna starfsmenn
sem væru vel að þessu komnir og var hún svo valin úr
þeim hópi.
„Ég hef unnið hjá borginni í næstum því 35 ár.
Þessi starfsemi flutti í Álfaland árið 1987 og ég hef
verið þar síðan.“ Jónína segir starfið skemmtilegt og
gefandi auk þess sem samstarfsfólk hennar sé
skemmtilegt, allt haldist þetta í hendur og geri Álfa-
landið að góðum vinnustað. Hún gerir hins vegar lítið
úr því að hún sé einhver hvunndagshetja.
Jónína reyndist sannarlega engin fiskifæla í gær,
enda var hún búin að landa fyrsta laxinum sínum um
það bil kortéri eftir að hóf veiðarnar. Fyrst var farið
að fossinum og rennt þar í nokkrar mínútur en síðan
ákveðið að hvíla hylinn, sem hafði verið undir álagi
fyrr um daginn. Þá var haldið að Breiðunni, þar sem
laxinn gleypti opinmynntur við maðkinum. Laxinn
reyndist fimm pund.
„Ég fann alveg fyrir þessu,“ segir Jónína spurð út
í viðureignina. „En það kom mér svolítið á óvart að
þetta var ekki erfiðara en þetta. Ég fékk reyndar dá-
litla hjálp í byrjun,“ segir hún, hógværðin uppmáluð
og þakkar leiðsögumanninum fyrir vel unnin störf.
Hvunndagshetja landaði
maríulaxinum á kortéri
Jónína Jóhannesdóttir, starfsmaður á skammtímavist-
un fyrir fötluð börn, hlaut laxveiði að gjöf frá borginni
Morgunblaðið/Ómar
Veiðikló Jónína var sæl með maríulaxinn en gekk þó ekki svo langt að bíta af honum veiðiuggann, eins og
hjátrúin mælir fyrir um að skuli gert. Laxinn tók maðk á Breiðunni á fimmta tímanum í gær og vó fimm pund.
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
Útsalan á fullu
Enn meira úrval
Næg bílastæði
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
60-80% afsláttur
af öllum vörum
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
ALLT AÐ 60%
Sjá
sýnisho
rn á
www.l
axdal.i
s
Bonito ehf. | Praxis | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2878 | www.praxis.is
Opið: mán. - fös. kl. 11:00-18:00
Lokað á laugardögum
Úrval af fatnaði
fyrir útileguna og
útivistina færðu
hjá okkur.
Kíkið á praxis.is