Morgunblaðið - 21.07.2011, Side 22

Morgunblaðið - 21.07.2011, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011 ✝ Kristín Hin-riksdóttir fæddist á Sauð- árkróki 25. janúar 1916. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 11. júlí 2011. Móðir Kristínar var Jóhanna Hall- grímsdóttir, f. 1887. Faðir Krist- ínar var Hinrik S. Kristjánsson, f. 1889. Systur Kristínar voru Guð- rún Þorbjörg (Gígja) f. 1917, Bjarney, f. 1919 og Valborg, f. 1927. Eftirlifandi systir Krist- ínar er Helga, f. 1923. 1934 giftist Kristín Höskuldi Geirfinnssyni f. 1898, þau skildu. Barn þeirra: Ásgeir Heiðar f. 1936. Maki 1 Hansína Jónsdóttir. Börn þeirra: a) Höskuldur Heiðar, f. 1957, eig- inkona Hildur Thorarensen. Hreinn Sigurðsson. Dóttir þeirra Sigrún Hulda, c) Einar Hrafn, f. 1975, eiginkona Sól- veig Guðfinnsdóttir. Dætur þeirra Sædís Ósk og Eyrún Inga. Maki 2 Sigríður Valdi- marsdóttir, f. 1948. 2) Andrés Halldór, f. 1949. Eiginkona Ásta Björg Björnsdóttir, f. 1955. Börn þeirra: a) Þórarinn Örn, f. 1978, eiginkona Kristín Dröfn Einarsdóttir, börn þeirra Jóhanna Lilja, Einar Andrés og Björn Helgi, b) Hall- dór Haukur, f. 1983, maki Rak- el Rut Nóadóttir, c) Andrés Ás- geir, f. 1985, maki Tinna Daníelsdóttir, dóttir þeirra Anna Bryndís, d) Jóhanna Kristín, f. 1990. 3) Halldóra, f. 1950, d. 1954. Kristín vann í 40 ár í Klæða- verslun Andrésar Andréssonar og síðar Versluninni Andrés og annaðist innkaup, afgreiðslu og allan rekstur verslunar- innar til jafns við Þórarin eig- inmann sinn, og síðar allan rekstur meðan henni entist þróttur. Útför Kristínar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 21. júlí 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Börn þeirra Mar- grét Lilja, Íris, Hanna og Oddur, b) Halldóra Elín, f. 1958, eig- inmaður Jón Steingrímsson. Dætur þeirra Hanna Björg og Heiða, c) Emil, f. 1963. 1978 eign- aðist Ásgeir Kristínu. Maki 2 Gyrit Hagman, f. 1942. Sonur hennar er Stefán Hagmann. 1949 giftist Kristín Þór- arni K.N. Andréssyni kaup- manni, f. 1911. Börn þeirra: 1) Jóhann Hinrik, f. 1947. Eiginkona 1 Sigrún Hulda Jónsdóttir. Börn þeirra: a) Guðrún Halldóra, f. 1966, eiginmaður Arnar Guð- mundsson. Dætur þeirra Hulda Björg og Arna Ýr, b) Berglind, f. 1973, eiginmaður Móðir mín elskuleg er látin í hárri elli. Hún átti einstæða ævi og farsæla og lifði miklar breyt- ingar. Hún var af fátækum bændum komin, foreldrar henn- ar Jóhanna og Hinrik nýttu tækifæri sem gáfust til að færa sig um set og bæta hag sinn, þessir flutningar voru á fardög- um. Breyting á högum þeirra varð þegar fjölskyldan flutti að Bakkaseli 1927, faðir hennar var þá orðinn veikur og var fluttur af sveitungum sínum til Akur- eyrar þar sem hann lést. Þá tvístraðist fjölskyldan, yngsta dóttirin gefin vandamönnum en eldri systurnar fjórar fóru með móður sinni eða voru hjá vanda- fólki og fóru strax að vinna fyrir sér. Mamma þeirra hélt aldrei eigið heimili eftir þetta en var ráðskona, vinnukona eða bjó hjá öðrum alla ævi. Kristín tengdamóðir mín var hjá ættingjum sín ungdómsár og vann ýmis störf eins og gengur svo sem á Vífilstöðum, Kleppi og Sjúkrahúsinu á Seyð- isfirði. Kristín vann síðan í Klæðaverslun Andrésar frá 1955 til 1995. Hún kunni að af- greiða og var gaman að sjá til hennar þegar rússnesku sjó- mennirnir komu í búðina, hún talaði við þá íslensku, þeir við hana rússnesku og þau skildu hvort annað alveg ágætlega og kaupin voru gerð. Kristín hafði tök á að ferðast um miðbik síð- ustu aldar og sá þá góðan hluta Evrópu en í hennar huga var engin borg í Evrópu Reykjavík fremri. Fjallasýn, hreinleiki, gott loft og gott fólk. Eftir að heilsu hrakaði var hún til heimilis á hjúkrunar- heimilinu Skjóli, þar sýndi hún okkur ævinlega, meðan hún gat, stolt útsýnið yfir Viðeyjarsund og hafði orð á því hve gangarnir væru bjartir og góðir og allt svo snyrtilegt. Það var ekki barlóm- ur í Kristínu, hún tók á því sem lífið færði henni með æðruleysi og léttum húmor og af því meg- um við sem eftir lifum læra. Ég þakka móður minni elsk- una og umhyggjuna og hvatn- inguna. Við þökkum starfsfólki Skjóls einstaka umhyggju öll þessi ár. Blessuð sé minning hennar. Ásta Björg og Andrés. Mig langar til að minnast elskulegrar frænku minnar, Kristínar Hinriksdóttur, sem ég hef þekkt að öllu góðu um fjölda ára bil, aldrei borið skugga á þau kynni. Hún barðist við erf- iðan sjúkdóm um margra ára bil, því stríði er lokið. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Elsku frænka mín, ég gleymi aldrei þinni góðvild. Það var ár- ið 1949-1950 sem ég kom til Reykjavíkur í fyrsta sinn. Var ég í atvinnuleit. Ég var komin nokkra mánuði á leið með frum- burð minn. Ég fékk vinnu í þvottahúsi, þar var gott að vera. Ég leigði í bragga þar sem ekk- ert salerni var. Kristín frænka komst að hvernig ástatt var fyr- ir mér og þau hjónin buðu mér að koma til sín þó plássið væri ekki mikið. Fékk góðan svefn- stað inni hjá litlu strákunum þeirra Jóhanni og Andrési. Þeg- ar ég fæddi kom hún með blóm og stóran Nóa-konfektkassa. Svo leið að ég færi heim þá lán- aði hún Þórarin, manninn sinn, til að sækja mig. Elsku frænka mín, það er svo margs að minnast og frænd- rækni þín einstök. Þú hélst jólaskemmtun heima hjá þér um jólin, þá var dansað kringum jólatréð. Þú varst ein- staklega lagin að láta öllum líða vel. Ég leit alltaf á þig sem drottningu, þú varst bæði falleg og allir jafnir hjá þér. Þú varst einstaklega góð við móður mína. Það er stutt síðan ég kom með Ástu frænku til þín. Þú minntir okkur á engil, þú varst svo fal- leg, slétt og afslöppuð. Mér finnst svo gott að eiga þessa síð- ustu minningu um þig frænka mín. Frændum mínum og eigin- konum votta ég samúð mína. Með virðingu og þakklæti minnist ég Kristínar frænku. Vertu Guði falin. Þórunn Friðriksdóttir (Tóta) Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga (Páll Árdal) Við börnin hennar Gígju kveðjum nú elstu systurina af sex systra hópi. Nú er aðeins ein þeirra á lífi, Helga, sem var sú fjórða í röðinni. Kristín var skemmtileg blanda af heimskonu sem ferð- aðist út um heim áður en það var algengt og stóð í verslunar- rekstri en leitaði jafnframt til rótanna norður í Skagafirði, sem hún ávallt hélt tryggð við, arkandi um hlíðar og móa. Kristín og Þórarinn áttu bíl og minnumst við eftirminnilegra ferða norður í land fyrir 50-60 árum. Á þeim tíma var ekki ein- falt mál að keyra norður og gekk þar ýmislegt á. Aldrei var þó gefist upp og voru þetta mikil ævintýri fyrir okkur krakkana. Það var seigla og dugnaður í þessari kynslóð sem nú er óðum að hverfa og átti Kristín gnótt af hvorutveggja. Það var kært með þeim systrum, móður okkar og Krist- ínu og hittumst við oft á góðra vina fundi, áður en ellin lagði þær að velli. Margt er í minninga heimi mun þar ljósði þitt skína englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók) Samúðarkveðjur til Ásgeirs, Jóhanns og Andrésar, tengda- dætra og afkomenda hennar. Hrafnhildur, Kolbrún og Gunnar Hámundarbörn. Hún Kristín frænka er dáin og þá rifjast upp þær góðu minningar sem henni eru tengdar. Sem barn voru jólaboðin í stóra húsinu á Vesturbrúninni ógleymanleg en þá bauð fjöl- skyldan fullt af fólki heim til sín og stærra jólatré í heimahúsi hafði ég aldrei augum litið. Þetta voru stundir sem voru eitt af tilhlökkunarefnum jólanna hjá litla guttanum mér. Það fólk sem maður um- gengst um ævina, óskylt eða frændfólk, setur allt sín merki á mann. Sumum merkjunum gleymir maður bara því þau eru ekki þess verð að halda upp á en önnur geymir maður vel og vandlega með sér alla tíð. Þeg- ar ég hef hugsað til Kristínar frænku undanfarin ár þá kalla þær hugsanir fram þá stað- reynd að þó lífið sé ekki alltaf dans á rósum er engin ástæða til að láta það stjórna lífi sínu heldur þess meiri ástæða til að taka stjórnina á lífi sínu í eigin hendur. Þetta var viðhorf Krist- ínar til lífsins og þannig minn- ingar er alltaf gott að eiga í fór- um sínum. Fyrir nokkrum mánuðum sagði móðir mín mér frá því að þegar hún var ein á eigin veg- um í Reykjavík langt gengin með mig þá fékk hún inni hjá Kristínu og Þórarni sem bjuggu í risíbúð í Hlíðunum. Á þeim tíma voru harðari skoðanir á einstæðum mæðrum og þeirra málefni oft á milli tanna fólks og það jafnvel starfsmanna sjúkrastofnana. Þegar ég síðan var kominn í heiminn og við mamma vorum á Landspítalan- um þá sendi Kristín náttúrlega stóran blómvönd til okkar án nokkurrar kveðju og þar með fóru getgáturnar meira að snú- ast um að líklega væri pabbinn á sjónum. Mitt fyrsta heimili eftir Landspítalann var síðan litla risíbúðin í Hlíðunum. Takk fyrir mig, Kristín frænka. Sturla Þengilsson. Þegar samferðafólk kveður leita minningar á hugann. Minningar mínar um Kristínu Hinriksdóttur eru góðar og kalla fram ánægju og þökk. Það er mikils virði að hafa kynnst fólki eins og henni og manni hennar Þórarni Andréssyni. Árið 1968 réðist ég til starfa á skrifstofu hjá Klæðaverslun Andrésar Andréssonar á Laugavegi 3 í Reykjavík sem var í eigu Þórarins og Krist- ínar. Fyrirtækið var nokkuð umfangsmikið. Rak saumastofu og verslanir. Aldursbil starfs- fólksins var mikið en það spillti sannarlega ekki því góða and- rúmslofti sem ríkti meðal þess. Þegar ég hugsa til baka finnst mér að vinnustaðurinn hafi mest líkst góðu og samlyndu heimili þar sem allir unnu að sama marki, að vinna fyrirtæk- inu vel og þjóna viðskiptavin- unum sem best. Starfsfólkið var ánægt og stjórnendurnir sóma- fólk sem báru hag þess fyrir brjósti. Enda tel ég að það and- rúmsloft sem mér fannst ríkja innan dyra á Laugavegi 3 og síðar í Ármúla 5 náist aldrei á vinnustað nema með góðum stjórnendum. Þegar tímar liðu minnkuðu þau hjón Kristín og Þórarinn við sig og ráku síðustu árin eina verslun á Skólavörðustíg 22a. Þar voru þau sjálf við afgreiðslu flesta daga. Þórarinn lést árið 1989 en Kristín hélt áfram rekstri verslunarinnar uns Ás- geir sonur hennar tók við eftir að heilsu hennar hrakaði. Kristín var afar dugleg og ákveðin kona. Hún var glað- lynd, frjálsleg í fasi og ákaflega skemmtileg heim að sækja. Ég færði bókhaldið fyrir þau hjón og svo Kristínu eftir lát Þór- arins. Ég kom því nokkuð oft í verslunina til þeirra vegna þeirra starfa minna. Meðan Þórarins naut við sá hann um bókhaldsgögnin. Ég kynntist Kristínu betur eftir að hún var orðin ein um reksturinn og kom oftar til hennar en áður og þá oft milli sjö og átta að morgni áður en hún þurfti að opna búð- ina og ég að mæta í aðra vinnu. Mér finnst sem við höfum báðar notið þessara stunda. Hún sagðist alltaf ánægð með að þurfa ekki að drekka morg- unkaffið ein og ég naut góðra veitinga: Kaffis sem sannarlega stóð fyrir sínu ásamt meðlæti, en mest virði var mér þó að njóta ánægjulegs spjalls við Kristínu sem lék á als oddi þessar morgunstundir. Hún hafði eins og flestir af hennar kynslóð lifað tímana tvenna, mundi líf í gömlum torfbæ, en hafði einnig ferðast talsvert og séð hallir og heimsborgir. Hún hafði svo sannarlega lifað lífinu með opinn huga og kunni frá mörgu að segja. Kristín hafði einstaka hæfileika til að sjá það spaugilega og skemmtilega í því sem á dagana hafði drifið, jafn- vel í þeim atvikum sem ein- hverjum hefðu ekki þótt skemmtileg. Hún var heims- kona fram í fingurgóma og sómdi sér vel hvar sem hún fór. Síðustu árin dvaldi Kristín á Skjóli. Þaðan bárust mér þau ummæli um hana frá konu sem þar vann að það væri hreinlega þess virði að mæta í vinnuna bara til að hitta Kristínu sem alltaf væri glöð og brosandi og bókstaflega lýsti upp daginn með sínu elskulega viðmóti. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég sonum Kristínar og fjölskyldum þeirra. Blessuð sé minning hjónanna Kristínar Hinriksdóttur og Þórarins Andréssonar. Bergdís Ósk Sigmarsdóttir. Kristín Hinriksdóttir ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ÁSA KRISTINSDÓTTIR, Grenimel 43, sem andaðist mánudaginn 11. júlí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktarfélagið Göngum saman (gongumsaman.is eða sími Krabbameinsfélagsins, 540 1990). Svavar Björnsson, Ásta Svavarsdóttir, Tómas R. Einarsson, Sigrún Svavarsdóttir, Kristín Svavarsdóttir, Sæmundur Runólfsson, Björn Þór Svavarsson, Sigrún Jóna Andradóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR LILJA HERMANNSDÓTTIR, síðast til heimilis í Hraunbæ 103, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 18. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 26. júlí kl. 13.00. Heba Gunnrún Haraldsdóttir, Una Guðlaug Haraldsdóttir, Örn Sigurðsson, Haraldur Örn Arnarson, Friðjón Arnarson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinbjörn Sigurjónsson bifreiðarstjóri frá Torfastöðum í Fljótshlíð, lést á Kirkjuhvoli sunnudaginn 17. júlí. Ásta Ingibjörg Árnadóttir Erna Marsibil Sveinbjarnardóttir, Jón Sverrir Garðarsson, Sigurlín Sveinbjarnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KRISTLEIFSSON, Dalbraut 25, áður Rofabæ 47, Reykjavík lést í faðmi fjölskyldu sinnar mánudaginn 18. júlí. Erla Bótólfsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir Smith, Peter Smith, Soffía Guðmundsdóttir Birgir Guðmundsson, Kristrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN PÉTURSSON eðlisfræðingur, Þinghólsbraut 27, Kópavogi sem lést sunnudaginn 17. júlí, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 26. júlí klukkan 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Rauða Kross Íslands í síma 570 4000. Anna Stefánsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Einar Jónsson, Dofri Jónsson, Kristrún Sigurðardóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Anders B. Jensen og barnabörn. ✝ Elskulegi faðir okkar og afi, KRISTINN Á. ÁRNASON bifvélavirki, lést á heimili sínu laugardaginn 2. júlí. Útförin fór fram í kyrrþey mánudaginn 11. júlí. Júlíus Kristinsson, Kristján Kristinsson, Egill Kristinsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.