Morgunblaðið - 21.07.2011, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011
Óhætt er að segja að Björgvin Hall-
dórsson sé einn af ástsælustu
söngvurum Íslands fyrr og síðar.
Björgvin, sem varð sextugur fyrr á
þessu ári, hefur komið víða við á
löngum ferli, en ferillinn spannar
nú hátt í 45 ár. Hann hóf ferilinn
með hljómsveitinni Bendix, og eftir
að hann var valinn poppstjarna árs-
ins árið 1969 í frægri kosningu í
Laugardalshöll var stjarna fædd.
Síðan þá hefur hann sungið með
mörgum af vinsælustu hljóm-
sveitum landsins og fengist við hin-
ar ýmsu tónlistarstefnur, s.s. rokk,
popp og gospel, en sumir segja að
Björgvin hafi komið gospel-
tónlistinni á kortið hér á landi. Þá
er Björgvin einn af frumkvöðlum
kántrítónlistar á Íslandi, en kántrí-
ið hefur fylgt honum allt frá því að
Brimkló var stofnuð árið 1972.
Brimkló spilaði kántrí-rokktónlist
að fyrirmynd Eagles, sem stofnuð
var árinu áður.
Björgvin heldur sér í kántríinu á
nýjustu plötu sinni sem ber nafnið
Leiðin heim. Þetta er önnur plata
Björgvins og Hjartagosanna, en áð-
ur hefur komið frá þeim félögum
platan Sígrænir söngvar árið 2009.
Leiðin heim inniheldur 12 lög sem
numin eru úr fjársjóði bandarískrar
alþýðutónlistar. Auk Björgvins
syngja á plötunni þau Jóhanna
Guðrún og Krummi, sonur Björg-
vins. Björgvin tileinkar Rúnari
Júlíussyni plötuna, en þeir ætluðu
alltaf að slá saman í eina plötu, en
Rúnar féll frá áður en því var kom-
ið í verk.
Söngvarinn Björgvin Halldórsson
skín alltaf í gegn, en spurningin er
hvort rödd hans passi nógu vel við
kántríið. Á köflum fannst mér eins
og hann væri að reyna of mikið og
það kemur ekki alltaf nógu vel út.
Sem dæmi um þetta má nefna lok
titillags plötunnar þegar hann reyn-
ir að fara upp í falsettuna líkt og
Roy Orbison gerði hér forðum, en
útkoman er langt frá því að vera sú
sama. Björgvin skilar samt alltaf
sínu og ég held að aðdáendur kapp-
ans verði ánægðir með þessa plötu.
Textarnir eru góðir, en tvö lög á
plötunni eru sungin með upphaf-
legum textum á frummálinu. Þá
flytur Björgvin lag eftir kúreka
norðursins, Hallbjörn Hjartarson,
en það er lagið Sannur vinur, og
gerir hann því góð skil.
Aðalfréttin á þessum diski er inn-
koma Jóhönnu Guðrúnar, sem gjör-
samlega dáleiddi mig með stórkost-
legri frammistöðu, en hún syngur
lagið Brosið ásamt Björgvini. Radd-
ir þeirra harmónera feikilega vel
saman og að mínu mati ættu þau að
íhuga alvarlega frekara samstarf.
Jóhanna stimplar sig æ meira inn
sem ein af okkar allra bestu söngv-
urum, en Björgvin tilheyrir nú þeg-
ar þeim hópi og hefur alltaf gert.
Krummi kemur líka vel út, en
hann syngur með honum karli föð-
ur sínum lagið We belong together
og endurtaka þeir því leikinn frá
því þeir sungu You belong to me.
Eiga þeir því bara eftir að syngja
Lenny Kravitz-slagarann I belong
to you til að fullkomna þrennuna.
Þetta er skemmtileg plata sem
enginn aðdáandi Björgvins verður
vonsvikinn með. Innkoma gesta-
söngvaranna er afar skemmtileg og
sannar að það skiptir ekki máli með
hverjum Björgvin syngur – útkom-
an er alltaf góð.
Kóngurinn vinnur með gosum
Björgvin og Hjartagosarnir -
Leiðin heim
bbbmn
Björgvin og Hjartagosarnir. Söngur:
Björgvin Halldórsson, Jóhanna Guðrún
og Krummi Björgvins. Upptökustjórn:
Björgvin Halldórsson og Hafþór Karls-
son. Útgefandi: Sena 2011.
RÓBERT B.
RÓBERTSSON
TÓNLIST
Bó Leiðin heim er önnur plata Björgvins og Hjartagosanna.
Charlotte Church, velska barna-
stjarnan með englaröddina, virðist
mega muna sinn fífil fegri ef marka
má fréttir af henni af vefsíðu breska
slúðurtímaritsins Now. Á rúmu ári
er Charlotte blessunin búin að bæta
á sig einum sex kílóum og ferillinn
gengur brösuglega. Þá er hún nú
einstæð móðir eftir að hafa skilið við
ruðningsmanninum Gavin Henson.
Til að bæta gráu ofan á svart náðist
síðan mynd af Charlotte, ásamt nýja
kærastanum, með nærbuxurnar á
hælunum utandyra í góðgerðarsam-
kvæmi til styrktar barnaspítala. Það
þótti ekki alveg nógu smart þó Char-
lotte segist bara hafa verið að pissa.
Er nú ýjað að því að Charlotte eigi
við áfengisvandamál að stríða en hún
hótar því hins vegar að lögsækja
Now birti tímaritið myndirnar.
Church var
bara að pissa
Enska söngkonan Adele syngur af
innlifun á plötu sinni 21 um sína eigin
ástarsorg. Adele segir í breska slúð-
urtímaritinu Now að hún kenni sjálfri
sér um að hafa glatað sambandinu við
hina einu, sönnu ást lífs síns. Sam-
bandið hafi verið einstaklega gott en
hún hafi eyðilagt það með afbrýðis-
semi og verið of þurfandi við kærast-
ann fyrrverandi. „Okkur er samt ætl-
að að vera saman en við hittumst bara
á vitlausum tíma. Kannski náum við
aftur saman í framtíðinni,“ segir
söngkonan í samtali við tímaritið og
bætir við að það megi heyra hana
gráta í lok eins lagsins á plötunni.
Eyðilagði
sambandið
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borg-
arfirði eystra fer fram í sjöunda
skiptið í sumar og hefst hún í dag.
Magni Ásgeirsson eða Magni í Á
móti sól er fæddur og uppalinn á
Borgarfirði eystra og er einn af
skipuleggjendum hátíðarinnar.
„Þetta er ekki tónlistarhátíð þannig
séð, þetta eru tónleikar. En þetta er
bara búið að vinda upp á sig í gegn-
um tíðina og nú er komin svona „off-
venue“ dagskrá, á slæmri íslensku.“
Í kvöld er öllum þeim sem kunna
eitthvað á gítarinn og geta sungið
velkomið að hertaka sviðið en á
morgun, föstudag, koma fram strák-
arnir í Valdimar en þeir hafa verið
að gera garðinn frægan undanfarið.
Einnig troða upp hljómsveitirnar
Mýri og 1860.
Þegar blaðamaður sló á þráðinn til
Magna voru hann og bróðir hans að
kasta hugmyndum fram og tilbaka
um hátíðina. „Við erum hérna í
þungum þönkum að spekúlera,“
sagði Magni. „En það er búið að
henda upp sviði og allt að gerast.
Það er gífurleg stemning í bænum,
allir að mála hús og snyrta bæinn“.
Á laugardaginn er stóri dagurinn.
Aðaltónleikar Bræðslunnar fara
fram í gamalli síldarbræðslu og
margir veglegir tónlistarmenn ætla
sér þar að halda góðri stemningu
gangandi en þeir eru Óskars-
verðlaunahafinn Glen Hansard, Jón-
as Sigurðsson og Ritvélar framtíð-
arinnar, Hjálmar, Vax og Svavar
Knútur.
Hátæknivætt tjaldstæði
Bræðslan verður í beinni útsend-
ingu á Rás 2 og geta þeir sem ekki
mæta á hátíðina hlustað á tónleikana
í útvarpinu. „Það eru margir sem
skella sér í fjörðinn en ekki allir
komast á tónleikana,“ segir Kári
Sturluson, annar skipuleggjandi.
„Þetta er auðvitað gömul síld-
arbræðsla og það heyrist því alveg
fínt úr henni og yfir fjörðinn. Hinir
geta því verið með þannig séð,“ en
aðeins 800 miðar eru í forsölu. Þó
eru um 100 miðar sem seldir verða í
dyrunum á tónleikunum. „Það hafa
verið pælingar um að vera með þetta
stærra, hafa stóra tónleika á föstu-
deginum líka, færa tónleikana undir
beran himin en þetta virkar svona.
Við ætlum því ekkert að breyta
þessu,“ segir Kári aðspurður hvort
hugmyndir um að stækka hátíðina
hafi verið í spilunum.
Magni sagði Austfirðingana
skipulagða. Hátíðin Eistnaflug væri
fyrir þungarokkið, Lunga fyrir unga
fólkið og svo Bræðslan, sem á að
vera fjölskylduhátíð. „Við viljum
hafa fjölskyldufólkið. Það er mjög
góð aðstaða hér á tjaldsvæðinu, sal-
erni, sturtur og rafmagn. Gestir
okkar eru yfirleitt með börn og okk-
ur finnst það mjög notalegt. Enda
erum við líka að halda þetta heima
hjá okkur, hérna í bænum,“ sagði
Magni. „Það eru komin smá fiðrildi í
mann fyrir þessu“.
Ættarmót með tónlistarívafi
Tónlistarhátíðin Bræðslan hefst í dag Óskarsverðlaunahafinn Glen Hansard
spilar í ár Aðaltónleikarnir á laugardag Magni með fiðrildi í maganum
Ljósmynd/Aldís Fjóla B. Ásgeirsdóttir
Kraftur Hljómsveitin 200.000 Naglbítar með Vilhelm Anton Jónsson í farabroddi spiluðu í fyrra við góðar undirtektir.
Glen Hansard stígur á svið á Bræðslunni í
ár en margir frægir einstaklingar hafa
komið þar fram síðustu árin. Má þar helst
nefna listamenn á borð við Damien Rice,
Belle & Sebastian, Emiliönu Torrini, Fan-
farlo, Lay Low, Þursaflokkinn, Pál Óskar og
Moniku, Eivör Pálsdóttur og fleiri. Hansard
er vel þekktur írskur tónlistarmaður sem
hefur unnið sér frægð meðal annars fyrir
leik sinn í söngvamyndinni Once sem kom
út árið 2006. Hansard samdi tónlist fyrir
myndina og fékk óskarsverðlaun fyrir
besta lagið árið 2007. Hann hefur einnig
verið meðlimur í hljómsveitum á borð við
The Commitment og Swell Season.
Stórstjarna á Bræðslunni
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFI