Morgunblaðið - 31.08.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Það er daglegt brauð að ríkis-stjórnin komi af fjöllum. En það
er tilbreyting að hún komi af Gríms-
stöðum á Fjöllum og ekki í hóp held-
ur tvístruð í allar áttir.
Nú væri gott að fákattasmalann
til að hotta villuráf-
andi aftur í rétt hólf.
Ríkisstjórnin hrökknæstum af hjörunum þegar
óvænt fjárfestingartækifæri barst
upp í hendur hennar.
Þó þarf ekkert að virkja, stífla eðagrafa.
Frá Kína kom maður á snærumlipurs næstum því lakkrísfram-
leiðanda og bauðst til að kaupa jörð á
margföldu því verði sem nokkrum
manni hafði dottið í hug að setja upp.
Hann ætlar að útbúa golfvöll fyriráhugamenn um höggleik í
háskaveðrum í Hummer-golfbílum,
sem mun vera ört vaxandi grein. Þá
þarf stað þar sem enginn getur vitað
hvaðan á hann stendur veðrið.
Svo vildi hann fjárfesta fyrir svosem 20 milljarða til viðbótar, til
að nefna einhverja tölu, í lúxushótel-
um á svæðinu. Frábært.
Hefði hann komið fyrr hefði hannbyggt Hörpuna á hálendinu, en
glerumgjörð hennar er einmitt kín-
verskt verk og um leið og það er
nefnt sjá allir í hendi sér hve Gríms-
staðir á Fjöllum eru upplagðir fyrir
tónlistarhöll:
Óendanleg bílastæði, magnað út-sýni, yfirfljótandi ofaníburður,
einstakur hljómburður og allt í fína
frá Kína.
Huang fjárfestir
frá Kína.
Steingrímur af
Fjöllum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 rigning
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 15 skýjað
Kirkjubæjarkl. 14 skýjað
Vestmannaeyjar 11 súld
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 8 þoka
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 skúrir
Stokkhólmur 16 skýjað
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 15 skýjað
London 17 skýjað
París 21 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 21 skýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 23 alskýjað
Montreal 20 skýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 23 alskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:07 20:50
ÍSAFJÖRÐUR 6:04 21:03
SIGLUFJÖRÐUR 5:47 20:46
DJÚPIVOGUR 5:35 20:22
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Verði sjávarútvegsfrumvarp ríkis-
stjórnarinnar óbreytt að lögum mun
það leiða til mikillar fólksfækkunar í
Vestmannaeyjum. Þetta kemur
fram í áliti bæjarráðs Vestmanna-
eyjabæjar á frumvarpinu. Þar er
lagt til að frumvarpið verði í heild
sinni dregið til baka.
Fulltrúar bæjarráðs hafa uppi
stór orð um frumvarpið í áliti sínu
sem sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefnd Alþingis fékk afhent í
gær. Þar er mögulegum áhrifum
frumvarpsins líkt við áhrifin sem
eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627
höfðu á samfélag Eyjamanna.
Segjast benda á staðreyndir
„Við höfum verið sökuð um
hræðsluáróður og það er ef til vill
rétt en staðreyndin er sú að við er-
um einfaldlega logandi hrædd,“ seg-
ir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar. Hann segir
að bæjaryfirvöld hafi lagt í mikla
vinnu við að reikna út áhrif frum-
varpsins á sveitarfélagið. Þrátt fyrir
það hafi álitinu verið mætt með
skætingi og persónulegum árásum.
Hann segir bæjaryfirvöld tilbúin að
rökræða kosti og galla frumvarps-
ins og biður um málefnalega gagn-
rýni á álitið.
„Við erum líka sökuð um hags-
munagæslu fyrir hönd útgerða en
menn gleyma því að hagsmunir íbúa
í sveitarfélögunum hanga með hags-
munum útgerða. Við munum gera
allt sem í okkar valdi stendur til að
verjast þessum árásum og við telj-
um að það sé best gert með því að
benda á staðreyndir í málinu. Og við
erum til í að fara yfir það með þeim
sem harðast beita sér en þau verða
þá að hafa vilja til að ræða við okk-
ur,“ segir Elliði.
Frumvarpið gerir ráð fyrir skerð-
ingu aflaheimilda í Eyjum um níu
þúsund þorskígildistonn á næstu
fimmtán árum eða um 15 prósent. Í
áliti bæjarráðsins kemur m.a. fram
að við núverandi tæknistig þurfi um
50 sjómenn til að veiða um níu þús-
und þorskígildistonn.
Í landi þurfi um 45 störf til að
vinna aflann til útflutnings. Því muni
um 95 missa vinnuna við veiðar og
vinnslu verði frumvarpið að lögum. Í
Eyjum sé ekki um mörg önnur störf
að ræða og því komi fátt annað til
greina en að flytja burt. Sé tekið til-
lit til afleiddra starfa er í álitinu gert
ráð fyrir að um 200 störf tapist í
heild. Það jafngildi um 10 prósent-
um starfa í Vestmannaeyjum.
4,1 milljarðs verðmætatap
Skerðing um níu þúsund þorsk-
ígildistonn samsvarar um 4,1 millj-
arði króna í verðmætum. Bæjarráð
fullyrðir að slík skerðing muni bitna
harkalega á bæjarsjóði. Þannig
muni tapaðar tekjur til útsvars
nema um 1,1 milljarði króna.
Útsvarsprósentan í Vestmanna-
eyjum sé 14,48 prósent og í sam-
ræmi við það muni samfélagið verða
af rúmlega 163 milljónum í beinum
útsvarstekjum. Til samanburðar er
nefnt í álitinu að kostnaður við
rekstur félagsþjónustu Vest-
mannaeyja árið 2011 sé áætlaður
148 milljónir króna.
Segja aukið miðstýringarvald
ráðherra leiða til spillingar
Verði sjávarútvegsfrumvarpið að
lögum er það mat bæjarráðs að sam-
keppnisstaða íslensks sjávarútvegs
verði lakari og minni hagsæld verði
innanlands. Frumvarpið geri jafn-
framt ráð fyrir stórauknu miðstýr-
ingarvaldi ráðherra sem að mati
bæjarráðs muni leiða til spillingar
og ójafnræðis. Frumvarpið færi
fiskveiðistjórnun mörg ár aftur í
tímann þegar ólympískar veiðar og
offjárfesting réðu för fremur en hóf-
söm nýting og hagkvæmni.
Eyjamenn logandi hræddir
við áhrif frumvarpsins
Eyjar Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar fer hörðum orðum um sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar í áliti sínu.
Neikvæð áhrif
» Bæjarráð Vestmannaeyja-
bæjar samþykkti mótatkvæða-
laust álit um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um endurskoðun
fiskveiðistjórnunar.
» Í álitinu er fullyrt að lög-
festing frumvarpsins leiði til
fólksflótta frá Vestmanna-
eyjum.
» Bæjarráð segir að um 200
störf muni tapast verði frum-
varpið að lögum.
Hagsmunir út-
gerða og íbúa
sagðir órjúfanlegir