Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 10
Ljósmynd/Jón Ingi Berjatími Edda Björg hreinsar bláber í eldhúsinu heima hjá sér í gær. „Mínar uppáhaldssultur eru hefð- bundnar sólberja- og rifsberja- sultur. Ég geri þær á hverju ári,“ segir Edda Björg Jónsdóttir, kenn- ari á Selfossi. „Ég er með rifsberja- og sólberjarunna út í garði. Svo er ég með hlíðaramal sem er allur í bláum berjum og ég er að prófa mig áfram með að nota þau líka. Þetta eru eins og stór bláber og vel æt. Ég er alveg hissa á að það skuli ekki vera meira talað um að nota þessi ber,“ segir Edda Björg. Hún lausfrystir aðallega berin af hlíðaramalnum og borðar með niðurskornum ferskum ávöxtum. Edda Björg er búin að sulta allt í ár og var að hreinsa bláber þegar blaðamaður hringdi í hana í gær, nýkomin úr berjamó í Grafningi. „Ég sulta lítið úr bláberjum og krækiberjum. Þau lausfrysti ég og nota með ferskum ávöxtum og svo finnst mér gott að setja ber í syk- urlegi út á hreint skyr og jógúrt.“ Edda Björg gerir vitaskuld líka rabarbarasultu og hún segir að galdurinn sé að sjóða hana lengi. „Ég læt hana malla alveg upp í sex tíma, þá verður hún dökk og fín.“ Uppáhaldssulta Eddu Bjargar Jónsdóttur Býr til hefð- bundnar berjasultur 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Þetta eru bæði handbækurfyrir foringjana, semskýra út markmið og leið-ir, og bækur fyrir skátana sjálfa. Við köllum þetta nýja sýn en gömul gildi,“ segir Ólafur Proppé, formaður fræðsluráðs skátanna og skáti til 60 ára. „Í raun erum við að fara aðeins til baka. Það er ekki verið að snúa öllu við sem áður hef- ur heitið skátastarf en það er verið að segja það upphátt að skátahreyf- ingin sé uppeldishreyfing og að það hefur ýmislegt í 100 ára sögu skát- anna, ekki bara hér á Íslandi heldur um allan heim, þróast og breyst,“ segir hann og nefnir t.d. að á Ís- landi hafi flokkakerfið, sem sé ein höfuðstoð uppeldiskerfis skáta- hreyfingarinnar, riðlast. „Hugmyndafræðin gengur út á það að litlir hópar jafningja sem við köllum skátaflokka, sem eru 6-8 einstaklingar saman, eru í raun að læra saman, upplifa hluti saman og kanna ný svið í víðasta skilningi þess orðs. Þeir eru að gerast ein- hvers konar könnuðir fyrir lífið, ekki bara úti í náttúrunni heldur alls staðar. Markmið skátahreyfing- arinnar ganga út á að gefa ein- staklingum tækifæri til að vera sjálfstæðir, virkir og ábyrgir ein- staklingar í samfélaginu.“ Mikið verk Að sögn Ólafs hefur undirbún- ingurinn að breytingunni staðið yfir í um 15 ár. „Í gegnum árin og ára- tugina hefur starfið verið endur- skoðað jafnt og þétt og ný markmið sett eins og gengur og gerist en þetta nær 15 ár aftur í tímann og er hluti af endurskoðun hjá alþjóða- hreyfingu skátanna. Það sem við er- um að gera hér núna er að þýða og staðfæra bækur sem koma frá al- þjóðaskrifstofunni, og það er verið að gera þetta út um allan heim.“ Það er mikil vinna fólgin í þýð- ingu og staðfærslu bókanna og eru ritstjórarnir yfir verkinu tveir: Ólaf- ur og Benjamín Axel Árnason. „Þetta er mikið verk og hafa um 100 manns komið að þessu hér á Ís- landi, sjálfboðaliðar af öllu mögu- legu tagi, bæði reyndir skátar en einnig fagfólk af ýmsum sviðum.“ Fordómar í garð skáta 2.500-3.000 börn og unglingar eru í 30 skátafélögum víðsvegar um Skátar eru ekki ein- ungis að hnýta hnúta Endurskoðun á starfsgrunni skáta var kynnt hjá skátafélögum um allt land í síð- ustu viku. Ástæðan fyrir breytingunni er útkoma nýrra bóka sem eiga að færa nýja sýn á skátastarfið. Undirbúningurinn að útgáfu bókanna nær um 15 ár aft- ur í tímann og að sögn Ólafs Proppé, formanns fræðsluráðs hjá Bandalagi ís- lenskra skáta og annars ritstjóra bókanna, er um að ræða nýja sýn en gömul gildi. Morgunblaðið/Golli Skátahöfðingi Ólafur Proppé hefur verið í skátunum í sextíu ár. Margir eru eflaust búnir að fara í berjamó í ár og tína allt af runnunum í garðinum. En fyrir þá sem eiga eftir að sýna þessa sjálfsbjargarviðleitni eða að vinna úr því sem þeir tíndu er vefsíðan Simnet.is/uppskriftir/ sulta.htm góður hugmyndabanki. Þarna hefur einhver snillingur sett inn fullt af uppskriftum að sultum og mauki úr alls konar hráefni. Þarna má meðal annars finna uppskriftir að bláberjasultu með döðlum, klem- entínumarmelaði, rabarbara-sítrónu- sultu og reyniberjahlaupi. Allt mjög girnilegt og gott. Það er viðeigandi að enda þennan berjadálk á vísu Björns Franzsonar: Kónguló, kónguló, bentu mér á berjamó. Fyrir bláa berjaþúfu skal ég gefa þér gull í skó, húfu græna, skarlatsskikkju, skúf úr silki’ og dillidó. Vefsíðan www.simnet.is/uppskriftir/sulta.htm Morgunblaðið/Eyþór Bláberjadöðlusulta Sultur eru gómsætar með kexi sem kjöti. Mauk- og sultuuppskriftir Stóru leikhúsin í höfuðborginni, Þjóð- leikhúsið og Borgarleikhúsið, kynntu bæði nýtt leikár fyrir stuttu. Margt spennandi verður í boði á báðum stöðum í vetur. Því er um að gera að kynna sér framboðið og fjárfesta jafnvel í áskriftarkorti ef þér finnst úrvalið gott og höfða til þín. Kortin eru í sölu núna í báðum leikhúsunum og eru hagstæðari leið en að kaupa einn og einn miða yfir veturinn. Það er líka um að gera að njóta þeirra miklu hæfileika sem þessi tvö leikhús bjóða upp á og ekki er leik- ritavalið í vetur af verri endanum. Endilega … … fáið ykkur áskriftarkort Morgunblaðið/Kristinn Barnasýning Ballið á Bessastöðum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. 300 g af bláberjum og 100 g af sykri blandað saman og sett í eldfast form. 100 g af smjöri brædd og hrært saman við 200 g kókosmjöl, 75 g hrá- sykur, 1 tsk. lyftiduft og 1 egg. Þessu er dreift yfir kökuna og bakað í ofni við 175° í u.þ.b. 20 mínútur. Borin fram með þeyttum rjóma eða sýrðum. Bláber í kókos UPPSKRIFT AÐ EFTIRRÉTTI FRÁ EDDU BJÖRGU Um síðustu helgi fór fram vinnu-stofa í súlufimi. Sænski dans- arinn og danshöfundurinn Serena Mon De Vienne kom til landsins og kenndi íslenskum súlufimiiðkendum ýmislegt nýtt í listinni. Færir kennar- ar á Íslandi kenndu einnig á viðburð- inum en meginmarkmiðið með vinnustofunni var að deila ólíkri reynslu og skapa nýjungar í þessari íþrótt og listgrein. „Serena hafði samband við mig því hún var að koma til Íslands og spurði hvort við vildum ekki vera með vinnustofu yfir helgina,“ segir Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir súlu- fimikennari um viðburðinn. „Námskeiðið var í tvo daga. Það mættu um þrjátíu í heild, fimmtán hvorn dag, en við vorum bara með tíu súlur. Serena er mjög fær dans- ari, kennir hjá stærsta stúdíóinu í Svíþjóð og við lærðum mikið af henni. Hún er mjög fær í að setja saman alls konar dans með súlum og skapa flæði í dansinum. Hún var aðallega að kynna það fyrir okkur, setja sam- an flókin danspor og kenna okkur leikhús- og sirkusmynstur. Þetta heppnaðist mjög vel og það var gaman að sjá hvað það eru marg- ar stelpur orðnar færar hér á landi,“ segir Guðrún Lára. ingveldur@mbl.is Dans Morgunblaðið/Eggert Súlufimi Frá vinstri; Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir súlufimikennari í World Class, Serena Mon De Vienne og Sólrún Fönn Þórðardóttir sem plan- aði viðburðinn með Guðrúnu, en hún kennir í Ice-Pole. Súlufimi sækir á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.