Morgunblaðið - 31.08.2011, Side 12
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þórdís Kjartansdóttir hóf lax-
veiðiferilinn glæsilega í Vatnsdalsá í
vikunni, þegar hún veiddi 100 cm
langan maríulax í hinum fræga stór-
laxastað Hnausastreng. Samkvæmt
viðmiðunarkvarðanum er um tutt-
ugu punda lax að ræða.
„Ég var nýbúinn að sýna henni
hvernig ætti að kasta með tvíhend-
unni, þegar hún skellti flugunni að
miðgrjótunum í bakkanum á móti og
þar tók þessi líka stóri drjóli,“ segir
Arnar Hjaltested leiðsögumaður
sem var Þórdísi til aðstoðar en við-
ureignin við laxinn tók að sögn hans
tæpan hálftíma.
Arnar segir að eiginmaður Þórdís-
ar hafi verið nýfarinn ásamt félaga
sínum að kasta í Hólakvörn. „Það
var svipur á köllunum þegar þeir
komu aftur og Þórdís var þá rétt bú-
in að landa tuttugu pundara!“ segir
hann.
„Mokveiðist“ í Selá
Eftir að hlýnaði aftur í Vopnafirði
hefur verið góð veiði í Selá, að sögn
Orra Vigfússonar. „Það er aftur far-
ið að mokveiðast,“ sagði hann í gær,
en veiðin í Selá hefur verið góð í
sumar og álíka og í fyrra, en þá
veiddust 2.065 laxar á stangirnar
sjö. Nú hefur verið landað hátt í
1.700 fiskum. Mikið hefur verið um
væna tveggja ára laxa í ánni og smá-
laxar í bland. „Smálaxagöngurnar
hafa þó ekki verið neitt í líkingu við
það eins og við hefðum viljað sjá
þær, en þessi niðursveifla í smálax-
inum hér helst í hendur við það sem
við erum að sjá á Írlandi, í Skotlandi
og í Noregi, og meira að segja í
Rússlandi. Eina landið þar sem er
mokveiði á Norður-Atlantshafslaxi
er Kanada, en þar hafa menn verið
að veiða betur í sumar en í nokkra
áratugi,“ segir Orri.
Veiði framar vonum
„Veiðin í Elliðaánum hefur verið
framar vonum í sumar, hún hefur
gengið mjög vel,“ segir Þorsteinn
Húnbogason, umsjónarmaður ánna.
Í fyrra veiddust 1.164 laxar í Elliða-
ánum en um miðjan dag í gær höfðu
veiðst 1.120. Síðasti formlegi
veiðidagurinn í ánum er í
dag en árnefnd veiðir síðan
á laugardag; veiðitölur
gætu því endað mjög
nálægt því sem
veiddist í fyrra.
„Það er
haugur af
laxi í ánni
og flestir
veiðimenn
fara héðan
ánægðir. Hér er
einhver besta
meðalveiði á stöng á
landinu,“ segir Þor-
steinn.
„Og þar tók þessi
líka stóri drjóli“
Ljósmynd/Arnar Hjaltested
Glæsileg byrjun Þórdís Kjartansdóttir með 100 cm maríulaxinn, sem hún veiddi í Hnausastreng í Vatnsdalsá.
Veiddi 20 punda maríulax Mjög góð veiði í Elliðaánum
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur síðustu daga setið fund ut-
anríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Helsinki. Í lok
fundar undirrituðu ráðherrarnir samkomulag um að sendifulltrúar
ríkjanna geti starfað og haft aðsetur í sendiráðum og fastanefndum hinna
ríkjanna erlendis. Samkomulagið gerir ríkjunum kleift að vera með við-
veru víðar en nú er og eykur þar með sveigjanleika í rekstri.
Fundur Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á fundi í Helsinki.
Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
MFM, matarfíknarmiðstöðin, stend-
ur fyrir opnu húsi og kynningu á
starfsemi sinni í nýjum húsakynn-
inum í Síðumúla 6 í dag milli kl. 20
og 21.30. MFM býður þeim sem
glíma við stjórnleysi í áti og þyngd
aðstoð. Miðstöðin hefur starfað í
fimm ár.
Starf MFM miðar að því að fjar-
lægja fíkn/áráttuvalda hjá þeim
sem sýna einkenni matarfíknar, að
byggja fólk upp andlega, aðstoða
það við aðlögun að heilbrigðu mat-
aræði og bjóða því einstaklingsmið-
aðan stuðning.
Matar- og sykurfíkn
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
veiddi á dögunum stærsta lax
sumarsins til þessa í Hofsá í
Vopnafirði. Var það hængur, 102
cm langur og 51 cm að ummáli,
sem Þuríður fékk í veiðistaðn-
um Rauðalæk á Black & blue
míkrókeilu með öngli númer 18.
Samkvæmt viðmiðunarkvarða
Veiðimálastofnunar ætti laxinn
að vera rúmlega 21 pund, en við-
staddir sögðu hann hafa verið
mun þyngri; svo þykkur lax hlyti
að vera nær 23 til 24 pundum.
Þuríður er vön veiðikona og
starfaði í sumar í veiðihúsinu
við Hofsá. Hún fékk stundum að
skjótast niður að á, þegar það
var glufa. „Ég veiddi líka
einn 89 cm – það er
skemmtilegra að tak-
ast á við þessa stóru,“
segir Þórdís.
Þokkaleg veiði hefur ver-
ið í Hofsá síðustu vikur, en nú
hafa um 700 laxar veiðst þar.
Veiddi 102
cm hæng
SÁ STÆRSTI Í HOFSÁ
Birgir Guðmundsson, dósent í fjöl-
miðlafræði við hug- og félags-
vísindasvið Háskólans á Akureyri
og deildarformaður félagsvísinda-
deildar, flytur í dag fyrirlestur um
íslensk dagblöð fyrir og eftir hrun-
ið undir yfirskriftinni „Fleiri fréttir
og færri auglýsingar – Íslensk dag-
blöð eftir hrun.“
Bankahrunið haustið 2008 hafði
víðtæk áhrif m.a. á auglýs-
ingamarkaðinn sem dagblöðin, sér-
staklega fríblöðin, reiða sig á. Hver
þessi áhrif voru er að hluta til svar-
að í innihaldsgreiningu sem unnin
var í sumar af Birgi og nemanda
við skólann, Kristínu Hebu Gísla-
dóttur, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlesturinn fer fram kl. 12 í
dag í Sólborg v/Norðurslóð, Há-
skólanum á Akureyri.
Fleiri fréttir og færri auglýsingar
Morgunblaðið/Golli
Dagblöð Hrunið hafði áhrif á auglýsinga-
markaðinn og þar með dagblöð.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt, að tillögu Svandísar Svav-
arsdóttur umhverfisráðherra, að hefja vinnu við hættu-
mat fyrir eldgos á Íslandi.
Áætlað er að vinnan taki 15-20 ár en fyrsti áfanginn er
verkefni til þriggja ára.
Margt bendir til að tímabil aukinnar eldvirkni sé haf-
ið, segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu, sem
kallar á margskonar viðbúnað af hálfu stjórnvalda.
Hættumatið verður unnið samkvæmt hættumats-
ramma alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar og Sameinuðu
þjóðanna en góður árangur hefur náðst í hættumati
vegna ofanflóða með þessari aðferðafræði.
Vinna að hættumati fyrir eldgos
Svandís
Svavarsdóttir
Þessa dagana eru björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
að taka inn nýja meðlimi og eru
margar sveitir með kynningarfundi
fyrir væntanlega félaga í þessari
viku.
Undanfarin ár hefur þeim sem
hefja þjálfun hjá björgunarsveitum
fjölgað mikið, sérstaklega hjá sveit-
um á höfuðborgarsvæðinu og í
stærri bæjum.
Þeim sem áhuga hafa á að taka
þátt er bent á að hafa samband við
björgunarsveitina í sínu heimahér-
aði.
Nýliðastarf hafið
„Staðan er sú að við höfum sent beiðni til mennta-
málaráðuneytisins og til stjórnar skólans um að
fara að leita einhverra sáttaleiða og jafnvel að fá
utanaðkomandi sáttaaðila inn í deiluna. Við viljum
náttúrlega fá námið í gang sem fyrst,“ segir Krist-
mundur Helgi Guðmundsson, fulltrúi nemenda
Kvikmyndaskóla Íslands.
„Við vitum ekki hver samskiptin hafa verið milli
stjórnar skólans og ráðuneytisins þannig að við
sendum ítrekun til að reyna að koma hreyfingu á
hlutina,“ segir Kristmundur.
Eru að kanna réttarstöðu sína í erfiðu máli
„Við gáfumst eiginlega upp eftir viku af símtöl-
um og bréfaskiptum við Hrannar Björn Arn-
arsson, aðstoðarmann forsætisráðherra, en Jó-
hanna hefur ekki viljað tjá sig um þetta mál,“
segir Kristmundur.
Segir hann að nemendur
vinni að því að kanna rétt-
arstöðu sína með hjálp lög-
fræðinga. Þeir séu að skoða
málið en engin endanleg svör
séu komin í þeim efnum. Rík-
isendurskoðun vinni nú að út-
tekt á skólanum sem að sögn
Kristmundar geti í besta falli
tekið þrjár vikur en í versta
falli 3-4 mánuði. Sú vinna hófst
síðasta föstudag. „Núverandi menntamálaráð-
herra þarf að semja við skólann um starfsemina
og það verður ekki gert nema eftir einhverjum
ákveðnum forsendum og það væri ekki vitlaust að
samningsaðilar byrjuðu á þeirri vinnu sem fyrst,“
segir Kristmundur. Hann segir sorglegt ef ný-
nemar þurfi að hætta við nám í skólanum þar sem
skólastarfið byggist mikið á samstarfi á milli
deilda og árganga. Námið muni skerðast verulega
án nýrra nemenda.
Vilja kynna eðli og mikilvægi námsins
„Við viljum fara að sjá að fólk tali saman. For-
gangurinn er að finna alvöru lausnir,“ segir Krist-
mundur. „Við erum ekki fólk sem finnst gaman að
vera öðru fólki til ama og viljum bara gleðja fólk.“
Þessa daga vinna nemendur að efni sem þeir von-
ast til að verði sýnt opinberlega en þeir hafa gert
samning við RÚV um sýningu mynda í haust.
„Við viljum fá að sýna hvað við getum og fyrir
hvað þetta nám stendur. Það hefur vantað rosa-
lega í umræðuna. Við höfum lent í því að verið sé
að líkja þessu námi við menntaskólanám því það
er á menntaskólastigi en námið er allt annars eðl-
is,“ segir Kristmundur. mep@mbl.is
Nemendur leita leiða til sátta
Kristmundur Helgi
Tveir sendifulltrúar Rauða kross Ís-
lands, Áslaug Arnoldsdóttir og
Magna Björk Ólafsdóttir hjúkr-
unarfræðingar, munu halda til Íraks
á morgun til starfa með Alþjóða
Rauða krossinum.
Áslaug mun dvelja í landinu í níu
mánuði og verður starf hennar fólg-
ið í heimsóknum í fangelsi, sjúkra-
hús og á geðsjúkrahús í Bagdad þar
sem unnið er að því að bæta aðbúnað
vistmanna. Magna Björk mun starfa
í þrjá mánuði í borginni Najaf. Hún
mun sjá um þjálfun lækna, hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraflutninga-
manna. Þær hafa báðar reynslu af
sendistörfum fyrir Rauða krossinn.
Tveir sendifulltrúar
Rauða krossins
til starfa í Írak
STUTT
Þuríður Björg Wiium
Árnadóttir með
laxinn stóra.