Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 14

Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Stuttar fréttir ... ● Væntingavísitala Gallup lækkaði í ágúst, þriðja mánuðinn í röð. Vísitalan lækkaði um 12 stig milli mánaða og er nú 50,1 stig. Hefur vísi- talan ekki verið lægri á þessu ári og hún er nú 20 stigum lægri en í ágúst í fyrra. Greining Íslandsbanka segir ljóst að íslenskir neytendur eigi langt í land með að vera bjartsýnir á horfur í efna- hags- og atvinnumálum en vísitalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífisins. Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri svartsýnir en bjartsýnir. Svartsýnin ríkjandi ● Gunnar Guðni Tómasson, verk- fræðingur og for- seti verk- fræðideildar Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri HRV Engineering ehf., sem er í eigu verkfræðistofanna Mannvits og Verkís. Gunnar hefur áður starfað hjá HRV og var um tíma stjórn- arformaður félagsins. Ráðinn framkvæmda- stjóri HRV Engineering ● 1,2 milljarða króna hagnaður var af rekstri Eimskipafélags Íslands fyrstu sex mánuði ársins. Á öðrum ársfjórð- ungi var hagnaðurinn 300 milljónir króna. Heildareignir félagsins í lok júní voru 47,8 milljarðar króna og var eiginfjár- hlutfall 58,7%. Vaxtaberandi skuldir voru 10,9 milljarðar króna. Í tilkynningu frá Eimskipi kemur fram að í júlí hafi nýju skipi verið bætt við flota félagsins. Skipið Skógafoss muni þjóna Ameríku- og Kanadasiglingum fé- lagsins, ásamt Reykjafossi, og styrkja þannig flutningakerfið á þessu mark- aðssvæði. 300 milljóna hagnaður á öðrum ársfjórðungi Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Héraðsdómur Reykjavíkur hefur skipað Valdimar Guðnason, löggiltan endurskoðanda, sem sérstakan matsmann á afkomu og efnahags- stöðu Fons hf. á árunum fyrir gjald- þrot fyrirtækisins. Þrotabúið hefur, undir stjórn skiptastjórans Óskars Sigurðssonar, höfðað nokkur riftunarmál vegna greiðslna frá Fons til Eignarhalds- félagsins Fengs hf., Jóhannesar Kristinssonar, Matthews Holding S.A. og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Deilt um gjaldfærni Fons Vill skiptastjóri meina að félagið hafi í raun verið ógjaldfært þegar þessar greiðslur voru inntar af hendi og því sé hægt að rifta þeim. Varn- araðilar í málunum halda því gagn- stæða fram og því var matsmaðurinn fenginn til að leggja mat á raunaf- komu og efnahagsstöðu Fons á þess- um tíma. Mun hann skoða bókhald og reikninga fyrirtækisins fyrir árin 2005 til 2008, að því er Óskar segir. „Nauðsynlegt er að fá formlega úr því skorið hver staða félagsins var, því verjendur í riftunarmálunum bera því við að það hafi verið gjald- fært. Við teljum hins vegar að árs- reikningar Fons sýni ekki rétta stöðu fyrirtækisins. Þar voru til dæmis færðar áætlaðar tekjur frá dótturfélögum, sem svo síðar kom í ljós að voru mun lægri.“ Deilur hafa staðið milli aðila í mál- inu um hvaða mann ætti að fá til að meta fjárhagsstöðu Fons, en sam- komulag varð um að Valdimar yrði skipaður. Bækur Fons grandskoðaðar Morgunblaðið/Sverrir Fyrirtæki Fons var lengi að meginhluta í eigu fjárfestisins Pálma Haralds- sonar, en átti einnig í nánum viðskiptatengslum við FL Group og Glitni.  Dómkvaddur matsmaður fenginn til að meta raunverulega afkomu og eigna- stöðu Fons á árunum 2005-2008  Forsenda fyrir framhaldi á riftunarmálum Riftanir » Þrotabú Fons hefur höfð- að fjöldamörg riftunarmál gegn fyrrum eigendum, stjórnarmönnum og félögum þeirra vegna greiðslna sem inntar voru af hendi fyrir gjaldþrot fyrirtækisins árið 2009. » Vill skiptastjóri meina að félagið hafi ekki verið gjald- fært þegar greiðslurnar fóru fram, en verjendur mótmæla því. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Í frétt á vefsíðu breska fjármálaeft- irlitsins (FSA), þar sem greint er frá því að þrír menn hafi samtals hlotið 19 ára fangelsisdóm fyrir svokölluð kyndiklefasvik, er minnst á íslenska Fjármálaeftirlitið sem aðila, sem FSA segist hafa reitt sig á nána sam- vinnu við og stuðning frá. Svokallaðir kyndiklefar eru félög, gjarnan í öðrum löndum, en með fölsk bresk heimilisföng. Starfsmenn þeirra hringja í fólk og bjóða því að kaupa hlutabréf. Bréfin eru gjarnan illseljanleg og of háu verði seld og í sumum tilfellum eru hlutabréfin hreinlega ekki til. Þáttur Fjármálaeftirlitsins á Ís- landi í rannsókn FSA, sem leiddi til sakfellingar yfir Tomas Wilmot og sonum hans Kevin og Christopher, fólst í að leggja fram skriflega svo- nefnda vitnayfirlýsingu í tengslum við rannsóknina. Í yfirlýsingu íslenska Fjármála- eftirlitsins er meðal annars gerð grein fyrir afgreiðslu þess á umsókn bresks fyrirtækis í eigu Tomas Wil- mot, um að fara með virkan eign- arhlut í íslensku verðbréfafyrirtæki, frá árinu 2003. Í tengslum við mat á hæfi breska fyrirtækisins og Tom- asar Wilmot til að fara með virkan eignarhlut hafði Fjármálaeftirlitið á Íslandi verið í sambandi við FSA. Niðurstaðan varð sú að Fjármála- eftirlitið á Íslandi hafnaði umsókn breska fyrirtækisins um að fara með virkan eignarhlut í íslenska verð- bréfafyrirtækinu. Í kjölfarið sagði Tomas Wilmot sig úr stjórn íslenska verðbréfafyrirtækisins. FME veitti FSA aðstoð við rannsókn á kyndiklefasvikum Reuters Svik Mennirnir þrír voru fundnir sekir um að hafa rekið fjölda svokallaðra kyndiklefa og notað þá til að hafa af breskum almenningi fé. Samtals eiga þeir að hafa svikið andvirði fimm milljarða króna út úr viðskiptavinum sínum.  Þrír Bretar sviku út fimm milljarða  Einn var í stjórn íslensks fyrirtækis                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-. +./-01 ++2-+3 3+-4.1 3+-54, +0-., +,.-/3 +-1.+, +.3-.. +2,-.+ ++1-50 +.2-+4 ++2-12 33-51. 3+-+// +0-..3 +,.-4+ +-1./2 +.,-13 +21-30 ++4-334/ ++1-,1 +.2-21 ++2-. 33-++3 3+-3+0 +0-4,1 +,4-, +-1.44 +.,-42 +21-0, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Meðalverð sem Eignasafn Seðla- banka Íslands fær fyrir 73,03% hlut sinn í tryggingafélaginu Sjóvá, ef all- ur kaupréttur verður nýttur, jafn- gildir því að heildarvirði Sjóvár sé ríflega 10 milljarðar króna. Þetta kemur fram í greinargerð Seðlabankans um söluna á Sjóvá, sem birt er á vef bankans. Seðla- bankinn seldi Stefni 52,4% hlut í Sjóvá og kaupandinn hefur jafn- framt kauprétt á 20,63% hlut til við- bótar. Í greinargerðinni er svarað ýmissi gagnrýni, sem komið hefur fram á söluferlið. Segir Seðlabankinn m.a. rangt að hagstæðasta tilboðinu í Sjóvá hafi ekki verið tekið. „Þetta er rangt í tvennum skilningi. Í fyrsta lagi var hagstæðasta tilboði tekið í upphafi þegar fyrri hópurinn vann að málinu. Sá hópur sagði sig hins vegar frá málinu og var þar með úr sögunni í þeirri mynd sem hann var. Hluti hópsins hélt áfram og kom með tvö tilboð. Annað tilboðið var jafn- hátt því tilboði sem tekið hafði verið en sem dregið var til baka, samanber það sem áður kom fram. Hitt tilboðið í þessari annarri umferð fól í sér að stærri hluti fyrirtækisins yrði seldur strax. Það tilboð var metið hagstæð- ara en hin tvö jafngildu tilboð,“ segir í greinargerðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjóvá Í greinargerð Seðlabankans um söluna á tryggingafélaginu Sjóvá er svarað ýmissi gagnrýni, sem komið hef- ur fram á söluferlið. Segir Seðlabankinn m.a. rangt að hagstæðasta tilboðinu í Sjóvá hafi ekki verið tekið. Sjóvá verðlögð á 10 milljarða króna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.