Morgunblaðið - 31.08.2011, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fram hafa komið nýjar upplýsingar um að her-
sveitir Muammars Gaddafis í Líbíu hafi framið
fjöldamorð síðustu dagana áður en uppreisnar-
menn náðu höfuðborginni Trípólí á sitt vald.
Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna
kvaðst í gær hafa miklar áhyggjur af fréttum um
„fjöldaaftökur án dóms og laga“ og sagði að svo
virtist sem „hersveitir Gaddafis hefðu framið flest
manndrápin síðustu dagana áður en þær misstu
yfirráð yfir Trípólí“. Leiðtogi hersveita upp-
reisnarmanna í Líbíu hafði sagt að hersveitir
Gaddafis hefðu myrt yfir 150 fanga áður en þær
flúðu frá höfuðborginni. Lík um 50 manna hafa
einnig fundist í hlöðu sem notuð var sem fangelsi
nálægt bækistöðvum úrvalssveita sem voru undir
stjórn eins sona Gaddafis, Khamis.
Spurður hvort hersveitir uppreisnarmann-
anna hefðu einnig framið slík grimmdarverk sagði
talsmaður stofnunarinnar að hún hefði fengið eina
eða tvær óstaðfestar fréttir um að uppreisnar-
menn hefðu tekið stríðsfanga af lífi.
Fjórar fjöldagrafir
Mohammed al-Alagi, dómsmálaráðherra
þjóðarráðs uppreisnarmannanna, segir að fjórar
fjöldagrafir hafi fundist í Líbíu, að meðtöldum lík-
unum sem fundust við bækistöðvar hersveita
Khamis í Trípólí.
Um 50 lík hafa fundist í hlöðunni og talið er
að margir þeirra, sem teknir voru af lífi, hafi verið
hermenn en neitað að berjast fyrir Muammar
Gaddafi. Verið er að leita að fleiri líkum í grennd
við hlöðuna.
Fréttamaður breska ríkisútvarpsins í Trípólí
hefur eftir sjónarvotti, sem slapp úr hlöðunni, að
150-160 manns hefðu verið skotin til bana í hlöð-
unni eða í grennd við hana. Khamis hafi sjálfur
stjórnað manndrápunum. Fulltrúar mannrétt-
indasamtakanna Human Rights Watch eru á
staðnum að afla upplýsinga um málið.
Notuðu fólk sem lifandi skildi
Fulltrúar bandarísku mannréttinda-
samtakanna „Lækna í þágu mannrétt-
inda“ hafa safnað upplýsingum um
meinta stríðsglæpi hersveita Gaddafis í
borginni Misrata áður en uppreisnar-
menn náðu henni á sitt vald í byrjun júní-
mánaðar eftir tveggja mánaða umsátur.
Fulltrúarnir ræddu við tugi borgarbúa og
söfnuðu viðamiklum upplýsingum um meinta
stríðsglæpi, m.a. aftökur án dóms og laga, gísla-
tökur, nauðganir og barsmíðar, auk þess sem
hersveitirnar hafi geymt vopn í moskum, skólum
og sölutorgum í von um að ekki yrðu gerðar loft-
árásir á vopnin.
Hersveitirnar eru einnig sagðar hafa notað
fólk sem lifandi skildi. „Fjórir sjónarvottar sögðu
að hermenn Gaddafis hefðu handtekið 107
óbreytta borgarbúa og notað þá sem skildi, til að
verja hergögn fyrir loftárásum NATO sunnan við
Misrata,“ segir í skýrslu mannréttindasamtak-
anna. „Einn faðir sagði fulltrúum samtakanna frá
því að hermenn hefðu neytt tvö ung börn hans til
að sitja á skriðdreka, hótað fjölskyldu hans og
sagt: Þið verðið hérna og ef NATO gerir árás á
okkur deyið þið líka.“
Samtökin segjast einnig hafa fengið afrit af
skjölum sem sýni að Gaddafi hafi skipað her-
mönnum sínum að svelta íbúa Misrata. Hermenn
hafi rænt matarbirgðum og komið í veg fyrir að
íbúarnir fengju matvælaaðstoð.
Fréttaveitan AP hefur eftir Richard Sollom,
aðalhöfundi skýrslunnar, að hersveitir Gaddafis
hafi beitt nauðgunum sem „vopni í stríðinu“. Ekki
sé þó vitað hversu mörgum konum og stúlkum
hafi verið nauðgað.
„Einn sjónarvottanna sagði að hermenn
Gaddafis hefðu gert barnaskóla að fangelsi þar
sem þeir munu hafa nauðgað konum og stúlkum,
þær yngstu voru 14 ára,“ segir í skýrslunni.
Á meðal stúlknanna sem var nauðgað voru
þrjár systur – 15, 17 og 18 ára gamlar. Hermt er
að faðir þeirra hafi síðan myrt stúlkurnar vegna
þess að hann hafi litið á nauðganirnar sem smán
fyrir fjölskylduna. Óttast er að fleiri slík morð hafi
verið framin á stúlkum sem var nauðgað, að sögn
mannréttindasamtakanna.
Sakaðir um fjöldamorð
og önnur grimmdarverk
Hermenn Gaddafis sakaðir um fjöldaaftökur, nauðganir og fleiri stríðsglæpi
Reuters
Ættjarðarást Uppreisnarmenn syngja þjóðsöng Líbíu á Græna torginu í Trípólí. Þjóðarráð upp-
reisnarmannanna hefur gefið hermönnum Gaddafis frest til laugardagsins kemur til að gefast upp.
Múslímar um allan heim gerðu sér
glaðan dag í gær í tilefni af Eid al-
Fitr-hátíðinni sem markar lok ram-
adan, föstumánaðar þeirra. Í ram-
adan neita múslímar sér um mat,
drykk og kynlíf frá sólarupprás til
sólarlags.
Eid al-Fitr er þriggja daga hátíð
en eiginleg hátíðahöld eru þó yfir-
leitt aðeins fyrsta daginn. Hátíðin
hefst með bæn en síðan er slegið
upp veislu. Hátíðin líkist nokkuð
jólum kristinna manna, börnin eru
þá í nýjum fötum og fólkið skiptist á
gjöfum.
Stúlka tekur hér þátt í hátíðar-
höldunum á Tahrir-torgi í Kaíró
þar sem fjöldamótmælin gegn
Hosni Mubarak, fyrrverandi ein-
ræðisherra Egyptalands, fóru fram
fyrr á árinu.
Líf og
fjör á
Eid-hátíð
Reuters
Breski rithöf-
undurinn Hunter
Davies segist
hafa safnað yfir
250 bréfum, sem
John Lennon hafi
skrifað vinum og
vandamönnum,
og ætlar að birta
þau í bók sem
kemur út á næsta
ári. Davies segir þetta í fyrsta
skipti sem Yoko Ono, ekkja Lenn-
ons, heimili að einkabréf hans séu
birt.
Rithöfundurinn segir að í bréfum
Lennons séu engar „krassandi upp-
ljóstranir“ en þau varpi ljósi á líf
hans, persónuleika hans og kímni-
gáfu.
Ætlar að birta bréf
Johns Lennons
John Lennon
Yfirmaður Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, Antonio Gut-
erres, sagði í gær að hjálparstofn-
anir þyrftu að auka neyðaraðstoð-
ina í Sómalíu til að draga úr
straumi flóttamanna til grannríkj-
anna. „Við hjálpum yfir 800.000
sómölskum flóttamönnum í löndum
í grennd við Sómalíu en við viljum
ekki að landið tæmist,“ sagði Gut-
eress. Um 12,4 milljónir manna
þurfa á aðstoð að halda vegna lang-
varandi þurrka í Austur-Afríku-
löndum og ástandið er verst í Sóm-
alíu.
Neyðaraðstoðin í
Sómalíu verði aukin
Bresk rannsókn,
sem náði til
114.000 manns,
bendir til þess að
súkkulaðiát geti
dregið úr hætt-
unni á hjarta-
sjúkdómum og
heilablóðfalli um
þriðjung. Rann-
sóknarmennirnir
vara þó við því að
of mikið súkkulaðiát geti stuðlað að
öðrum sjúkdómum, svo sem sykur-
sýki, að sögn fréttavefjar BBC. Þeir
sem borða súkkulaði eru hvattir til
að borða lítið í einu reglulega, en
forðast að „borða yfir sig“.
Súkkulaði getur
verið hollt í hófi
Getur verið gott
fyrir hjartað.
Melbourne í Ástralíu er sú borg í
heiminum sem best er að búa í,
samkvæmt árlegum lista Economist
Intelligence Unit. Vancouver í Kan-
ada hafði verið efst á listanum frá
árinu 2002 en er nú í þriðja sæti á
eftir Melbourne og Vín. Borgirnar
Harare, Port Moresby og Dhaka
eru hins vegar neðstar á listanum.
Borgirnar eru metnar út frá ýms-
um þáttum, svo sem glæpatíðni og
frammistöðu þeirra í heilbrigðis-,
menningar-, mennta- og umhverfis-
málum.
Melbourne sögð
besta borgin
Þjóðarráð uppreisnarmannanna í Líbíu mót-
mælti í gær þeirri ákvörðun alsírskra stjórn-
valda að heimila eiginkonu Muammars Gadd-
afis og þremur börnum þeirra að flýja til
Alsírs.
Þjóðarráðið krafðist þess að eiginkonan,
Safiya, dóttirin Aisha og synirnir Mohammed
og Hannibal yrðu framseld þegar í stað til
Líbíu. Stjórnin í Alsír neitaði því og
sagðist hafa leyft fólkinu að koma
þangað „af mannúðarástæðum
eingöngu“.
Stjórnin í Alsír hefur ekki viður-
kennt þjóðarráðið sem einu lög-
mætu ríkisstjórn Líbíu og segist vera
hlutlaus, en uppreisnarmennirnir saka
hana um styðja enn Muammar Gaddafi.
Ekki var vitað í gær hvar Gaddafi er
niðurkominn.
Líbíska þjóðarráðið
krefst framsals
EIGINKONA OG BÖRN GADDAFIS Í ALSÍR
Meintur málaliði Gaddafis
handtekinn.
STUTT