Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 19

Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 19
UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali ENN MEIRI m.mbl.is - V I L T U V I T A M E I R A ? Fleiri efnisflokkar, vefsjónvarp mbl, Smartland og margt fleira er meðal nýjunga sem þú getur nálgast í símanum þínum. Nú tekurðu vinsælasta vef landsins með þér hvert sem þú ferð og ert alltaf með nýjustu fréttirnar í símanum. Fáðu fréttirnar þegar þú vilt. www.m.mbl.is m.mbl.is var valinn farsímavefur ársins fyrir árið 2010. NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ENN BETUR 2011. Sjálfstæðisflokkurinn mun halda landsfund í nóvember. Megintil- gangur þess fundar ætti að vera svar við þeirri spurningu, hvaða kosti flokkurinn bjóði upp á, til að leiða þjóðina út úr núverandi efna- hagslegum ógöngum. Mikið púður hefur farið í það að tala um dugleysi ríkisstjórnarinnar, og ekki að ástæðulausu. Sjálfstæð- isflokknum hefur hins vegar ekki tekist að koma nógu vel til skila stefnumálum flokksins og þeim úr- ræðum sem flokkurinn myndi beita, kæmist hann til valda. Flokksmenn Sjálfstæðisflokksins gera þá skýru kröfu til forystu sinnar að til sé útfærð stefna flokksins og lausnir á núverandi efnahagsvanda. Í dag dugir ekki að segja að þegar við komumst til valda verður allt gott. Óljós loforð og tvíræður texti duga ekki í ástandi eins og núna ríkir og þjóðin á heimtingu á því að stærsti flokkur þjóðarinnar hafi skýra stefnu, sem fólk skilur. Gildi flokksins eru þarna, innan hans vébanda er frábært fólk sem hefur þekkingu og færni til að túlka þessi gildi og marka leiðir út úr vandanum. Allt sem þarf er að fylkja liðinu og stíga fram. Hrunið á Íslandi markar tímamót fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og marga aðra aðila. Margir kenna Sjálfstæðisflokknum alfarið um og þó það sé rangt þá var hann við stjórnartaumana og ber sína ábyrgð á ýmsu sem gerðist, hvort sem það skipti sköpum í hruninu eða ekki. Sjálfstæðisflokkurinn og forusta hans þarf því að sýna fram á að hann sé þess megnugur að leiða þjóðina á erfiðum tímum og að hann sé tilbúinn í þær breytingar sem til þarf. Málefnanefndir flokksins munu skila af sér tillögum fyrir komandi landsfund. Mikilvægt er að skila- boðin verði skýr en ekki samsuða, sem ætlað er að þóknast öllum. Niðurstöður slíkrar vinnu á lands- fundi þurfa að vera ótvíræðar og ekki eitthvert moð sem allir geta túlkað að eigin geðþótta eftirá. Ásýnd íslenskra stjórnmálaflokka í huga margra er að þeir séu orm- agryfja sundurlyndis og hags- munapots. Mörgum finnst sér mis- boðið og telja það sem frá þessum stofnunum kemur falsmynd. Það létu þeir í ljós hátt og skýrt í síð- ustu sveitarstjórnarkosningum sem sýnir að kjósendur eru tilbúnir að taka af skarið, hvort sem það hent- ar flokkunum eða ekki. Er Sjálf- stæðisflokkurinn raunverulega að bæta við sig fylgi eða er mælanleg fylgisaukning aðallega orðin til vegna aumingjaskapar ríkisstjórn- arinnar? Besta svarið við því er að tryggja að almenningur viti hver stefnumál Sjálfstæðisflokksins eru, hvað hann vill gera og hvernig á að framkvæma það. Að hann sé tilbú- inn til að tala við fólkið og hlusta á það. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að nota sína stærstu kosti, sem eru sjálfstæðisstefnan og fólkið á bak við hann. Stefna sem á sér sterkar rætur í hjarta stórs hluta þjóðar- innar og fólk sem er tilbúið að flykkja sér á bak við hana svo framarlega sem það treystir forystu flokksins til að útfæra hana þannig að hún verði þjóðinni til gæfu. Þetta er verkefni okkar sjálf- stæðisfólks; forystunnar, félaganna og einstaklinga um land allt, að ná saman um að rífa landið upp úr því fari doða og aðgerðaleysis sem við nú sitjum föst í. Um hvað á þá landsfundur að snúast:  Endurkjósa á núverandi forystu og eyða ekki tíma í eitthvað ann- að karp.  Endurskipuleggja starfið þannig að samþykkt stefna fái skilvirk- ari framgang og sterkara sam- band sé milli forystu flokksins og fólksins.  Gera á kröfu um almennar þing- kosningar svo fljótt sem auðið er.  Uppbygging atvinnulífs á Íslandi fái algeran forgang hjá rík- isstjórn og stjórnsýslu með áherslu á atvinnuuppbyggingu sem skilar virðisauka innanlands og/eða sparar gjaldeyri.  Aukning hagvaxtar nái því marki sem raunverulega skilar meiri kaupmætti og minnkandi at- vinnuleysi.  Hafna á ESB-aðild sem alger- lega ótímabærri umræðu, hvað sem síðar kann að verða.  Landsfundurinn þarf síðan að forgangsraða verkefnum með áherslu á þjóðþrifaverkefni eins og notkun endurnýjanlegrar orku fyrir samgöngutæki og skipaflota en setja í salt mál sem stuðla að sundrung í samfélaginu eins og umbyltingu á kvótakerfi og stjórnarskrármál. Stefnumál Sjálfstæðisflokksins að loknum landsfundi þurfa að vera al- veg skýr. Formaðurinn og forystan kynni hana vítt og breitt um landið í samvinnu við félögin og fólkið. Sjálfstæðisflokkurinn verði þannig tilbúinn þegar kallið kemur með skýrar lausnir sem þjóðin getur sameinast um. Sjálfstæðisflokkurinn – skýrar línur Eftir Jóhann Ísberg, Jón Atla Kristjánsson og Sigurð Þorsteinsson » Sjálfstæðisflokkur- inn verði þannig tilbúinn þegar kallið kemur með skýrar lausnir sem þjóðin getur sameinast um. Jóhann Ísberg Jóhann er útgefandi en Jón Atli og Sigurður eru ráðgjafar. Allir eru þeir sjálfstæðismenn úr Kópavogi. Jón Atli Kristjánsson Sigurður Þorsteinsson Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Vöggusæng ur Vöggusett Póstsendum Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500 www.flis.is • netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is Tólf borð í Gullsmára Spilað var á 12 borðum í Gull- smára mánudaginn 29. ágúst. Úrslit í N/S: Ólafur Oddsson – Jón Bjarnar 183 Ernst Backman – Hermann Guðmss. 181 Sigtryggur Ellertss. – Ari Þórðarson 180 Pétur Antonss. – Örn Einarsson 175 A/V Ármann Láruss. – Guðlaugur Nielsen 231 Guðrún Hinriksd. – Haukur Hannesson 187 Aðalh. Torfad. – Ragnar Ásmundss. 186 Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 185 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningur spilaður í Ásgarði, Stang- arhyl 4, mánudaginn 29. ágúst. Spilað var á 10 borðum. Meðalskor: 216 stig. Árangur N-S: Oliver Kristóferss. – Óli Gíslason 277 Bjarni Þórarinss. – Jón Lárusson 221 Sigurður Tómass. – Guðjón Eyjólfss. 219 Hlynur Antonsson – Auðunn Guðmss. 216 Árangur A-V: Oddur Jónsson – Katarinus Jónsson 259 Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrss. 256 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 247 Siguróli Jóhannss. – Auðunn Helgas. 236 Eldri borgarar Hafnarfirði Föstudaginn 26. ágúst var spilað á 10 borðum hjá FEBH með eftirfar- andi úrslit- um í N/S: Rafn Kristjánss. – Magnús Jónsson 202 Albert Þorsteinss. – Kristófer Magnúss. 200 Auðunn Guðmss. – Sigtryggur Sigurðss. 195 Ragnar Björnsson – Skarphéðinn Lýðss. 173 Jón Sigvaldason – Katarínus Jónsson 173 AV. Jóhann Benediktss. – Erla Sigurjónsd. 210 Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 197 Helgi Sigurðsson – Oddur Halldórss. 191 Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 184 Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 175 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Morgunblaðið birtir alla útgáfu- daga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í um- ræðunni eða í bréfum til blaðs- ins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna við- burði, svo sem fundi og ráðstefn- ur. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.