Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.08.2011, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 ✝ Erlingur Her-bertsson (Rein- hold Kummer) blikksmíðameistari var fæddur í Leip- zig í Þýskalandi 18. júní 1937. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 24. ágúst 2011. Foreldrar hans voru Herbert Ernst Kummer blikk- smiður, f. 1910, d. í seinni heims- styrjöldinni 1944, og Kristín Þóra Kristmundsdóttir Kummer húsmóðir, f. 1912, d. 1940, frá Rauðsdal á Barðaströnd. Systk- ini Reinholds eru Kristmundur Herbert, f. 1933, Gunnar Paul, f. 1934, og Kristjana Gísela, f. 1935. Reinhold kvæntist 25.12. 1958 eftirlifandi eiginkonu sinni Sonju Valdemarsdóttur, f. 28. ágúst 1938. Foreldrar hennar voru Egill Valdemar Egilsson vélsmiður frá Lambavatni á Rauðasandi, f. 1902, d. 1968, og k.h. Guðríður Þorsteinsdóttir frá Háholti í Gnúpverjahr., f. 1897, d. 1968. Fósturforeldrar Reinholds voru Helena A. Kum- mer hárgreiðslum., f. 1901, d. 1987, og Oddgeir Hjartarson verslunarm., f. 1900, d. 1993. Börn Reinholds og Sonju eru 1) Kristín, f. 14.7. 1956, hennar maki var Björn Oddsson, f. 1954, þau slitu samvistum. Börn Rebekka Dagný, f. 1998, dóttir Ágústs er Una Þóra, f. 1980. 5) Sonja, f. 3.2. 1964, hennar maki var Bóas Eðvaldsson, þau slitu samvistum; börn þeirra a) Hólm- fríður, f. 1985, maki Kristján Ó. Ásvaldss., f. 1986, b) Birgitta, f. 1989, maki Markús Eyþórss., f. 1986, barn þeirra Katrín Emma, f. 2011, c) Mercedes, f. 2001. Reinhold var í Leipzig til 3ja ára aldurs. Móðir hans lést úr lungnabólgu aðeins 28 ára og faðir hans var í sjóhernum og var skipið skotið niður árið 1944. Fóru systkinin á milli ætt- ingja þar til móðursystir hans á Íslandi fékk Ludwig til að hjálpa sér með að sækja börnin og koma þeim heim. Þá var Rein- hold 8 ára gamall og ferðuðust systkinin með Rauða krossinum í rúma tvo mánuði og sigldu með gamla Lagarfossi til Íslands 21.1. 1946. Hann ólst upp hjá föðursystur sinni Helenu og Oddgeiri að Hólmgarði 33. Hann stundaði fimleika hjá Ár- manni og lenti þar í sýning- arhóp. Hann nam blikksmíði við Iðnskólann í Reykjavík og vann í Glófaxa og Blikksmiðjunni Vogi í Kópavogi. Hann stofnaði Blikksmiðjuna Blikk sf. að Lind- argötu 30 upp úr 1960 og rak hana til ársins 2004. Reinhold verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 30. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 13. þeirra eru a) Ketill Valdemar, f. 1975, maki Birna S. Sig- urðard., f. 1983, barn Ketils er Sandra Björk, f. 1995, b) Þorkell Hróar, f. 1977, maki Berglind Þor- bergsd., f. 1975, börn þeirra eru Aþena Ýr, f. 1992, Venus Sara, f. 2004, Atlas Þór, f. 2007, c) Oddur, f. 1979, maki Anna Heiða Gunn- laugsd., f. 1977, börn þeirra eru Lúkas Ægir, f. 2002, Björn Benedikt, f. 2002, Kría Dís, f. 2007, d) Erlingur Reinhold, f. 1981, maki Signý Sigurðard., f. 1980, e) Agla Gauja, f. 1988, hennar dóttir Efemía Britt Víf- ilsd., f. 2008. 2) Valgerður, f. 4.2. 1958, gift Magnúsi S. Ár- mannss., f. 1956, börn þeirra a) Ármann, f. 1981, b) Bergþóra, f. 1983, maki Mikael Arnars., f. 1985. 3) Ragnar, f. 4.2. 1960, kvæntur Þóru Björk Sig- urþórsd., f. 1962, börn þeirra a) Sigurþór, f. 1980, maki Ása Hrund Ottósd., f. 1980, b) Sonja Björk, f. 1984, c) Símon Pétur, f. 1993, sonur Ragnars úr fyrra sambandi var Reinhold Páll, f. 1978, d. 1984. 4) Guðríður Dagný, f. 15.9. 1962, gift Ágústi J. Guðmundss., f. 1956, börn þeirra a) Georg Walter, f. 1988, b) Sveinn Kristófer, f. 1990, c) Elsku faðir okkar er látinn, það er svo ótrúlegt að hugsa til þess að hann sé farinn frá okkur og komi ekki aftur. Við viljum óska þér góðrar ferðar og þökkum þér fyrir allar góðu, yndislegu stundirnar sem við áttum með þér. Pabbi byrjaði ungur að ferðast, aðeins 8 ára gamall fór hann frá Leipzig í Þýskalandi til Íslands ásamt þremur systkinum sínum, Her- bert, Palla og Gíselu, þá voru þau búin að missa foreldra sína og ást- kæru ömmu (Oma eins og pabbi kallaði hana). Elsku pabbi, mikið getur tilver- an verið furðuleg hér á jörðu. Þú ólst okkur fimm systkinin upp ásamt elsku mömmu á Lindó. Það var alltaf fjör á þeim bæ og mikill gestagangur og mikið um að frændfólk utan af landi kom og gisti í stofunni heima. Þú starfaðir í þínu eigin fyrir- tæki, Blikksmiðjunni Blikk uppi í portinu heima, og mamma var heimavinnandi húsmóðir fyrstu 7 árin ykkar. Þar sem mikið er um manninn er oft glatt á hjalla og sagðar voru skemmtilegar sögur eða lesið upp úr blöðum. Við vor- um alin upp við mikinn aga og voru ákveðnar reglur á heimili okkar, sem maður bar virðingu fyrir, t.d. að vera með burstað hár, og við stelpurnar áttum að hafa fléttur í hárinu ef það var sítt og fyrir háttatímann áttum við að þvo okkur og bursta tennur. Borð- siði kenndir þú okkur og að hjálpa til á heimilinu. Þegar litið er til baka til gömlu tímanna getur maður ekki annað en brosað, þótt maður væri ekki alltaf sammála foreldrum sínum, hvað agann varðar, en við systkinin fórum frekar ung að heiman, en vel undirbúin til að takast á við lífið. Við erum öll mjög sjálfstæð, og þökk sé ykkur mömmu, þið stóðuð ykkur vel í að undirbúa okkur fyr- ir lífið. Við vorum ákaflega lánsöm að hafa ömmu og afa heima hjá okk- ur en þau bjuggu á neðri hæðinni hjá okkur allt til dauðadags, og einnig voru tvær systur ömmu uppi í risi. Þau voru dugleg að koma með okkur í ferðalög. Eitt sinn saumuðu amma og mamma risastórt tjald og var nóg svefn- pláss fyrir okkur öll. Oft var farið í helgarferðir inn í Þjórsárdal. Pabba fannst gaman að fara í berjamó og tína ber og voru farn- ar margar ferðir með stórar fötur og berjatínur sem hann hafði smíðað og mamma saumaði poka á þær. Og þegar heim var komið eftir berjaferð tók við hreinsun, sultu- og saftgerð. Þetta fannst honum skemmtilegur tími. Pabba fannst líka gaman að fara á veiðar, eitt sinn veiddi hann sel og það fannst okkur stórskemmtilegt. Lífið var ekki alltaf auðvelt fyr- ir foreldra okkar. Eini sonur þeirra var mikið á spítala á yngri árum vegna sjaldgæfs sjúkdóms á fæti. Þá er gott að eiga góða að og búa svo nálægt ættingjum sínum. Pabbi var mjög handlaginn og bjó til marga fallega hluti, s.s. ljósakrónur, kertastjaka og veggskraut úr járni. Við systkinin höfum öll meira og minna erft þessa handlagni frá honum. Hann var laginn við að gera við bíla, sparsla og sprauta. Og oft var margt um manninn á verkstæðinu þar sem ættingjar og vinir voru að koma og spjalla um alla heima og geima. Þín börn, Kristín, Valgerður og Ragnar. Pabbi og mamma voru ákaflega dugleg að ferðast um landið okkar Ísland, enda einstaklega fallegt og býður upp á svo margt til að skoða. Maður gleymir ekki úti- legunum með góðum ættingjum og vinum. Þau létu sig hafa það að fara út úr bænum næstum hverja helgi, þótt við systkinin værum bílveik. Pabbi fann fljótlega út að best væri að aka bílnum að nóttu til, þá þyrftum við ekki að stoppa eins oft á leiðinni. Eftir því sem árin liðu héldu pabbi og mamma áfram að ferðast og fóru út fyrir landsteinana, og hafa ferðast til ótalmargra landa. Þau fóru marg- ar ferðir til Þýskalands að heim- sækja þýska frændfólkið sem hann hélt alltaf sambandi við. Þau fóru til Ameríku eitt sinn og voru þar í nokkra mánuði. Fyrrverandi nágranni pabba út- vegaði honum vinnu í LA og not- uðu þau hjónin tímann til að ferðast um Ameríku. Endalaust getum við talið upp ferðirnar sem þau fóru. Og voru þau dugleg að heimsækja okkur börnin hvort sem við bjuggum úti á landi eða í útlöndum í Kaup- mannahöfn, Noregi, Jótlandi eða Þýskalandi, og höfðu gaman af að heimsækja okkur og njóta sam- verunnar með okkur. Nú þegar elsku pabbi er dáinn hefur það orðið til þess að þjappa fjölskyldunni enn meira saman. Pabbi var búinn að berjast við krabbameinið í þrjú ár. Hann var staddur í Þýskalandi hjá yngstu dóttur sinni þegar hann greindist og valdi hann að fara í aðgerðina þar. Það var á 70 ára afmælisdegi mömmu sem hann fór í aðgerðina í Hamborg. Þessi ferð átti að vera afmælisferð mömmu þar sem þau fóru á húsbílnum til Danmerkur og Þýskalands og ætluðu að vera hjá tveimur yngstu dætrum sín- um og fjölskyldum þeirra en þessi ferð breyttist í sjúkraferð. Hann var ótrúlega fljótur að jafna sig og gátu þau farið til baka mánuði seinna. Annað kom ekki til greina en að fara heim aftur á húsbílnum. Hann var vanur að segja „þessi bannsetti krabbi“. Og fleiri sjúkraferðir og aðgerðir tóku við hér heima. Pabbi og mamma voru búin að vera saman í 56 ár, en gift í 53 ár og geri aðrir betur. Þau hafa verið svo samrýnd og gert hreinlega allt saman og varla getað litið hvort af öðru í öll þessi ár. Pabbi var vanur að segja að hann ætti svo góða konu, og fannst hann vera svo heppinn. Það er ekki hægt að segja annað þar sem mamma passaði upp á hann alveg til dauðadags. Elsku mamma, okkur þykir svo ákaflega vænt um þig og viljum gera allt fyrir þig, og núna þegar pabbi er farinn í sitt ferðalag held- ur lífið áfram hjá okkur. Þú ert hetjukona, harkar missinn af þér og segir að aldrei sé neitt að hjá þér, en elskan við þekkjum þig svo vel. Þú ert líka að berjast við krabbamein, og ert í dag í lyfja- meðferð, og svo segir þú að það sé ekkert að hjá þér og brosir. Við biðjum Guð að blessa þig í sorg þinni. Þetta er mikill missir fyrir þig. Kveðja frá dætrum þínum, Dagný og Sonja. Elsku afi, með traustu handa- bandi þú tókst í hendur okkar, svo þéttingsfast að erfitt er að sleppa. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Með söknuði. Þín barnabörn, Sigurþór, Sonja Björk og Símon Pétur Kummer Ragnarsbörn Þegar við fluttum frá Eyjum vorið 1971 kynntumst við fljótlega þeim mætu hjónum Reinhold og Sonju. Heil fjörutíu ár eru liðin. Hversu dýrmætt það er að eiga góða vini í gegnum lífið. Minning- arnar eru margar og allar góðar. Reinhold átti fjórar mágkonur og stofnuðum við ásamt mökum þeirra ferðaklúbbinn „Tíu á toppnum“. Hverja helgi yfir sum- artímann voru Broncoarnir fylltir vistum og brunað út úr bænum með allan krakkaskarann. Hvað okkar maður var stoltur þegar hann leit yfir hópinn sinn, en þau hjón höfðu vinninginn og áttu fimm börn. Reinhold var mikill fjölskyldumaður, Sonja og börnin voru honum allt. Þetta var dásam- legur tími sem aldrei gleymist og er reglulega rifjaður upp á okkar árlegu þorrablótum. Reinhold og Sonja bjuggu lengst af á Lindar- götunni og þegar farið var í bæinn var oftast komið við hjá þeim, en þau voru einstaklega gestrisin og elskuleg enda gestkvæmt þar mjög. Við kveðjum nú góðan vin, en Reinhold er sá fjórði sem kveð- ur úr vinahópnum. Og góðvinum, meðan þeim endast ár, þín ástúð fyrnast mun eigi en fremst þínum kæru er sorgin sár og saknaðar bitur tregi. Hve þung eru sporin þeim í dag á þínum síðasta vegi. Svo farðu nú vel – og foldar skaut þig faðmi með vori þýðu, þar leggur minning sitt laufaskraut hjá liljunum sorgar blíðu; þér helg veitist ró, en huggun þeim, sem hrifinn þú varst frá síðu. (Steingrímur Thorsteinsson) Elsku Sonja. Við sendum þér og fjölskyldu þinni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa ykkur. Elín og Konráð. Látinn er kær vinur eftir erfið veikindi. Hann fæddist í Leipzig í A-Þýzkalandi. Foreldar hans höfðu kynnst í Reykjavík. Móðir hans kom ung stúlka frá Vest- fjörðum til að vinna fyrir sér og hann kom frá Þýskalandi og vann við að setja upp vélar í verksmiðju hér í Reykjavík. Þau felldu hugi saman og bjuggu í Leipzig. Fyrstu átta æviárunum eyddi Reinhold þar. Skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina létust báðir foreldar hans og kom hann þá til Íslands til föðursystur sinn- ar, sem var gift Íslendingi og ólst hann upp hjá henni og fjölskyldu ásamt systkinum sínum. Kynnin við Reinhold og eigin- konu hans Sonju hófust á ung- lingsárunum. Á þeim árum voru þau komin með börn og oft var farið í heimsókn til þeirra í frítíma frá námi til þess að eiga glaða stund og taka í spil. Heimili þeirra Sonju og Reinholds stóð ætíð opið og hefur gert æ síðan. Þau bjuggu mestallan búskap sinn á Lindar- götu, fyrst í félagi við foreldra Sonju og er þeir féllu frá þá héldu þau áfram búskap þar. Hin síðari ár hafa þau búið í Grafarvoginum. Reinhold var mjög hagur mað- ur og lék flestallt í höndum hans. Fyrst voru það margskonar nytja- hlutir, sem hann smíðaði, eins og stólar og borð úr smíðajárni, en fór svo að búa til ýmsa skraut- muni, sem nú prýða mörg heimili. Þó að samskiptin væru ekki mikil um miðbik ævinnar, þá var alltaf samband og kveðjur um jól. Þau komu í heimsókn í Reykholt þar sem við hjónin bjuggum. Þau hjón áttu húsbíl í mörg ár sem var óspart notaður til ferða bæði innan lands og utan. Margar voru ferðirnar vestur, til Dan- merkur og Þýzkalands, en tvær dætur þeirra bjuggu þar, hvor í sínu landinu og frændgarður í A- Þýskalandi, sem reynt var að hafa samvistir og samskipti við eftir föngum. Fyrir nokkrum árum bað ég hann að hjálpa mér með húsið mitt, en hann treysti sér ekki til þess en fékk frænda sinn til að hlaupa í skarðið og fórum við að tala um ætterni og hann tjáði mér að hann væri af Kjarnaætt og ég rak upp stór augu því ég er ein- mitt af henni líka og kannaði málið og kom þá í ljós að við vorum fimmmenningar, hann var afkom- andi dótturinnar frá Kjarna sem giftist vestur í Selárdal á 19. öld- inni. Mikið var ég ánægð með þetta. Reinhold var mikið snyrti- menni og reglusamur í öllu, sem hann tók sér fyrir hendur. Þá vil ég minnast á góðmennsku hans og hlýtt viðmót sem allir mættu hjá honum. Ævinlega þegar mig bar að garði hjá þeim hjónum hef ég mætt fallegu brosi og hlýju faðm- lagi, sem virkilega yljar manni um hjartaræturnar. Síðustu ár hafa verið erfið vegna veikinda, en þeim var tekið af æðruleysi og vilja til að reyna að þrauka og aldrei heyrðist hann kvarta. Ég og synir mínir sendum inni- legar samúðarkveðjur til Sonju, Kristínar, Valgerðar, Ragnars, Dagnýjar og Sonju yngri og allra afkomenda, sem sjá nú af ástrík- um eiginmanni, föður, afa og lang- afa. Harmur ykkar er mikill. Blessuð sé minning hans. Sigríður Bjarnadóttir. Erlingur Herbertsson (Reinhold Kummer) ✝ RagnheiðurJóna Jónas- dóttir fæddist á Hvammeyri við Tálknafjörð 25. október 1930. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Eir í Reykjavík 26. ágúst 2011. Foreldrar Ragnheiðar voru hjónin Ólafía Krist- ín Ólafsdóttir og Jónas Steinhólm Jónsson. Ragnheiður giftist Þorsteini Sigurði Ólafssyni húsasmíða- meistara hinn 14. maí 1960. Syn- ir þeirra eru tveir: 1) Ólafur Jónas, kvæntur Hönnu Dröfn Gunnarsdóttur, búsettur í Kan- ada. 2) Þorsteinn, kvæntur Guð- rúnu Guðmundsdóttur, búsettur í Danmörku. Börn Ólafs og Hönnu Drafnar eru Krisj- án Jens, fæddur á Íslandi, Heiðdís, fædd í Danmörku, Ragnheiður, fædd í Frakklandi, og Stella María, fædd í Kanada. Börn Þor- steins og Guðrúnar eru Ingibjörg Ásta, fædd á Íslandi, og Þórunn, fædd í Danmörku. Ragnheiður fór ung til mennta og starfa í Reykjavík og starfaði lengst af hjá Landssím- anum, sem talsímavörður. Útför Ragnheiðar fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 31. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Mörg látlaus ævin lífsglaum fjær, sér leynir einatt, góð og fögur, en Guði er hún allt eins kær, þótt engar fari af henni sögur. (Steingrímur Thorsteinsson) Ragnheiður Jóna Jónasdótt- ir, alltaf kölluð Heiða, var frá Höfðadal í Tálknafirði. Hún ólst þar upp við ástríki foreldra sinna Jónasar Jónssonar Stein- hólm og Ólafíu Ólafsdóttur, sem kölluð var Lóa, ásamt fóstur- bróður sínum Karli Höfðdal. Við Heiða vorum nánar og góðar vinkonur alla tíð. Við vor- um náskyldar, systkinabörn í báðar ættir, og ólumst upp hvor á sínum bænum í Tálknafirð- inum. Á þessum tíma voru smábýli reist meðfram sjónum í Tálkna- firði. Þar bjó fólk með kindur, hænsni og kýr og lifði af því sem landið og sjórinn gaf. Höfðadalur var lítið býli og naut litla fjölskyldan þar góðs af nábýlinu við Hvammeyri sem var ferjustaður þess tíma, áður en bílvegur var lagður á milli Patreksfjarðar og Tálknafjarð- ar. Farið var yfir fjörðinn í kaupstaðinn á skektu sem til var á Hvammeyri. Sundlaug var snemma byggð í Tálknafirði og var róið yfir fjörð á sundnám- skeið. Heiða átti hestinn Glæsi sem hún hafði miklar taugar til. Ég minnist ljóshærðrar glaðlegrar stúlku ríðandi á Glæsi milli bæj- anna með tíkina Buddu í föru- neyti. Jónas og Lóa fluttu á Pat- reksfjörð þegar Heiða var ung- lingur. Síðar flutti hún til Reykjavíkur og vann lengst af hjá Símanum. Hún giftist Þorsteini Ólafs- syni frá Vopnafirði og eignuðust þau tvo syni, þá Ólaf Jónas og Þorstein. Þau bjuggu fyrst í Fossvogi en þegar Árbæjar- hverfið byggðist upp fluttu þau þangað. Þar vorum við ná- grannar í á þriðja áratug. Heiða hafði fallega söngrödd og söng lengi með kirkjukór Árbæjar- kirkju. Hún var afskaplega myndarleg og drífandi húsmóð- ir eins og heimili þeirra Steina í Hraunbænum bar vitni. Hún lifði fyrir drengina sína og studdi þá og hvatti í námi og leik. Þegar ellin færðist yfir dvöldust þau Heiða og Steini saman á Hjúkrunarheimilinu Eir og nutu góðrar umönnunar. Aðfaranótt 26. ágúst fékk Heiða mín hvíld frá ellihrumleika og sofnaði í sátt við Guð og menn. Guð blessi minningu Ragn- heiðar Jónasdóttur. Halldóra Jónsdóttir. Heiða frænka mín var vin- kona og náfrænka Halldóru ömmu minnar. Þær voru báðar fæddar í Tálknafirði og ólust þar upp. Þær fluttu til Reykja- víkur og bjuggu lengi nálægt hvor annarri. Ég hef þekkt hana Heiðu frá því ég var lítil. Ég man þegar ég fermdist, það var stór og mikill dagur. Margir gestir komu, meðal annars komu þær frænkur mínar Erla og Heiða. Ég var voða ánægð að sjá þær því ég hafði ekki séð þær lengi. Nú eru þær báðar farnar. Þegar Heiða var komin með alzheimersjúkdóminn og komin upp á Eir heimsótti amma hana oft. Þegar Heiða átti 80 ára afmæli kom ég í heimsókn þangað með ömmu minni. Ég gaf henni heima- prjónaðar tátiljur sem hún skildi ekkert í hvað var og blóm sem hjúkrunarkonan setti í vasa fyrir hana. Hún starði og starði á blómin og gat ekki hætt að horfa á þau. Ég var svo ánægð með hvað hún var glöð að fá blómin. Halldóra Sigríður. Ragnheiður Jóna Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.