Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 22

Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Elsku Stella. Þeg- ar við setjumst niður til að skrifa nokkur orð til þín kemur fyrst upp í hugann hversu ósanngjarnt það er að þú, ung stúlka í blóma lífsins, skulir vera tekin frá okkur. Þú sem áttir eftir að upplifa svo margt. Mér er það minnisstætt þegar við drifum okkur í Hot yoga í vet- ur hvað þú varst einbeitt og ákveðin í að standa þig eins og þú gerðir í allri þessari erfiðu bar- áttu. Eftir tímana sátum við oft úti í bíl og spjölluðum um lífið og til- veruna. Oft barst tíska í tal t.d. ✝ Stella Víðis-dóttir fæddist á Ísafirði 30. ágúst 1987. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 18. ágúst 2011. Útför Stellu fór fram frá Akur- eyrarkirkju 26. ágúst 2011. hvernig jólakjóllinn ætti að líta út, þér fannst svo gaman að vera alltaf fín og vel tilhöfð. Kaffihúsa- ferðirnar okkar voru ekki síðri, þar sem við flettum tísku- blöðum og drukkum te. Nokkrum dögum áður en þú kvaddir heimsótti ég þig á sjúkrahúsið. Þú varst að taka þig til því þú varst á leiðinni heim til pabba þíns og mömmu í mat. Ég var að dást að krullunum þínum og þú sagðir mér að þetta væru krabbakrullur. Það sýnir vel hvað það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér. Það sem huggar okkur á þess- um erfiðu tímum er að að lokum munum við öll hittast á ný. Elsku Víðir, Jóna, Valdimar, Jón Eggert og Halldóra. Missir ykkar er mikill og megi Guð styrkja ykkur öll í sorginni. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér. Skrýtið stundum hvernig lífið er. Eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Vigdís og Guðmundur. Elsku Stella mín. Þegar við vorum ungar spurðir þú mig hvort ég héldi að ég myndi einhvern daginn, þegar ég yrði gömul kona, fletta Mogganum og sjá minning- argrein um þig og hugsa með mér að þessa konu kannaðist ég við síðan úr grunnskóla. Þarna vorum við að velta því fyrir okkur hvort við myndum halda vinkonutengsl- in um ókomin ár eða fjarlægjast með tímanum. Ekki hvarflaði að mér að aðeins 23 ára gömul myndi ég að skrifa til þín minningargrein og minnast alls þess sem við bröll- uðum saman á okkar yngri árum, rauðhærðu og masgjörnu vinkon- urnar. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig svona unga. En stað- reyndin er sú að lífið getur verið sárt og ósanngjarnt. Á þessum tímum hugsa ég til allra gömlu góðu daganna á Ólafsfirði þegar við vorum ungar. Minningarnar um okkur saman fá mig til að brosa og hlæja. Þessar minningar mun enginn geta tekið frá mér og munu þær ylja mér um hjartaræt- ur um ókomna tíð. Alltaf mun ég minnast þín, Stella mín, sem ein- staks karakters. Ég mun sakna þess svo að heyra skellihláturinn þinn skemmtilega, enda var aldrei langt í hann þegar við hittumst. Takk fyrir að gera æskuárin mín í Ólafsfirði skemmtilegri en þau hefðu annars verið. Það voru einstök forréttindi að fá að kynn- ast þér og vera vinkona þín. Guð geymi þig elsku Stella mín. Ég hlakka til að hlæja með þér þegar minn tími kemur. Hugur minn er hjá foreldrum þínum og systkinum sem sakna þín svo mikið. Megi Guð styrkja þau í sorginni. Þín vinkona, Margrét Anna Guðmundsdóttir. Ég kynntist Stellu ekki al- mennilega fyrr en árið 2009, þeg- ar við fyrst vorum báðar atvinnu- lausar á Akureyri og svo þegar við bjuggum báðar erlendis og eydd- um ófáum klukkustundum í spjall á netinu um allt og ekkert. Þessar spjallstundir undu upp á sig og fyrr en varði var ég komin í heim- sókn til Cannes og síðar meir farin að vinna fyrir Stellu og Nonna á hótelinu. Mig langar til að þakka Stellu fyrir brot af því sem hún gaf mér. Þakka henni fyrir að kenna mér enn betur að hafa húmor fyrir sjálfri mér, fyrir að kenna mér að hafa ekki of miklar áhyggjur af hlutunum heldur gera þá bara, þakka henni fyrir allar stundirnar sem við áttum í maí 2010 þegar hún sat við tölvuna í móttökunni og ég skúraði gólfið en þurfti að hætta því af því við hlógum svo mikið að ævintýrunum sem við höfðum lent í kvöldið áður. Fyrir að hafa alltaf áhuga á öllu sem ég gerði og öllu sem ég sagði, þakka henni fyrir að kenna mér að sam- gleðjast innilega – það var svo gott að segja Stellu gleðifréttir af einhverju tagi, ánægjan fyrir mína hönd var svo mikil og svo einlæg. Ég vil þakka henni fyrir besta dag ársins 2010, fyrir að hafa hugsað um mig í Cannes – farið í búð og keypt óvænt fyrir mig mat þó svo að hún skildi ekki alveg af hverju ég þyrfti að borða svona mikið. Þakka henni fyrir að vera ekki þessi væmna týpa en tárast samt þegar ég jós yfir hana væmnum aðdáunarorðunum. Þakka henni fyrir öll gælunöfnin, fyrir allar hláturstundirnar, þær voru bestar. Þakka henni fyrir að vera alveg eins og hún var og svo ófeimin við það. Þakka henni fyrir að þola ekki nefhljóðin mín við matarborðið, þau minna mig núna á hana. Fyrir þann margbrotna persónuleika sem hún bjó yfir, fyrir að kenna mér að vera sterk með styrknum og baráttuhugan- um sem hún sýndi. Fyrir að vera sífellt að biðja mig að taka myndir af sér þannig að í dag á ég ógrynni af myndum af henni sem öllum fylgja minningar. Þegar ég var farin heim aftur eftir dvölina með Stellu í Cannes og fólk spurði mig hvernig hefði verið svaraði ég alltaf – og geri enn – að þetta hefði verið skemmtilegasti mánuður sem ég hef upplifað. Stella var orðin ein af mínum bestu vinkonum. Eins ólík- ar og við vorum smullum við og áttum ómetanlega hreinskilið samband. Ef henni fannst ég vera nördaleg, þá sagði hún það við mig og öfugt. Það var reyndar í uppá- haldi hjá henni að kalla mig nörd. Mér leið svo vel í kringum hana, jafnvel eftir heimsóknir til hennar á sjúkrahúsið kom ég labbandi út með bros á vör og yfirþyrmandi magn af hlýju í hjarta. Þannig voru áhrif hennar. Elsku hjartans litríka og skemmtilega Stella mín, ég mun segja sögur af þér um ókomna tíð, nóg er nú til af þeim. Það var bara ein þú og ég dáðist að þér og geri enn. Ég er þakklát frá mínum dýpstu hjartarótum fyrir þann stórkostlega tíma sem við áttum saman og þau dýrmætu vináttu- bönd sem við áttum. Líf mitt varð auðugra eftir að þú, Fríða mín, rambaðir inn í það. Ástarkveðja frá „eiginkonunni“, Erlu þinni Karls. Ég man þegar Halldóra sagði mér að mamma hennar væri með barn í maganum. Ég skildi það að- eins á einn hátt, það var komin ný dúkka í safn okkar vinkvenna! Þegar Stella var orðin nógu gömul varð það einmitt raunin, við drösl- uðumst með hana í dúkkukerrum og vögnum um Heiðarbrúnina, ofsalega ánægðar með það að vera með svona lítið barn úti að labba. Stella var ákveðin ung kona og því leið ekki á löngu þar til við urð- um að hætta í dúkkuleiknum og leyfa henni að gegna hlutverki eldri systur dúkknanna í stað ung- barnsins. Eins og við var að búast hætti Stellu að þykja gaman að láta ráðskast svona með sig og fór hún að leika við krakka á sínum aldri. Í seinni tíð fylgdist ég með ferðalögum Stellu um heiminn í gegnum Halldóru og jafnframt í gegnum bloggin hennar Stellu. Þar mátti sjá hvað Stella var sjálf- stæð og ákveðin, enda þarf þessa eiginleika til þess að bjarga sér í ókunnum löndum. Fregnir af veikindum hennar voru sláandi og fylgdist ég með baráttu hennar við þennan erfiða sjúkdóm. Ákveðni Stellu kom þar bersýni- lega í ljós þar sem hún tókst á við baráttuna af miklum krafti. Það má með sanni segja að veg- ir Guðs séu órannsakanlegir á stundum sem þessum, þegar við kveðjum unga konu í blóma lífs- ins. Ég er þess þó fullviss að Stella sé í góðum höndum og að henni líði vel. Hún var sannkölluð hetja í mínum augum. Elsku Jóna, Víðir, Valdimar, Nonni og Halldóra, megi Guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Guð geymi þig elsku Stella. Halla Katrín Kristjánsdóttir. Fráfall ungrar, lífsglaðrar konu eins og Stellu Víðisdóttur, langt fyrir aldur fram, breytir lífi og við- horfum allra sem til hennar þekktu. Maður efast um grunninn í gangverkinu. Stella kom inn í okkar líf sem ein af stórum vina- hópi elstu barnanna okkar, Söru og Arnþórs. Eftir stúdentspróf tóku þær stöllur Stella og Sara sig saman og skipulögðu þriggja mánaða ferð til Asíu. Þær söfnuðu sér farareyri um sumarið og er dró að hausti lögðu þær af stað í mikla ævintýraferð: Indland, Víet-Nam, Malasía og fleiri lönd voru heimsótt. Stella sannfærði okkur um að allt yrði í lagi með þær tvær í þessari ferð. Stella var mjög skipulögð og eins og Sara ákveðin og fylgin sér. Ferðin varð til þess að treysta enn betur vina- böndin þeirra á milli. Tæpu ári eftir heimkomuna bauð Stella Söru að koma til sín til Frakk- lands þar sem hún vann með bróð- ur sínum í hótelrekstri. Eins og við var að búast nutu þær sín vel saman í Cannes: vinna, vinátta og leikur. Stella var heillandi og glæsileg, ung stúlka, leiftrandi bros og dill- andi hlátur, rautt flaksandi hár og glampi í augunum, hugað var að hverju smáatriði í útliti og fram- komu. Það var yndislegt að vera í kringum Stellu. Við vottum foreldrum Stellu, systkinum og öðrum aðstandend- um hennar okkar dýpstu samúð. Bjarni Gautason og Þorbjörg Ásgeirsdóttir. Við hittum Stellu fyrst á sólrík- um sumardegi fyrir tveimur árum þegar hún kom til okkar í fylgd Jóns Eggerts bróður síns þar sem við sátum úti í garði og nutum veð- urblíðunnar. Tilefnið var væntan- leg Frakklandsferð þeirra systk- ina en þau höfðu samþykkt að fara til Cannes og reka þar gistiheimili fyrir okkur. Stella var frönsku- mælandi, Jón Eggert velmennt- aður og með góða þekkingu á veit- ingarekstri og voru þau því í sameiningu ágætlega undir starf- ið búin. Það kom líka á daginn, því að þau systkinin sáu um rekstur- inn með miklum sóma og framtíð- in blasti við þeim björt og fögur. Við fyrstu kynni virtist Stella frekar hæglát og varfærin í fram- komu en um leið og hún brosti kom í ljós þessi fallega, hlýja og örlítið prakkaralega stelpa sem átti eftir að sýna svo um munaði hvílíkan styrk og mannkosti hún hafði að geyma. Það reyndi líka sannarlega á Stellu í glímunni við sín erfiðu veikindi. Framhaldið þarf ekki að fjölyrða um – það ná heldur engin orð yfir sorgina og eftirsjána sem fylgir því að missa ungt fólk og fylgjast með því hvernig einlægur og sterkur bar- áttu- og lífsvilji þarf að lúta í lægra haldi fyrir ofureflinu skelfi- lega. Nú þegar við kveðjum Stellu er stuttu sumri tekið að halla. Við söknum birtunnar og hlýjunnar og alls sem við ætluðum að gera en komumst ekki til. Þannig minnumst við líka Stellu þegar við sjáum fyrir okkur fallega, hlýja brosið hennar og framtíðina sem hún fékk ekki að njóta. Ég vil fyrir hönd okkar eigenda Kima þakka fyrir ljúf en allt of stutt kynni. Jóni Eggerti, fjölskyldu og að- standendum öllum vottum við okkar dýpstu samúð. Steinunn Þorvaldsdóttir. Stella Víðisdóttir                          ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, JÓN TRAUSTI KÁRASON fyrrv. aðalbókari Pósts og síma, Hlíðarhúsum 3, lést miðvikudaginn 24. ágúst. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13.00. Bjarghildur Stefánsdóttir, Gylfi Jónsson, Þórunn Ásgeirsdóttir, Birgir Jónsson, Dagrún Þórðardóttir, Kári Jónsson, Hermína Hermannsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN B. EINARSSON fyrrv. starfsmaður Flugleiða, lést á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11E, mánudaginn 22. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu- daginn 2. september kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsdeild 11E Landspítalanum. Kristjana Þorgilsdóttir, Aðalsteinn K. Aðalsteinsson, Indiana Sigurðardóttir, Rósmary Aðalsteinsdóttir, Guðrún K. Aðalsteinsdóttir, Haraldur R. Aðalbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA LILJA GÍSLADÓTTIR, áður til heimilis á Sunnubraut 5, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi laugar- daginn 27. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingibjörg Magnúsdóttir, Lárus Ól. Lárusson, Kristín G. Magnúsdóttir, Eyjólfur Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN ÁKI ÞÓRÐARSON fv. rafmagnseftirlitsmaður, Ársölum 1, lést á heimili sínu þriðjudaginn 16. ágúst. Útförin hefur farið fram. Þökkum vinum og vandamönnum samúð og vinarhug. Martha Sigurðardóttir, Þórður Ben Sveinsson, Karólína Kristinsdóttir, Anna Sveinsdóttir, Pétur Kristjánsson, Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir, Vignir Ólafsson, afa- og langafabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORBERGUR FRIÐRIKSSON, Aðalgötu 1, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu- daginn 28. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Jón Páll Þorbergsson, Sigurbjörg Lárusdóttir, Friðrik Þorbergsson, Þórunn María Þorbergsdóttir, Þorbergur Friðriksson, Hildur Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Hjallatúni, Vík í Mýrdal, lést á heimili sínu föstudaginn 26. ágúst. Útförin fer fram frá Stórólfshvolskirkju Hvols- velli laugardaginn 3. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasjóð Hjallatúns í Vík í Mýrdal. Jón Ellert Stefánsson, Ólafur Björn Jónsson, Lilja Harðardóttir, Kristjana Karen Jónsdóttir, Kjartan Már Benediktsson, Ragnhildur Birna Jónsdóttir,Böðvar Bjarnason, Sveinn Ásgeir Jónsson, Elísabet Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, fóstursonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR MARKÚSSON fyrrv. framkvæmdastjóri, Sléttuvegi 17, Reykjavík, f. 16. september 1929, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 22. ágúst, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13.00. Ingiríður (Inga) Árnadóttir, Guðríður Guðbrandsdóttir, Guðríður St. Sigurðardóttir, Guðbrandur Sigurðsson, Rannveig Pálsdóttir, Einar Sigurðsson, Elfa Lilja Gísladóttir, Antoníus Þ. Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.