Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Elsku Hanna. Það er svo óraunverulegt að þurfa að kveðja þig á þessari stundu en ekki hafði mig órað fyrir því að ég myndi þurfa að gera það í bráð. Ég hefði ekki heldur getað ímyndað mér þegar við heimsóttum ykkur á Soga- veginn fyrir stuttu að það yrðu okkar síðustu stundir saman. Líf- ið getur stundum verið svo ótrú- lega ósanngjarnt og þú hefðir átt að eiga svo miklu meiri tíma eftir með okkur. Ég var farin að hlakka til þess tíma þegar við myndum hittast með krílin okkar og gera eitthvað skemmtilegt saman. Þú hefur alltaf verið ein af fyrirmyndum mínum og hef ég litið mikið upp til þín í gegnum tíðina. Þegar ég var yngri leit ég eiginlega á ykkur Siggu sem systur frekar en frænkur. Það var mikið tilhlökkunarefni af minni hálfu þegar vitað var að þú værir á leiðinni í heimsókn og sérstaklega þegar þú varst feng- in til að passa okkur systkinin. Þá voru sko skemmtilegir tímar í vændum og á ég ótal margar minningar um samverustundir okkar saman. Þessar minningar fá mann annaðhvort til að hlæja eða brosa þar sem það var alltaf Hanna Lilja Vals- dóttir og Valgerður Lilja Gísladóttir ✝ Hanna LiljaValsdóttir fæddist á Fæðing- arheimilinu í Reykjavík 22. apríl 1975. Hún lést af barnsförum á Landspítala í Foss- vogi 14. ágúst 2011. Valgerður Lilja Gísladóttir fæddist 13. ágúst 2011. Hún lést 20. ágúst 2011. Útför Hönnu Lilju og dóttur hennar Valgerðar Lilju fór fram frá Grafarvogskirkju 29. ágúst 2011. Mæðgurnar voru jarð- settar í Mosfellskirkjugarði. stutt í grínið hjá þér. Ein sem er ofarlega í huga var þegar þú „rústaðir“ herberginu hans Kristjáns, að hans sögn, þegar þú viljandi færðir til nokkra hluti til að sjá viðbrögðin hjá honum. Einnig er mér minnisstæð bíó- ferð, en þær voru ófáar sem við fórum í saman, þar sem við vor- um einar í bíó og vorum næstum því búnar að læsast inni því það gleymdist að opna útidyrnar eftir sýningu. Vorum við búnar að bíða í dágóða stund þegar starfs- maður kom loksins og opnaði fyr- ir okkur. Það er erfitt að hugsa til þess að samverustundir okkar verði ekki fleiri og get ég ímyndað mér að fjölskylduboðin verði hálf tóm- leg án þín. Þú varst alveg einstök manneskja, svo lífsglöð, jákvæð og alltaf í góðu skapi og með ein- dæmum hugmyndarík og hafðir yfirleitt mörg járn í eldinum. Það var stundum eins og það kviknaði ljós þegar þú gekkst inn í her- bergi því gleðin og hamingjan geislaði gjörsamlega af þér. Ég á eftir að sakna þín ákaflega mikið og það á eftir að taka langan tíma fyrir sárin sem brotthvarf þitt olli að gróa. Ég vil þakka þér fyr- ir að vera svona stór hluti af mínu lífi og vonandi er hugsað vel um ykkur Valgerði Lilju á þeim stað sem þið eruð komnar á núna. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Edda Sif Bergmann Þorvaldsdóttir. Það er skrítið þetta líf. Ein lífsglaðasta manneskja sem ég hef þekkt á ævinni er látin. Hanna Lilja var tekin frá okkur öllum allt of snemma, þó sérstak- lega frá börnum sínum og manni sem ég votta mína dýpstu samúð og í raun baráttukveðju. Vegir okkar Hönnu Lilju lágu saman í barnaskóla í Mosfellsbæ þar sem við vorum saman í ár- gangi og þá vissi ég svona af henni, en fyrst almennilega þeg- ar við stunduðum nám saman í Menntaskólanum við Sund. Þar var fyndið samspil á milli okkar, hún að halda mér við efnið og ég að spila ofursvala gaurinn sem hafði engan tíma fyrir skólann. Einhvern veginn tókst það svona ljómandi vel og í raun áttaði ég mig ekki á því hve mér þótti vænt um hana fyrr en ég fékk sím- hringingu með þær sorgarfréttir að hún væri látin. Hennar verður sárlega saknað af öllum í ’75- árganginum í Mosfellsbæ, það er alveg ljóst. Hún hefur ásamt öðr- um verið helsta hvatakona að hittingum okkar í árganginum og gert það gríðarlega vel. Nú síðast í lok maí þegar við áttum 20 ára útskriftarafmæli úr Gagnfræða- skóla Mosfellsbæjar. Þar var Hanna Lilja mætt með sína flottu bumbu með þeim systrum innan- borðs. Þá brosti lífið við henni og ég gat ekki gert mér þennan harmleik í hugarlund. Með harm í hjarta kveð ég góða vinkonu og votta fjölskyldu hennar samúð mína. Birkir Halldórsson. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Við vottum ykkur innilega samúð kæra fjölskylda og megi guð veitta ykkur styrk. Hugur okkar er hjá ykkur. Guðbjörg Fanndal og fjölskylda. Sunnudagsmorgnar eru eru oft bestu morgnar vikunnar og þannig byrjaði einnig sunnu- dagsmorguninn 14. ágúst 2011, en þá hringdi Gísli og færði mér þessar hörmungarfréttir. Hún Hanna Lilja dó í nótt af völdum blóðtappa í lungum og telpunum var bjargað en óvíst um afdrif þeirra vegna hugsanlegs súrefn- isskorts. Nei, ekki hún Hanna Lilja, það bara getur ekki verið, fallega Hanna Lilja, orkuboltinn mikli, með brosið sitt bjarta, hún sem gaf alltaf svo mikið af sér og hvatti mann áfram. Hanna Lilja auðgaði líf mitt síðustu 10 árin og það heldur bet- ur, þrátt fyrir aldursmuninn sem á okkur var. Við kynntumst árið 2001, þá störfuðum við báðar í ferðaþjónustu og alltaf mikið um að vera, mikið fjör og mikið gam- an. Hanna Lilja var í mínum huga stórkostleg kona og alveg hreint ótrúleg stundum, vel gef- in, hugmyndabanki og einstak- lega gefandi manneskja sem mér var heiður að þekkja og eiga sem vinkonu. Fallega brosið hennar og ákefðin voru mér innblástur. Stundum var ég hissa á hvað hún nennti að vera að hvetja mig áfram, hvetja mig áfram til að takast á við nýja hluti. Ýmislegt vorum við með á prjónunum um framtíðina. Hanna Lilja leitaði oft til mín, bara svona til að fá mitt álit þegar hún fór á sem mest flugið í sinni dásamlegu ákefð, þá sagði ég við hana: Eig- um við ekki að anda djúpt nokkr- um sinnum og sjá svo til. Hanna Lilja kom í heimsókn til mín reglulega og þá fékk Guð- rún Filippía oft að koma með í svona stelpuferð og var þá kátt á hjalla hjá okkur. Mikið oft hef ég dáðst að henni Hönnu Lilju, hvernig hún tók allt föstum tök- um og skipulagði hlutina og fylgdi þeim eftir alla leið ásamt honum Gísla sínum. Hanna Lilja og Gísli voru hjón sem elskuðu hvort annað ofurheitt og tókust saman á við hvert verkefnið á fætur öðru, verkefni sem þau kláruðu með miklum sóma. Þor- kell Valur og Guðrún Filippía bera foreldrum sínum gott vitni, falleg og dugleg börn. Litlu tví- burasysturnar Sigríður Hanna og Valgerður Lilja, fæddust þessa örlagaríku nótt og börðust þær fyrir lífi sínu, en svo fór að Valgerður Lilja ákvað að fylgja mömmu sinni og hvílir nú í faðmi hennar. Í hjarta mínu er mikil sorg og hugur minn er öllum stundum hjá Gísla og börnunum sem eru nú án mömmu sinnar. Oft ræddi hún Hanna Lilja um hann Gísla sinn við mig og þá óbilandi trú sem hún hafði á honum og hann brást henni ekki, það veit ég. Ég veit að það er satt að hún var gimsteinninn í lífi hans og gerði hann að svo miklu betri manni eins og hann orðaði það sjálfur, og hann stóðst öll prófin sem hún lagði fyrir hann. Það mun Gísli einnig gera nú með miklum sóma þegar hann tekur að sér án henn- ar að leiða börnin þeirra áfram til fullorðinsára af alúð og elsku, Hönnu Lilju og Hans. Mikið er ég ríkari að hafa átt hana Hönnu Lilju Valsdóttur að vinkonu og fyrir það vil ég þakka af heilum hug. Takk fyrir allt, elsku stelpan mín. Guðrún B. Ketilsdóttir (Lilla). Meira: mbl.is/minningar Eins og segir í laginu þá skipt- ir mestu máli í lífinu hvernig þú elskar. Elskuleg vinkona okkar Hanna Lilja elskaði og var svo sannarlega elskuð. Svo ástrík í öllu sem hún gerði, hvort sem hlutverkið var elskandi eigin- kona, ástrík móðir eða um- hyggjusöm vinkona þá átti hún alltaf nóg fyrir alla. Tók öllum opnum örmum og átti einstak- lega auðvelt með að láta öllum líða vel. Fjölskyldan var það dýr- mætasta í lífi Hönnu og sam- glöddumst við vinkonu okkar svo sannarlega þegar leiðir hennar og Gísla lágu saman. Svo komu börnin, Þorkell Valur og Guðrún Filippía og við fengum að sjá hversu frábær mamma Hanna var. Við biðum spenntar eftir að sjá litlu tvíburasysturnar sem von var á, Valgerði Lilju og Sig- ríði Hönnu, bætast í hópinn. Elsku litla Valgerður Lilja fylgir nú mömmu sinni og vakir yfir pabba sínum og systkinum eins og mamma hennar svo sannar- lega gerir. Eftir standa minning- ar um yndislega manneskju og frábæra vinkonu. Einstakur húmor, opinn hugur og kómísk lífssýn Hönnu varð til þess að hún varð strax ein af okk- ar sterka vinkonuhópi þegar hún flutti í Mosfellsbæinn 12 ára gömul. Frá upphafi vorum við límdar saman allan sólarhring- inn. Vorum saman í bekk í skól- anum, saman á handboltaæfing- um og saman eftir þær. Um helgar var svo oftar en ekki búið í kjallaranum heima hjá Hönnu. Hún átti stórt og gott herbergi með sjónvarpi, sófa og hugguleg- heitum þar sem endalaust var spjallað, hlegið og dansað, horft á Grease, Monty Python og Dirty Dancing ásamt því að hlusta á Celine Dion, Eurovision og Mich- ael Bolton aftur og aftur og aft- ur … og aftur! Ekki völdum við allar sama framhaldsskóla svo samveru- stundir hópsins urðu aðeins færri þegar þangað var komið. Alltaf vorum við þó í sambandi og jafn- góðar vinkonur. Þegar við vorum allar komnar með fjölskyldur og einhverjar búandi erlendis pöss- uðum við upp á að hittast reglu- lega og eiga góða kvöldstund saman. Oftar en ekki teygðust þær langt fram á næsta dag og alltaf fannst okkur jafn erfitt að hætta að tala og fara heim, okkur langaði einfaldlega ekki til að kvöldið endaði. Hlógum svo óendanlega mikið og fékk frá- sagnarhæfni Hönnu og einstakir gullmolarnir hennar okkur til þess að standa á öndinni af hlátri. Alltaf gátum við deilt öllu hver með annarri, jafnt súru sem sætu, og erum við óendanlega þakklátar fyrir okkar vináttu. Lífsgleðin, kærleikurinn, kraft- urinn og sannfæringin sem ein- kenndu elsku Hönnu okkar mun ávallt lifa með okkur og jafn- framt minna okkur á mikilvægi þess að njóta lífsins eins og hún gerði svo sannarlega. Elsku Gísli, Þorkell Valur, Guðrún Filippía, Sigríður Hanna, foreldrar og systkini, hugur okk- ar og bænir eru með ykkur á þessum erfiðu tímum og biðjum við algóðan guð um að styrkja ykkur og styðja. Hvíl í friði, elsku vinkona. Við mætum svo í humar og hvítt með spjalli, hlátri og tilheyrandi þeg- ar okkar tími kemur. Þangað til treystum við á að þú verðir eins og þú sagðir alltaf svo réttilega: absolutly fabulous! Við munum alltaf elska þig og geyma í hjörtum okkar. Þínar vinkonur, Hugrún, Linda Björk, Linda Þórey og Lovísa. Minningar margar þú gafst okkur öll- um, með fallegu brosi og hlátrasköllum. Takk fyrir stundirnar, takk fyrir mig! Svo þakklát fyrir að hafa átt þig. Finn tárin streyma og skil ekki neitt. Bara að ég gæti lífinu breytt. Þá værir þú hjá okkur hlæjandi dátt, í staðinn þú kvaddir allt of brátt. Elsku Gísli og fjölskyldan öll. Sagt er að trúin flytji fjöll. Mín ósk er að fljótt þið friðinn finnið, með kærleik í hjarta hvort öðru sinnið. Himnafaðir lofaðu mér, að gæta stelpnanna okkar vel, Leyfðu okkur nærveru þeirra að finna, á meðan þær englaverkunum sinna. (Linda Svanbergsd., ágúst –2011) Elsku Hanna, takk fyrir allar góðu stundirnar og skemmtilegu minningarnar sem þú skilur eftir. Þú munt ávallt lifa með okkur öll- um. Við vottum eiginmanni Hönnu, börnum hennar og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð vegna fráfalls Hönnu Lilju og elsku- legrar dóttur hennar, Valgerðar Lilju. Guð geymi ykkur. Kveðja frá ’75 árgangnum í Mosó, Linda Svanbergsdóttir. Að fá þessar fréttir að þú vær- ir farin á vit nýrra heima var eins og þruma úr heiðskíru lofti og eldingin snerti hjörtu okkar. Það er ekki hægt að lýsa því hversu sárt þetta er en allar góðu minn- ingarnar hjálpa okkur í sorginni. Eins og sagt er þá deyja þeir ungir sem guðirnir elska. Það var svo margt sem við ætl- uðum að gera saman, allir draumarnir og markmiðin sem kitluðu okkur og voru svo spenn- andi, ferðalögin til framandi landa, efling fyrirtækja okkar, og síðast en ekki síst að framleiða marga skínandi skæra demanta. Við vorum nýlega farnar að temja okkur fræðin um stóru og litlu steinana, læra að njóta í núinu, en erum að sjá og skilja fyrst núna hversu mikilvægt þetta er í ljósi þess að við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Við munum horfa fram á veg- inn með gleði í hjarta yfir að hafa fengið að kynnast þér og þeirri vellíðan sem þú veittir okkur með návist þinni. Það var ekki hægt annað en að finna fyrir kraftin- um, allri gleðinni og kærleikan- um sem þú sýndir okkur með geislandi brosi þínu. Þú varst og verður ávallt okkar fyrirmynd sem leiðtogi, enda var draumur- inn þinn að vera fyrirmynd leið- toga og að skrifa bók þess efnis. Við munum halda minningu þína í heiðri og demantinum þínum á lofti. Þú verður ávallt okkar skærasti demantur. Elsku vinkona, hvíl í friði ásamt þeirri litlu perlu sem ligg- ur í faðmi þér. Megi það ljós sem þú kveiktir á lokasprettinum skína skært eins og þau sem þú áttir fyrir. Megi Guð gefa Gísla og fjölskyldu styrk á þessum erf- iðu tímum. Þínar vinkonur, Linda, Harpa og Heiða Björk. Það voru skelfilegar fréttir sem vöktu mig á hótelinu í Stokk- hólmi sunnudagsmorguninn 14. ágúst. Eftir að Gísli sagði mér frá því að þú hefðir kvatt okkur og þennan heim Hanna mín þá sat ég lengi einn á hótelherberginu og rifjaði upp hversu mikla gleði og ánægju þú hafðir komið með í líf eins besta vinar míns. Ég man ennþá mjög vel hvað mér leist vel á þessa nýju konu í lífi Gísla þeg- ar hann kynnti okkur. Hann var búinn að vera mjög dulur í nokkrar vikur en sagði svo að hann vildi kynna mig fyrir hót- elstjóranum sem hann væri að deita. Og þegar ég kom fyrst heim til þín í Básendann með Gísla sá ég strax á honum að þetta var eitthvað meira en bara tímabundin hrifning. Ég er líka mjög þakklátur fyrir það að heimili ykkar var mér alltaf opið. Á erfiðum tímum í mínu lífi fékk ég að finna hjá ykkur mikla hlýju og gleði. Það var alltaf mikil ást og hlýja í sambandi ykkar og það er erfitt að finna nógu stór orð til að lýsa þeim jákvæðu áhrifum sem þú hafðir á líf Gísla. Frá mínu sjónarhorni gafst þú Gísla þá jarðtengingu sem hann þurfti til þess að verða sá maður sem hann er í dag og ég vissi alltaf að blundaði í honum. Þegar ég kynntist svo Hjördísi náðuð þið strax vel saman og það var alltaf gaman þegar við hitt- umst. Við erum svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér Hanna Lilja. Þú gafst svo mikið af þér og það var svo gaman að vera í kringum þig, alltaf svo ab- solutely fabulous og gordjöss. Lífsviðhorf þitt og kraftur er öðr- um til fyrirmyndar. Það er með öllu óskiljanlegt að þú hafir verið tekin frá okkur öllum svo snemma og ekki fengið að njóta alls þess sem í vændum var. Við erum viss um að þú munt vaka yfir honum Gísla þínum og börnunum ykkar þremur. Það er svo sárt að þið hafið ekki fengið að vera sameinuð, stóra fjöl- skyldan sem þið bæði þráðuð og voruð svo spennt að fullkomna með litlu tvíburunum. Hugur okkar er hjá fjölskyldunni þinni sem var gefið svo mikið en hefur nú misst svo mikið með fráfalli ✝ Mín ástkæra eiginkona, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir, systir og amma, JÓHANNA ÞÓRISDÓTTIR, Stuðlaseli 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 22. ágúst, verður jarðsungin frá Seljakirkju föstudaginn 2. september kl. 15.00. Ingþór Jónsson, Jón Ingþórsson, Felicia Mariana Pralea, Jóhanna María Jónsdóttir, Þórir Ingþórsson, Jóhanna Kristín Björnsdóttir, Þórunn Jóhanna og Elísabet Hildur Þórisdætur, Guðrún Bjarnadóttir og Guðni Rúnar Þórisson. ✝ Ástkær eiginkona mín og besti vinur, móðir, tengdamóðir, amma og systir, JÓHANNA M. AÐALSTEINSDÓTTIR, Hjallahlíð 19b, Mosfellsbæ, sem andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 23. ágúst, verður jarðsungin frá Grafarvogs- kirkju föstudaginn 2. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bendum á Minningarsjóð Karitas í síma 551 5606 milli kl. 08.30 og 10.00 eða netfangið karitas@karitas.is. Björn Júlíusson, Unnur Björnsdóttir, Ágúst Helgi Jóhannesson, Erla Björnsdóttir, Guðmundur Þór Reynisson, Birna Björnsdóttir, Sigursteinn Norðfjörð Kristjánsson, Anna Lilja Björnsdóttir, Hallgrímur Jónas Ingvason, Sædís, Örvar, Tómas, Reynir Þór, Björn Emil, Jóhanna Iðunn, Anna Björk Aðalsteinsdóttir, Lárus S. Aðalsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.