Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 31

Morgunblaðið - 31.08.2011, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Andrea Gylfa er ein af okkar allra bestu söngkonum og hefur farið víða um tónrófið hvað stíla varðar. Blús- inn hefur hún alltaf sungið af mikilli sannfæringu og sönnun um það má nálgast á plötu frá 1998 sem hún tók upp með Blús- mönnum. Ekki er þessi plata síðra sönnunargagn en hér tætir hún í gegnum níu misþekkt tökulög og tvö eftir sjálfa sig. Blúsmennirnir, þeir Guðmundur Pétursson gítarleikari, Einar Rúnarsson hammondleikari, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari og Jóhann Hjörleifsson trommuleik- ari, negla stemninguna en platan var tekin upp á tveimur dögum og það er auðheyranlegt að fólk hefur náð að læsa sig í „grúvið“ eins og stundum er sagt. Stjörnuleikinn á þó Andrea, hún er með sterka, karakterríka og nálæga rödd og getur sveiflast frá társtokknum sorgarstemmum yfir í kröftugri kafla eins og að drekka vatn, túlkunin ávallt næm og áhrifa- rík. Frábær söngkona. Rain On Me Rain – Andrea og Blúsmenn bbbmn Sú kann að syngja blús Arnar Eggert Thoroddsen Skúli Þórðarson, Vestfirðingur með meiru, hóf feril sinn sem trúbadúr en hefur á síðustu árum verið að færa sig meira í faðm hljómsveita, fyrst Sökudólganna og nú Grjóts. Búgí! er giska skemmti- leg plata og það er keyrt á gam- aldags búgísveiflu eins og titillinn gefur til kynna. Stundum verða myndræn áhrif mikil – og góð – t.d. í fyrsta laginu „Leggir“ þar sem Skúli stendur inni í reykfylltum bar í Am- eríku fimmta áratugarins með risa- stóran míkrófón og skakkan, krump- aðan hatt. Skúli hittir þá stundum á skemmtilegar textalínur, eins og í „Ég hlusta (á vínylplöturnar hans pabba). En stundum er skotið framhjá, t.a.m. í laginu „Símanúm- erabúggí“ sem hefði haft gott af smáuppbroti, t.d. í formi „brúar“. Hljómsveitin Grjót er annars hið fullkomna bakland í þessu fortíð- arrölti Skúla og hann gleymir því ekki að taka sig ekki of hátíðlega. Þrjár spikfeitar búgístjörnur til þess mennska, gersovel. Reykfylltur og reffilegur Skúli mennski – Búgí! bbbnn Arnar Eggert Thoroddsen Fyrsta lagið sem ég heyrði með Pétri Ben og Eberg hélt ég að væri útlenskt. Hvort það eru meðmæli með tón- list læt ég liggja á milli hluta. Stundum finnst manni það í það minnsta komandi frá litla Íslandi. En hvað um það, lagið „Over and Over“ vakti í það minnsta forvitni mína þannig að mig langaði að heyra meira. Svo ég fór að hlusta á nýjustu plötu þeirra félaga, Num- bers Game. Þá heyrði betur og bet- ur að hér væri á ferð skemmtilega fjölbreytt og þétt poppplata sem hjúfrar sig oft skemmtilega upp að kantinum. Platan er þó mýkri, ef svo má segja, en ég ímyndaði mér í fyrstu. Lagið „Numbers Game“ stendur upp úr sem hugljúfasta lag plötunnar, notalegt en dálítið ljúf- sárt. Lagið „Remind Me Not To Do This Again“ er einnig í svip- uðum dúr en í laginu „Stuck On You“ kveður við nýjan hljóm. Það lag er hressilegt og kemur dálítið eins og skrattinn úr sauðar- leggnum á jákvæðan hátt. Tilvalið lag til að spila í bílnum á leiðinni heim úr vinnu á föstudegi og koma sér í helgargírinn. „Plateaui“ finnst mér líka forvitnilegt lag fyrir þær sakir að það ber keim af tón- smíðum Belle and Sebastian. Skemmtilegt að heyra áhrif tónlist- ar fara víða og blandast saman á flottan hátt og persónulegan eins og það gerir í þessu lagi. Pétur Ben og Eberg hafa lengi unnið við tónlist en leiða í fyrsta sinn saman hesta sína á þessari plötu og tekst vel upp. Þeir hafa einnig fengið góða gesti til liðs við sig á plötunni, Mugison, Sigtrygg Baldursson, Nóu úr Leaves, Gísla Galdur og Maríu og Hildi úr hljómsveitinni Amiinu. Úr þessari samsuðu Pét- urs Ben og Ebergs og gesta hefur orðið til skemmtilegur bræðingur sem fellur ljúflega að eyrum hlust- anda. Fínasta plata til að láta fylgja sér inn í haustið. Popp sem hjúfrar sig upp að kantinum Numbers Game – Pétur Ben og Eberg bbbmn María Ólafsdóttir Samstarf Þeir Pétur Ben og Eberg leiða saman hesta sína á nýrri plötu. Tónlist Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Hinn 20. september hefjast á RÚV sýningar á sjónvarpsþáttunum Djöflaeyjunni þar sem fjallað verð- ur um leikhús, bíó og myndlist. Umsjónarmaður þáttarins er Þór- hallur Gunnarsson. Aðspurður hvernig nafnið er tilkomið svarar hann: „Þetta er vísun í einhverjar vinsælustu leiksýningar og kvik- mynd þjóðarinnar sem eru byggðar á bók Einars Kárasonar,“ segir Þórhallur. „Bók Einars er tær snilld. Nokkrar leiksýningar hafa verið settar upp eftir leikgerð Kjartans Ragnarssonar og verið mjög vinsælar og vel heppnaðar. Sýning Leikfélags Reykjavíkur í Skemmunni var mögnuð og svo leikstýrði Kolbrún Halldórsdóttir flottri sýningu hjá Leikfélagi Akur- eyrar árið 1995. Leikfélag Horna- fjarðar var með skemmtilega upp- færslu árið 1994 og sú sýning var valin áhugaleiksýning ársins það árið. Þannig að Djöflaeyjan á djúp- ar rætur í leikhús- og kvikmynda- sögunni. Svo má ekki gleyma kvik- mynd Friðriks Þórs sem var fantagóð.“ Spurður hvaða efni verði á boðstólum segir hann að það markist af því hvað sé í gangi hverju sinni. „Leikhúsin eru að fara á fullt með spennandi leikár, RIFF-kvikmyndahátíðin hefst fljót- lega og kvikmyndir, heimildar- myndir, stuttmyndir og leiknir sjónvarpsþættir eru í framleiðslu eða á leið í frumsýningu og þar verður af nógu að taka. En fleiri munu koma að gerð þáttanna, því Sigríður Pétursdóttir, sem hefur stýrt Kviksjá og Kviku á Rás 1, Vera Sölvadóttir kvikmynda- leikstjóri og Guðmundur Oddur Magnússon eða Goddur eins og hann er kallaður munu einnig standa að þættinum ásamt mér og Guðmundi Atla Péturssyni fram- leiðanda. Goddur fjallar um myndlist á alla vegu, með gagnrýni úti á götu eða inni í galleríum. Aðalmálið er að hann tali til þjóðarinnar. Hann kann að tala um myndlist þannig að flestir skilji og þá verður þetta ekki einhver afkimi í umræðunni sem enginn þorir að snerta á. Sigga og Vera eru með yfirgrips- mikla þekkingu á kvikmyndagerð frá öllum hliðum og ólíkan bak- grunn sem nýtist þættinum vel. Umfjöllun um leikhúsið verður ólík eftir leikverkum en þátturinn verð- ur bæði með gagnrýni á uppfærslur leikhúsanna og ítarlegri umfjallanir um einstök verk. Við tökum líka út ákveðna þætti leikhússins og kvik- myndagerðarinnar eins og leik- mynd, lýsingu, hljóð og brellur og skoðum líka hlutina í sögulegu sam- hengi,“ segir Þórhallur. Aðspurður hvort það sé einhver þáttur að utan sem sé notaður sem fyrirmynd segir hann að þau hafi skoðað alla helstu menningarþætti Norðurlandanna, mikið af þeim ensku og bandarísku líka. „Við höfðum þá til hliðsjónar og erum núna með eitthvað í höndunum sem við höfum trú á. Hver þáttur tekur hins vegar mið af viðfangsefnunum hverju sinni og þess vegna síbreyti- legur,“ segir hann. Við búum á Djöflaeyjunni  Nýr sjónvarpsþáttur hefst á RÚV í september  Þátturinn mun fjalla um leikhús, myndlist og bíó Vera Sölvadóttir Sigríður Pétursdóttir Þórhallur Gunnarsson SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD – 4-D! FRÁ LEIKSTJÓRA SUPER SIZE ME 5% THE CHANGE-UP KL. 6 - 8 - 10 14 SPY KIDS 4 4D KL. 6 - 8 L CONAN THE BARBARIAN KL. 10 16 T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT THE CHANGE-UP KL. 5.30 - 8 - 10.30 14 THE CHANGE-UP LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 14 SPY KIDS 4 4D KL. 3.40 - 5.50 - 8 L ONE DAY KL. 8 L COWBOYS AND ALIENS KL. 10.30 14 STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 L STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 10.20 12 FRIENDS WITH BENEFITS KL. 10.10 12 THE CHANGE-UP KL. 8 - 10.30 14 GREATEST MOVIE EVER SOLD KL. 5.30 - 8 - 10.10 L SPY KIDS 4D KL. 5.50 L CONAN THE BARBARIAN KL. 8 - 10.20 16 ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 5.40 L LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar THE CHANGE-UP Sýnd kl. 8 - 10:20 SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 6 STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 5:30 CONAN THE BARBARIAN Sýnd kl. 8 - 10:20 CAPTAIN AMERICA 3-D Sýnd kl. 7:30 BRIDESMAIDS Sýnd kl. 10 HÖRKU SPENNUMYND HANN ER FÆDDUR STRÍÐSMAÐUR HEFURÐU EINHVERN TÍMANN VILJAÐ VERA EINHVER ANNAR? FRÁ LEIKSTJÓRA WEDDING CRASHERS OG HANDRITSHÖFUNDUM THE HANGOVER Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! BÍÓMYND Í FJÓRVÍDD! -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Hvar í strumpanum erum við ? Sýnd í 3D með íslensku tali Vinsælasta myndin á Íslandi í dag!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.