Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is LÓKAL – alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík hefst á morgun, 1. sept- ember, og verða 13 viðburðir og sýningar í boði, til og með 4. sept- ember. Hátíðin hóf göngu sína árið 2008 og er því haldin í fjórða sinn nú en fram- kvæmdastjóri hennar sem fyrr er Ragnheiður Skúladóttir. Í fyrra var lögð áhersla á nýja norræna leiklist og í ár verður framhald á því þar sem tveir leikhópar frá Osló og Helsinki, Verk Produkjsoner og Obliva, taka þátt í hátíðinni auk þess sem norski leikhópurinn Mobile Homes sýnir nýtt verkefni sem hann vann í sam- starfi við netleikhúsið Herbergi 408. Komin á kortið Blaðamaður ræddi í gær við Ragnheiði um hátíðina og spurði hana hvort hátíðin, líkt og flestar íslenskar listahátíðir, yxi með hverju árinu. „Jú, í ár er stærsta hátíðin til þessa, 13 atriði á dag- skránni hjá okkur og við höfum haft það að markmiði að hafa sama dagafjölda, þétta fjóra daga, og eytt púðri í að styrkja innviðina. Þetta er fyrsta alþjóðlega leiklistarhátíðin á Íslandi,“ segir Ragnheiður. Því hafi innviðir hátíðarinnar verið styrktir frá ári til árs. „Um leið og þú ert kominn í samband við útlönd þá vex manni bæði ásmegin og net- verkið breikkar og víkkar, með fleiri kontöktum er meiri vinna, má segja. Við erum komin á kortið, sem er mjög skemmtilegt. Til að nefna eitthvað þá er Wiener Fest- wochen, ein af stærstu listahátíðum Evrópu, að koma hingað með út- sendara í þriðja sinn,“ segir Ragn- heiður og nefnir að listhópurinn Kviss búmm bang hafi farið á þá hátíð í sumar. LÓKAL hafi því vak- ið athygli erlendis. Fókusinn á LÓKAL hafi verið að kynna það markverðasta sem sé að gerast í ís- lensku leikhúsi, bæði fyrir erlend- um áhorfendum og hátíðahöldurum, kynna fyrir íslenskum áhorfendum það markverðasta í leikhúsi erlend- is og breikka atvinnugrundvöll ís- lensks leikhúss. „Þá höfum við verið svolítið upptekin af þessum sjálf- stæða geira sem er að gera hluti sem eru á undan, undanfarar eins og grasrótin er,“ útskýrir Ragn- heiður. Áhorfendahópur þessara leikhópa sé lítill hér á landi og með hinum erlendu tengslum stækki hann, þeir fái meiri athygli og myndi tengsl við erlenda leikhópa. Kanna nýjar lendur í leikhúsi – Þetta eru allt sjálfstæðir leik- hópar sem sýna á hátíðinni en er eitthvað annað sem tengir þá? Eru þeir allir í tilraunakenndu leikhúsi? „Já, ég myndi kalla þetta undan- fara. Þeir fara út á brúnina í því sem þeir eru að gera; að kanna nýj- ar lendur í leikhúsi. Þeir eiga það sameiginlegt, bæði íslensku hóp- arnir og þeir erlendu.“ Ragnheiður nefnir sem dæmi að hluti af hátíðinni í ár sé samstarf við íslensk-kanadísku listahátíðina núna (now) í Winnipeg. Fyrir tveimur árum hafi útsendarar hennar komið hingað til lands, á LÓKAL, og íslenskir listamenn far- ið á hátíðina í Kanada. LÓKAL framleiði í ár, með hátíðinni í Winnipeg, sýninguna The Island en í henni komi saman myndlistarmað- urinn Ingibjörg Magnadóttir, til- raunaleikhúsmaðurinn Friðgeir Einarsson, kanadíski leikstjórinn og leikarinn Arne MacPherson og kan- adíski dansarinn og fjöllistakonan Freya Björg Olafsson. „Við ákváðum að stefna þeim saman út í óvissuna, í rauninni, og þau eru bú- in að vinna að þessu verkefni sl. tvö ár með hléum. Bæði hafa Ingibjörg og Friðgeir farið til Winnipeg og Freya og Arne komið hingað, tekið nokkurra vikna lotur. Við sjáum af- raksturinn af því núna, verkið frumsýnt á laugardagskvöldið,“ segir Ragnheiður. Þetta tiltekna verkefni sé dæmi um þá tengingu sem skipuleggjendur LÓKAL séu svo uppteknir af, ekki veiti af henni í leiklistinni því hún eigi það til að vera svo „lókal“. „Þetta er leiklist í sinni víðustu mynd,“ segir Ragn- heiður um hátíðina. Verið sé að fást við nýsköpun. Farið út á brúnina  Alþjóðlega leiklistarhátíðin LÓKAL hefst á morgun og stendur í fjóra daga  Innlend- ir sem erlendir leikhópar sýna verk sín á hátíðinni  Leiklist í sinni víðustu mynd Bros Úr verkinu Eternal Smile eftirVerk Produksjoner leikhópinn sem sýnt verður í Tjarnarbíói. Ragnheiður Skúladóttir Tveir Úr verkinu Phobophilia eftir listatvíeykið 2boys.tv. Tvíeykið skipa tveir listamenn frá Montréal. Skemmtieyja I-III Úr verkinu Entertainment Island I-III með leikhópnum Oblivia sem sýnt verður á LÓKAL. Dagskrá LÓKAL má finna á vef há- tíðarinnar, lokal.is. Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Það var í janúar í fyrra sem gítar- séníið Clive Carroll heimsótti land- ann, en Tom nokkur Matthews flutti hann þá inn en hann var á þeim tíma búsettur hér á landi. Matthews flytur nú öðru sinni inn gítarleikara, rafgítarséníið Guthrie Govan, og mun hann halda tónleika á Rósenberg á föstudaginn og laugardaginn, auk þess að halda kennslustund í gítarleik á laug- ardeginum á sama stað kl. 15.00. Bara fötin Tengsl Matthews við landið eru athyglisverð en hann kom hingað til lands árið 2008 og átti þá bara fötin sem hann stóð í. Nokkru fyrr hafði hann sótt tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður heim og kolféll hann þá fyrir landi, þjóð – en fyrst og síðast tónlistinni. Hann ákvað að flytjast hingað og læra á gítar, sem hann kunni ekkert á fyrir þessa tímamótaheimsókn. Í viðtali við blað þetta á þeim tíma þegar téður Carroll kom til landsins lét Matt- hews þá ósk í ljós að hann vonaðist til að fá að spila á Aldrei fór ég suð- ur einn daginn. Fór svo að honum varð að ósk sinni í kjölfar viðtals- ins! Margþættur ferill Matthews er fluttur aftur út til Bretlands þar sem hann leggur stund á gítarnám en er staddur hér á landi til að hafa yfirumsjón með tónleikunum. „Ég fékk Carroll yfir á sínum tíma þar sem hann er einfaldlega uppáhaldsgítarleikarinn minn. Car- roll er mikill virtúós á kassagítar en Guthrie Govan er hins vegar uppá- haldsrafgítarleikarinn minn. Svo vill til að þeir Govan og Carroll þekkj- ast. Þeir fæddust í sama bænum og það greiddi götu mína þegar ég ákvað að reyna að koma honum hingað.“ Ferill Govans er margþættur en breska blaðið Guitarist var með hann á forsíðunni í júlí síðast- liðnum. Govan spilar ýmsa stíla; rokk, bræðing og hefur einnig starf- að með raftónlistarmönnum. Hann er þá eftirsóttur leigugítarleikari eða sessionspilari og gítar- og bassapartar eftir hann hafa verið notaðir í lögum eftir Sugababes, Cee Lo Green og Dizzee Rascal og hann hefur starfað með gítargúrú- um á borð við Lee Ritenour, Steve Lukather og George Benson. Gítarinn er gjöf frá guðunum  Gítargúrúinn Guthrie Govan með tón- leika á Rósenberg Íslandsvinurinn með meiru Tom Matthews flytur hann inn Spakur Guthrie Govan lætur sólina skína á sig - og gítarinn sinn. » Ferill Govans ermargþættur en breska blaðið Guitarist var með hann á forsíð- unni í júlí síðastliðnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.