Morgunblaðið - 31.08.2011, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2011
Leikarinn og leikstjórinnMel Gibson virðist eigasína djöfla að draga, efmarka má slúðurfréttir af
honum hin síðustu ár. Hann hefur
átt við áfengisfíkn að stríða, var
handtekinn fyrir að keyra undir
áhrifum áfengis fyrir um fimm árum
og lét hann þá niðrandi ummæli
falla um gyðinga. Gibson hefur einn-
ig verið sakaður um að hafa beitt
Oksönu Grigorievu, fyrrverandi
sambýliskonu sína og barnsmóður,
ofbeldi og sett á hann nálgunar-
bann. Þannig mætti áfram telja.
Það breytir þó ekki því að Gibson
er ágætur leikari og hlutverk hans í
kvikmyndinni The Beaver, Bjórinn,
virðist klæðskerasniðið fyrir hann. Í
myndinni leikur Gibson Walter
Black, mann sem er haldinn alvar-
legu þunglyndi og hefur glímt við
þau veikindi til fjölda ára. Veikindin
hafa að sjálfsögðu komið niður á
fjölskyldu hans, eiginkonu og tveim-
ur börnum, sem og starfi en hann er
forstjóri leikfangafyrirtækis sem
glímir við mikinn hallarekstur. Í
upphafi myndar er Black kynntur til
leiks af sögumanni sem talar með
miklum Cockney-hreim (eða ansi
nálægt slíkum hreim í það minnsta)
og maður veltir vöngum yfir því
hver þessi sögumaður sé. Það kem-
ur í ljós nokkru síðar. Black flytur
að heiman í byrjun myndar og inn á
hótel, hellir í sig áfengi og dauða-
drukkinn finnur hann tuskubrúðu í
ruslagámi, handbrúðu í líki bjórs
(dýrsins, ekki drykkjarins) sem
hann tekur með sér á hótelið. Eftir
misheppnaða tilraun til sjálfsvígs
rankar Black við sér þegar bjórinn
fer að tala við hann, skipa honum að
fara á fætur og taka sig saman í
andlitinu. Black fer sum sé að tala
við sjálfan sig í gegnum bjórinn og
þá með fyrrnefndum hreim. Bjórinn
rífur Black upp úr þunglyndinu og
líf hans breytist til hins betra, þ.e.
svo lengi sem hann er í hlutverki
dýrsins. Þetta kemur fjölskyldu
hans vægast sagt í opna skjöldu
sem og samverkamönnum en Black
lýgur því að eiginkonu sinni að geð-
læknir hafi sett hann í meðferð og
að hún felist í því að bjórinn taki við
stjórninni. Black virðist gufaður upp
og bjórinn tekinn við. Þetta nýja
fyrirkomulag gengur vel í fyrstu og
Black flytur aftur heim en eldri son-
ur hans getur þó ekki sætt sig við
hið nýja hliðarsjálf föðurins. Þegar
líður á fer þó að síga á ógæfuhliðina
hjá Black á ný.
The Beaver er býsna merkileg
mynd og óvenjuleg, að flestu leyti
líkari indie-mynd en Hollywood-
mynd, fersk og frumleg. Hér er
engin formúlumynd á ferðinni eins
og söguþráðurinn ber með sér held-
ur óvenjuleg blanda gamans og al-
vöru. Myndin hefst á gamansömum
nótum en fljótlega tekur dramatíkin
við, enda umfjöllunarefnið graf-
alvarlegt, þ.e. þunglyndi. Hefur að-
alpersónan hreinlega misst vitið og
það endanlega? Hvernig eiga ætt-
ingjar og samstarfsmenn að bregð-
ast við slíkum breytingum, slíkri
furðuhegðun og hversu lengi eiga
þeir að umbera hana? Og hversu
umburðarlynt er fólk almennt gagn-
vart geðsjúkum? The Beaver vekur
upp slíkar spurningar.
Leikarar standa sig allir prýði-
lega og fara þar Gibson og Foster
fremst í flokki. Inn í söguna af
Black fléttast saga af eldri syni hans
sem hefur borið nokkurn skaða af
veikindum föður síns en sú saga er
fullfyrirferðarmikil á heildina litið.
Einnig skemmir nokkuð fyrir að
myndin þróast í heldur fyrir-
sjáanlega átt þegar á líður eftir að
hafa komið manni verulega á óvart
framan af. Samt sem áður er hik-
laust hægt að mæla með Bjórnum.
Bjór kemur þung-
lyndum til bjargar
Sambíó Kringlunni
The Beaver bbbmn
Leikstjóri: Jodie Foster. Aðalhlutverk:
Mel Gibson, Jodie Foster, Anton Yelchin
og Jennifer Lawrence. 91 mín. Bandarík-
in, 2011.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Bjór Mel Gibson fer í raun með tvö hlutverk í myndinni The Beaver, þ.e. hlutverk tuskubjórs og hlutverk hins þung-
lynda Walters Blacks. Hér sést Mel Gibson með Riley Thomas Stewart sem leikur yngri son hans í myndinni.
Síðasti millistríðsárablúsmaðurinn, David
„Honeyboy“ Edwards, er nú látinn, 96 ára að
aldri. Hann lést á heimili sínu í Chicago en
umboðsmaður hans hafði opinberlega til-
kynnt að hann væri sestur í helgan stein fyrir
um mánuði. Hann fæddist í Shaw, Mississippi,
árið 1915 og hóf að ferðast um sem tónlistar-
maður 14 ára að aldri, með goðsögnum á
borð við Howlin’ Wolf og Little Walter. Hann
var t.a.m. góður vinur Roberts Johnsons, oft
sagður áhrifamesti blústónlistarmaður allra
tíma, og var með honum er hann dó árið 1938
eftir að hafa drukkið eitrað viskí. Edwards
kom til Íslands árið 2005 og lék þá á Blúshá-
tíð. Tróð hann upp á Nasa ásamt Michael
Frank munnhörpuleikara. Vel var látið af
þeim tónleikum og ekki þurfti að hafa mikið
fyrir Edwards. Það eina sem hann fór fram á
var að það væri heitt hvert sem hann færi og
að steinbítur yrði borinn á borð fyrir hann
einhvern tíma í ferðinni.
David „Honeyboy“ Edw-
ards látinn, 96 ára
Síðastur David „Honeyboy“ Edwards er fallinn frá.
Jon Cryer, annar aðalleikaranna í Two and a
Half Men, hefur undanfarin ár staðið í miklu
stappi við fyrrverandi eiginkonu sína hvað
meðlag varðar. Hann hefur nú verið dæmdur
til að greiða henni 8.000 dali á mánuði í með-
lag þó að hún hafi ekki lengur yfirráð yfir
syni þeirra. Hjónin skildu árið 2004 og um-
gengni Söruh Trigger Cryer við barn sitt hef-
ur verið skert jafnt og þétt síðan. Engu að
síður hefur Cryer nú tapað málinu og hæsti-
réttur Kaliforníu hefur gert Cryer að greiða
meðlagið, þar sem samdráttur í þeim efnum
gæti skaðað barnið.
„Þó að Jon skynji málið sem ranglátt, og
það með góðum rökum, verður áherslan að
vera á velferð barnsins fremur en tilfinn-
ingar foreldranna.“
Ný þáttaröð af Two and a Half Men er ann-
ars farin í loftið og lofar Cryer fólki miklu
fjöri þó að söguþráðurinn sé, að hans eigin
sögn, stórfurðulegur.
Jon Cryer þarf að greiða
meðlag og engar refjar
Borgunarmaður Jon Cryer ætti að eiga aur.
H H H
KVIKMYNDIR.IS/
SÉÐ OG HEYRT
FRÁÁ
ÁBÆR
GAM
ANM
YND
EIN FLOTTASTA SPENNUHROLLVEKJA ÞESSA ÁRS
MÖGNUÐ
ÞRÍVÍDD
BESTA
MYNDIN Í
SERÍUNNI
TIL ÞESSA
75/100
VARIETY
75/100
SAN FRANCISCO
CHRONICLE
75/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
SÝND Í 3D
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
FINAL DESTINATION 5 kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D 16
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D 7
LARRY CROWNE kl. 8 - 10:20 2D VIP
COWBOYS AND ALIENS kl. 10:30 2D 14
GREEN LANTERN kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 5:30 2D VIP
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 3D L
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 2D L
HARRY POTTER 7 kl. 8 2D 12
/ ÁLFABAKKA
FINAL DESTINATION kl. 8 - 10:20 3D 16
STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:20 3D L
COWBOYS & ALIENS kl 10:40 2D 14
PLANET OF THE APES kl. 8 -10:30 2D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D 12
GREEN LANTERN kl. 5:20 3D 12
BÍLAR 2 Ísl. tal kl. 5:20 2D L
HARRY POTTER 7 kl. 5:20 3D 12
CAPTAIN AMERICA kl. 10:20 3D 12
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 2D 7
STRUMPARNIR Ísl. tal kl. 5:50 3D L
HORRIBLE BOSSES kl. 10:10 2D 12
HARRY POTTER 7 kl. 8 3D 12
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
FAIR GAME Ótextuð kl. 5:50 2D 12
BAARÍA Íslenskur texti kl. 10:30 2D 7
THE TREE OF LIFE Ótextuð kl. 8 2D 10
RED CLIFF Enskur texti kl. 10:40 2D 14
LARRY CROWNE kl. 6 2D L
FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:10 3D 16
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 6 2D L
GREEN LANTERN kl. 8 2D 10
HORRIBLE BOSSES kl. 10:10 2D 12
THE CHANGE UP kl. 8 2D 14
FINAL DESTINATION 5 kl 10:30 3D 16
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8 - 10:20 2D 12
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ AKUREYRI
/ KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
RYAN REYNOLDS
BLAKE LIVELY
MARK STRONG
GEOFFREY RUSH
LARRY CROWNE
FRÁBÆR RÓMANTÍSK
GRÍNMYND
Hvar í strumpanum
erum við ?
HHH
BoxOffice Magazin
HHH
M.M.J.
- KVIKMYNDIR.COM
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL OG AKUREYRI