Morgunblaðið - 31.08.2011, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 243. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fjölskylda fannst látin á Korsíku
2. Sunddrottningin Ragga Ragnars
3. Óvinnufær eftir 22. júlí
4. Eldri borgarar taka út peninga
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„The Beaver er býsna merkileg
mynd og óvenjuleg, að flestu leyti lík-
ari indie-mynd en Hollywood-mynd,
fersk og býsna frumleg.“ Helgi Snær
skrifar um nýjustu mynd Mels Gib-
sons, sem nefnist The Beaver. »33
Mel Gibson settur
undir mælikerið
Gleðileikurinn
Húsmóðirin eftir
Vesturport verður
sýndur í Hofi á
Akureyri eina sýn-
ingarhelgi, hinn
2.-4. september.
„Við erum stolt af
því að fá Vestur-
port, sem er með
virtustu leiklistarhópum í heimi, í
heimsókn til okkar,“ segir Ingibjörg
Ösp Stefánsdóttir, framkvæmda-
stjóri menningarhússins Hofs.
Vesturport með Hús-
móðurina í Hof
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, sem varð
frægur í Bandinu hans Bubba, er að
taka upp sína fyrstu sólóplötu. Eitt
tilbúið lag, „Þá kem ég heim“, er
komið inn á tónlist.is. Eyþór kemur
þá við sögu á
tveimur öðrum
plötum, ann-
ars vegar á
plötu progg-
sveitarinnar
Eldberg og svo
á væntanlegri
plötu Todmo-
bile.
Eyþór Ingi á þremur
plötum í ár
Á fimmtudag Suðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum, en
hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 10 til 18 stig.
Á föstudag Austan 10-15 m/s og rigning, en hægari og þurrt að
kalla norðvestantil. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Vesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Væta í flestum landshlutum, einkum þó
syðra. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands.
VEÐUR
Selfoss vann sér í gærkvöldi
sæti í efstu deild kvenna í
fótbolta í fyrsta skipti með
því að vinna stórsigur á
Keflvíkingum, 6:1, í seinni
úrslitaleik liðanna. Keflavík
hafði unnið fyrri leikinn 3:2
en átti aldrei möguleika fyr-
ir austan fjall. FH burstaði
Hauka 6:0 og samanlagt
14:1 og leikur líka í úr-
valsdeildinni á næsta ári.
»1
Selfossstúlkur í
hóp þeirra bestu
Tæplega 19 ára gamall eyjarskeggi
frá Grenada í Karíbahafinu sló í gegn
í gær þegar hann varð heimsmeistari
í 400 metra hlaupi karla. Hann hljóp
heims- og Ólympíu-
meistarann uppi á glæsi-
legum endaspretti og hirti
af honum heimsmeist-
aratitilinn.
»4
Nítján ára strákur frá
Grenada sló í gegn á HM
Skemmtikraftar ársins í karlafótbolt-
anum eru Stjörnumenn úr Garðabæ. Í
ár eru það ekki óhefðbundin fagn-
aðarlæti þeirra sem vekja mestu at-
hyglina, heldur sjálf frammistaðan
inni á vellinum. Stjörnumenn hafa
fengið flest M í einkunnagjöf Morg-
unblaðsins, eiga markahæsta leik-
manninn, skora mest og skjóta næst-
oftast allra að marki. »4
Stjörnumenn eru
skemmtikraftar ársins
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Safnarar detta oft í lukkupottinn og
þegar það gerist er gjarnan glatt á
hjalla. Reynir Sverrisson hefur ver-
ið í skýjunum síðan hann komst yfir
13 ljósmyndir á glerplötum frá því
fyrir um 100 árum en gátan er ekki
leyst þar sem hann vantar enn upp-
lýsingar um ljósmyndarann.
„Hvorugur okkar hefur séð nokk-
uð þessu líkt áður,“ segir Reynir og
vísar til sín og forvera síns, Magna
R. Magnússonar. Þeir hafa lengi
verið í góðu samstarfi og þegar
Magni hætti tók Reynir við af hon-
um á mörkuðum erlendis. „Ég hef
legið á myndunum síðan í vor en
fór að skoða þær aftur á dögunum
og ég held að þær hljóti að vera
frekar merkilegar,“ heldur Reynir
áfram.
Myndir úr hringferð
Um er að ræða 13 um 10x10 cm
glerplötur með myndum víða að á
Íslandi, meðal annars frá Dyrhóla-
ey, Eskifirði, Seyðisfirði og Akur-
eyri. Jafnframt er mynd af danska
strandferðaskipinu Camoems, sem
var hér í strandflutningum upp úr
1900 og var jafnframt með ferða-
menn auk þess sem skipið kom við
sögu í vesturferðunum. Reyni hefur
ekki tekist að aldursgreina mynd-
irnar en telur að þær hafi verið
teknar á árunum skömmu fyrir
fyrri heimsstyrjöldina.
Reynir er í sambandi við safnara
erlendis og sérstaklega í Bret-
landi og á Norðurlöndum.
Hann hefur sérstaklega
áhuga á íslenskum frímerkj-
um, umslögum, póstkortum
og ljósmyndum og fær
upplýsingar þegar þess
háttar hlutir berast öðr-
um söfnurum. Breskur
safnari eignaðist dán-
arbú með stóru gler-
plötusafni víðs vegar að úr Evrópu
og þar á meðal voru fyrrnefndar
plötur. Bretinn lét Reyni vita og
hann gerði sér ferð til Bretlands og
keypti glerplöturnar með íslensku
myndunum.
Með viðskipti í huga segir Reynir
að það skipti miklu máli að vera
með augun opin til þess að geta
reglulega boðið upp á eitthvað nýtt.
Hann segist leggja mikla áherslu á
að safna gömlum, íslenskum póst-
kortum, því þau geymi merka sögu
enda ekki algengt að almenningur
hafi átt myndavélar upp úr 1900 og
póstkortin því komið í staðinn fyrir
ljósmyndir. „En mannlegu sam-
skiptin eru skemmtilegust við
þetta,“ segir Reynir um áhuga-
málið.
Gullmolar á fjörur grúskara
Komst yfir
gamlar ljósmyndir
á glerplötum
Morgunblaðið/Eggert
Fróðleikur Myndirnar eru mjög skýrar og segja sína sögu um viðkomandi staði á Íslandi upp úr 1910.
„Ég hef verið grúskari síðan ég
var unglingur,“ segir Reynir
Sverrisson, tryggingaráðgjafi hjá
Allianz. „Söfnunin er bara áhuga-
mál. Ég á ekki hesta og fer aldrei
í golf en verð að hafa eitthvað til
að dunda við.“
Hann segist fara fjórum til
sex sinnum á ári í inn-
kaupaferðir til útlanda,
einkum til Bretlands og
Norðurlanda, og selji síðan
öðrum söfnurum úr safni sínu, en
hann hefur verið með verslun í
Kolaportinu um helgar undanfarin
18 ár. Hann segist hafa fundið
marga merkilega hluti. „Fyrir
nokkrum árum fann ég til dæmis
í draslkassa sem var á leið í
Sorpu handskrifað sveinsbréf í
trésmíði frá 1898 undirritað af
Hannesi Hafstein, þá sýslumanni
á Ísafirði. Minjasafnið á Ísafirði
fékk bréfið.“
Merk undirskrift á sveinsbréfi
SÖFNUNIN SKILAR OFT ÁRANGRI
Hver er
konan?