Morgunblaðið - 28.09.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
Hafþór gerir út fjóra báta. Einn
gerir hann út á línu allt árið nema
hvað hann er á grásleppu hluta úr
ári. Annan bát gerir hann eingöngu
út á grásleppu. Þá gerir hann út tvo
báta á strandveiðar og annan auk
þess á grásleppu. Hann segir nauð-
synlegt að hafa þessa möguleika,
vegna þess óöryggis sem sífelldar
breytingar á kerfinu skapi. Hann
verði að vera tilbúinn þegar sjáv-
arútvegsráðherrann fái næstu
snilldarhugdettuna.
Hafþór nefnir að nú sé búið að
banna mönnum strandveiðar nema á
eigin bát. Það þýði að hann geti ekki
gert út nema annan strandveiðibát-
inn. „Ég verð að selja bátinn, þetta
er eignaupptaka,“ segir Hafþór og
bætir við: „Þetta er sama og að
banna manni sem á tvær íbúðir í
blokk í Reykjavík að leiga út þá íbúð
sem hann býr ekki sjálfur í. Mér
finnst það verst að þessi breyting er
runnin undan rifjum formanns
Landssambands smábátaeigenda,
Arthurs Bogasonar.“
„Setur ugg að okkur“
Mestar áhyggjur hefur Hafþór þó
af breytingum á úthlutun afla-
hlutdeildar. Hann segist hafa byggt
upp sína útgerð í tuttugu ár og keypt
aflaheimildir. Menn hafi lifað í von-
inni um að fá til baka skerðingar á
kvótanum, eftir því sem fiskistofn-
arnir stækkuðu. „Þessi hringlanda-
háttur með kvótafrumvörpin setur
ugg að okkur sem störfum í þessari
grein,“ segir Hafþór.
Smíðar bátana eftir eigin þörfum
Hafþór Jónsson á Patreksfirði gerir út fjóra smábáta Nýjasta bátinn smíðaði hann sjálfur til að
geta haft hann eins og hann sjálfur vildi Hefur áhyggjur af ótryggu rekstrarumhverfi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Smábátaútgerð er þannig í dag að
maður verður að vera tilbúinn í hvað
sem er, maður veit ekki hverju
stjórnvöld henda í mann næst,“ seg-
ir Hafþór Jónsson, útgerðarmaður á
Patreksfirði. Hann er með fjóra
smábáta sem hann gerir út á mis-
munandi vertíðir. Nýjasta bátinn
smíðaði hann sjálfur.
Hafþór hefur nokkrum sinnum
keypt lélega plastfiskibáta, stækkað
þá og bætt. Þannig tók hann Sóma-
bát alveg í gegn 1997 og telst það
hans fyrsta nýsmíði. Nú síðast
keypti hann skel Sómabáts hráa af
Bátasmiðju Guðmundar. Hann
breytti bátnum og lagaði að eigin
þörfum og fullsmíðaði. Fönix
BA-123 var tilbúinn í vor. Vegna
vandræða með vélina var þó ekki
hægt að gera hann út fyrr en í sum-
ar. Hann var með mann með sér í
vinnu við smíðina. „Þetta var vænn
kostur fyrir mig því ég gat smíðað
bát eins og ég vildi hafa hann.“
Útgerðarmaður Hafþór Jónsson er
fjölhæfur útgerðarmaður og getur
auk þess smíðað bátana sína sjálfur.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fönix Báturinn sem Hafþór Jónsson smíðaði er 15 tonn að stærð. Skelin er
frá Bátasmiðju Guðmundar en Hafþór hefur lagað hana að eigin þörfum.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við erum að horfa í kringum okk-
ur og athuga hvaða möguleikar eru
í stöðunni,“ segir Sindri Stein-
grímsson, flugrekstrarstjóri Land-
helgisgæslu Íslands, en hann er um
þessar mundir staddur í Bretlandi,
m.a. í þeim tilgangi að skoða mögu-
legar leiguþyrlur fyrir Gæsluna.
Landhelgisgæsla Íslands hefur að
undanförnu leitað eftir björgunar-
þyrlu til leigu fyrstu mánuði næsta
árs en þá mun þyrlan TF-LÍF fara
í tímafreka og umfangsmikla þjón-
ustuskoðun. Blasir við að einungis
verði ein þyrla Gæslunnar á vakt
frá janúarmánuði og fram í mars á
næsta ári.
Fátt um fína drætti
„Það er ekkert auðvelt að finna
góðan staðgengil fyrir þyrluna TF-
LÍF sem verður í skoðun í janúar,
febrúar og mars,“ segir Georg Kr.
Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar, og bendir á að ekki sé
mikið úrval af þyrlum til leigu sem
geta gegnt björgunarstörfum við
Íslandsstrendur á þessum tíma árs.
Segir hann flugrekstrarstjóra
Gæslunnar vera staddan í Bret-
landi í tengslum við önnur verkefni
en á sama tíma sé hann að athuga
hvaða möguleikar standi Landhelg-
isgæslunni til boða í þessum efnum.
Georg segir Gæsluna þó hafa
augastað á nokkrum þyrlum sem
gætu komið til greina en sökum
bágrar fjárhagsstöðu stofnunarinn-
ar er óljóst hvort hægt verður að
taka þyrlu til björgunarstarfa á
leigu. Aðspurður hvort Landhelg-
isgæslan sé í viðræðum við stjórn-
völd um leigu á björgunarþyrlu fyr-
ir þetta tímabil segir Georg slíka
umræðu lengi hafa átt sér stað og
að stjórnvöld séu ágætlega meðvit-
uð um stöðu mála. „En það er fátt
um fína drætti, það eru ekki til
miklir peningar og ekki stór mark-
aður heldur.“ Georg segir starfs-
menn Gæslunnar reyna hvað þeir
geta að koma í veg fyrir að ein-
ungis ein þyrla verði til taks fyrstu
þrjá mánuði næsta árs.
„Ég er hvorki svartsýnn né
bjartsýnn, við erum að reyna að
gera það sem við getum og það er
margt óljóst í okkar rekstri,“ segir
Georg og bendir á að fjárlög ársins
2012 liggi ekki fyrir en þau munu
hafa talsverð áhrif á rekstur og
tækjakaup Landhelgisgæslunnar.
Morgunblaðið/Ómar
Gæslan Fjárskortur hefur einkennt starfsemi Landhelgisgæslunnar um langt skeið og er skortur á tækjabúnaði, m.a. þyrlum, farinn að segja til sín.
Fjárskortur nagar þyrlusveit
Svo gæti farið að einungis ein björgunarþyrla yrði til taks við Íslandsstrendur
fyrstu þrjá mánuði næsta árs Leigumarkaður fyrir björgunarþyrlur lítill
Tveir innbrotsþjófar voru hand-
teknir í Borgarfirði á mánudags-
kvöld og voru þeir með stolna hagla-
byssu í bílnum, ásamt öðru þýfi. Að
sögn Theódórs Þórðarsonar, yfirlög-
regluþjóns í Borgarnesi, má flokka
mennina undir góðkunningja lög-
reglunnar.
Fyrr um kvöldið brutust menn-
irnir inn í íbúðarhús í Hvalfirði og
stálu m.a. tölvu og haglabyssu. Lög-
reglu á Akranesi og í Reykjavík var
strax gert viðvart og lögreglan í
Borgarfirði og Dölum fór á tveimur
bílum til að leita að þjófunum.
Um tveimur stundum eftir til-
kynninguna um innbrotið ók lög-
reglumaður fram á bíl þjófanna á
Draghálsi.
Þeir voru handteknir og eftir yfir-
heyrslur var ekið með þá til lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu en þeir
eru einnig grunaðir um innbrot í bíla
og húsnæði í Reykjavík. „Þeir eru
með ýmislegt á bakinu en þetta
verður til þess að þeir fara báðir í af-
plánun,“ segir Theódór.
Gripnir
með stolna
haglabyssu
Góðkunningjar lög-
reglunnar að verki
Jonas Gahr
Støre, utanríkis-
ráðherra Noregs,
er væntanlegur
til Íslands á
morgun, fimmtu-
dag. Á meðan á
dvöl hans stendur
mun hann funda
með Össuri
Skarphéðinssyni
utanríkisráðherra á Akureyri, þar
sem þeir munu m.a. ræða norður-
slóðamál og Evrópumál og taka þátt
í ráðstefnu Háskólans á Akureyri.
Þá munu ráðherrarnir opna sýningu
um heimskautafarann Fridtjof Nan-
sen og heimsækja Siglufjörð. Á
föstudag fundar Støre með Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra og
hittir utanríkismálanefnd Alþingis.
Utanríkisráð-
herra Noregs
væntanlegur
Jonas Gahr Støre
„Ég ætla að kynna þær tölulegu upplýsingar sem ég
er búinn að vinna í,“ segir Guðmundur Þ. Ragnars-
son, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna.
En upplýsingarnar sem um ræðir snerta hugmynd að
fjármögnun lífeyrissjóða til þyrlukaupa fyrir Land-
helgisgæslu Íslands í formi skuldabréfs til tíu ára.
Segir hann fjármögnun á tveimur þyrlum með þess-
um hætti mun hagstæðari kost en að taka eina þyrlu
á leigu. „Það sem kemur fram [í útreikningum] er að
það er ekki mikið hærri upphæð að borga af skulda-
bréfi tveggja þyrlna til tíu ára en að leiga einnar á
mánuði,“ segir Guðmundur og bætir við að útreikn-
ingar hans, sem birtir verða á blaða-
mannafundinum í dag, séu áreiðan-
legir. Guðmundur segir ljóst að eftir
greiðslu skuldabréfsins mun ríkið að
lokum eignast þyrlurnar sem hljóti
að vera hagkvæmari kostur en að
leigja þyrlu sem skilað verður að
loknum leigutíma. Að sögn hefur
Guðmundur kynnt innanríkisráðu-
neyti útreikninga sína og segir hann
allar hugmyndir um aðkomu lífeyrissjóða að þyrlu-
kaupum hafa fallið í grýttan jarðveg hjá ráðuneytinu.
Vill aðkomu lífeyrissjóða að þyrlukaupum
FORMAÐUR VM BOÐAR TIL BLAÐAMANNAFUNDAR Í DAG
Guðmundur Þ.
Ragnarsson