Morgunblaðið - 28.09.2011, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
Hvort sem um er að ræða gamlar skíðakempur eða fólk sem er að fara í fyrsta sinn á skíði,
finna allir brekkur við sitt hæfi í ítölsku Ölpunum. Gott veður, nægur snjór, frábærar brekkur,
ítölsk matargerð og skemmtilegur félagsskapur í heilnæmu fjallalofti Alpanna, er eitthvað
sem allir ættu að upplifa. Selva val Gardena og Madonna di Campiglio á Ítalíu eru ein
glæsilegustu skíðasvæði heims og eru vinsælustu skíðaáfangastaðir Íslendinga undanfarin
ár. Við höfum reynsluna og vitum hvernig þú vilt hafa skíðaferðina þína.
ÚRVAL ÚTSÝN | LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585-4000 | URVALUTSYN.IS
*
Fl
ug
,s
ka
tta
r,
gi
st
in
g
og
ísl
en
sk
fa
ra
rs
tjó
rn
.
M
ið
as
tv
ið
að
bó
ka
ð
sé
á
ne
tin
u.
VIKAÁSKÍÐUMÍ
MADONNAÁÍTALÍUFRÁ:
MADONNAOGSELVA
BEINTFLUGTILVERON
A!
Verð ámannm.v. 2 fullorðna í viku
í tvíbýli með
morgunmat á Hótel Hubertus.
Brottför: 4. feb 2012
149.400KR.-*
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
„Þetta er námskeið í notkun líf- og
léttbáta og er eitt af mörgum nám-
skeiðum sem skólinn býður upp á,“
segir Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna. Á því
námskeiði læra nemendur, sem all-
ir eru starfandi sjómenn, rétta
notkun björgunar- og léttbáta sem
skip eru búin. „Það voru einnig
verkefni sem fólu í sér að taka
menn úr sjó og í þeirri aðgerð reyn-
ir á hæfileika þeirra við að stjórna
bátum.“
Hilmar segir þá sjómenn sem
sækjast eftir alþjóðlegum rétt-
indum, hvort heldur fyrir fiskiskip
eða kaupskip, verða að sækja nám-
skeiðin hjá Slysavarnaskólanum til
að uppfylla alþjóðaskilyrði um
menntun og þjálfun sjómanna. Mik-
il aðsókn er í skólann á ári hverju
og stefnir í að á þriðja þúsund sjó-
menn sæki nám við skólann í ár.
Lengd hvers námskeiðs er að sögn
mjög misjöfn og segir Hilmar nám-
skeiðið í gær vera tveggja daga
kúrs. „En námskeiðin hjá okkur eru
allt frá því að vera hálfur dagur og
upp í fimm daga.“
Alls voru tíu sjómenn á nám-
skeiði í gær og var notast við tvo
léttbáta og einn lokaðan lífbát.
Sjómönnum kennd rétt
viðbrögð við björgun úr sjó
Morgunblaðið/Eggert
Leiklistarsamband Íslands (LSÍ)
samþykkti ályktun á aðalfundi sín-
um í vikunni þar sem skorað er á
bæjaryfirvöld á Akureyri að standa
vörð um Leikfélag Akureyrar (LA)
og tryggja áframhaldandi starfsemi
þess þrátt fyrir tímabundna erfið-
leika í starfsemi félagsins.
Saga Leikfélags Akureyrar
spannar um 100 ár en LA varð at-
vinnuleikhús árið 1973, hið eina utan
höfuðborgarsvæðisins.
„Eðlilegt er að kryfja hvað úr-
skeiðis hefur farið í starfseminni nú
fyrir skemmstu og tryggja að slíkt
endurtaki sig ekki. Samhliða ber að
minnast ótal merkra sigra leikhúss-
ins í langri sögu en starfsemi þess
hefur oft á síðustu árum verið afar
blómleg. LSÍ varar við því að mögu-
leg mistök í rekstri og erfiðleikar
sem spanna stutt tímabil opni fyrir
umræðu um að leggja af starfsemi
atvinnuleikhúss á Akureyri. Það eru
allar forsendur fyrir áframhaldandi
metnaðarfullu starfi Leikfélags Ak-
ureyrar sem auðgar menningarlíf á
Norðurlandi og landinu öllu,“ segir
m.a. í ályktun LSÍ.
Bærinn
standi vörð
um LA
Leikfélag Starfsemi LA fer fram í Sam-
komuhúsinu á Akureyri.
Áskorun frá Leik-
listarsambandi Íslands
Sett hefur verið
af stað söfnun til
styrktar fjöl-
skyldu drengsins
sem lést í Sand-
gerði síðastliðinn
föstudag. Dreng-
urinn hét Dag-
bjartur Heiðar
Arnarsson, fædd-
ur 25. febrúar
2000. Hann var búsettur í Sandgerði
ásamt foreldrum og fjórum systkin-
um.
Á vefsvæði fréttavefjarins 245 -
lífið í Sandgerði segir að fjölskylda
Dagbjarts þurfi á stuðningi að halda,
andlegum og fjárhagslegum og því
sé leitað til almennings og óskað eft-
ir samstöðu og stuðningi.
Reikningsnúmer söfnunarinnar er
0147-05-173 og kennitala 010874-
3789.
Safnað fyrir
fjölskyldu í
Sandgerði
Frá Sandgerði.