Morgunblaðið - 28.09.2011, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
samúð. Megi minningin um ynd-
islega brosandi konu lifa með
okkur öllum um ókomna tíð.
Sigurlína H. Steinarsdóttir.
Við kynntumst allar í Háskóla
Íslands þar sem við stunduðum
nám í landfræði. Við vorum
nokkru eldri en hinir nemendurn-
ir og náðum strax vel saman.
Þetta samband þróaðist upp í vin-
áttu sem hélst alla tíð. Við unnum
saman öll verkefni í þeim fögum
sem við sóttum og studdum hver
aðra með ráðum og dáð.
Elsku Hjördís, þakka þér fyrir
samfylgdina, góða vináttu og
yndislegar samverustundir. Við
munum alltaf hugsa til þín með
hlýhug og minnast þín fyrir já-
kvæðni, glaðværð og æðruleysi
sem kom hvað best í ljós eftir að
þú veiktist. Í stað þess að velta
þér upp úr veikindunum var þér
efst í huga þakklæti fyrir hvað þú
ættir góða að og allir vildu allt
fyrir þig gera. Börnin þín og
barnabarn voru þér allt og þú
varst svo stolt af þeim. Samband
þitt við Óla veitti þér mikla gleði
og hamingju sem kom berlega í
ljós í samtölum okkar.
Þú kvaddir gjarnan með orð-
unum: „Ég elska þig.“ Við elskum
þig líka elsku Hjördís.
Elsku Diljá, Bjarki og Fjölnir
(augasteinn ömmu sinnar), missir
ykkar er mikill og við vottum
ykkur, Óla og fjölskyldunni allri
okkar dýpstu samúð.
Sigþrúður og Ann-Sophie.
Við sjáum í dag á bak kærri
samstarfskonu og vinkonu. Hjör-
dís hefur kvatt okkur, allt of
snemma eftir hetjulega baráttu
við krabbamein. Hjördís tók líf-
inu með bros á vör sama hvað á
bjátaði, alltaf átti hún bros og hlý
orð. Börnin hennar, Diljá og
Bjarki, voru henni allt og ömmu-
strákurinn Fjölnir Jarl var auga-
steinninn hennar. Það fór ekki á
milli mála þegar maður hitti
Hjördísi hversu stolt hún var af
krökkunum sínum.
Þó að nokkuð sé um liðið frá
því að Hjördís hætti störfum hjá
sjómælingasviði Landhelgis-
gæslunnar, til að helga sig sínu
háskólanámi, héldum við sam-
bandi og fengum fréttir af leik og
starfi og glímunni við veikindin.
Þeim tók hún eins og hverju öðru
verkefni í lífinu og lét ekki bugast
þótt gæfi á, var þar öðrum inn-
blástur og fyrirmynd.
Breiðafjörðurinn var Hjördísi
mikið hugðarefni og sinnti hún
bæði kortagerð af Breiðafirði í
starfi sínu hér hjá okkur en eins í
vinnu sinni fyrir Breiðafjarðar-
nefnd og við lokaritgerð í landa-
fræði frá Háskóla Íslands. Öll
bera þessi verk alúð hennar, fag-
mennsku og vinnusemi í starfi
glöggt vitni.
Takk fyrir samfylgdina elsku
Hjördís. Diljá, Bjarka, Fjölni
Jarli og Ólafi, unnusta hennar,
sendum við okkar einlægustu
samúðarkveðjur. Minningin um
mæta konu lifir.
Samstarfsfélagar á sjómæl-
inga-
sviði Landhelgisgæslunnar,
Árni, Níels og
Sigríður Ragna.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ásta Valsdóttir.
✝ Þóra NíelsínaHelga Há-
konardóttir fædd-
ist í Reykjavík 16.
maí 1926. Hún lést
á hjúkrunarheimil-
inu Sóltúni 19.
september 2011.
Foreldrar Þóru
voru Hákon Hall-
dórsson, f. 12. des.
1874, d. 13. mars
1951, og Petrína
Guðrún Narfadóttir, f. 13. nóv.
1892, d. 7. des. 1992.
Systkini Þóru eru Haraldur,
f. 19. júlí 1923, Herdís, f. 17.
júlí 1924, d. 23. maí 1988, Anna
Soffía, f. 18. ágúst 1927, d. 7.
okt 2007. Þóra átti eina hálf-
systur samfeðra, Níelsínu
Helgu f. 6. jan. 1907, d. 11. maí
1988.
júlí 1954. Hennar börn eru
drengur, f. 1. jan. 1973, d. 2.
jan. 1973, Sigurður, María Ólöf
og Sóley. Sambýlismaður Auð-
ar er Jóhann Valgeir Jónsson.
Kristín, f. 22. mars 1956, gift
Guðmundi Unnarssyni. Þeirra
börn eru Unnar Þór, Sveindís
Ósk, f. 30. júlí 1979, d. 7. des.
1996, og Brynjar Már. Áslaug,
f. 11. ágúst 1957, gift Birni
Grétari Þorsteinssyni. Þeirra
börn eru Harpa Sólveig, Þor-
steinn og Sveinn Þórir. Yngst-
ur er Hákon, f. 24. ágúst 1958.
Einnig eignuðust þau tvo
drengi sem létust fljótlega eftir
fæðingu. Langömmubörn Þóru
eru 31.
Útför Þóru fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, miðviku-
daginn 28. september 2011, kl.
11.
Maður Þóru var
Sveinn Kristinsson
frá Dalvík, f. 5.
ágúst 1920, d. 5.
nóv 1977. Börn
þeirra eru Helga
Dagmar Jóns-
dóttir, f. 23. júlí
1944, en Sveinn ól
hana upp sem sína
eigin dóttur. Henn-
ar börn eu Petrína
Guðrún, Guðrún
Margrét, Þorvaldur og Hákon
Rúnar. Snjólaug, f. 13. ágúst
1947, gift Jónasi Jakobssyni.
Þeirra börn eru Jakob, Helga
Þóra, Hafdís Rósa, Magnús
Már og Sveinn Gunnar. Guðrún
Margrét, f. 23. feb 1951. Henn-
ar börn eru Sveinn Pálmi, Mar-
teinn Óli, Svanhildur Rósa og
Róbert Þröstur. Auður, f. 11.
Góðar minningar verma
hjarta mitt og munu ávallt gera
er ég hugsa til elsku bestu
mömmu minnar sem kvaddi
þennan heim mánudaginn 19.
þessa mánaðar. Hún var ekki rík
af veraldlegum auði en auðug af
ást og hlýju sem við fengum að
njóta allt fram að andláti hennar.
„Ég elska þig Magga mín“
hljómar nú sem englasöngur og
vermir inn að hjartarótum.
Líf mömmu minnar var eng-
inn dans á rósum. Alla tíð þurfti
hún að stríða við erfið veikindi
sem voru þó sem betur fer miss-
læm. Auk þess var hún ekki
nema 27 ára þessi elska og gekk
með sitt fjórða barn þegar hún
brenndist afar illa í andliti af
slysförum. Hún fæddi átta börn í
þennan heim en missti tvo
yngstu drengina strax við fæð-
ingu. Þrátt fyrir allt heyrðist
aldrei vol né væl frá þér elsku
mamma mín heldur hélstu bara
áfram veginn með þitt fallega
bros og þína óendanlegu hlýju.
Núna síðustu fimm vikurnar í lífi
þínu varðst þú þeirrar gæfu að-
njótandi að fá að dvelja á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni þar sem
þér leið æðislega vel og varst svo
ánægð, þú einfaldlega blómstr-
aðir, ég hafði svo gaman af og
þótti svo vænt um að heyra
barnabörnin þín segja: „Já þarna
þekki ég hana ömmu aftur.“ Það
er svo gott að eiga í hjarta sínu
minningu um þig elsku mamma,
brosandi og ánægða, þótt við
vissum öll hvað hjarta þitt var
orðið veikt.
Elsku bestu mammsa mín.
Þakka þér fyrir allt og þá sér-
staklega fyrir alla ómetanlegu
aðstoðina og stuðninginn þegar
ég var sjálf með lítil krakkakríli
og fyrir allt sem þau fengu frá
þér. Mikið á ég eftir að sakna þín
besta mamma mín en ég reyni að
muna að það væri eigingirni að
sleppa ekki takinu, sama hversu
sárt það er.
Guð blessi minningu þína
elsku mamma mín, far þú í friði
og englar guðs gæti þín.
Þín elskandi dóttir,
Margrét.
Nú er elskuleg móðir mín lát-
in. Allar góðu minningarnar sem
ég á um hana streyma fram. Hún
var skemmtileg, fyndin og hafði
einstaklega skemmtilegan húm-
or alveg fram í andlátið þótt hún
ætti við erfið veikindi að stríða.
Hún var alltaf til staðar fyrir
okkur fjölskylduna, dvaldi oft á
okkar heimili þegar börnin okkar
Gumma voru lítil og erum við
henni ævinlega þakklát fyrir það.
Mamma bjó með Hákoni syni
sínum sem hugsaði mikið vel um
hana og vil ég þakka honum inni-
lega fyrir það, einnig þakka ég
starfsfólki Sóltúns þar sem hún
dvaldi síðustu fimm vikurnar
mikið vel fyrir góða umönnun.
Elsku mamma, ég veit það
hefur verið tekið vel á móti þér
af öllu okkar góða fólki sem farið
er. Ég kveð þig með miklum
söknuði og bið góðan guð að vaka
yfir þér.
Þín dóttir,
Kristín.
Mig langar að minnast
tengdamóður minnar, Þóru
Níelsínu Helgu Hákonardóttur,
sem lést hinn 19. september síð-
astliðinn. Þóru kynntist ég í
byrjun árs 1974 er ég og dóttir
hennar Kidda fórum að vera
saman og man ég eftir því að
þegar ég kom að sækja Kiddu
stóð Þóra alltaf við eldhúsglugg-
ann og reyndi að sjá piltinn sem
var að reyna að stela litlu stúlk-
unni hennar.
Við Þóra vorum alla tíð mjög
góðir vinir og þótti mér mjög
vænt um hana og veit ég að
henni þótti vænt um mig og var
sátt við að fá mig inn í fjölskyld-
una sína. Hún var alla tíð mjög
mikið hjá okkur, bæði hér í
Kópavogi og austur á Höfn, en
þar vorum við í nokkur ár. Hún
var mikill vinur barnanna okkar
og þótti þeim öllum mjög vænt
um ömmu sína. Einnig var hún
alltaf til staðar fyrir okkur og
var mjög gaman að hafa hana hjá
sér því hún var mikill húmoristi
og alltaf mjög stutt í grínið hjá
henni.
Að endingu vil ég þakka Þóru
tengdamóður minni fyrir allar
samverustundirnar og alla hjálp-
ina sem hún veitti okkur alveg
frá byrjun búskapar okkar
Kiddu, en hún var alltaf tilbúin
að koma og hjálpa til ef við báð-
um hana um það. Ég kveð hana
því með miklum söknuði og megi
góður guð geyma hana og varð-
veita um alla eilífð.
Þinn tengdasonur,
Guðmundur Unnarsson.
Í dag fylgjum við elskulegri
ömmu okkar til hinstu hvílu með
miklum söknuði. Kvaddi hún
þennan heim eftir erfið veikindi
hinn 19. september síðastliðinn á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Yndislegan tíma átti hún þar,
ávallt vel tilhöfð, í fallegum föt-
um, naglalökkuð og með skart.
Naut hún þess mjög að vera
svona fín og alltaf var stutt í
grínið og stríðnina, því fengum
við að verða vitni að undanfarnar
vikurnar, það var mikið hlegið og
gaman hjá okkur. Minnug var
hún amma með eindæmum,
þannig gat hún þulið upp afmæl-
isdaga allra í ættinni eins og ekk-
ert væri og stór er svo sann-
arlega ættin okkar.
Sárt er að sjá á eftir hinni
ljúfu og hjartagóðu ömmu okkar
en svo sannarlega á hún skilið að
fá að hvíla sig eftir stranga en
góða ævi. Alveg erum við viss um
að hann Sveinn afi, Peta
langamma og allt yndislega fólk-
ið okkar sem kvatt hefur þennan
heim hefur tekið vel á móti þér
og umvafið þig ást, hlýju og ham-
ingju.
Guð og englar blessi minningu
elskulegrar ömmu okkar.
Systkinin,
Sveinn Pálmi,
Marteinn Óli,
Svanhildur Rósa,
Róbert Þröstur.
Þóra Níelsína Helga
Hákonardóttir
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JYTTE LIS ØSTRUP
kennari,
Sólvallagötu 22,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum mánudaginn
19. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki hjúkrunarheimilisins fyrir góða umönnun.
Björg Østrup Hauksdóttir,
Inga Lis Østrup Hauksdóttir, Jón Egill Egilsson,
Björn Óli Østrup Hauksson, Kristjana Barðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞURÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
lést á heimili sínu sunnudaginn
25. september.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Magnús Guðjónsson,
Guðjón Magnússon,
Ólafur Magnússon, Tamara Soutourina,
Jóhann Magnússon, Kristín Björg Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA STEFANÍA STEINÞÓRSDÓTTIR
frá Bjarneyjum,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugar-
daginn 17. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug.
Bestu þakkir fær starfsfólk Skógarbæjar og Vitatorgs fyrir alúð
og umhyggju.
Guð veri með ykkur.
Hannes Halldórsson,
Gylfi Sigurðsson, Anna Rósa Traustadóttir,
Þorbjörg H. Hannesdóttir, Guðmundur K. Magnússon,
Jóhanna S. Hannesdóttir, Ólafur Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, langafi og bróðir,
BJÖRN THOMAS VALGEIRSSON
arkitekt,
Laufásvegi 67,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
mánudaginn 19. september.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 30. september
kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna, sími 588 7555.
Stefanía Stefánsdóttir,
Hildur Björnsdóttir, Ásgeir Bragason,
Dagný Björnsdóttir, Skúli Gunnarsson,
Valgerður Helga Björnsdóttir, Jón H. Björnsson,
barnabörn og barnabarnabarn,
Björg Valgeirsdóttir.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Böðmóðsstöðum í Laugardal,
áður húsfreyja,
Auðbrekku í Hörgárdal,
verður jarðsungin frá Möðruvallarkirkju í
Hörgárdal mánudaginn 3. október kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heimahlynninguna
á Akureyri og dvalarheimilið Hlíð á Akureyri.
Anna Karólína Stefánsdóttir, Höskuldur Höskuldsson,
Guðmundur Valur Stefánsson, Adelia Santos Mondlane,
Valþór Stefánsson, Anna Sigurbjörg Gilsdóttir,
Lilja Stefánsdóttir, Hörður Hafsteinsson,
Hildur Stefánsdóttir, Guðjón Magni Jónsson,
Gunnhildur Fjóla Valgeirsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hallveigarstíg 8,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn
23. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Margrét Medek, Peter Medek,
Björk Hjaltadóttir, Guðmundur Brynjólfsson,
Vigdís Hjaltadóttir,
Hulda, Brynhildur, Helga, Hjalti,
Astrid og langömmubörn.