Morgunblaðið - 28.09.2011, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011
Fólkið í Kjallaranum – „Fantagóð sýning“ – EB, Fbl
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er auðvitað draumur að fá bók-
ina útgefna og hafa tekist að heilla
dómnefndina,“ segir Bryndís Björg-
vinsdóttir, sem í gær hlaut Íslensku
barnabókaverðlaunin fyrir bókina
Flugan sem stöðvaði stríðið. Þetta
er önnur bók Bryndísar því fyrir 14
árum kom út bókin Orðabelgur
Ormars ofurmennis sem hún skrif-
aði í samvinnu við Auði Magndísi
Leiknisdóttur, en þær voru aðeins
15 ára þegar bókin var gefin út. Þá
dreymdi Bryndísi fyrir því að hún
fengi dag einn verðlaun fyrir bók
eftir sig og rættist sá draumur í gær.
Á stærð við krumpaða rúsínu
Í þakkarræðu Bryndísar kom
fram að hugmyndin að bókinni hefði
kviknað fyrir fimm árum. „Ég var
inni á baðherbergi, búin að læsa að
mér og hélt að ég væri ein þegar ég
tók eftir húsflugu sem starði á mig.
Þá fór ég að hugsa um hversu merki-
legt það væri að við manneskjurnar
gleymum því oft að húsflugur búa
með okkur. Þær sjá allt sem við ger-
um. Þær sjá okkur á okkar við-
kvæmustu stundum og sjá okkur
líka þegar við erum viss um að eng-
inn sjái til okkar,“ segir Bryndís og
tekur fram að sér hafi sökum þessa
fundist spennandi að skrifa bók út
frá sjónarhóli flugna.
Í samtali við Morgunblaðið segist
Bryndís ekki hafa byrjað að skrifað
bókina af krafti fyrr en fyrir tveimur
árum. „Fram að þeim tíma var ég
aðallega að punkta hluti hjá mér og
velta fyrir mér hvernig ein lítil hús-
fluga á stærð við krumpaða rúsínu
gæti stöðvað stríð. Flugurnar í bók-
inni beita nokkrum aðferðum sem
eru í reynd ekki svo fáránlegar,“
segir Bryndís dularfull á svip og tek-
ur fram að hún vilji ekki segja meira
þar sem það eigi að koma lesendum
á óvart. Það ætti hins vegar ekki að
koma neinum á óvart að boðskapur
sögunnar felur m.a. í sér að þó að
maður sé lítill og enginn taki eftir
manni þá geti maður samt haft áhrif
og komið stórum hlutum til leiðar.
Bera á virðingu fyrir lífinu
Bryndís segir það mikla áskorun
að skrifa um húsflugur. „Ég þurfti
að lesa mér heilmikið til um hús-
flugur og reyna að gera þær spenn-
andi. Því okkur finnst þær yfirleitt
það óspennandi að okkur finnst
sjálfsagt að drepa þær,“ segir Bryn-
dís og tekur fram að sjálf hafi hún
aldrei getað gert flugu mein. „Maður
á að bera virðingu fyrir öllu lífi,
hversu smátt sem það er,“ segir
Bryndís og bætir við að þessi virðing
fyrir lífinu sé einn aðalboðskapur
sögunnar.
„Kannski má segja að bókin feli
líka í sér ákveðið uppgjör við mína
eigin æsku. Sem barn hafði ég mikl-
ar áhyggjur af stríðsátökum í heim-
inum. Börnum er kennt að þau eigi
að hlýða fullorðna fólkinu af því að
það viti best, en svo sjá þau á hverj-
um degi í fjölmiðlum að fullorðna
fólkið drepur hvað annað og hjálpar
ekki öðrum í neyð,“ segir Bryndís og
tekur fram að það sé mörgum börn-
um áfall að sjá fullorðna fólkið sýna
mannvonsku og gera hluti sem börn-
um dytti aldrei í hug að gera. Bendir
hún á að húsflugurnar tjái þetta
barnslega sakleysi þegar þær horfa
á heiminn og undra sig á gjörðum
fullorðna fólksins.
„Flugurnar sjá allt “
Flugan sem stöðvaði stríðið hlaut Íslensku barnabóka-
verðlaunin Önnur bók Bryndísar Björgvinsdóttur
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Kampakát Sigþrúður Gunnarsdóttir frá Forlaginu afhenti Bryndísi Björgvinsdóttur fyrsta eintakið af verðlauna-
bókinni. Bryndís segist alltaf hafa verið mikill lestrarhestur og hangið inni á skólabókasafninu í öllum frímínútum.
Íslensku barnabókaverðlaunin
hafa verið veitt nær árlega frá
árinu 1986 og hefur fjöldi vand-
aðra og vinsælla bóka komið út
undir merkjum verðlaunanna.
Margir höfundar hafa gefið út sín-
ar fyrstu bækur eftir að hafa tekið
þátt í samkeppninni en einnig hafa
verið verðlaunaðar bækur eftir
starfandi höfunda.
Stofnað var til Verðlaunasjóðs
íslenskra barnabóka í tilefni af sjö-
tugsafmæli Ármanns Kr. Einars-
sonar árið 1985. Að sjóðnum
standa fjölskylda Ármanns, Barna-
vinafélagið Sumargjöf, IBBY á Ís-
landi og Forlagið/Vaka-Helgafell,
sem öll áttu fulltrúa í dómnefnd
verðlaunanna ásamt tveimur nem-
endum úr Rimaskóla. Markmið
sjóðsins er að stuðla að auknu
framboði á vönduðu íslensku les-
efni fyrir börn og unglinga. Alls
bárust dómnefnd 25 handrit í ár.
Stuðlar að vönduðu lesefni
ÍSLENSKU BARNABÓKAVERÐLAUNIN FYRST VEITT ÁRIÐ 1986
Á morgun kl. 12.15 mun Friðrik
Rafnsson spjalla við gesti á Borgar-
bókasafninu við Tryggvagötu um
fransk-úkraínsku skáldkonuna
Irène Némirovsky og verk hennar.
Friðrik mun einkum fjalla um þá
frjósömu togstreitu sem gengur eins
og rauður þráður í gegnum verk
hennar, þrána að tilheyra tilteknum
þjóðfélagshópi sem hún líkti gjarna
við býflugnabú, en um leið stöðuga
frelsisþrá og tortryggni í garð þeirr-
ar harðhugsunar sem einkennir bý-
flugnabúið, að því er fram kemur í
tilkynningu. Spjall þetta er haldið í
tengslum við sýningu sem nú stend-
ur yfir um ævi og ritverk hennar í
Borgarbókasafni Tryggvagötu 15.
Nýverið kom út bók Némirovsky,
Frönsk svíta, í þýðingu Friðriks og
var sýningin sett upp í tilefni af því
en hún ber yfirskriftina „Ég skrifa á
brennheitu hrauni“.
Sýningin í Borgarbókasafni er
smækkuð útgáfa af sýningu sem nú
stendur yfir í Museum of Jewish
Heritage í New York og Mémorial
de la Shoah í París. Spjall Friðriks
tekur um hálftíma og er aðgangur
ókeypis. Hádegisspjall Iréne Némirovsky.
Hádegisspjall um skáld-
konuna Irène Némirovsky
Breski listaverkasalinn Jay Jopling
mun 12. október nk. opna nýtt um-
boðsgallerí í Lundúnum og verður það
stærsta slíka galleríið á Bretlandi,
5.400 fermetrar að flatarmáli. Jopling
hefur rekið White Cube-galleríið um
árabil í Lundúnum og annað gallerí til
en nýja galleríið mun heita White
Cube Bermondsey og er í fyrrverandi
vöruhúsi nærri nýlistasafninu Tate
Modern. Jopling hyggst svo opna enn
eitt galleríið, í Hong Kong, á næsta
ári. Um 100 manns vinna fyrir Jopling
í galleríunum en hann hóf reksturinn
árið 1993, í tiltölulega litlu galleríi í
austurhluta Lundúna. Farsæll Jay Jopling galleristi.
Stærsta umboðs-
gallerí Bretlands