Morgunblaðið - 28.09.2011, Side 30

Morgunblaðið - 28.09.2011, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2011 … en sagan nær ekki að sjarmera mann nógu mikið til að maður geti eitthvað annað en vera spar- samur á lofið 31 » Flautuhátíð Íslenska flautukórsins 2011 hófst í gær og stendur til 2. október. Þar verður svissneski flautuleikarinn Matthias Ziegler með námskeiðs- og tónleikahald. Ziegler hefur unnið að því að stækka hljóðheim flautunnar, meðal annars í samstarfi við flautusmiðinn Evu Kingma. Þau hafa þróað flautur sem bjóða upp á nýja möguleika. Til dæmis hafa þau sett hljóðnema eða skynjara í hljóðfærið og tengt við tölvur og hljóðkerfi. Ziegler mun taka með sér flautur af öllum stærð- um og gerðum. Ef til vill verður for- vitnilegast að sjá og hlýða á hann leika á risavaxna kontrabassaflautu. Ziegler er leiðandi flautuleikari við Zürich Chamber Orchestra og kenn- ir við Musikhochschule Winterthur í Zürich. Hann hefur unnið með þekktum listamönnum um allan heim og leikið inn á fjölmarga geisla- diska. Matthias Ziegler heldur tón- leika ásamt Íslenska flautukórnum í Langholtskirkju í kvöld, miðviku- dagskvöld 28. september, klukkan 20. Auk tónlistar Zieglers mun flautukórinn flytja tvö ný íslensk verk. Annað er eftir Guðmund Stein Gunnarsson en hitt er Draumur Ma- núelu eftir Jón Hlöðver Áskelsson en einleikari í því verki er Áshildur Haraldsdóttir. Aðgangseyrir er kr. 2000. Í vikunni mun Ziegler síðan kenna flautunemum á Selfossi en á laugardaginn verður flautuhátíð í Tónlistarskólanum í Hafnarfirði. Flautuhátíðin býður upp á þróaðar flautur frá Sviss  Flautuleikarinn Matthias Ziegler á Flautuhátíðinni Flautan Matthias Ziegler er einn nýstárlegasti flautuleikari samtímans. Á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík (RIFF) verður meðal annars í dag sýnd myndin Lady of No Fear í Iðnó klukkan 18:45 og mun leikstjórinn Anne Gyrithe Bonne spjalla við áhorfendur eftir sýningu myndarinnar. Um kvöldið verður síðan El Bulli: Cooking in Progress sýnd í Norræna húsinu klukkan 20:00 og eftir sýninguna mun kvikmyndatökumaðurinn Jos- ef Mayerhofer spjalla við áhorf- endur. Myndin fjallar um kokkinn Ferran Adriá sem er af mörgum talinn framsæknasti og sturlaðasti kokkur í heimi. En hann rekur veit- ingastaðinn El Bulli. Á Kaffibarnum byrjar síðan klukkan 21:00 kvöld Villta vesturs- ins. Þar verður óhefluð stemning kúrekanna eins og við þekkjum hana úr bíómyndunum sköpuð og hin árlega spurningakeppni hátíð- arinnar verður haldin. Búið er að breyta barnum í gamaldags krá með hrjúfum barþjónum, skreyt- ingum, viskíi í grútskítugum glös- um og heimatilbúnu hóruhúsi á annarri hæðinni. Hátíðargestir geta tekið þátt í spurningakeppn- inni og sett sig í spor kúrekanna og hóranna. Kúrekar á kvik- myndahátíðinni  Kvikmyndahátíðin á Kaffibarnum Byssur Kúrekar úr Villta vestrinu. Föstudaginn 30. september kl. 20 halda Svanhildur Rósa Pálmadóttir messósópran og Ástríður Alda Sig- urðardóttir píanóleikari einsöngs- tónleika í Kirkjuhvoli í safnaðar- heimili Vídalínskirkju. Fluttar verða óperuaríur, eftir meðal annars Sa- int-Saëns, Massenet og Donizetti, og valdar íslenskar söngperlur. Svan- hildur Rósa Pálmadóttir útskrifaðist úr Tónlistaskóla Garðabæjar undir handleiðslu Snæbjargar Snæbjarn- ardóttur árið 2005. Eftir það lá leiðin út og hefur hún lært söng hjá meðal annars Franz Lukasovksy (Vín), Bi- anca-Maria Casoni (Mílanó) og Wal- ter Coppola (Trieste). Hún útskrif- aðist í júlí á þessu ári úr Conservatorio Jacopo Tomadini í Udine Ítalíu með hæstu einkunn. Hún hefur einnig komið mikið fram sem einsöngvari á Ítalíu. Ástríður Alda Sigurðardóttir lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík undir handleiðslu Önnu Þorgrímsdóttur. Hún lauk Artist Diploma við Indiana Univers- ity – Jacobs School of Music í Blo- omington þar sem hún stundaði nám hjá Reiko Neriki, fyrrverandi nem- anda Georgy Sebök. Svanhildur Rósa Pálmadóttir Aríur og ís- lenskar söngperlur  Einsöngstónleikar í Vídalínskirkju Sýning á 32 veggspjöldum eftir Guðmund Odd Magnússon, betur þekktur sem Goddur, var opnuð í gær á Alþjóðlegu hönnunarvikunni í Peking. Þetta er í annað sinn sem sendiráð Íslands í Kína vinnur með Alþjóðlegu hönnunarvik- unni í Peking sem margir af þekktustu hönnuðum heims sækja og sýna á. Sýning Godds er yfirlit veggspjalda sem hann hannaði á 15 ára tímabili, meðal annars í samstarfi við Bjarna H. Þórarinsson og aðra listamenn. Sýning Godds er haldin í nýja hönnunarhverfinu í Peking, sem nefnist 751. Myndlist Goddur til Kína með veggspjöld Guðmundur Oddur Magnússon Á fimmtudaginn klukkan 14:00 verður ungverski leikstjórinn Béla Tarr með masterklass í Háskóla Íslands í hátíðarsal skólans. Tarr hlýtur heiðurs- verðlaun hátíðarinnar í ár og mun hann síðar veita þeim við- töku á Bessastöðum. Tarr er þekktur fyrir óhefðbundna nálgun við kvikmyndagerð og að mati Susan Sontag er hann bjargvættur hennar sem list- greinar. Tarr segir kvikmyndagerð vera sjöundu listgreinina en síðasta bíómyndin hans, Hesturinn frá Tórínó, er sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni (RIFF). Kvikmyndagerð Tarr talar við nemendur Béla Tarr Í tilefni af útgáfu ljósmynda- bókarinnar Yfirsýnar eftir Sig- urgeir Sigurjónsson ljósmynd- ara, þar sem óbyggðum Ís- lands eru gerð stórbrotin skil í myndum teknum úr lofti, verð- ur opnuð sýning á verkum Sig- urgeirs í Sverrissal. Sjónar- horn fuglsins fljúgandi gefur nýja og óvænta sýn á náttúr- una og í ljós koma ótrúlegustu form og litir, kynjamyndir í jöklum og ám. Sigurgeir ljósmyndari hefur sent frá sér fjölda ljósmyndabóka, þar á meðal ein- hverjar allra vinsælustu bækur sem gefnar hafa verið út með ljósmyndum úr íslenskri náttúru. Ljósmyndalist Sjónarhorn fuglsins fljúgandi Ljósmynd Sigurgeirs. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík (S.L.Á.T.U.R.) standa fyrir Sláturtíð í þriðja sinn dagana 28. september til 3. október 2011. Hátíðin er haldin í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur – Hafnar- húsi, tónleikaröðina Jaðarber, Reykjavíkurborg og austurríska sendiráðið í Kaupmannahöfn. Alls eru sjö atburðir á hátíðinni og sex tónleikar, þar af einir sem eru eins konar innsetning og síðan er fyrir- lestur. Af erlendum gestum verða Vortex Project frá Austurríki/ Slóveníu og síðan Christopher Schiller frá Sviss á hátíðinni. Þar að auki mun heyrast mikið af nýjum ágengum verkum í höndum ís- lenskra flytjenda. Má þar nefna FagVerk, Fengjastrút og nokkur nýsmíðuð vélmenni sem munu leika á sig sjálf og flugvélahluta og bús- áhöld. Leikin verða verk eftir ýmsa meðlimi samtakanna eins og Áka Ásgeirsson, Bergrúnu Snæbjörns- dóttur, Jesper Pedersen, Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Hallvarð Ás- geirsson og Erlu Axelsdóttur. Að sögn Áka Ásgeirssonar eru samtökin Slátur nokk öflug. „Já, svona á okkar sviði, sem er svona til- raunatónlist,“ segir Áki. „Við erum öflug í því að viðhalda reglulegum viðburðum. Við erum að búa til hefð- ir, það er markmiðið. Ástæðan fyrir því að við byrjuðum var að ná saman fólki með svipuð áhugamál. Það eru 15-20 tónskáld í hópnum. Sumt fólkið er meira í spuna, annað í gjörningum, myndlist eða einhverju öðru. Við erum þeirrar skoðunar að það sé ekki gamaldags að vera frum- legur. Póst-hippatíminn dettur stundum í það að halda að það sé voða gamaldags að vera frumlegur. Það sé í lagi að vera venjulegur. Við sem verðum á hátíðinni erum í því að gera nýja tónlist; bæði nýja gagn- vart samtímanum en líka nýja gagn- vart okkur sjálfum. Tónlist er alltaf svipuð annarri tónlist en samt er hægt að vera frumlegur,“ segir Áki. Það er í lagi að vera frumlegur  Hátíð tilrauna- tónlistar byrjar í dag í Listasafninu Gjörningur Tónlistarmennirnir á myndinni eru að herma eftir hljóði sem kemur úr músagildru.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.