Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 7. O K T Ó B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  235. tölublað  99. árgangur  BÍLUNUM FLEYGIR FRAM MINNI VÉLAR, SPARNEYTNARI OG LÉTTARI BÍLAR. ALLT UM BÍLA, AKSTUR, FÓLK OG FRAMFARIRNAR Í 32 SÍÐNA AUKABLAÐI Frumvarp nefnd- ar um eignarhald á fjölmiðlum gæti haft áhrif á 365 miðla – verði það að lögum – ef tek- ið er mið af þeim viðmiðum sem koma fram í greinargerð með frumvarpinu. „Það er ekkert útilokað, en þetta er ekkert sér- staklega hannað þeim til höfuðs. En það er alveg ljóst að þeir eru gríð- arlega stórir á ákveðnum fjölmiðla- mörkuðum,“ segir Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður, sem fór fyrir nefndinni. Áætlað er að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi á haustþingi. Karl segir annars að erfitt sé að lesa út úr frumvarpinu áhrif á fjöl- miðlamarkaðinn enda sé hann á fleygiferð og ekki vitað hvernig landslagið líti út þegar og ef frum- varpið verður að lögum í vetur. „En eins og verið hefur um árabil, og al- þjóðlegar mælingar sýna, er mjög óheppileg samþjöppun á íslenskum fjölmiðlamarkaði og það er ástand sem hefur verið til margra ára.“ »4 Hugsan- leg áhrif á 365 miðla Karl Axelsson  Áform um af- skriftir á meiri- hluta skulda sveitarfélagsins Álftaness eru háð því að sveit- arfélagið sam- einist öðru sveit- arfélagi, að sögn Andra Árnason- ar hrl., formanns fjárhaldsstjórnar Álftaness. Áætlanir fjárhaldsstjórn- arinnar miðist við að reksturinn standi aðeins undir sér eftir sam- einingu. Hluti af um eins milljarðs fram- lagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Álftaness er vegna sameiningar en í lögum er kveðið á um að sveit- arfélög sem sameinist eigi rétt á til- teknum fjárframlögum. Skv. upp- lýsingum Morgunblaðsins eru þó um 2/3 hlutar upphæðarinnar sér- stakt framlag til Álftaness sem keyrt var í þrot á árunum 2006- 2009. »12 Afskriftir byggjast á sameiningu Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Norðurál hafnar því að borga fullt verð fyrir þau 50 MW sem samið var um að félagið keypti af Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 1. október sl. Þar nýtir félagið sér ákvæði í samn- ingi þess og Orkuveitu Reykjavíkur sem kveður á um að kaupandi borgi 85% af raforkuverði, óháð því hvort hann getur tekið við rafmagninu eða ekki. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur, segir að ákvæðið um 85% verð sé í þessum samningi eins og öllum öðrum í stóriðjunni svokölluð kaupskylda. Kaupandinn borgi fyrir 85% af umsömdu orku- magni út samningstímann, óháð því hvort hann getur tekið rafmagn eða ekki. Um gagnkvæma skuldbindingu sé að ræða. „Þannig að ef þeir geta ekki selt álið eða verða að loka ál- verinu af einhverjum markaðsástæð- um eða þá að þeir verða fyrir ein- hverri alvarlegri bilun og geta ekki tekið við rafmagninu af þeirri ástæðu mega þeir minnka niður í 85%.“ Bjarni gat ekki gefið upp áætlað tekjutap vegna þessa. Þetta þýðir að Norðurál borgar núna fyrir um 85% af umsömdum 50 MW frá Sleggjunni, nýrri rafstöð Orkuveitunnar á Hellisheiði. Ef mið- að er við heimildir Morgunblaðsins um orkuverð má gera ráð fyrir að Orkuveitan verði af 250-300 milljóna króna tekjum vegna þessa á árs- grundvelli. Sleggjan var m.a. byggð vegna áforma Norðuráls um bygg- ingu álvers í Helguvík. Má því ætla að á meðan ekki næst að selja um- rædd 15% tapi Orkuveitan þeim tekjum, á meðan beðið er niðurstöðu vegna álversins í Helguvík. Telja ákvæðið ekki eiga við „Norðurál skerti orkukaup frá okkur frá mánaðamótum og hefur nefnt 85% ákvæðið við okkur en ekki tilkynnt það neitt formlega,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku. Skerðingin sé umtalsverð ef hún verði til frambúðar en þeir telji ákvæðið ekki eiga við. „Við erum að skoða það og ætlum ekki að tjá okkur þar um á meðan.“ Hann segir þetta algerlega nýja hlið á samningnum og verið sé að skoða hana. Forsvarsmenn Norðuráls kváðust ekki geta tjáð sig um innihald orku- samninga. Borga ekki fullt orkuverð  Norðurál borgar einungis 85% af umsömdu verði á orku úr nýrri rafstöð OR  Nýtir sér ákvæði í orkusölusamningi Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur Rafstöð Sleggjan á Hellisheiði. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það er sjónarmið fagfólks að það borgi sig að hafa fjarlægðir innan spítalans sem allra minnstar. Þannig að það fólk sem vinnur saman geti gert það án þess að þurfa að fara endanna á milli á Landspítalalóð- inni. Þessar teikn- ingar sem nú liggja fyrir virðast þýða að það verði umtalsverðar fjarlægðir, alla- vega eftir fyrsta áfangann,“ segir Steinn Jónsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Félagið hélt opinn fund á Grand hót- eli í gær um byggingu nýs Landspít- ala við Hringbraut. Á annað hundrað manns sóttu fundinn þar sem meðal annars var rætt hvort hönnun spít- alans tæki mið af þörfum starfsfólks og sjúklinga. Upp komu hugmyndir um að byggja spítalann á norðurhluta lóð- arinnar til að gera hann samþjapp- aðri. „Læknar hafa unnið á spítölum um víða veröld og þekkja það best á eigin skinni hvernig er best að hanna spítala. Ég held að það hafi komið fram málefnaleg gagnrýni á fund- inum á ýmsa þætti sem væri gott að taka mið af í áframhaldandi umræðu um málið,“ segir Steinn. „Það er mikilvægt fyrir heilbrigð- isþjónustuna að af þessu verði en það eru ennþá skiptar skoðanir um stað- arvalið og ýmsa þætti í útfærslunni. Til dæmis kom fram gagnrýni á byggingarmagnið og staðsetninguna í Þingholtunum. Svo komu fram tals- verðar áhyggjur af umferðarþunga á svæðinu.“ Of mikið flæmi innan nýs spítala Steinn Jónsson  Upplýsingafulltrúi Umboðs- manns skuldara segir best fyrir alla ef höfðað verður dómsmál vegna ágreinings um endurútreikninga gengislána svo fá megi dómsnið- urstöðu í vafamálum sem uppi eru. „Það ríkir réttarágreiningur um túlkun á þessu og úr honum verður ekki skorið nema fyrir dómstólum,“ segir Svanborg Sigmarsdóttir, upp- lýsingafulltrúi umboðsmanns. »12 Best fyrir alla að fá dóm um ágreining Anatoly Karpov, fyrrum heimsmeistari í skák, kom til Íslands í gær í tilefni af 111 ára afmæli Taflfélags Reykjavíkur, en hann gekk nýverið í raðir þess. Hann verður ennfremur viðstaddur setningu Ís- landsmóts skákfélaga á morgun Að sögn Friðriks Ólafssonar stórmeistara er koma Karpovs mikil lyftistöng fyrir skákíþróttina. Í heim- sókn sinni til Taflfélags Reykjavíkur í gær vakti skákskýringarborð athygli Karpovs. „Það var notað við einvígi okkar Bent Larsens árið 1956,“ segir Friðrik. „Það er orðið snjáð og það átti að henda því. En einhver rifjaði þá upp sögu borðsins.“ Meðan á Íslandsdvölinni stendur mun Karpov meðal annars tefla við unga skákmenn, tefla fjöltefli í Ráðhúsi Reykjavíkur og fara að gröf Bobby Fisch- ers. Þeir Friðrik munu tefla sýningarskák í dag klukkan hálf-fimm, en þetta er síður en svo í fyrsta skipti sem þeir eigast við. „Við höfum verið að kljást frá árinu 1971 á skákmóti í Moskvu. Hann er erfiður andstæðingur, en mér tókst að vinna hann síðast þegar við tefldum, árið 1980.“ annalilja@mbl.is Karpov fyrrverandi heimsmeistari í skák í heimsókn á 111 ára afmæli TR Morgunblaðið/Ómar „Höfum verið að kljást frá 1971“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.