Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Jura kaffivélar BAKSVIÐ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Það er ljóst mál að Evrópusam- bandið lítur ekki svo á að það verði á næstunni tekist á við stóru ágrein- ingsmálin sem uppi eru á milli Ís- lands og sambandsins svo sem í sjávarútvegs- og landbúnaðarmál- um. Kaflarnir sem lúta að þessum tveimur málaflokkum verða ekki opnaðir strax,“ sagði Einar K. Guð- finnsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, í samtali við mbl.is í gær. Þriðji fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Alþingis og þings Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands um inngöngu í sambandið fór fram í Brussel í gær en Einar var á meðal þeirra níu ís- lensku þingmanna sem sátu fund- inn. Hann segir íslensku þingmenn- ina á fundinum hafa spurt mjög eftir því hvenær sjávarútvegs- og landbúnaðarmálin yrðu tekin fyrir og talið eðlilegast að þau yrðu tekin strax til umræðu. Aðspurður hvort fram hafi komið á fundinum hvenær kaflarnir tveir yrðu teknir fyrir segir Einar að fulltrúar Evrópusambandsins hafi forðast mjög að nefna einhverjar ákveðnar dagsetningar í þeim efn- um. „En ég held að það sé alveg ljóst mál að við séum frekar að tala um mánuði en vikur.“ Heimavinnan óunnin Valgerður Bjarnadóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, staðfesti í samtali við mbl.is að sjávarútvegs- og landbúnaðarkaflarnir yrðu ekki teknir fyrir strax að mati Evrópu- sambandsins, en hún sat einnig fund sameiginlegu nefndarinnar. Hún segir að landbúnaðarmálin verði örugglega ekki tekin fyrir á þessu ári vegna þess að landbún- aðarráðuneytið hafi ekki unnið þá heimavinnu sem Evrópusambandið hafi farið fram á áður en sá kafli yrði opnaður. Boltinn væri hins veg- ar hjá sambandinu varðandi sjávar- útvegsmálin en tafir í þeim efnum væru vegna yfirstandandi breytinga á sjávarútvegsstefnu þess. Valgerður segir að fram hafi komið í máli fulltrúa Evrópusam- bandsins á fundinum að umsóknar- ferlið gengi að öðru leyti vel að þeirra mati og samkvæmt áætlun. Þá hafi komið fram að ekki þyrfti að ráðast í neinar breytingar á fyrir- komulagi landbúnaðarmála hér á landi samhliða viðræðum um þau en hins vegar yrði að setja saman áætl- anir um þær breytingar sem gera þyrfti. Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra hefur ítrekað sagt að taka bæri sjávarútvegs- og landbúnaðar- málin fyrir sem fyrst í viðræðunum við Evrópusambandið. Ekki teknir fyrir á næstunni  Sjávarútvegs- og landbúnaðarkaflarnir verða ekki teknir fyrir strax í viðræðum við Evrópusambandið  Spurning um mánuði frekar en vikur segir þingmaður Valgerður Bjarnadóttir Einar K. Guðfinnsson Evrópumálin » Erfiðustu kaflarnir í við- ræðum við ESB, sjávarútvegs- og landbúnaðarmálin, verða ekki opnaðir strax að sögn þingmanna. » Utanríkisráðherra hefur tal- að fyrir því að erfiðustu kafl- arnir verði teknir fyrir sem fyrst í viðræðunum. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það verður að líta á bankakreppuna í heiminum frá breiðu sjónarhorni. Þetta eru ekki bara erfiðleikar bank- anna, því í lok dags er það líf fólksins sem hangir á línunni. Það er atvinnu- laust, úrræðalaust og þunglynt vegna ástandsins,“ sagði Kofi Ann- an, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, á blaða- mannafundi á Bessastöðum síðdegis í gær. Áður hafði hann átt fund með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Fjármálakreppan í heiminum var Annan hugleikin. Sagði hann að það þyrfti að horfa á hana sem sam- félagsvandamál. „Traust almennings er horfið, fólk treystir hvorki stjórn- málamönnum né leiðtogum fjár- málaheimsins. Fólkinu finnst þeir ekki vera að takast á við vandamálin sem snerta það,“ sagði Annan. Hann kvaðst hafa fylgst vel með því hvern- ig tekist var á við kreppuna hér á landi og sagði að aðrar þjóðir í efna- hagserfiðleikum gætu lært margt af Íslendingum. Hliðraði til í dagskránni Annan flytur í dag upphafsræðuna á hátíðarmálþingi Háskóla Íslands í tilefni af hundrað ára afmæli skól- ans. Málþingið ber heitið „Áskoranir 21. aldarinnar“ og fer fram í Há- skólabíói. Fyrirlestur Annans fjallar um hvernig við getum endurreist traust á sameiginlega framtíð okkar. Annan sagðist vel muna eftir fyrstu heimsókn sinni til Íslands og kvaðst ánægður með að vera staddur hér aftur. „Þegar mér var boðið að koma og fagna 100 ára afmæli há- skólans gat ég ekki neitað og hliðraði til í dagskrá minni. Háskólar leika stórt hlutverk í framtíðinni í víðu samhengi.“ Vill sjá Palestínuríki stofnað Spurður út í umsókn Palestínu að Sameinuðu þjóðunum sagði Annan að það væri mikilvægt fyrir SÞ að tryggja stofnun Palestínuríkis. „Sameinuðu þjóðunum og sér- staklega þeim löndum sem eiga fast sæti í Öryggisráðinu ber lagaleg og siðferðisleg skylda til að klára þá vinnu sem hófst 1988. Við höfum ekki séð neinn árangur á síðustu tuttugu árum. Alþjóðasamfélagið og Sameinuðu þjóðirnar verða að að- stoða við að ljúka þeirri vinnu,“ sagði Annan. Í lok dags er það líf fólks- ins sem hangir á línunni  Annan sagði bankakreppuna samfélagsvandamál Morgunblaðið/Árni Sæberg Málin rædd Kofi Annan og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á Bessastöðum í gærdag. Annan flytur í dag ræðu á hátíðarmálþingi í Háskóla Íslands í tilefni 100 ára afmælis skólans. Hann kom til landsins síðdegis í gær. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Í fyrradag hófst vinna við úttekt Evrópusambandsins á samkeppnis- hæfi Suðurnesjanna, en þar eru öll atvinnutækifæri og allir fjárfesting- arkostir á svæðinu tekin út. Miklar vonir eru bundnar við niðurstöðurn- ar að sögn Önnu Margrétar Guð- jónsdóttur sem hefur verið ráðgjafi í þessu verkefni. Hún segir að án efa eigi þær eftir að koma svæðinu til góða, ekki síst ef Ísland verði aðili að Evrópusambandinu. Forsaga þessa er að hópur fjár- festa vann um skeið að því að koma risagróðurhúsi á laggirnar á Suður- nesjum og var þar ætlunin að kanna ræktun tómata til útflutnings. Sótt var um styrki frá Evrópusamband- inu og hlaut umsóknin brautargengi framan af. Óvænt þróun varð hins vegar á málum þegar ESB lagði til að umsóknin yrði lögð til hliðar og bauðst í staðinn til að gera úttekt á samkeppnishæfi á Suðurnesjum. „Ráðið var teymi fjögurra sérfræðinga, sem hafa áður unnið sambærilegar greiningar fyrir ESB,“ segir Anna Margrét. „Teym- ið skilar niður- stöðum eftir fimm mánuði og þá verður til saman- tekt um alla hugsanlega fjárfesting- arkosti, allar fyrirliggjandi hug- myndir um atvinnuuppbyggingu og samsvarandi framboð af menntun á svæðinu. Niðurstöðurnar verða síð- an bornar saman við áherslur ESB í byggðaþróun og atvinnumálum og út frá því verður metið hvað þykir fýsi- legt til framkvæmda.“ Anna Margrét segir að með grein- ingunni sé búið að ljúka mikilli for- vinnu ef hugur sé á að sækja um styrki til Evrópusambandsins. „Þetta gæti stuðlað að auknum at- vinnutækifærum á Suðurnesjum.“ ESB tekur út Suðurnesin  Gróðurhús varð að allsherjarúttekt Suðurnes ESB gerir úttekt. Háskóli Íslands er kominn í hóp 300 bestu háskóla í heiminum að mati Times High- er Education Supplement, sem er annar af tveimur helstu matslistum á þessu sviði. HÍ er í 276. sæti. „Það er í raun ótrúlegt að 330 þús- und manna samfélag hafi byggt upp vísinda- og menntastofnun sem nær þessum árangri,“ er haft eftir Krist- ínu Ingólfsdóttur rektor í frétt frá HÍ, en skólinn fagnar nú aldar- afmæli. Meðal þess sem lagt er til grundvallar matinu eru tilvitnanir vísindamanna í verk vísindamanna við HÍ, en þeim hefur fjölgað um meira en 100% á fimm árum. Í til- kynningu frá skólanum segir að fjár- framlög til hans séu langt undir því sem gerist hjá ríkjum OECD. annalilja@mbl.is Góð gjöf á aldarafmæli Háskólans Háskóli Íslands. Einn af 300 bestu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.