Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 4

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 Magn makríls á hafsvæðinu í kringum Ísland, Færeyjar og um Austurdjúp, allt að ströndum Noregs, er metið hafa verið um 2,7 milljónir tonna í sumar. Þar af er talið að 1,1 milljón tonn hafi verið innan íslenskrar efnahags- lögsögu eða um 42% samkvæmt niðurstöðum sameiginlegs leið- angurs Íslendinga, Færeyinga og Norðmanna. Í leiðangri sömu þjóða sumarið 2010 var heildarmagnið metið 4,4 milljónir tonna en svipað magn innan íslenska hafsvæðisins og nú. Það sem er helst talið skýra muninn á heildarmagninu milli ára er að leiðangurinn nú náði yf- ir minna hafsvæði. Niðurstöður sumarsins staðfesta að elsti mak- ríllinn ferðast lengst í ætisgöng- unum. Um 42% makrílsins talin í íslenskri lögsögu Útbreiðsla makríls Útbreiðsla ýmissa fisktegunda í kringum Ísland. Rauðu punktarnir tákna makríl Mynd frá Hafró FRÉTTASKÝRING Andri Karl andri@mbl.is Örðugt er að draga skýrar línur um það hvenær samþjöppun á eignar- haldi fjölmiðla er orðin slík að nauð- synlegt sé að grípa til aðgerða til að tryggja fjölræði og fjölbreytni á fjöl- miðlamarkaðnum. Því þykir ekki heppilegt að lögbinda viðmið um t.d. hlutfall eignarhalds hvers eiganda og markaðshlutdeildar fjölmiðla undir sömu yfirráðum. Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi sem nefnd um eignarhald á fjölmiðlum hefur kynnt mennta- og menningar- málanefnd. Engu að síður telur nefndin að þörf sé að taka upp í lög ákvæði sem miða að því að sporna við samþjöppun eignarhalds á fjöl- miðlum. Að mati nefndarinnar á að auka heimildir samkeppnisyfirvalda til að grípa inn í óheppilega samþjöppun ef hún vinnur gegn fjölræði og fjöl- breytni. Það yrði þá gert á grundvelli „matskenndra heimilda af sam- keppnisréttarlegum toga“. Taka ber fram að með hugtakinu fjölræði er vísað til þess að fjölmiðlar séu ekki undir yfirráðum fárra aðila. Viðmið eiga við 365 miðla Í greinargerðinni með frumvarp- inu eru tekin fram nokkur atriði sem taka ber mið af þegar metið er hvort eignarhald fjölmiðla er talið ógna fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðla- markaði. Nefnd er hlutdeild á aug- lýsingamarkaði og áskrifendafjöldi áskriftarmiðla en það geti gefið vís- bendingar um vinsældir fjölmiðilsins og fjárhagslegan styrk. Einnig segir að fjöldi og lengd efnisréttarsamn- inga á sjónvarpsefni, hvort sem eru bíómyndir, sjónvarpsþættir eða íþróttaefni, geti gefið ákveðnar vís- bendingar. „[M]á nefna sem dæmi að örfá fyrirtæki eiga réttinn að vin- sælustu bandarísku kvikmyndunum og sjónvarpsþáttunum á markaðn- um.“ Einnig geti skipt máli hvort fjöl- miðill reki eina eða fleiri fréttastofur og hver fréttastofa þá með sjálf- stæða ritstjórn eða jafnvel ritstjórn- arstefnu, en slíkt geti gefið vísbend- ingu um hvort fjölmiðillinn hafi skoðanamyndandi stöðu. Fyrir nefndinni fór Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður. Spurður út í viðmiðin sem nefnd voru að ofan og hvort þau bendi ekki til að frum- varpið, verði það að lögum, komi til með að hafa áhrif á 365 miðla segir Karl: „Það er ekkert útilokað, en þetta er ekkert sérstaklega hannað þeim til höfuðs. En það er alveg ljóst að þeir eru gríðarlega stórir á ákveðnum fjölmiðlamörkuðum.“ Karl segir annars að erfitt sé að lesa út úr frumvarpinu áhrif á fjöl- miðlamarkaðinn enda sé hann á fleygiferð og ekki vitað hvernig landslagið líti út þegar og ef frum- varpið verður að lögum í vetur. „En eins og verið hefur um árabil, og al- þjóðlegar mælingar sýna, þá er mjög óheppileg samþjöppun á íslenskum fjölmiðlamarkaði og það er ástand sem hefur verið til margra ára.“ Fjölmiðlanefnd til umsagnar Í greinargerðinni með frumvarp- inu er lagt til að fjölmiðlamarkaður eða einstakir undirmarkaðir verði ekki skilgreindir í lögum enda geti skilgreiningar breyst frá einum tíma til annars. Samkeppniseftirlitið skal því skilgreina markaði í hverju tilviki fyrir sig. En Samkeppniseftirlitið verður ekki einrátt þegar kemur að aðgerð- um. Þar sem mat þess til að grípa til aðgerða byggist á fjölmiðlaréttarleg- um sjónarmiðum er lagt til að aflað verði umsagnar fjölmiðlanefndar um nauðsyn aðgerða. „Með þessu er tryggð aðkoma þess stjórnvalds sem hefur ríkasta þekkingu á þeim fjöl- miðlaréttarlegu sjónarmiðum sem mat að þessu leyti skal byggt á.“ Hið vandrataða einstigi Fjölmiðlaumhverfið á Íslandi þyk- ir afar ótryggt, ekki síst um þessar mundir, og tekur Karl undir það. „Það er erfitt árferði og erfitt rekstrarumhverfi fjölmiðla, og því má heldur ekki ganga of hart gagn- vart þeim,“ segir hann. Þessu má einnig finna stað í greinargerðinni með frumvarpinu því þar segir að þannig verði „að feta hið vandrataða einstigi milli þess að tryggja fjölræði og fjölbreytni í fjölmiðlum annars vegar og hins vegar þess að fjár- festar, einstaklingar og fyrirtæki sjái sér hag í því að fjárfesta á fjölmiðla- markaði.“ Segir svo að sé ekki að þessu gætt geti takmarkanir á fjölmiðlamark- aðnum snúist upp í andhverfu sína og unnið gegn því markmiði að al- menningur eigi aðgang að fjölbreytt- um fjölmiðlum. Nefndin hélt átta fundi og fékk til sín fulltrúa ýmissa hagsmunaaðila, sem og sérfræðinga í samkeppnis- rétti. Samhljómur var með nefnd- armönnum sem standa allir að tillög- unum. Þó skilaði einn nefndarmanna bókun þar sem hann vildi ganga lengra en lagt er til í frumvarpinu. Heimild til aðgerða byggð á mati  Nefnd um eignarhald á fjölmiðlum telur þörf á að taka upp í lög ákvæði til að sporna við samþjöppun  Auka eigi heimildir samkeppniseftirlitsins til að grípa inn í en til þess þarf umsögn fjölmiðlanefndar Morgunblaðið/Kristinn Fjöldi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræðir við fjölmiðlamenn. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir erfitt að lesa út úr frum- varpi nefndar um eignarhald á fjölmiðlum hvaða áhrif það hafi í för með sér, verði það að lögum, enda séu línurnar frekar óskýrar í því. „Það ræðst voðalega mikið af því hvaða tökum þessi mál verða tekin. Við eigum eftir að fara betur yfir þetta, en mér sýn- ist í fyrstu að tillögurnar teljist varla róttækar og feli ekki í sér neina u-beygju í áherslum stjórn- valda gagnvart þessari atvinnu- grein. Hún markast reyndar mik- ið í heild af óeðlilegri þátttöku ríkisins á markaðnum. Ekki síst út frá samkeppnisréttarlegum sjónarhóli. Það er krabbameinið á þessum fjölmiðlamarkaði og brýnast að ræða.“ Hvað varðar samþjöppun eignarhalds segist Ari ekki telja ástandið verra hér en annars staðar. „Flestir af þessum einka- reknu fjölmiðlum sem við þekkj- um í öðrum löndum eru í mjög þröngu eignarhaldi, að minnsta kosti yfirráðin. Ég held að sjálf- stæði og vinnubrögð fjölmiðla og einstakra fréttastofa skipti mestu um þá stöðu sem þær hafa í samfélaginu.“ Brýnast að ræða RÚV TELST VARLA RÓTTÆKT Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Myndlista vörur í miklu ú rvali Strigar, ótal stærðir frá kr.195 Acryllitir 75 ml kr.480 Gólftrönur frá kr.4.395 Þekjulitir/Föndurlitir frá kr.480 16 ára Verkfæralagerinn Fullt af nýjungum í lista-og föndurdeild Blýantar, Strokleður, Trélitir, Tússlitir, Teikniblokkir, Teiknikol, Föndurlitir, Þekjulitir, Vatnslitir, Akrýllitir, Olíulitir, Penslar, Skissubækur, Vattkúlur, Vír, Vatnslitablokkir, Leir, Lím, Kennara- tyggjó, Föndurvír,Límbyssur, Lóðboltar, Hitabyssur, Heftibyssur, Málningar- penslar og málningarvörur í miklu úrvali Þetta unga fólk nýtti góða veðrið í gær til að skreppa á Klambratún og snúa lukkuhjóli. Ekkert virtist vanta upp á skemmtunina og eflaust hafa vinningar verið í boði. Gott veður verður víðast hvar fram eftir degi í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Líflegir krakkar við lukkuhjól Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Nokkur óánægja hefur verið meðal áskrifenda tölvuleiksins Eve Online í kjölfar breytinga sem nýlega voru gerðar á leiknum. Í bloggfærslu á vef Eve Online biðst Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, framleiðanda leiksins, afsökunar og segist bera alla ábyrgð á því að margir notendur hafi horfið frá leiknum að undanförnu. Í sumar gerði CCP kunnug áform sín um að leyfa kaup á hlutum fyrir raunverulega peninga í leiknum. Þetta vakti litla hrifningu áskrif- enda. Í bloggfærslu sinni segir Hilm- ar að fólk eigi ekki að geta keypt sér leið til sigurs í leiknum. Þar segir ennfremur að tilgangurinn hafi verið að auka möguleika í leiknum. Um- hverfi tölvuleikja á borð við Eve taki sífelldum breytingum og þeim fækki sífellt sem gerist áskrifendur. Í samtali við Morgunblaðið sagði Hilmar að hann vildi ekkert tjá sig um málið, allt sem máli skipti kæmi fram í bloggfærslunni. Spurður að því hversu margir áskrifendur Eve Online hefðu sagt upp áskriftinni að undanförnu, svaraði hann: „Við vilj- um ekkert gefa út um það.“ CCP biðst afsökunar á breytingum á tölvuleik  Margir óánægðir með breytingar á Eve Online

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.