Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 9

Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 Andri Karl andri@mbl.is Hæstiréttur dæmdi í gær Þorvarð Davíð Ólafsson í fjórtán ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Þorvarð- ur Davíð réðst á föður sinn, Ólaf Þórðarson tónlistarmann, í nóvem- ber á síðasta ári. Rétturinn staðfesti með þessu dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. Að auki var Þorvarði gert að greiða föður sínum þrjár milljónir króna í bætur. Þorvarður Davíð var ákærður fyr- ir tilraun til manndráps, en til vara stórfellda líkamsárás, með því að hafa sunnudaginn 14. nóvember 2010 veist með ofbeldi að föður sín- um, m.a. sparkað í maga hans, tekið hann hálstaki, kýlt hann tvisvar í höfuð með hnúajárni svo hann féll og sparkað ítrekað í andlit hans þar sem hann lá upp við steyptan arin, þannig að höfuðið kastaðist í arininn, og ítrekað stappað og hoppað ofan á höfði hans og hálsi og ekki hætt fyrr en hann rann til í blóði. Ekki aftur til meðvitundar Af atlögunni hlaut Ólafur lífs- hættulegan höfuðáverka, útbreidda áverka á höfði, marbletti og skurði, blæðingar í heilavef og fyrir utan heila. Í vottorði frá 6. september sl. frá endurhæfingardeild Landspítal- ans, sem lagt var fyrir Hæstarétt, kemur fram að Ólafur er enn meðvit- undarlítill, tjáir sig ekki og sýnir engin merki um viljastýrða virkni. „Hann skynjar þannig ekki umhverfi sitt á neinn vitrænan hátt og er í svo- kölluðu skynlausu ástandi [...] Þar sem engar merkjanlegar framfarir hafa orðið nú tíu mánuðum eftir áverkann eru yfirgnæfandi líkur á því að um varanlegt ástand sé að ræða og þar með ekki líkur á því að hann komist til meðvitundar.“ Þorvarður játaði árásina en neit- aði sök hvað varðar tilraun til mann- dráps. Margt þótti benda til ásetn- ings, og taldi dómurinn að honum hlyti að hafa verið ljóst að langlíkleg- ast væri að bani hlytist af. Mat dóm- urinn það svo að Þorvarður Davíð ætti sér engar málsbætur og bæri fulla refsiábyrgð. Hlaut fjórtán ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps  Hlaut að vera ljóst að af háttseminni gæti hlotist bani Hæstiréttur staðfesti í gær tveggja ára fangelsisdóm yfir þrítugri konu sem játaði að hafa dregið sér og not- að heimildarlaust í eigin þágu sam- tals 335.768 evrur, rúmar fimmtíu milljónir króna, í starfi hjá sendiráði Íslands í Vín og síðar sem stjórn- arráðsfulltrúi og starfsmaður á rekstrar- og þjónustusviði utanrík- isráðuneytisins. Tuttugu og tveir mánuðir eru bundnir skilorði. Konan millifærði í 193 skipti af reikningi í eigu íslenska sendiráðs- ins í Vínarborg, sem hún hafði pró- kúru fyrir, yfir á eigin bankareikn- ing. Þá lét hún hjá líða að tilkynna að hún fengi enn staðaruppbót með sjálfvirkri millifærslu af sama reikn- ingi í eigu íslenska sendiráðsins í Vínarborg og inn á eigin banka- reikning í alls átta skipti. Fjárdrátt- urinn fór fram á tímabilinu 2. mars til 6. október 2009. Í vottorði sérfræðilæknis á geð- deild Landspítala, sem var á meðal gagna málsins, kemur fram að kon- an hafi lýst mikilli vanlíðan, sekt- arkennd og erfiðleikum vegna spila- fíknar. Hún hafi orðið fyrir miklum áföllum þegar hún var 19 ára en þá missti hún kærasta sinn af slysför- um og vinkonu vegna voðaverks. Héraðsdómur leit til aðstæðna konunnar þegar henni var ákvörðuð refsing, þess að hún hefði leitað sér hjálpar vegna spilafíknar og að hún ætti ung börn. Því var dómurinn að mestu bundinn skilorði. Dró sér fé frá sendi- ráði í Vín Tveggja ára fangelsi Eigendur Heyrnartækni hafa af- hent Krafti – stuðningsfélagi fyrir ungt fólk, sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur – styrk að andvirði 537.000 krónur. Heyrnartækni ákvað í tilefni af tíu ára starfsafmæli fyrirtækisins í júní sl. að leggja góðu málefni lið og láta ákveðna upphæð af hverju heyrnartæki, sem selt var í sumar, renna til Krafts. Með þessu vildi fyrirtækið leggja sitt af mörkum til samfélagsins og hjálpa Krafti að veita ungu fólki, sem gengur í gegnum erfiða lífs- reynslu, stuðning og hjálp. Kraftur hefur lagt áherslu á að efla stuðningsnet félagsins og ákveðið að styrkurinn frá Heyrnartækni renni þangað. Stuðningsnetið býður fólki, sem hefur nýlega greinst með krabba- mein, og aðstandendum að kom- ast í samband við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu. Stuðningsfulltrúarnir hafa farið á sérsniðið námskeið hjá Gyðu Eyjólfsdóttur, sálfræðingi Krafts. Styrkur afhentur Björn Víðisson, Anna Linda Guðmundsdóttir, Gísli Níls Einarsson og Gyða Eyjólfsdóttir. Heyrnartækni veitir Krafti styrk til að efla stuðningsnet Rúm 10% Eyjamanna mættu á samstöðufund um sam- göngumál á milli lands og Eyja sem haldinn var á Bása- skersbryggju í gær. Eyjamenn krefjast úrbóta og ótt- ast áhrif samgöngutruflana á ferðaþjónustu. „Einu svörin sem við fáum eru fleiri skýrslur og enn fleiri afsakanir á þessum mannlegu mistökum sem Landeyjahöfn er. Við höfum ekkert við það að gera, við viljum aðgerðir,“ segir Sigurmundur Einarsson, íbúi í Vestmannaeyjum og einn af aðstandendum fundarins. „Við mótmælum því að skipið, sem var valið til að hreinsa höfnina, hafi verið óhæft. En fyrst og fremst erum við að mótmæla aðgerðaleysi og gjaldtöku á þjóð- veginum á milli lands og Eyja,“ segir Sigurmundur. Hann segir að Eyjamenn séu þó vongóðir um að Baldur, sem sinnt hefur siglingum á milli Land- eyjahafnar og Eyja, muni halda því áfram. Vilyrði þess efnis hefur fengist frá Sæferðum, sem reka Baldur. Að sögn Sigurmundar hefur ferðaþjónusta í Eyjum orðið fyrir miklum búsifjum vegna óvissu um sam- göngur og allt stefni í að svo verði áfram, verði siglt til og frá Þorlákshöfn. „Fólk vill ekki sigla frá Þorláks- höfn. Þetta er 4.200 manna byggðarlag, en það talar enginn um neyðarástand þegar samgöngur hingað liggja niðri.“ annalilja@mbl.is Ljósmynd/Júlíus G. Ingason „Einu svörin eru fleiri skýrslur og enn fleiri afsakanir. Við viljum aðgerðir“ Mótmæli Eyjamenn fjölmenntu á samstöðufund í gær þar sem krafist var samgönguúrbóta á milli lands og Eyja. Sími 568 5170 Sérfræðingur frá Dior kynnir Diorskin Forever farðann, nýja haustliti og nýtt J´adore edt. Falleg gjöf fylgir þegar keyptir eru 2 hlutir í Dior.* Verið velkomin. *Á meðan birgðir endast. Dior kynning í Glæsibæ 6.-8. október

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.