Morgunblaðið - 07.10.2011, Síða 10
Nú er lag fyrir konur á öllum aldri að skunda norður til Akureyrar (ef þær
eiga ekki heima þar) og njóta Dömulegu dekurdaganna sem hófust á Akur-
eyri í gær. Dekurdagarnir standa fram á sunnudag og
þegar er búið að klæða miðbæ Akureyrar bleikum slauf-
um af tilefninu. Þetta er í fjórða sinn sem þeir eru
haldnir en þetta er helgi þar sem vinkonur, systur,
mæðgur, frænkur og vinnufélagar njóta þess að gera
eitthvað skemmtilegt saman. Heilmargt verður um að
vera og verslanir og fyrirtæki bjóða upp á ýmis-
konar dömulega afslætti. Dömulegu dekur-
dagarnir voru settir í Borgarbíói í gær-
kvöldi þegar dömuleg forsýning var á
kvikmyndinni „What́s your number“ og
fengu bíógestir skemmtilegan glaðning. Af við-
burðum helgarinnar má nefna heimsókn í Innbæinn
þar sem nokkur fyrirtæki hafa tekið höndum saman
um að vera í dömulegum gestgjafagír, á Græna
hattinum verða tónleikar með Mugison og Blood-
group en Greifarnir spila í Hofi. Konukvöld verður í
Centro, ýmsar fjölbreyttar uppákomur á Gler-
ártorgi, Skvísukvöld í Sjallanum og margt fleira.
Full ástæða er til að hvetja allar dömur þessa
lands til að hópast saman, njóta samverunnar og
alls þess dekurs sem í boði verður.
Endilega...
...farið á dömulega dekurdaga
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Diljá Björg Þorvaldsdóttirhefur alltaf verið duglegvið að gera eitthvað íhöndunum en hún byrjaði
að búa til skartgripi þegar hún var
um níu ára. Þá bjó hún í Danmörku
og segir föndurkennslu í skólanum
hafa verið öfluga. Í fyrstu hannaði
hún einna helst hringa úr vír með
perlum ofan á en í gegnum árin hefur
hönnunin þróast smám saman. Í dag
býr Diljá Björg helst til svokölluð
hringahálsmen og hálsmen sem nota
má ýmist um hálsinn eða sem spöng.
Hún notar aðallega perlur og vír
í skartgripina og segir að sér finnist
mjög gaman að vinna með vír. Hún
hefur einnig búið til skálar úr vír og
Listaháskólamappan hennar var
meira að segja úr vír. En þá vafði
hún kúlu úr vír sem var hægt að
opna og leyndist mappan sjálf þar
inni í.
Heilluð af vír
„Mér finnst gaman að sjá
hversu langt ég kemst með því að
nota bara vír. Ef eitthvað fer úr-
skeiðis og mér finnst það ekki flott
þá er yfirleitt einhver sem vill eiga
það. En vinkonur mínar eru hrifnar
af því sem ég er að gera. Ég lærði
margt í föndurkennslu í Danmörku
þegar ég var lítil sem ég hef nýtt mér
og þróað sjálf. Ég hef undanfarin ár
reynt að breyta aðeins út frá vírnum
með glimmerkúlum og perlum og
hnýta þetta saman. Mér finnst mjög
gaman að búa til skartgrip sem er
hægt að nota á fleiri en einn veg t.d.
sem hálsfesti og hárband. Þá festi ég
borða við festina þannig að hægt er
að hengja hana um hálsinn eða binda
Gamlir skartgripir
endurnýttir í nýja
Diljá Björg Þorvaldsdóttir hannar skartgripi úr vír og perlum og segist fá frá-
hvarfseinkenni ef hún er ekki búin að föndra lengi. Vinkonur Diljár Bjargar eru
duglegar að gefa henni ónýta skartgripi en úr þeim nýtir hún allt frá festingum til
perlna og býr til nýtt skart. Hún selur skartgripina undir nafninu Geimvera sem
vísar til þess að hún reynir að hafa hvern skartgrip einstakan og enga tvo eins.
Fallegt Þessa keðju vafði Diljá Björg frá grunni og hnýtti utan um perlur.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Til að skemmta sér og forvitnast um
ólíklegustu hluti er ekki úr vegi að
tékka á vefsíðunni freakepedia.com.
Þar er semsagt gomma og glás af
myndum og myndböndum um allt
milli himins og jarðar og margt af því
sérlega áhugavert, sumt fyndið, ann-
að skrýtið og allt þar á milli. Hægt er
að skoða eftir flokkum, meðal annars
hlátri (lol), áhugaverðu (interesting),
krúttlegu (cute), mistök (fail) og
ýmsu fleiru. Til dæmis er hægt að
skoða í efsta myndbandinu nýja upp-
finningu, vélmenni sem flýgur eins og
fugl, mögulega flugvél framtíðar-
innar. Á síðunni er líka hægt að skoða
og hlusta á frábært myndband þar
sem ungt par í bíl pantar sér kaffi
með því að rappa. Einnig er skemmti-
leg myndasería af fuglum að ráðast á
fólk, fullt af myndum af ógeðskökum
(fínar hugmyndir fyrir hrekkjavökuna
sem er jú framundan) og margt fleira.
Vefsíðan www.freakepedia.com
Glás af fríkaðri skemmtun
Girnileg Ekki er víst að
margir vilji smakka þessa
ógeðsköku en hún er frá-
bært borðskraut.
Sýnt hefur verið fram á að þeir
karlar sem á hverjum degi kveðja
sína heittelskuðu með kossi áður en
þeir halda til vinnu, þéna meira en
þeir sem ekki gera það.
Þegar fólk kyssist ósköp sakleys-
islega brennir það 5 kaloríum. Með
því að auka innileika kossins eykst
brennslan upp í allt að 30 kaloríur. Til
samanburðar má geta þess að við
einnar mínútu göngutúr brennir fólk
ekki nema 4-5 kaloríum. Af þessu má
glögglega sjá hversu brennandi og
grennandi kossar eru.
Varir okkar eru hundraðfalt næm-
ari en fingurgómarnir. Þetta gerir það
að verkum að púlsinn hækkar upp í
100 slög á mínútu við kossaflens.
Ástríðufullur koss kemur af stað
sama efnaflæði í heila okkar og fer af
stað þegar við skjótum af byssu.
Augljóslega eigum við að gera meira
af því að elskast en minna af því að
fara í stríð.
Að meðaltali kyssa (venjulegar)
konur tæplega átta menn áður en
þær finna hinn eina sanna og gifta
sig.
Staðreyndir um kossaflens
Kossar eru
meinhollir
Töfrar Kossar hafa mögnuð áhrif.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Nú þegar haustar fer maðurí auknum mæli að hallasér að hitabrúsanum, semí mínu tilfelli er oftast
fylltur earl gray- eða rauðrunnatei.
Ávaxtate finnst mér nefnilega skelfi-
legt gutl og kaffi hef ég aldrei vanið
mig á að drekka, þrátt fyrir ítrekaðar
aðlögunartilraunir með kaffi-latte og
swiss-mokka. Með ostakökunni á Frú
Berglaugu, sem er efni í heilan pistil,
nammi namm, fæ ég mér heitt kakó
með rjóma og þar við situr, sama hvað
vinkonurnar reyna að venja mig á
betri og „fullorðinslegri“ siði.
Ein þessara yndislegu vinkvenna
minna hefur sett sér það skemmtilega
markmið í lífinu að gefast ekki jafn
glatt upp við að kynna sér exótísk
matarföng og segir þessa ákvörðun
sína hafa breytt sínum dögum og
bætt. Í upphafi segir hún bragðskyn
sitt hafa svartlistað t.d. kaffi, rauðvín,
bjór, ólívur, sushi og margt fleira sem
ég man ekki eftir í skyndi. En hún
þráaðist við; það er í fjölskyldunni; og
lét sig hafa það að innbyrða þessa
kosti engu að síður, þar til bragðlauk-
arnir voru farnir að taka heljarstökk
við tilhugsunina um glas af El Coto,
sem var lengi vel í miklu uppáhaldi.
Ekki hef ég sýnt þessari afstöðu
mikinn skilning og finnst það eigin-
lega hálfgerð klikkun að neyða því í
sig sem manni finnst vont, aftur og
aftur, í von um að að lokum
venjist það bara. En ég
get varla kvartað, þessi
þrautseiga vinkona mín á
tvímælalaust þátt í því að
ég kann að meta rauðvín í
dag, sem mér datt
einhvern veginn
aldrei í hug að fá
mér, og það
var hún
sem
kynnti
mig fyrir
þeirri dá-
semd sem
eru an-
sjósufylltar ólívur.
Og það hefur ekki
staðið á mér að launa
henni greiðann. Yfir
samræðum um sætu strákana í
vinnunni og nýjustu augnskuggana
frá Mac, hef ég opnað augu hennar
fyrir snilld þess að borða Bingókúlur
og Lays saltsnakk saman, kennt
henni að frysta Völu-bananastangir
og froska þannig að brakar í þeim
undir tönn og gefið henni uppáhaldið
mitt úr barnæsku: niðurskorna
ferska ávexti með Nóa Síríus suðu-
súkkulaðibitum og þeyttum rjóma.
Ég hef sjaldan verið eins stolt eins og
þegar ég stóð hana að því að borða
Lucky Charms beint upp úr pakk-
anum!
Saltpillur og hreinan appelsínusafa
saman vill hún hins vegar ekki sjá;
það eru greinilega einhver takmörk
fyrir því hvað hún leggur á magann á
sér, þessi elska. Enda svo sem enginn
annar félagsskapur en ég sem kemur
til með að bjóða henni upp á téðar an-
sjósufylltar ólívur og sykurkók með,
sem hún fúlsar einnig við.
Við höfum ólíkan matarsmekk,
ég og vinkona mín, en eigum það
sameiginlegt að njóta þess að elda
og baka og borða. Við erum
báðar af þeirri gerðinni
að vera alltaf til í að
prófa eitthvað
nýtt og erum
sammála
um að
maður
eigi alltaf
að
smakka,
a.m.k. einu
sinni.
»Yfir samræðum umsætu strákana í
vinnunni og nýjustu augn-
skuggana frá Mac, hef ég
opnað augu hennar fyrir
snilld þess að borða Bingó-
kúlur og Lays saltsnakk
saman
HeimurHófíar
Hólmfríður Gísladóttir
199.900.-
verd adeins
KOMINN AFTUR!
VINSAELASTI SÓFINN OKKAR ER
KOMINN AFTUR!
tilbodnú baedi
haegri og
vinstri legubekkur
pantanir óskast sóttar