Morgunblaðið - 07.10.2011, Síða 20
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Éger
brospinni!
Hvar er þinn Brospinni?
Nú um helgina eru Brospinnar
seldir til styrktar bættum aðbúnaði
á geðdeildum Landspítalans.
Kauptu Brospinna
og veifaðu honum framan í
heiminn og hver veit nema
heimurinn brosi framan í þig!
www.brospinnar.is
Styrktaraðilar:
Actavis - Alcoa Fjarðaál - Astra Zeneca - Boðskipti - Byr
sparisjóður - Ernir Eyjólfsson ljósmyndari
Guðrún Valdimarsdóttir - Janssen - Leturprent - Lilly - Lundberg
Netvistun - Roche - Skaparinn auglýsingastofa - Umslag
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Sænska ljóðskáldið og þýðandinn
Tomas Tranströmer hlýtur bók-
menntaverðlaun Nóbels að þessu
sinni. Í fréttatilkynningu sænsku
akademíunnar segir að Tranströmer
hljóti verðlaunin vegna þess að hann
veiti okkur „ferska sýn á veruleikann
með þéttum og hálfgegnsæjum
myndum“.
Tranströmer fæddist 1931,
hann lærði bókmenntir, trúar-
bragðafræði og sálfræði við Stokk-
hólmsháskóla. Um hríð var hann sál-
fræðingur á upptökuheimili fyrir
ungmenni. Árið 1990 fékk Tran-
strömer heilablóðfall og missti málið,
hann getur ekki gengið og hefur lítið
getað ort, á síðustu árum hefur hann
einbeitt sér að hækum.
Tranströmer hefur oft heimsótt
Ísland og á marga vini meðal hér-
lendra skálda, nokkrar af bókum
hans hafa komið út á íslensku. Ingi-
björg Haraldsdóttir þýddi ljóðabók-
ina Sorgargondól en áður höfðu
Njörður P. Njarðvík og Jóhann
Hjálmarsson þýtt ljóð eftir
Tranströmer.
„Hann er vel að þessu kominn,“
segir Njörður. „Hann hefur ekki ort
mikið en ljóðin hans eru hreint út
sagt frábær. Ég þýddi alla bókina
sem hann hlaut verðlaun Norður-
landaráðs fyrir og úrval úr fyrri bók-
um hans, allt safnið heitir Tré og
himinn.“ Tranströmer hafi oft verið
tilnefndur en Njörður segir aðspurð-
ur að nóbelsnefndin hafi líklega verið
treg til að veita Svía verðlaunin.
Reuters
Heiðraður Tomas Tranströmer á
heimili sínu í Stokkhólmi.
Veitir okkur „ferska
sýn á veruleikann“
Ljóðskáldið og þýðandinn Tomas Tranströmer frá Svíþjóð
fær bókmenntaverðlaun Nóbels að þessu sinni
Bráðgert skáld
» Fyrsta ljóðabók Tran-
strömers, 17 dikter, kom út
1954 og hlaut mikið lof.
» Ljóð hans hafa verið þýdd
á um 50 tungumál. Endur-
minningar hans, Minnena ser
mig, komu út árið 1993.
» Tranströmer fékk bók-
menntaverðlaun Norður-
landaráðs árið 1990 fyrir bók-
ina För levende och döda.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Breska ríkisútvarpið, BBC, er að áliti
sumra farið að ganga býsna langt í
pólitískri rétthugsun til að þóknast
minnihlutahópum, þ. á m. múslímum.
Nýjasta dæmið er að stofnunin gaf ný-
lega út vinnureglur um notkun ártala
og á samkvæmt þeim að hætta að
segja, þegar nauðsyn krefur, „fyrir
Krist“ og „eftir Krist“, (á ensku B.C og
A.D.) en nota þess í stað C.E. og BCE.
„BBC ber að sýna óhlutdrægni og
þess vegna er viðeigandi að við notum
orð sem særa ekki og virka ekki frá-
hrindandi á þá sem aðhyllast ekki
kristna trú,“ segir á heimasíðu stofn-
unarinnar þar sem fjallað er um trúar-
brögð.
Blaðið L‘Osservatore Romano,
málgagn Páfagarðs, segir ráðgjafa
BBC halda fram „dellu“ og sakar út-
varpsstöðina um dæmalausa hræsni.
Markmið stofnunarinnar sé ekki virð-
ing við önnur trúarbrögð heldur sé
verið að reyna að þurrka út ummerki
kristninnar.
Margir af starfsmönnum BBC
segja að þeir muni hunsa leiðbeining-
arnar. Bent er á að þessi nýja til-
högun sé undarleg blekkingartilraun.
Áfram sé upphafið miðað við fæðingu
Krists þótt reynt sé að fela það með
orðagjálfri, ekki t.d. flótta Múhameðs
frá Mekka til Medína árið 622, eins og
múslímar gera eða sköpun jarðar fyr-
ir 5772 árum, eins og strangtrúaðir
gyðingar gera.
Æðstu yfirmenn BBC segja nú
að ekki liggi fyrir nein opinber fyr-
irmæli um að fara eftir þessum leið-
beiningum varðandi tímatalið. Þær
hafa þó komið til framkvæmda í ýms-
um vinsælum þáttum.
Frelsarinn verði falinn
BBC hvetur starfsfólk til að miða upphaf tímatals áfram
við fæðingu Jesú Krists en án þess að nefna nafn hans
Sjálft upphafið
» C.E. og B.C.E. stendur fyr-
ir Common Era og Before
Common Era.
» Blað Páfagarðs bendir á
að fæðing Jesú Krists marki
„byltingarkennt augnablik í
sögunni“, það viðurkenni einn-
ig múslímar og gyðingar.
Fangar í Ayutthaya-héraði, um 80 km norðan við Bang-
kok í Taílandi, vaða í gegnum vatnselginn við fangelsið
í gær, þeir voru fluttir í annað fangelsi vegna mons-
únflóðanna sem herja nú á landsmenn. Reynt er að
beina vatni frá at Wat Chaiwatthanaram, víðfrægu
búddamusteri í Ayutthaya-borg. Minnst 224 hafa látið
lífið í flóðum í landinu síðan í júlí. Vatnselgurinn hefur
valdið skemmdum í 58 af alls 77 héruðum, þar af stór-
tjóni í 25 og hafa yfir tvær milljónir manna lent í vanda
vegna hamfaranna. Spáð er meiri rigningu næstu daga.
Reuters
Yfir 200 hafa farist í Taílandi