Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
RagnheiðurElín Árna-dóttir al-
þingismaður innti
Össur Skarphéð-
insson utanrík-
isráðherra eftir því
á Alþingi í fyrradag hvort
Steingrímur J. Sigfússon hefði
verið spurður þegar hernaðar-
aðgerðir NATO í Líbíu voru
framlengdar í annað sinn í
september sl. og hvort hann
væri þeim samþykkur. Össur
sagðist ekki hafa borið málið
undir Steingrím en greint frá
því í ríkisstjórn að hann hygðist
í þriðja sinn samþykkja hern-
aðinn fyrir hönd Íslands.
Vinstri grænir ráðherrar hafi
bókað mótmæli í ríkisstjórn-
inni, sem er þá að minnsta kosti
í þriðja sinn sem þeir bóka slík
mótmæli án þess að á þá sé
hlustað.
Tvennt vakti sérstaka at-
hygli í svörum Össurar. Annars
vegar það að hann sagðist ekki
hafa talið að ákvörðunin í sept-
ember um að endurnýja umboð
NATO til að stunda hernað í
Líbíu væri meiriháttar utanrík-
ismál sem þyrfti að ræða í utan-
ríkismálanefnd. Af svörum
hans má ráða að ástæðan sé sú
að átökin hafi nánast verið til
lykta leidd.
Þá hlýtur að vakna sú spurn-
ing hversu mikill hernaðurinn
þurfi að vera sem NATO stund-
ar í nafni Íslands og annarra
aðildarríkja til að Össur telji
sig þurfa að bera það undir ut-
anríkismálanefnd. Mun Össur
telja sig geta samþykkt að
standa að hernaði annars stað-
ar í veröldinni án þess að bera
það undir nokkurn mann ef
hann telur að umfang hern-
aðarins verði ekki mikið? Eru
Vinstri grænir þeirrar skoð-
unar að þessi túlkun utanrík-
isráðherra á umboði sínu og
hlutverki utanríkismála-
nefndar sé ásætt-
anleg?
Hitt sem athygli
vakti svarar í raun
hluta spurning-
anna sem velt er
upp hér að framan,
því að Össur ítrekaði þá afstöðu
sína að hann þyrfti alls ekki að
ræða þátttöku Íslands í hern-
aðaraðgerðum við utanrík-
ismálanefnd, hvað þá að taka
tillit til sjónarmiða þeirrar
nefndar né nokkurs annars.
Um þetta sagði hann orðrétt:
„Að því er varðar Líbíu þá tel
ég raunar, eins og ég hef fært
rök að hér í ræðustól Alþingis,
að ég hefði getið tekið þessa
ákvörðun, sem að ég tók hina
fyrstu [um hernaðinn í Líbíu],
án þess að ræða það við utan-
ríkismálanefnd. Það er al-
gjörlega ljóst. Án þess að fara
eftir því sem að endilega hefði
verið niðurstaða utanríkismála-
nefndar vegna þess að það er
ekkert í lögunum sem segir að
ég þurfi að fara eftir því.“
Í ljósi yfirlýstrar afstöðu
Vinstri grænna til hernaðar og
ekki síst þátttöku Íslands í
hernaðaraðgerðum, er með
miklum ólíkindum að þeir skuli
ekkert hafast að og láti sér
lynda að sitja undir aðgerðum
utanríkisráðherra og túlkunum
hans á umboði sínu til þátttöku
í hernaði. Þeir láta sér nægja
að bóka mótmæli og er alveg
sama þó að ekkert sé með þau
gert. Og þegar utanrík-
isráðherra færir sig upp á
skaftið og sér ekki einu sinni
ástæðu til að bera málið undir
utanríkismálanefnd, þá láta
ráðherrar Vinstri grænna sér
duga að mótmæla í hljóði á lok-
uðum fundi og vonast sjálfsagt
til þess að enginn verði þess var
hvernig með þá er farið. Nú eru
þeir hins vegar lentir í því að
utanríkisráðherra hefur op-
inberað leynibókunina.
Össur er hættur að
bera þátttöku í
hernaði undir utan-
ríkismálanefnd}
Leynibókun opinberuð
Forsendur fjár-lagafrum-
varpsins voru
brostnar áður en
það var lagt fram.
Frumvarpið bygg-
ist ekki á nýjustu spá um hag-
vöxt, einkaneyslu og verð-
bólgu og munar töluverðu á
nýjustu spá og þeirri sem fjár-
málaráðherra gengur út frá.
Þegar af þessari ástæðu er
ljóst að sú niðurstaða fjárlag-
anna sem forystumenn rík-
isstjórnarinnar hafa kynnt er
ekki á réttum rökum reist.
Þar með er óhjákvæmilegt að
verulegar breytingar þurfi að
gera á frumvarpinu í með-
förum þingsins, enda eru hin-
ar röngu for-
sendur allar í eina
átt, þ.e. til fegr-
unar niðurstöð-
unnar.
Á þetta er meðal
annars bent í minnisblaði Al-
þýðusambands Íslands um
fjárlagafrumvarpið og ljóst er
að þar á bæ hafa menn
áhyggjur af að frumvarpið
standist ekki. Þær áhyggjur
eru skiljanlegar og eðlilegar.
Hitt er óskiljanlegt og ekki
minna áhyggjuefni, að for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar
telji þvert á móti að forsend-
urnar séu varfærnislegar og
að hallinn sé þar með ofmet-
inn.
Fjárlagafrumvarpið
þarf gagngera end-
urskoðun á Alþingi}
Forsendur brostnar fyrirfram Þ
orri landsmanna gengur í skóla í að
minnsta kosti í tíu ár. Allflestir
hafa því skoðun á störfum grunn-
skólakennara og einhverra hluta
vegna hafa mál þróast þannig að
þetta ein fárra starfsstétta sem þurfa ítrekað
að verja tilveru sína og starfshætti.
Auðvitað eru kennarar ekkert heilagir frek-
ar en aðrir og gagnrýna hugsun er öllum hollt
að ástunda og setja fram í ræðu og riti, þyki til
þess ástæða. En það sætir furðu hversu oft
skammirnar dynja á kennarastéttinni fyrir
þær einar sakir að stór hluti hennar er af til-
teknu kyni, því væntanlega hafa kennarar lítið
um það að segja, rétt eins og aðrir.
Ný rannsókn sýnir að tæpur fjórðungur 15
ára reykvískra drengja getur ekki lesið sér til
gagns. Því miður er þetta ekki í fyrsta skipti
sem áþekkar niðurstöður birtast, en margar rannsóknir
hafa sýnt að drengir fá að meðaltali lægri einkunnir en
stúlkur á samræmdum prófum, brottfall þeirra úr fram-
haldsskóla er talsvert meira og þeir fara síður í há-
skólanám. Eins og svo oft áður er fjöldi kvenkennara
nefndur sem ein af helstu skýringunum.
Samkvæmt því er flest það sem aflaga fer í grunn-
skólakerfinu sprottið af þeirri „nöturlegu“ staðreynd að
stór hluti kennara eru konur. Fjölgun kvenna í kenn-
arastétt er sögð hafa haft í för með sér snarminnkandi
virðingu fyrir starfinu og lækkun launa.
Slæleg námsframmistaða og treglæsi sumra drengja
mun samkvæmt þessu vera vegna þess að
fyrir framan töfluna stendur kona en ekki
karl. Aukinheldur hefur því verið haldið fram
að margur pilturinn sé baldinn á skólabekk
bara vegna þess að enginn er karlinn til að
koma á ró og skikk. Reyndar hafa rannsóknir
sýnt að stúlkur hafa fengið hærri einkunnir
en drengir í grunnskóla, svo áratugum skiptir
og líka þegar kennarastéttin var nánast ein-
göngu skipuð körlum. Talað er um að drengi
skorti karlkynsfyrirmyndir í skólanum, því
þar sé allt morandi í kvenfólki. Getur kona
ekki verið drengjum holl og góð fyrirmynd og
stúlkur tekið karla sér til fyrirmyndar?
Ef kyn kennarans er svona óskaplega
mikilvægur þáttur í námsframvindu barna,
hvers vegna sýnir þá áðurnefnd rannsókn að
mikill fjöldi unglingsstúlkna glímir við kvíða
og vanlíðan? Ekki er hægt að kenna skorti á fyrir-
myndum um. Vissulega eru vandamál í grunnskólum. En
ástæðan er varla sú að konur eru í meirihluta meðal
grunnskólakennara.
Vandamál samfélagsins endurspeglast gjarnan í
skólastarfi. En þau verða sjaldan til innan veggja grunn-
skólans. Hvers vegna ætti grunnskólinn að geta útrýmt
kynjamisrétti og úreltum klisjum, sem snúa að báðum
kynjum, fyrst slíkt dafnar ennþá í samfélaginu?
Finnist einhverjum skorta dæmi til stuðnings þessari
fullyrðingu er nærtækt að nefna nýlega nefndaskipan á
Alþingi. annalilja@mbl.is
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
Geta konur ekki kennt strákum?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
S
teven Paul „Steve“ Jobs,
frammámaður og helsti
hugmyndasmiður Apple
tölvufyrirtækisins, er lát-
inn eftir langvarandi veik-
indi. Með honum er genginn einn
merkasti hugsuður tölvusögunnar,
áhrifamikill og frumlegur markaðs-
maður sem las framtíðina betur en
flestir. Hann stofnaði Apple fyrir
hálfum fjórða áratug og þó hann hafi
horfið frá fyrirtækinu um hríð sneri
hann aftur og gerði það að einu
helsta og verðmætasta fyrirtæki
heims þar sem áhersla á frumlega
hönnun og nýstárlega tækni var í
öndvegi.
Steve Jobs stofnaði Apple með
félögum sínum í apríl 1976 til að selja
tölvur sem kaupandinn sá um að
setja saman. Jobs sá um markaðs- og
sölumál og varð smám saman leið-
andi í samstarfinu sem hugmynda-
smiður. Hann var til að mynda áfram
um það að Apple framleiddi tölvur
með myndrænum notendaskilum og
mús, líkt og velflestir tölvunotendur
nota í dag. Vendipunktur í sögu fyr-
irtækisins var er það kynnti fyrstu
Macintosh-tölvuna, en Jobs stýrði
einmitt þróun hennar.
Þrátt fyrir velgengni Macintosh
varð Jobs undir í átökum innan fyrir-
tækisins þar sem stjórn þess vildi
koma böndum á tilraunagleði Jobs. Á
endanum hrökklaðist hann frá fyrir-
tækinu 1985 og stofnaði í framhald-
inu annað tölvufyrirtæki, NeXT, og
lagði einnig fé í teiknimyndagerð.
Hann sneri svo aftur til Apple 1996.
Fyrsta merki þess að Steve Jobs
væri aftur kominn til starfa hjá Apple
var iMac tölvan sem kom á markað
1998. Þremur árum síðar opnaði
Apple fyrstu verslanir sínar sem hafa
haft mikið að segja um vinsældir
Apple-varnings víða um heim og
ímynd fyrirtækisins. Sama haust
kom svo á markað spilastokkur, iPod,
sem olli straumhvörfum í dreifingu
og sölu á tónlist, en Apple tók einnig
til við að selja tónlist á netinu í svo-
nefndri iTunes-verslun.
Fleiri áhrifamiklar nýjungar
voru í undirbúningi; fyrirtækið bylti
farsímamarkaði með nýrri gerð far-
síma, iPhone, sem voru með snerti-
skjá í stað hnappa og gátu keyrt
fjölda forrita. Síðasta nýjungin sem
Jobs kynnti var svo spjaldtölva, iPad,
sem er tölva með snertiskjá.
Jobs greindist með krabbamein í
brisi 2004 og gekkst undir lifrar-
ígræðslu 2009. Í janúar sl. fór hann í
ótímabundið sjúkraleyfi og lést svo á
miðvikudag.
Eins og getið er í upphafi var
Steve Jobs hugmyndaríkur og fram-
sýnn. Hann var þó ekki óumdeildur,
þótti ráðríkur og uppivöðslusamur
ákafamaður, eins og títt er með hug-
sjónamenn. Samstarfsmenn hans
höfðu á orði að hann væri með slíka
persónutöfra að hann gæti fengið
menn til að fallast á hvaða hugdettu
sem væri og vanmeta alla erfiðleika
við að framkvæma hana. Margar af
hugmyndun Jobs eru viðteknar í nú-
tíma tölvuvinnslu, sumar löngu eftir
að menn höfðu hafnað þeim, en aðrar
gengu aldrei upp eins og gengur. Per-
sóna Steve Jobs var svo samþætt
ímynd Apple að eflaust mun reynast
fyrirtækinu erfitt að halda stöðu
sinni að honum gengnum. Það
segir sitt að fjöldi manna safn-
aðist saman fyrir utan höfuð-
stöðvar Apple þegar lát Jobs
spurðist og við verslanir fyrir-
tækisins víða um heim, lagði
þar blóm og minningarkort,
kveikti á kertum og reykelsi og
baðst fyrir. Sér einhver það
gerast þegar Bill Gates
Microsoft-bóndi fell-
ur frá?
Einn merkasti hugs-
uður tölvusögunnar
Helgistund Fjöldi manna safnaðist saman fyrir utan verslanir Apple víða
um heim, lagði þar blóm og minningarkort og baðst fyrir.
1976 Steve Jobs stofnar Apple
með félögum sínum.
1984 Fyrsta Macintosh-tölvan
kemur á markað.
1985 Jobs hrökklast frá Apple,
stofnar NeXT og leggur fé í Pix-
ar teiknimyndafyrirtækið.
1996 Jobs snýr aftur til Apple
1998 iMac kemur á markað.
2001 Nýtt stýrikerfi Apple,
MacOS X, gerbreytir vinnslu-
umhverfi Macintosh-tölva.
2001 iPod-spilastokk-
urinn kemur á markað og
iTunes verslunin opnuð.
2007 iPhone-farsíminn
kynntur.
2010 iPad spjaldtölv-
an kynnt.
Nokkrir
kaflar í
Jobsbók
STEVE JOBS (1955 - 2011)
Steve Jobs