Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 26

Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 ✝ Stefán MagnúsGunnarsson fæddist 6. desem- ber 1933 á Æsu- stöðum í Langa- dal, Austur-Húnavatns- sýslu. Hann lést á líknardeild Land- spítalans Kópavogi 26. september 2011. Foreldrar hans voru sr. Gunnar Árnason, fyrsti sóknarprestur í Kópa- vogi, f. 1901, d. 1985, og Sig- ríður Stefánsdóttir húsfreyja, f. 1903, d. 1970. Systkini Stef- áns voru Þóra, f. 1929, d. 2008, Árni, f. 1930, Auðólfur, f. 1937, og Hólmfríður Kolbrún, f. 1939. Afi Stefáns í föðurætt var sr. Árni Jónsson, próf. á Skútustöðum í Mývatnssveit í Þingeyjarsýslu, en amma hans var Auður Gísladóttir. Afi Stefáns í móðurætt var sr. Stefán M. Jónsson, prestur á Auðkúlu í Austur-Húnavatns- sýslu, en amma hans Þóra Jónsdóttir. Síðustu ár sín bjó Þóra á Æsustöðum og var hún Stefáni mjög náin. Hann starfaði hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga og kaupfélögum á árunum 1954- 1960 utan eitt ár sem hann var framkvæmdastjóri UMFÍ, 1956-1957. Hann var kaup- félagsstjóri Kaupfélags Aust- fjarða á Seyðisfirði 1958-1959 og kaupfélagsstjóri Kaupfélags Kópavogs 1959-1960. Stefán var útibússtjóri Búnaðarbanka Íslands á Egilsstöðum veturinn 1960-1961. Hann hóf störf hjá Landsbanka Íslands- Seðlabanka í maí 1961 og starfaði í ýmsum deildum Seðlabanka Íslands óslitið til loka maí 1976. Að auki var Stefán fyrsti framkvæmda- stjóri Viðlagasjóðs sem stofn- aður var eftir að gos byrjaði í Vestmannaeyjum 1973. Stefán var bankastjóri Alþýðubankans hf. frá 1. júní 1976 til 1. ágúst 1987. Hann réðst á ný til starfa hjá Seðlabanka Íslands 1. febr- úar 1988 og var forstöðumaður gjaldeyriseftirlits Seðlabank- ans frá 1. maí 1991 til starfs- loka 31. des. 1998. Stefán var formaður starfsmannafélags Seðlabankans og í stjórn Sam- bands ísl. bankamanna um ára- bil. Hann var formaður sókn- arnefndar Kársnesprestakalls 1972-1996 og vann ötullega að málefnum Kópavogskirkju. Útför Stefáns fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 7. októ- ber 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Eftirlifandi eig- inkona Stefáns er Hertha W. Jóns- dóttir, fyrrv. hjúkrunarfram- kvstj., f. 19. des- ember 1936 í Reykjavík. For- eldrar hennar voru Jón S. Ólafs- son, for- stöðumaður Bif- reiðaeftirlits ríkisins, f. 1892, d. 1962, og Herþrúður Hermannsdóttir húsfreyja, f. 1897, d. 1978. Börn Stefáns og Herthu eru: Jón Gunnar, f. 1965, og Sigríð- ur Þrúður, f. 1967. Eiginkona Jóns er Tracey E. Stefánsson, f. 1964. Synir þeirra eru Stef- án, f. 1997, og Ómar, f. 1998. Eiginmaður Sigríðar er Benja- mín Gíslason, f. 1965. Börn þeirra eru Hertha Kristín, f. 2001, Gísli Jón, f. 2002, og Stefanía Agnes, f. 2006. Dóttir Benjamíns og stjúpdóttir Sig- ríðar Þrúðar er Bergljót Klara, f. 1993. Stefán lauk landsprófi frá Laugarvatni 1951 og útskrif- aðist frá framhaldsdeild Sam- vinnuskólans í Reykjavík 1954. Elsku afi! Við erum ósköp sorgmædd yf- ir því að þú sért farinn. Takk fyr- ir að hafa verið alltaf svo glaður og góður við okkur. Við vildum að þú hefðir ekki orðið veikur, því að þá hefðir þú kannski lifað lengur. En við erum samt glöð yfir því að nú líður þér vel og finnur ekki lengur til. Því ef að þú hefðir lifað lengur meðan þú varst svona veikur hefði þér bara liðið illa. Mér (Herthu) fannst svo gam- an að segja þér brandara en núna get ég ekki gert það leng- ur. En ég ætla að skrifa niður brandara og búa til brandarabók og tileinka þér. Svo alltaf þegar ég skrifa brandara í bókina mun ég senda þér þá í huganum til himna. Það var svo gaman að syngja fyrir þig og þú komst allt- af þegar ég var syngja á tón- leikum. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og alla aðra. Ég mun alltaf hugsa til þín. Ég (Gísli Jón) trúi því að þú fæðist aftur nú þegar þú ferð til himna. Kannski fæðist þú aftur sem lítið barn. Takk, afi, fyrir að hafa verið afi minn. Stefanía segir að sér þykir vont að þú sért dáinn. Hún spyr einnig hvar þú sért og hvert þú farir. Samt finnst okkur að hún skilji að þú ert dáinn. Elsku litla prinsessan þín, hún mun segja að sig langi til að þú komir að sækja sig á leikskólann. Og nú teiknar Stefanía prinsessur með tár. Elsku afi, við elskum þig og söknum þín að eilífu. Þín Hertha Kristín, Gísli Jón og Stefanía Agnes. Vor sál er himnesk harpa helgum Guði frá, vér lifum til að læra að leika hana á. Og þá sem ljúfast leika þau lög sem Drottinn ann við komu dauðans kallar í kóra sína hann. (GÁ) Stefán, bróðir minn, var stolt- ur af nafninu sínu og það með réttu. Hann hét Stefán Magnús eins og móðurafi okkar sem að sínu leyti bar nöfn föðurbræðra sinna Stefáns og Magnúsar Ei- ríkssona frá Skinnalóni á Sléttu. Magnús var svo góður maður og vænn að hann fékk viðurnefnið frater sem merkir bróðir. Stefán, afi okkar, var annálað- ur söngmaður og Stefán, bróðir minn, var enginn ættleri á því sviði. Allt frá æsku sungu þeir saman bræðurnir, Árni og Stef- án, og alltaf tvíraddað. Þeir bjuggu „hina röddina“ til jafn- óðum og þótti sjálfsagt. Seinna söng Stefán með mömmu við ófá- ar hjónavígslur og skírnir heima þegar faðir okkar var prestur í Kópavogi. Stefán naut nafns síns hjá ömmu Þóru. Hann var auga- steinninn hennar og fékk að sofa í holunni hjá henni öll sín bernskuár. Það var mannmargt á Æsustöðum og ekki til siðs að börn svæfu ein í rúmi. Stefán líktist Magnúsi frater í því að vera hjartahlýr og hjálp- samur við menn og málleysingja. Seint gleymist þegar fjölskyldan fór í fermingu austur fyrir fjall. Veður var gott þegar lagt var upp en á heimleiðinni skall á iðu- laus stórhríð á Hellisheiði. Fjöldi fólks var í vandræðum enda illa klætt og óviðbúið. Stefán dró ekki af sér að rétta hjálparhönd þótt hann væri í sparifötunum og á blankskóm. Svarta, þykka hár- ið hans stóð eins og hrafnsvæng- ur upp af höfðinu í hríðinni. Það var ekki hans stíll að ganga fram hjá þeim sem voru hjálparþurfi við veginn. Margir hafa sagt að Stefán hafi reynst þeim ómetanleg hjálparhella þegar hann var bankastjóri. Það var á þeim tíma þegar lán lágu ekki á lausu og síst fyrir þá sem mest þurftu með. Ég var á ferðalagi í Ameríku í maí 1963 þegar skeyti barst að heiman. Skeytið frá pabba var stutt en skýrt. „Stefán trúlofað- ur.“ Mikil var gleðin og ekki síðra að unnustan var bæði falleg og góð. Hertha reyndist Stefáni yndislegur lífsförunautur. Best reyndist hún þegar mest reið á síðasta árið. Það verður henni aldrei fullþakkað. Heimili Stefáns og Herthu var ekki aðeins glæsilegt heldur voru þau bæði einstaklega gest- risin. Þar var öllum tekið eins og þeir væru sérstakir aufúsugestir og bæði skyldir og óskyldir áttu heimili hjá þeim árum saman. Það hefur verið haft á orði að Stefán hafi elskað börnin sín meir en aðrir menn. Slíkt er erf- itt um að dæma en hitt er víst að hann þorði að sýna þeim og öðr- um börnum í fjölskyldunni kær- leika og hlýju. Börnin okkar systkinanna allra urðu nánir vin- ir enda samgangur mikill. Hertha, Jón Gunnar, Sigga Þrúður, tengdabörnin og afa- börnin hafa mest misst en Stef- án lifir áfram í hugum okkar og ef það er satt sem segir í versinu hans pabba að Guð hafi kór hin- um megin er enginn vafi að þar hefur Stefáni verið tekið fagn- andi. Og þau sem fyrir eru og elska hann breiða faðminn á móti honum. Hólmfríður K. Gunnarsdóttir. Stefán bróðir minn ólst upp á æskuheimili okkar á Æsustöðum í Langadal. Pabbi var þar prest- ur. Hann kenndi okkur börnun- um allan barnaskólalærdóm og bjó unglinga undir framhalds- skóla. Mamma bjó okkur elsku- ríkt heimili, sem var opið gest- um og gangandi. Hún kenndi ungum stúlkum hljóðfæraleik og ræktaði fallegan trjá- og blóma- garð, sem vakti aðdáun vegfar- enda. Í hinum norðlensku dölum ríkti andi samvinnu og sam- hjálpar og þar blómstraði ríku- legt félags- og menningarlíf, ekki síst á sviði söngs og tónlist- ar. Það kom því af sjálfu sér að Stefán, sem var góður söngmað- ur, tók ungur þátt í starfi karla- kórs sveitarinnar og öðru fé- lagslífi. Fjölskyldan fluttist síðan í Kópavog þegar pabbi gerðist prestur í sameiginlegu presta- kalli Bústaða- og Kópavogssókn- ar. Í þessum nýju byggðum í út- jaðri höfuðborgarinnar gerðist margt efnalítið fólk frumbyggjar og reisti sér af vanefnum þak yf- ir höfuðið. Stefán þekkti því til lífsbaráttu íslenskrar alþýðu frá uppvexti sínum. Eftir landspróf frá Laugarvatni hóf hann nám í framhaldsdeild Samvinnuskól- ans, enda má segja að samvinnu- hugsjónin hafi verið honum í blóð borin frá forfeðrum okkar í forystusveit samvinnuhreyfing- arinnar í Þingeyjarsýslu. Hann var þar í hópi síðustu lærisveina skólastjórans Jónasar frá Hriflu, sem mun hafa hvatt hina ungu menn til dáða og góðra verka. Það er e.t.v. skýring þess að margir úr hinum fámenna hópi urðu þjóðkunnir menn, þ.á m. tveir bestu vinir Stefáns, Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, og Gísli Sigurðsson, ritstjóri og list- málari. Að loknu námi hóf Stef- án störf á vegum SÍS og var kaupfélagsstjóri á nokkrum stöðum og um tíma fram- kvæmdastjóri UMFÍ. Hann hóf síðan störf hjá Landsbanka Ísl. Seðlabanka, uns hann réðst bankastjóri Alþýðubankans hf. Þegar Stefán lét af störfum þar hvarf hann aftur til Seðlabank- ans. Ég held að undir stjórn Stef- áns hafi Alþýðubankinn notið trausts og trúnaðar viðskipta- vina sinna og gróðasjónarmið bankans hafi ekki setið í fyrir- rúmi. Ég tel að Stefán hafi litið á bankann fyrst og fremst sem þjónustustofnun þar sem allir gætu treyst því að heiðarleiki og réttsýni væru höfð að leiðarljósi og ekki síst þeir, sem minna máttu sín, gætu vænst þess að fá úrlausn sinna mála eftir því sem unnt væri. Það voru Stefáni von- brigði þegar Alþýðubankinn var lagður niður og sameinaður öðr- um stofnunum. Þegar litið er til baka og horft til þeirra hremm- inga, sem íslenskir bankar og þjóðlíf hafa síðan gengið í gegn- um, er ekki fráleitt að álykta að þau sjónarmið, sem ríktu í rekstri Alþýðubankans sáluga, gætu hjálpað til að endurvekja traust og trúnað almennings á íslenskum fjármálastofnunum og þeim, sem þeim stjórna. Í einkalífi sínu var Stefán mikill hamingjumaður. Hann átti góða konu sem var honum stoð og stytta í lífinu og tvö börn og fimm barnabörn sem voru honum mjög hjartfólgin. Stefán er nú horfinn yfir móð- una miklu en eftir lifir minning um góðan dreng sem ekki lét gullkálfinn glepja sig. Auðólfur Gunnarsson. Lífið er margslungið og gefur svo margt sem oft gleymist að þakka. Margt af því besta sem það gefur er svo algengt og svo hversdagslegt að það er eins og það sé talið sjálfsagt, varla um- ræðuvert. Þegar gengið er í hjónaband eignast maður nýja fjölskyldu, áður óþekkt fólk er allt í einu orðið manni nákomið, tengt margs konar böndum og þá reynir á hvort takast muni að aðlagast hinu nýja tengdafólki. Frá því ég fyrst kom á Digra- nesveginn, feiminn og óframfær- inn, fann ég að þar var heil- steypt fólk, búið þeim kostum sem gerðu öll samskipti auðveld og eðlileg. Tengdaforeldrum mínum og börnum þeirra á ég mikið að þakka, en það verður ekki tíundað hér. Þegar Stefán Magnús, mágur minn, er genginn minnist ég hans fyrir margt. Ég minnist þess hve hlýr hann var, hve skopskyn hans var notalegt, hve vel hann söng, hve mikill vinur hann var systkinabarna sinna, hve auðvelt hann átti með að orða hugsun sína, hvort heldur var í ræðuformi eða í samræð- um. Ég minnist stundanna með honum, hvort heldur var í hest- aragi eða á heimili hans og Herthu, hvort heldur einn með þeim að spjalla yfir kaffibolla eða í hópi vina og fjölskyldu. Þau voru samvalin í því að gera hverja stund þar eftirminnilega með gestrisni sinni, glaðværð og ljúfmennsku. Ef ég reyni að draga saman það sem ég vildi segja um Stefán þá finn ég ekkert sem lýsir hon- um betur en þau einföldu en djúpvitru orð: hann var drengur góður. Haraldur Ólafsson. Stefán Magnús, móðurbróðir minn, kvaddi þennan heim á jafn friðsamlegan hátt og hann lifði. Það var friður og fegurð yfir honum á dánarbeði. Hann sýndi einstakt æðruleysi í veikindun- um, virtist undir það síðasta vita að hverju stefndi og sýndi þá einnig fádæma kjark og styrk. Hugurinn hvarflar til æsku minnar. Ég átti vísan kærleik og vináttu í systkinum mömmu, mökum þeirra og frændsystkin- um mínum. Við vorum samhent- ur hópur, barnabörn móður- ömmu mínar og -afa. Fastur punktur í tilverunni var að halda upp á 17. júní á Meðalbrautinni, hjá Stefáni og Herthu og börn- um þeirra, Jóni Gunnari og Siggu Þrúði. Í garðinum stóð dúkkuhús sem Stefán smíðaði. Húsið var reyndar manngengt fyrir okkur á þessum árum og bauð upp á óteljandi útgáfur leikja. Stefán var hagur smiður. Aðrar minningar tengjast veislum þar sem þeir bræður, Stefán og Árni, sungu tvíraddað og við hin tókum undir. Það var fagur söngur, Árni með tæra tenórrödd og Stefán voldugur og tónviss baritón. Stefán söng svo vel. Það sem stendur einnig upp úr eru samkomur fjölskyldunnar eftir að makar okkar frænd- systkina og börn komu til. Við höfum átt góðar stundir saman og það hefur verið mikils virði að upplifa þann kærleika sem Stef- án sýndi okkur öllum. Stefán var einstaklega kær- leiksríkur og mikil barnagæla. Hann hafði ríkt skopskyn og smitandi hlátur. Hann kunni að gera grín að hlutunum, sjálfum sér og öðrum, en alltaf græsku- laust. Að koma á fagurt heimili hans og Herthu var ávallt veisla. Það er list að taka vel á móti fólki en gestrisni þeirra er við- brugðið. Stefán var alltaf óað- finnanlega klæddur og bar með sér þokka og reisn. Það er óbærilega sárt að sjá á eftir Stefáni, móðurbróður mín- um, en gott að hugsa um flekk- laust og fallegt líf hans. Honum sé þökk fyrir allt. Sigríður Ólína Haraldsdóttir. Út um græna grundu gakktu, hjörðin mín. Yndi vorsins undu. Eg skal gæta þín. Sól og vor ég syng um, snerti gleðistreng. Leikið, lömb, í kringum lítinn smaladreng. Þessar vísur Steingríms Thor- steinssonar verða ævinlega bundnar minningunni um kæran föðurbróður minn, Stefán M. Gunnarsson. Mér er í barns- minni þegar við sungum þetta saman og hann skellihló, eins og honum einum var lagið, þegar lagið náði hæstum hæðum í „gleðistreng“. Hann taldi ekki eftir sér að koma á fólksvagn- inum úr Kópavoginum, vestur í bæ, til að fara með litlu frænku sína í bíltúr sem henni þótti held- ur betur skemmtilegt. Um þetta leyti rugluðu Stefán og Hertha saman reytum og gengu eftir það götuna saman. Börnin þeirra, Jón Gunnar og Sigga Þrúður, veittu honum ómælda gleði og seinna líka barnabörnin. Honum þótti und- urvænt um þau öll og það duldist engum að væntumþykjan var gagnkvæm. Hláturinn, söngurinn og gleðin var einmitt það einkenndi Stefán og líka þykka dökka hárið og góðlegu augun. Við í fjöl- skyldunni eigum fjölmargar minningar um skemmtilegar stundir heima hjá Stefáni og Herthu eða í safnaðarheimilinu Borgum í holtinu neðan við Kópavogskirkju. Oftar en ekki var sungið, stundum við undir- leik á fótstigna orgelið hennar ömmu og að sjálfsögðu raddað; „Þú komst í hlaðið“, „Ég skal vaka“ og fleiri og fleiri. Sagðar voru sögur af fólkinu fyrir norð- an, æskuárunum á Æsustöðum og síðast en ekki síst karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps sem þótti bera af öðrum kórum. Jafnan var farið með vísur, sérkennilegar, glúrnar eða einstaklega vel ort- ar. Og hlegið dátt. Ógleymanleg er ferðin norður að Auðkúlu í Svínadal, fæðing- arstað ömmu, fyrir hartnær tutt- ugu árum. Þar hafði langafi, nafni Stefáns, látið reisa kirkju eftir mynd í erlendu tímariti af rússneskri kirkju, eftir því sem sagan sagði. Í kirkjugarðinum voru þau grafin, Stefán Magnús Jónsson og Þóra Jónsdóttir langamma en aðeins var leg- steinn á leiði hans en ekki henn- ar. Um veturinn höfðu borist fregnir frá draumspökum mönn- um fyrir norðan um að henni þætti þetta miður. Stefán fór fyr- ir fjölskyldunni þegar farið var um Jónsmessu til að bæta úr þessu. Hann hafði hugsað fyrir öllu, hverju smáatriði. Við dags- lok var búið að reisa stein á leiði Þóru og er ekki vitað til þess að hún hafi truflað svefn manna nyrðra eftir þetta. Við Helgi hittum Stefán síðast heima kvöld eitt síðla í ágúst. Daginn áður hafði fjölskyldan safnast saman í lundinum á Digranesveginum, þar sem áður stóð hús afa og ömmu og þar sem enn vaxa tré sem amma gróðursetti forðum. Hann rifjaði upp ferð sem hann fór til Líb- anons árið 1957 „þar sem grasið er gult og klettarnir hvítir“ eins og hann lýsti landinu sjálfur í grein í Tímanum frá þessum tíma. Stefán var kynntur fyrir utanríkisráðherra landsins með þeim orðum að nú gæfist kostur á að kæla sig hjá manni frá Ís- landi. – Það stafaði hlýju frá hon- um þetta ágústkvöld eins og æv- inlega. Söngurinn er hljóðnaður. Stefán M. Gunnarsson ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR SIGURÐSSON SVAVARSSON, Suðurgötu 18b, Sauðárkróki, lést á heimili sínu þriðjudaginn 27. septem- ber. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 8. október kl. 11.00. Sigrún G. Halldórsdóttir, Magnús Sverrisson, Ásta P. Ragnarsdóttir, Jóhann M. Sverrisson, Leidy Karen Steinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur bróðir minn og frændi, KRISTJÁN STURLAUGSSON tryggingastærðfræðingur frá Múla í Ísafjarðardjúpi, löngum til heimilis í Bogahlíð 14, Reykjavík, lést á Hrafnistu miðvikudaginn 5. október. Gerður Sturlaugsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.