Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Frábærir labradorhvolpar
Eftir eru 4 hvolpar úr 8 hvolpa goti,
svartir og svakalega fallegir, verða
tilbúnir 9. okt. Sprautaðir, örmerktir
og með hvolpapakka. S. 846 4483.
Veitingastaðir
Humarhlaðborð - humar, humar,
lamb... Hafið Bláa
Okkar vinsæla humarhlaðborð föstu-
dag, laugard., sunnud. frá kl. 18.00.
Borðapantanir 483 1000 -
sjá hafidblaa.is
Geymslur
Góðar upphitaðar loftræstar stein-
steyptar og vel einangraðar geymslur
fyrir fellihýsi, tjaldvagna og húsgögn.
Margra ára reynsla.
Upplýsingar í símar 897 1731.
Gónhóll Eyrarbakka
mttp://www.gonholl.is
Vetrargeymsla
Geymdu gullin þín í Gónhól.
Húsbíl-húsvagn-tjaldvagn o.fl.
Skráðu sjálf/ur:
http://www.gonholl.is
Uppl. og pantanir í s. 771-1936.
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í
kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes-
og Grafningshreppi. Allar nánari
upplýsingar í síma 896-1864.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Blómaskór. Margir litir.
Eitt par 1.200 kr., tvö pör 2.000 kr.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Haust í Skarthúsinu
Ný sending af loðtreflum.
Einnig mikið úrval af hringtreflum,
höttum og vettlingum.
Mikið úrval af nýjum skartgripum
- flott fyrir árshátíðina.
Skarthúsið,
Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Bílar
BMW 530D
Eitt flottasta eintakið af BMW 530D
árg. 2005 til sölu. Dekurbíll m/öllu,
Ekinn aðeins 100.000 km. Verð 3,8 m.
Ath. skipti á ódýrari.
Uppl. í síma 699 1616.
Ford Focus station 1,6L.
verð 410 þúsund staðgreitt. Árgerð
1999" .Ekinn 138 þúsund km ,bein-
skiptur nýskoðaður,heilsársdekk,bíll í
fínu standi.
Upplýsingar í síma 8204640.
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bílaþjónusta
Húsbílar
Húsbíll til sölu
FORD E350 árg. 1991, bensín.
Ekinn 89 þ. m. Skráður fyrir 8,
svefnpláss fyrir 6. Verð 2.950 þús.
Frekari upplýsingar í síma 431 2622
og um helgar í síma 690 7432.
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum.
Hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com. Teg. 42026 - Stækkar þig um heilt
númer, fæst í B C skálum á kr. 4.600,-
buxur í stíl á kr. 1.995,-
Teg. 20007 - Mjúkur og vænn í D E
skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr.
1.995,-
Teg. 42027 - Vinsælt snið í C D E
skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr.
1.995,-
MISTY er á ferð um landið, þessa
dagana erum við á HÚSAVÍK hjá
Önnu Rúnu í síma 895-6771 og á
Höfn hjá Hóffý í síma 861-6445.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
✝ Guðrún Bær-ingsdóttir
fæddist hinn 24.
desember árið
1928 vestur í Hnífs-
dal. Hún lést á
Landspítalanum
hinn 28. september
síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru þau Bær-
ing Þorbjörnsson
og Ólöf Jak-
obsdóttir. Systkini Guðrúnar
eru hálfbróðir hennar Ásgeir
Valhjálmsson og alsystkinin
Margrét, Kristinn og Ólafur.
Kristinn og Ólafur eru fallnir
frá. Guðrún ólst upp í Hnífsdal
til ársins 1939 en þá flutti hún
með fjölskyldu sinni til Ísafjarð-
ar. 16 ára gömul fór hún suður
til Reykjavíkur í vist og þar
dvaldi hún næstu tvö árin. Á 18.
árinu flutti Guðrún síðan til
Siglufjarðar. Á Siglufirði
kynntist hún eiginmanni sínum,
Eysteini Halldóri Einarssyni
netagerðarmanni. Þau gengu í
hjónaband árið 1949, hinn 16.
apríl og hófu búskap sinn á
Siglufirði. Þau hjónin Guðrún
og Halldór eignuðust þrjú börn.
Elst er María Halldórsdóttir,
fædd 4. nóvember árið 1948.
Maður hennar er Einar Guð-
berg Jónsson.
hingað suður. Guðrún tók þátt í
því starfi af lífi og sál og var
fyrsti formaður kvenfélags
Þrasta. Þau ferðuðust líka mik-
ið erlendis hjónin meðan bæði
lifðu og höfðu af því mikla
ánægju. Halldór lést hinn 16.
apríl árið 1979, á 30 ára brúð-
kaupsdeginum þeirra. Guðrún
var kraftmikil, vinnusöm og
dugleg kona. Hún var ráðagóð
og lét sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Þannig smíðaði hún
sjálf hillur og annað til heimilis-
ins ef slíkt vantaði og gekk í
þau störf sem þurfti að vinna.
Hún var líka mjög viljasterk og
meinti það sem hún sagði.
Hennar já var já og nei hennar
þýddi nei. En um leið var Guð-
rún með mikla réttlætiskennd.
Hún fylgdist líka vel með þjóð-
málum allt fram á síðasta dag
og hafði á þeim ákveðnar skoð-
anir.
Umfram allt annað hafði
Guðrún mikla gleði af barna-
börnum sínum síðustu árin. Hún
ljómaði öll þegar þau komu í
heimsókn til hennar – enda var
hún stolt af hópnum sínum og
elskaði þau öll heitt og innilega.
Eftir árið 1999 fór að halla
undan fæti hvað heilsu Guð-
rúnar varðaði. Hún missti smátt
og smátt heilsuna og und-
anfarin fjögur ár hefur hún ver-
ið rúmföst. Að lokum fór svo að
baráttuþrek hennar var á þrot-
um.
Guðrún verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
7. október 2011, og hefst at-
höfnin kl. 13.
Einar Hall-
dórsson fæddist 8.
október árið 1949.
Yngstur þeirra
systkina er Ólafur
Þorbjörn Hall-
dórsson, fæddur
23. janúar árið
1955. Barnabörnin
eru 9 og barna-
barnabörnin 15.
Þau Guðrún og
Halldór bjuggu á
Siglufirði þar sem Halldór
starfaði við netagreð, til ársins
1962 er þau fluttu til Hafn-
arfjarðar. Þar hafa þau búið
síðan. Guðrún vann sem ung
kona við sauma og sem sauma-
kona. Er þau bjuggu á Siglu-
firði rak hún einnig mötuneyti
enda mikið um að vera í bænum
á þessum árum þegar síldin var
og hét. Mest voru það menn
sem unnu hjá Halldóri við neta-
gerðina sem voru í mat hjá
henni.
Frá árinu 1966 starfaði Guð-
rún hjá Ragnari Björnssyni og
allt þar til er hún varð sjötug.
Guðrún var alla tíð létt í lund,
hláturmild og glaðleg. Þau
hjónin áttu mörg áhugamál
saman en þeirra stærst var
söngurinn og oft tóku þau lagið
saman. Halldór starfaði með
Þröstunum eftir að þau fluttu
Elsku mamma mín, þú varst
skemmtileg, ráðgóð og réttlát en
þú varst líka þrjósk og stolt.
Minningarnar eru margar góðar
en minningin sem ég minnist
mest er þegar þú og pabbi voruð
að skemmta ykkur því þá vildi
ég frekar vera með ykkur en að
fara út með vinum mínum. Það
var sungið af fullum krafti og
mikilli innlifun. Ég elskaði að
hlusta á ykkur syngja saman og
taka þátt með ykkur. Síðustu
fimm ár hafa verið þér erfið
vegna verkja og vanlíðanar. Ég
efast ekki um að það hafi verið
fagnaðarfundur hjá þér og
pabba þegar þú komst loks í
faðm hans aftur, nú veit ég að
þér líður vel. Þú fékkst loksins
hvíldina langþráðu sem þú hefur
beðið eftir. Nú þarf ég að venjast
því að fara ekki inn í Hafnarfjörð
á föstudögum í heimsókn til að
versla fyrir þig og vera þér fé-
lagsskapur. Ég mun sakna þín,
mamma mín.
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín,
mér finnst gott að koma til þín.
En mamma, gaman væri að vera stór.
Þá vild’ ég stjórna bæði hljómsveit og
kór.
(Freymóður Jóhannsson.)
Þín dóttir,
María.
Elsku amma mín.
Fráfall þitt kom ekki mjög
skyndilega, enda aldur hár og þú
farin að kröftum eftir langa og
farsæla ævi.
Með þér er enn ein rósin föln-
uð og fallin.
Blómagarður okkar er fátæk-
ari nú en áður.
Fyrir mér varst þú ætíð glað-
vær og hláturmild, hreinskilin og
þrjósk, handlagin og vinnu-
söm … g skemmtilega stríðin.
Það sem situr fastast í minn-
ingunni, alveg frá barnsaldri,
þau jól sem við áttum saman, að
við bræðurnir gátum ekki beðið
eftir ömmu og gjöfunum hennar.
Þú virtist alltaf vita hvað okk-
ur langaði í, hvað okkur fannst
spennandi og sást til þess að það
tæki okkur í hið minnsta korter
að opna þær … kassi … ofan í
boxi … ofan í kassa… og allt
rækilega fest með límbandi og
fyllt með gömlum dagblöðum
o.s.frv.
svo hlóst þú dátt, á meðan við
rembdumst við að rífa utan af
þessu öllu saman, alveg að pissa
í okkur af spenningi og vorum
ávallt í skýjunum með það sem
þú gafst okkur.
Megi þú hvíla í friði og ég bið
að heilsa afa.
Komið er að kveðjustund,
Nú heldur þú á annan fund,
Til okkar ei aftur mun vakna,
Þín, ég mun ávallt sárt sakna.
Kveðja.
Ingólfur.
Elsku amma.
Þú varst yndislega kona, lífs-
glöð og ég man alltaf eftir þér
hlæjandi. Ég man eftir því að ég
var alltaf hjá þér þegar ég var
lítil og ég man eftir því að þú
söngst fyrir mig úr söngvabók
sem þú áttir, og ég var fljót að
finna mér uppáhaldslag sem er
og var dansi dansi dúkkan mín.
Ég veit að ég á eftir að syngja
þetta lag fyrir mín börn þó að ég
sé ekki besta söngkonan en ég
mun gera það í minningu um þig.
Ég man líka eftir þeim degi
sem ég var hjá þér og við vorum
á leiðinni í afmælisveislu og ég
var ekki beint í veislufötunum
þannig að þú fórst með mig úti í
búð og fannst á mig rauðan bol
og svo fannstu efni heima hjá
þér og saumaðir á mig pils. Ég
var ekkert smá glöð með þessi
nýju föt.
Alltaf þegar ég hugsa um það
þegar ég var lítill og heima hjá
ömmu brosi ég því þetta eru
góðar minningar um okkur sam-
an.
Þú varst frábær amma og þú
munt alltaf vera hjá mér.
Þín verður sárt saknað.
Guðrún Albertína
Einarsdóttir.
Elsku langamma.
Þú varst yndisleg langamma
og varst alltaf tilbúin að hjálpa
okkur að láta það gerast sem við
krakkarnir vorum braska við.
Ég man svo greinilega eftir
því að þú safnaðir frost-
pinnaspýtum fyrir okkur krakk-
ana til þess að við gætum búið til
alls kyns bílabrautir út um allt
gólf hjá þér.
Við fengum líka að tæma allar
eldhússkúffur af sleifum og þess
háttar til að stækka brautina
enn frekar.
Alltaf passaðir þú svo að eiga
kókómjólk og kleinur fyrir okkur
bílabrautasmiðina.
Ég man líka svo vel eftir þeg-
ar ég var að syngja með barna-
kór Grafavogskirkju sem kom
fram í sjónvarpinu, að þú varst
svo stolt af mér að þú tókst ljós-
mynd af sjónvarpinu með mér í
því til að sýna mér að þú hefðir
verið að horfa.
Svo vildir þú að ég ætti mynd-
irnar, sem ég á enn og mun
varðveita.
Aldri mun ég gleyma þér,
elsku langamma mín … hvíldu í
friði.
Þín,
Íris Ósk.
Guðrún A.
Bæringsdóttir
Mikil viðbrögð voru við
haustjafndægragátunni og
þakkar Morgunblaðið þátt-
tökuna. Rétt lausn er:
Haustmánuður hungur seður,
hendast menn og dýr um allt.
Í gormánuði gleður veður,
gerir á ýli rakt og kalt.
Dregið hefur verið úr
réttum lausnum og fá hinir
heppnu vegleg bókaverðlaun
í boði Pennans Eymunds-
sonar. Grímur Hergeirsson,
Kirkjuvegi 22, 800 Selfossi
hlýtur bókina Frönsk svíta
eftir Irene Nemirovsky,
Hinrik Ingi Árnason, Lækj-
arvaði 1, 110 Reykjavík, fær
bókina Reykvíkingar. Fólkið
sem breytti Reykjavík úr
bæ í borg eftir Þorstein
Jónsson, Smári Þorbjörns-
son, Fannahvarfi 3, 203
Kópavogi, fær bókina Hand-
bók um íslensku og Jónína
Einarsdóttir, Stóru-
Reykjum, 801 Selfossi, fær
bókina Prjónað úr íslenskri
ull. Verðlaunahafar geta
vitjað bókanna á ritstjórn
Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík.
Lausn
haustjafn-
dægragátu
Íslandsmót kvenna
í tvímenningi
Íslandsmót kvenna í tví-
menningi fer fram 7.-8. októ-
ber. Mótið hefst kl. 18:30 á
föstudaginn og heldur áfram
kl. 10:30 á laugardeginum.
Skráning í síma 587 9360.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson