Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MORGUNMATUR! ÉG LÆT ÞIG VITA ÞEGAR ÞAÐ
KEMUR HÁDEGISMATUR
ENDA ÞINN
TILGANGUR
Í ÞESSU LÍFI
PADDA?
HVAÐ ER PADDA AÐ GERA Í
KVÖLDMATNUM MÍNUM?
HVERNIG
FER ÉG AÐ ÞVÍ
AÐ KYNNAST
DRAUMA-
KONUNNI
MINNI?
ÞÚ
VERÐUR BARA
AÐ HALDA
ÁFRAM AÐ LÁTA
ÞIG DREYMA
ÞÚ ERT NÚ
ÞEGAR BÚINN AÐ
SEGJA MÉR FRÁ ÞVÍ
HVAÐ ÞÚ ÁTT
MIKIÐ AF
FLUGPUNKTUM
HVERNIG VAR Í
SKÓLANUM?
EKKI
GAMAN, MÉR VAR
SETT FYRIR MJÖG
ERFITT HEIMA-
VERKEFNI
ÞARFTU
AÐ SKRIFA
ÚTDRÁTT ÚR BÓK?
EÐA FÉKKSTU ERFIÐ
STÆRÐFÆRÐI-
DÆMI?
VERRA
EN ÞAÐ!
ÉG Á AÐ
SKRIFA UM
HÁTÍÐARSIÐI
GYÐINGA
SÝNDU ÞIG
PADDAN ÞÍN!
EÐA ÉG RÍF ÞETTA
TÍVOLÍ Í SUNDUR!
ÞAÐ ER KOMINN TÍMI
TIL AÐ LÁTA SJÁ SIG
HÉR KEM ÉG
SABRETOOTH!
EKKERT ILLA MEINT
Við borgum ekki
Er ekki svolítið skrít-
ið að skattgreiðendur
á Íslandi kosti rétt-
arhöld yfir manni sem
reyndi að hjálpa þjóð-
inni? Geir Haarde
reyndi það án efa.
Hann var forsætisráð-
herra þegar bank-
arnir tútnuðu út og
fjárfestar gerðu sér
glaðan dag. Margt
fólk þurfti þá að hafa
ýtrustu útsjónarsemi
til að komast af. Síðan
hefur enn fleira fólk
lent í miklum erf-
iðleikum. Það er ansi hreint órétt-
látt. En ætli þetta sé bara einum
bjartsýnum manni að kenna? Hvort
var það Geir eða Ólafur Ragnar sem
mælti með auknum umsvifum á Ís-
landi? Hvernig voru aðstæður á fjár-
málamörkuðum heimsins? Hvaða
skattgreiðandi vill láta taka pen-
ingana sína í réttarhöld sem snúast
um slíka vitleysu? Og hvar eru hinir
frábæru fjárfestar eða um-
svifamenn? Sérstakur saksóknari
fær skammir fyrir seinagang, en hjá
honum er líkast til verið að vinna
þjóðþrifaverk. Það virðist einfald-
lega einkennilegt að taka einn mann
fyrir alla. Mann sem vildi og vill
áfram vel.
Lesandi.
Hættur af öspum
Mig langar að benda á stórhættu við
Víkingsheimilið í Fossvoginum,
vegna aspartrjáa sem plantað hefur
verið alltof þétt og við
ljósastaurana þannig
að þeir eru á kafi inni í
öspunum. Gatan verð-
ur svo dimm fyrir
bragðið og stór-
hættuleg. Þarna er
mikil umferð af gang-
andi, hjólandi og
hlaupandi börnum sem
fullorðnum sem eru að
fara inn á göngustíg-
inn út Fossvoginn. Svo
er Víkingsheimilið
með upplýstan gervi-
grasvöll þannig að það
er mikil bílaumferð á
kvöldin. Ég benti
garðyrkjustjóra
Reykjavíkurborgar á þessa hættu
fyrir ári en hann grobbaði sig bara
af því að hann væri búinn að vera
garðyrkjustjóri í 12 ár og hefði
plantað hundruðum aspa á hverju
ári víðsvegar um borgina. Sem auð-
vitað er ekki gáfulegt, þar sem aspir
eru til vandræða um alla borg.
Þarna verður auðvitað að taka upp
þessi tré og planta minni trjám eða
alls ekki neinum þar sem gatan er
svo þröng. Víða á Norðurlöndunum
er bannað að planta öspum inni í
borgarhverfum. Aspir eru fín tré
sem skjólveggir á opnum svæðum en
ekki í þröngum götum.
Í von um skjóta lausn áður en slys
verða þarna, því enginn vill hafa þau
á samviskunni.
Íbúi í Fossvoginum.
Ást er…
… að hafa þig til fyrir
sérstakt stefnumót.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9. Bingó
fellur niður í dag.
Árskógar 4 | Smíði/Útskurður kl. 9.
Boðinn | Vist kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl.
9.15 (lokaður hópur).
Bólstaðarhlíð 43. | Haustfagn. 14. okt.
Matur frá Lárusi Lofts. Þorvaldur Hall-
dórsson sér um fjörið. Uppl. í s. 535-
2760.
Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í Gullsmára mán. kl. 20 og Gjá-
bakka mið. kl. 13, fös. kl. 20. Ath. breytt-
an tíma á mán. og fös. Skvettuball í
Gullsmára 13 Kóp. 8. okt. kl. 20. Hljóm-
sveitin Prima. Veitingar á góðu verði.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20-23, Klassík
leikur.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.20, málm-/silfursmíði kl. 9.30/13,
jóga kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Félagsvist og leðursaumur kl. 13.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Kaffispjall í krók kl. 10.30, spil
kl. 13.30. Söngur kl. 14. Jóga fellur niður
í dag.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, bókband kl. 13. Prjónakaffi kl. 10.
Stafganga kl. 10.30 og létt ganga um El-
liðaárdalinn. Spilasalur opinn. Kóræf. kl.
12.30, nýir félagar velkomnir.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
bingó kl. 13.30, Tímap. hjá fótafr. í síma
6984938, tímapantanir á hárgreiðslust. í
síma 8946856. Fatakynning kl. 10-15.
Hraunsel | Tréskurður kl. 10, leikfimi
Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13, biljard í
kjallara, opið daglega kl. 9 - 16.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10.
Vinnustofa kl. 9 án leiðbeinanda. Bingó
kl. 13.30, kaffisala í hléi.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið/
dagblöðin/kaffitár 8.50. Gönuhlaup/
thaichi/myndlist kl. 9. Gáfumannakaffi
kl. 15. Hæðargarðsbíó kl. 16.
Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl.
9. Guðsþjónusta & sparikaffi kl. 14.
Vesturgata 7 | Kaffi/dagblöð kl. 9,
enska kl. 10.15, tölvukennsla kl. 12.30,
sungið v/flygil kl. 13.30, tölvukennsla
frk. kl. 14.15, dans í aðalsal kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, leirmótun og handavinna kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15,
bingó kl. 13.30.
Pétur Stefánsson er í sömu spor-um og þorri þjóðarinnar:
Að mér sækir lúi og leiði,
lífsins gleði er hulin sýnum,
þó endalaust ég greiði og greiði,
grynnkar ei á skuldum mínum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía
á Sandi, svarar að bragði:
Á skuldum er ég ekki þreytt
og andleg heilsa fín
enda kaupi ég aldrei neitt
annað en brennivín.
Og hún bætir við:
Kúri ég á krónunum
koddinn geymir seðla.
Ég held ég rétti rónunum
í ræsinu, nokkra bleðla.
Pétur fyllist þakklæti:
Æi Fía, þakka þér
– þú sem engan svíkur,
seðlabúntin sendu mér
suður til Reykjavíkur.
Fía slær á létta strengi:
Sannlega máttu fá seðil og vín
og svolítið knús fyrir óðinn.
Þegar þú kemur í kaffi til mín
með kossi ég rétti þér sjóðinn.
Pétur svarar óðar:
Lífið mitt er leikur og glens,
lífsleiðinn burtu fokinn.
Maður er kominn á syngjandi sjens.
Sjáumst í vikulokin.
Þá renna tvær grímur á Fíu:
Bóndanum verður nú varla skemmt
hann veit hvað mér finnst þú sætur.
Því held ég í dag, væri heldur snemmt.
Hittumst seinnipart nætur.
Og Pétur klykkir út með:
Eftir rakstur og ylvolgt bað
upp úr klukkan 10
ætla ég að strunsa af stað
á stefnumót við Fíu.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af skuldum og sjóði