Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 36

Morgunblaðið - 07.10.2011, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011 Mark Tatlow heldur erindi í hádegisfyrirlestraröð tónlist- ardeildar LHÍ í Sölvhóli í dag kl. 12.00-12.45. Í erindinu fjallar Tatlow um uppfærslur á óperum fyrri alda á okkar tím- um, en erindið ber titilinn „The (ir)relevance of Early Opera in the 21st century“. Mark Tatlow hefur starfað sem stjórnandi við l’Opéra de Nice, Hirðleikhúsið í Drottn- ingarhólmi, Konunglegu óperunni í Kaupmanna- höfn, Vadstena Academy, FolkOperan, Göte- borgsOperan og NorrlandsOperan auk annarra í Skandinavíu og Bretlandi. Hann er listrænn stjórnandi Hirðleikhússins í Drottningarhólmi. Óperufræði Fyrirlestur um óperur fyrri alda Mark Tatlow Nýtt kvikmyndahús verður opnað í kvöld á Siglufirði og verður kvikmyndin Eldfjall opnunarmynd þess. Leikstjóri myndarinnar, Rúnar Rún- arsson og aðalleikari hennar, Theódór Júlíusson, verða við- staddir opnunina en Siglu- fjörður er heimabær Theódórs. Sýningar á Eldfjalli í hinu nýja kvikmyndahúsi verða í kvöld kl. 21, annað kvöld á sama tíma og á sunnudag kl. 20. Eldfjall er fyrsta kvikmynd Rúnars í fullri lengd og jafnframt framlag Íslands til Ósk- arsverðlaunanna 2012. Hún hefur verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim. Kvikmyndir Nýtt kvikmynda- hús á Siglufirði Theódór Júlíusson í Eldfjalli. Hulda Hlín Magnúsdóttir opn- ar sýningu á verkum sínum í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 16.00. Hún nefnir sýninguna Litir – krómatískir töfrar / Co- lor – chromatic magic, en á henni eru litir sem hafa verið meginviðfangsefni í olíu- verkum og teikningum þar sem fjöllum, klettum og persónum bregður fyrir í litskrúðugum expressívum búningi. Hulda Hlín er útskrifuð í málaralist frá Lista- akademíu Ítalíu í Róm (Accademia di Belle Arti) og hefur haldið einka- og samsýningar hérlendis og erlendis. Sýningin stendur til 4. nóvember. Myndlist Hulda Hlín í Lista- sal Mosfellsbæjar Hulda Hlín Magnúsdóttir Norrænir mús- íkdagar hófust í gær með ráð- stefnu og síðan opnunartón- leikum í Hörpu þar sem flutt voru ný tónverk norrænna tón- skálda. Tónlist- arhátíðinni, sem stendur fram á sunnudag, verður fram haldið í dag. Dagurinn hefst á ráðstefnu um nor- ræna tónlist og norræna samvinnu kl. 9.00 þar sem fram koma fjórir fyrirlesarar, Ruta Pruseviciene, Pet- er Eriksson, Atli Heimir Sveinsson og Bèr Deuss, og fjalla um hvað sé norrænt við norræna tónlist. Ráð- stefnustjóri er Sveinn Einarsson Kl. 12.15 Tónleikar með færeyskum verkum eftir tónskáldin Andras Ol- sen og Trónd Bogason. Aldubáran Sinfoniettaflytur verkin sem öll eru að hljóma í fyrsta sinn. Kl. 19.00 flytja 90 börn úr Tónlistar- skóla Hafnarfjardar, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar verkið Velodrom eftir Østen Mikal Ore í Norður- ljósum. Höfundur stjórnar flutn- ingnum. Kl. 20.00 Einleiksverk fimm nor- rænna höfunda flutt í Kaldalóni. Verk eftir Mattias Petersson, Edvin Østergaard, Malin Bång, Thorstein Aagard-Nilsen og Huga Guðmunds- son, en einleikarar eru Anna Petrini kontrabassablokkflautuleikari, Ein- ar Jóhannesson klarínettuleikari, Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari og Morten Carlsen lágfiðluleikari. Kl. 22.00 Raftónlist flutt í Norður- ljósum og tvinnað saman flutningi á hefðbundin hljóðfæri og tölvu- og raftónlist. Flutt verða verk eftir Kaija Saariho, Juha T. Koskinen, Toke Brorson Odin, Øyvind Torv- und og Jexper Holmen. Flytjendur eru Hélène Navasse, Frode And- ersen, Guðni Franzson, Kjartan Guðnason, Sigurður Halldórsson, Svava Bernharðsdóttir, Ögmundur Þór Jóhannesson og Ejnar Kanding. Ráðstefna, ný verk og raftónlist Norrænir músíkdag- ar haldnir í Hörpu Atli Heimir Sveinsson Í höfuðborgarsor- anum þar á sína ætt og óðul þessi ónytjungur 38 » Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er alltaf mjög gaman og mikill heiður að fá að spila með Tríói Reykjavíkur,“ segir Sigurður Ingvi Snorrason klarínettuleikari, en hann er sérstakur gestur á tónleikum Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafn- arfjarðar, sunnudaginn 9. október kl. 20.00. Á tónleikunum koma auk Sig- urðar fram þau Guðný Guðmunds- dóttir fiðluleikari og Peter Máté pí- anóleikari, sem bæði eru meðlimir Tríós Reykjavíkur. Spurður um efnisskrá tónleikanna segir Sigurður aðallega um að ræða blöndu af frönskum og ungverskum verkum. „Síðan þótti mér við hæfi að bæta við verki Páls Pampichlers Pálssonar, Næturljóð nr. 3, frá árinu 1999 sem er tileinkað mér,“ segir Sigurður. Á tónleikunum má heyra leikandi létt tríó eftir Darius Mil- haud og nokkur smáverk eftir Franz Liszt sem flutt eru í tilefni tveggja alda afmælis hans nú í október. „Tvö verkanna á tónleikunum, annars vegar klarínettusónata eftir Francis Poulenc og hins vegar And- stæður eftir Béla Bartók, eiga það sameiginlegt að hafa verið pöntuð af klarínettusnillingnum og sveiflu- kónginum Benny Goodman,“ segir Sigurður og bendir á að Goodman hafi á sínum tíma ætlað að frumflytja bæði verkin með tónskáldunum. Það hafðist í tilfelli Bartóks, en Poulenc lést áður en það náðist og því var það Leonard Bernstein sem sat við flyg- ilinn. Vítt tónsvið hljóðfærisins eykur túlkunarmöguleikana „Við klarínettuleikarar eigum Go- odman mikið að þakka því hann var afar duglegur að panta verk og mörg fræg tónskáld tuttugustu aldarinnar skrifuðu fyrir hann,“ segir Sigurður og nefnir í því sambandi t.d. Paul Hindemith og Aaron Copland. Aðspurður segir Sigurður úr nógu að moða þegar kemur að því að velja góð klassísk klarínettuverk til flutn- ings. „Vissulega er klarínettan ungt hljóðfæri, sem þýðir að við eigum ekki verk frá barokktímanum. Fyrsta klarínettan verður til um 1730 og upp úr því fara tónskáld á borð við Mozart og Brahms að semja fyrir hljóðfærið. Á tuttugustu öldinni er óhemjumikið skrifað fyrir hljóð- færið,“ segir Sigurður. Tekur hann fram að eitt af því sem sé svo heillandi við klarínettuna sé hversu vítt tónsvið hljóðfærið hafi sem gefi því aukna möguleika í túlkun. Sigurður stundaði nám í klarín- ettuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Tón- listarháskólann í Vínarborg. Hann hefur starfað í Sinfóníuhljómsveit Ís- lands frá árinu 1973. Hann stjórnar eigin salonhljómsveit og er virkur sem einleikari og kammermúsíkant. Þá stjórnaði hann uppbyggingu Tón- listarskóla FÍH og var skólastjóri skólans fyrstu 8 árin. Sigurður kenn- ir við Tónlistarskólann í Reykjavík. „Við klarínettuleikarar eigum Goodman mikið að þakka“  Tónleikaröð Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg hefst á klarínettuveislu Morgunblaðið/Golli Tríó Peter Máté píanóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Sigurður Ingvi Snorrason klarínettuleikari leika verk eftir Pál Pampichler Pálsson, Milhaud, Liszt, Poulenc og Bartók á tónleikum sínum á sunnudag. Tónleikar Tríós Reykjavíkur á sunnudag marka 22. starfsár hópsins í samvinnu við Hafnarborg. „Á sínum tíma vorum við að leita okkur að samastað til tónleika- halds,“ rifjar Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikara upp, en hún skipar Tríó Reykjavíkur ásamt Gunnari Kvar- an sellóleikara og Peter Maté píanóleikara, sem tók við af Halldóri Haraldssyni píanóleikara 1996, en Halldór spilaði með tríóinu frá stofnun 1988. „Þá var ekki um auðugan garð að gresja þegar kom að því að finna sal á listasafni með góðum hljómburði og flygli,“ segir Guðnýju og tekur fram að Hafnarborg hafi verið nýopnað og stjórnendur þar að velta því fyrir sér að fá sér flygil. „Við fórum og töluðum við að- standendur safnsins og héldum tónleika. Í framhaldinu varð það að samkomulagi að Tríó Reykja- víkur myndi hafa aðsetur í Hafnarborg og vera kamm- erlistahópur safnsins,“ segir Guðný og hrósar happi yf- ir því þar sem hljómburðurinn í Hafnarborg sé einstakur og samstarfið við safnið verið afar farsælt. Frá upphafi hefur Tríó Reykjavíkur haldið ferna tónleika í Hafnarborg á hverju starfsári. „Við fáum reglulega til okkar gesti á tónleikana og bætum jafnvel við enn fleiri hljóðfærum. Við getum því leikið mjög breitt úrval af tónbókmenntunum,“ segir Guðný og tekur fram að í áranna rás hafi líka skapast hefð fyrir því hjá tríóinu að vera með tónleika undir yfirskriftinni Klassík við kertaljós auk þess sem nýár- stónleikarnir séu alltaf á sínum stað í janúar við góðar undirtektir áheyrenda. KAMMERLISTAHÓPUR HAFNARBORGAR Í RÚMA TVO ÁRATUGI Guðný Guðmundsdóttir Hljómburðurinn einstakur og samstarfið afar farsælt Stórskemmtileg ævintýrasýning fyrir yngstu börnin Næstu sýningar: Laugard. 8. okt. kl. 13.30 Laugard. 8. okt. kl. 15.00 Sími í mið asölu 5511200 HLINI KÓNGSSON Sögustund í Kúlunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.