Morgunblaðið - 07.10.2011, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2011
KVIKMYNDIR
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndin Killer Elite verður frumsýnd hér
á landi í dag en einn af framleiðendum henn-
ar er Sigurjón Sighvatsson. Handrit mynd-
arinnar er byggt á bók Ranulph Fiennes, The
Feather Men og segir af breskum fyrrver-
andi sérsveitarmanni, Danny, sem heldur til
Óman í því skyni að bjarga félaga sínum og
læriföður, Hunter sem þar er haldið föngnum
af ættbálkahöfðingja, sjeik Amr. Amr setur
honum afarkosti, hann verði að drepa þrjá
fyrrum meðlimi bresku leyniþjónustunnar
sem bera ábyrgð á dauða þriggja sona hans
og taka játningar þeirra upp á myndband, ell-
egar verði Hunter tekinn af lífi. Danny leitar
aðstoðar tveggja fyrrum félaga sinna úr sér-
sveitunum og leggja þeir saman á ráðin.
Babb kemur í bátinn þegar Fjaðurmenn,
leyniráð sem vernda á fyrrum leyniþjón-
ustumenn, kemst á snoðir um ráðabruggið og
fer að rannsaka málið. Hefst þá mikill elt-
ingaleikur og barátta upp á líf og dauða. Í að-
alhlutverkum í Killer Elite eru Robert De
Niro, Jason Statham og Clive Owen. Miklar
kvikmyndastjörnur þar á ferð.
Leikstjóri myndarinnar er Norður-Írinn
Gary McKendry og er þetta fyrsta kvikmynd
hans í fullri lengd en hann á að baki fjölda
sjónvarpsauglýsinga sem hlotið hafa verð-
laun, m.a. auglýsingar fyrir IKEA og Porsche
og stuttmyndina Everything in this Country
Must sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna
árið 2005. Blaðamaður ræddi við leikstjórann
í fyrradag og spurði hann fyrst hvernig sam-
starf þeirra Sigurjóns hefði hafist.
Nef fyrir hæfileikum
„Fyrir nokkrum árum hringdi hann óvænt
í mig. Hann hafði séð eitthvað af verkum
mínum og vildi hitta mig. Ég sagði honum að
eiginkona mín ætti von á barni og hann svar-
aði: „Já, en hún er ekki búin að eiga það,““
segir McKendry og hlær. Þeir hafi hist og
rætt málin, komist að því að þeir hefðu svip-
aðan smekk fyrir kvikmyndum og hann hefði
sagt Sigurjóni að hann hefði áhuga á að leik-
stýra kvikmynd í fullri lengd. „Hann er lunk-
inn í því að koma auga á hæfileikafólk, hann
er eiginlega Malcolm McLaren kvikmynda-
geirans,“ segir McKendry kíminn. Úr hafi
orðið fyrrnefnd stuttmynd sem tilnefnd var
til Óskarsverðlauna og þaðan hafi leiðin legið
yfir í kvikmynd í fullri lengd.
„Ég hef verið spurður að því af hverju ég
hafi gert svona umfangsmikla, fyrstu kvik-
mynd og ég hef svarað því til að nær væri að
spyrja þá sem vildu ekki fjármagna minni
myndirnar. Við vorum með tvær minni í sigt-
inu en það gekk ekki upp. Þessi gerði það
hins vegar.“ McKendry segir heiminn vissu-
lega alltaf að breytast en eitt breytist þó
ekki, stríð verði alltaf háð og þá m.a. barist
um olíulindir. „Myndin gerist árið 1980 og
sjáðu bara ástandið í dag,“ segir McKendry.
Bresku SAS-sveitirnar gerðu árás á Óman
árið 1972 og gerist myndin átta árum síðar.
„Hver væri ekki taugaveiklaður?“
Fyrr í vikunni ræddi blaðamaður við Sig-
urjón og sagði hann að það hefði tekið veru-
lega á taugar McKendry að hringja í De Niro
í fyrsta sinn, hann hefði nánast þurft að halda
í höndina á honum á meðan á símtalinu stóð.
Blaðamaður ber þetta undir McKendry sem
skellihlær. „Hver væri ekki taugaveiklaður?“
segir hann um símtalið og segir Sigurjón
nánast hafa skriðið inn í símtólið. Sigurjóni
hafi verið mjög í mun að hann klúðraði ekki
símtalinu. „Ég var að tala við einn af mínum
guðum. Ég ólst upp í Belfast og við sáum
ekki kvikmyndir frá 9. áratugnum því öll
kvikmyndahúsin höfðu verið sprengd í loft
upp. Við sáum myndir frá 8. áratugnum og ég
ólst upp við að horfa á De Niro og tók hann í
guðatölu. Síðan er mér réttur síminn og sagt
að þessi guð vilji tala við mig og hugsanlega
leika í myndinni minni. Og ég hafði um tíu
mínútur til að ná honum á mitt band,“ segir
McKendry.
– Kom hann með setninguna frægu úr Taxi
Driver: „Ertu að tala við mig?!“?
McKendry hlær. „Nei, það var frekar: „Af
hverju ertu að tala við mig?“,“ segir hann og
skellihlær. Þetta hafi verið frábært símtal.
Samskiptin við De Niro hafi verið ákveðin
jafnvægislist, aðdáun hans á honum hafi ekki
mátt vera of augljós, hann hafi þurft að bæla
hana niður. Það sé vissulega erfitt að leik-
stýra slíkum manni og mikilvægt að minna
sig á að þekktir leikstjórar í dag, Martin
Scorsese og fleiri, hafi verið í sömu stöðu
snemma á ferli sínum, þegar þeir voru ungir
og lítt þekktir. Kvikmyndastjörnur á borð við
De Niro vilji heldur ekki finna fyrir aðdáun
samstarfsmanna sinna, þær séu umkringdar
aðdáendum alla daga og komnar með nóg af
því. „Það erfiðasta var að þurfa að hringja í
Bob, viku áður en hann átti að fara til Cannes
og fara fyrir dómnefndinni þar, og segja hon-
um að við þyrftum að taka aukatökur og að
hann þyrfti að safna aftur skeggi,“ segir
McKendry. De Niro hafi því verið skeggjaður
í Cannes.
Illa við heiti myndarinnar
– Þetta er hasarmynd, ekki satt?
„Þetta er hasartryllir. Ég valdi ekki titil
myndarinnar og þoli hann ekki. Ég held að
titillinn og stiklan gefi þá mynd að hún sé
einföld hasarmynd en hún er það ekki. Hún
er byggð á raunverulegum atburðum, það er
alvörusaga í henni og mjög áhugaverðar flétt-
ur og flækjur sem tengjast yfirvöldum og
leynifélögum. Þetta er ekki bara skothríð og
sprengingar, þó að slíkt sé vissulega stór
hluti af sögunni. Í mörgum hasarmyndum er
mikill sársauki en engar tilfinningar í spilinu.
Þetta er ekki þannig mynd, það eru tilfinn-
ingar í þessari. Þetta er hasarmynd fyrir full-
orðið fólk. Einhver sagði að þetta væri ekki
hasarmynd hins hugsandi manns heldur has-
armynd sem fær mann til að hugsa,“ segir
McKendry.
– Það hlýtur að vera býsna flókið að leik-
stýra hasarmynd með öllum sínum áhættu-
atriðum og skipulagningu?
„Satt best að segja er það mjög skemmti-
legt. Aðalatriðið er að vera virkilega vel und-
irbúinn og tryggja að maður hafi nægan tíma.
Þetta getur verið afar hættulegt. Við vildum
ná sérstökum stíl í hasarnum. Myndin er um
ofbeldishneigða menn, beiting ofbeldis er
þeim eðlileg og því var mikilvægt að láta De
Niro, Statham og Owen leika í áhættuatrið-
unum. Þetta er mun auðveldara fyrir Stat-
ham því hann hefur haft lifibrauð sitt af
áhættuleik en fyrir Bob og Clive var þetta
mun erfiðara. Þeir þurftu að leika í virkilega
erfiðum slagsmála- og skotbardagaatriðum.
Það krafðist mikillar skipulagningar og und-
irbúnings og ég er virkilega ánægður með út-
komuna, maður fær tilfinningu fyrir því að
þeir hafi gert þetta í raun og veru og það tel
ég mikilvægt í hasarmyndum,“ segir
McKendry. Miklu máli skipti að vera með
frábæran hóp áhættuleikara og sérfræðinga í
áhættuatriðum, líkt og verið hafi í Killer
Elite. „Við vorum með gaur sem kallaður er
Dr. Boom, hann sá um sprengingarnar í Mar-
okkó. Ef sprengjumaðurinn í tökum er kall-
aður Dr. Boom veit maður að hann er sá
besti í faginu,“ segir McKendry og hlær inni-
lega.
Sögusviðið Írland
Hvað næstu verkefni varðar segir
McKendry að þeir Sigurjón ætli að vinna
áfram saman. Hann hafi skrifað handrit
ásamt rithöfundinum Colum McCann upp úr
bók David Martin, The Road to Ballys-
hannon. Sögusviðið er Írland á tímum borg-
arastyrjaldarinnar, árið 1922. „Við höfum
rætt við fjölda frábærra leikara,“ segir
McKendry um það verkefni. Það sé þó
skammt á veg komið.
Heitt Leikstjórinn Gary McKendry á tökustað
Killer Elite í Marokkó með sólarvörn á höfði.
Harðir Statham og De Niro snúa bökum saman í hasartryllinum Killer Elite.
Hasarmynd fyrir fullorðið fólk
Killer Elite er fyrsta kvikmynd leikstjórans Gary McKendry í fullri lengd Ósáttur við titil mynd-
arinnar Erfitt að biðja De Niro um að safna skeggi Starfar áfram með Sigurjóni Sighvatssyni
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Í höfuðborgarsoranum þar á sína ætt og óðul
þessi ónytjungur.
Hvað mun standa upp úr á Airwaves?
170 íslenskar hljómsveitir. En auðvitað
eru þarna frábærar erlendar líka. Ég
er spenntastur fyrir Secret Chiefs 3,
Random Recipe og tUnE-yArDs.
En hvað er Airwaves?
Gleði í Reykjavík sem snýst um tón-
list. Enginn eldhúsdagur eða almenn
leiðindi.
Hver er besti bassaleikari sögunnar?
Pálmi var nú alltaf sleipur –
sló þó feilnótu á Fram og
aftur blindgötuna. En ætli
Jaco hafi ekki verið sá
besti – en ég var alltaf
skotnastur í Þorleifi Guð-
jónssyni og Paul.
Eftirminnileg tónlist-
arhátíð sem þú hefur farið
á í útlöndum?
Jakajazz í Jakarta og auðvit-
að G-Festival í Færeyjum.
Reykjavík, Bolungarvík eða Búðardalur?
Skatan í Bolungarvík og Traðarhyrna –
Hvannalambið í Ytri-Fagradal og Kjaftæði á
Erpsstöðum og síðan Valur og Vest-
urvallagatan.
Kanntu að spila á trommur?
Ég kann tittislatta en var líklega aðeins
betri í den þegar ég spilaði í Þokunni.
Besta plata sem þú hefur heyrt?
Þetta sveiflast til og frá. Ég breyttist
daginn sem ég heyrði Please Please með
Bítlunum. Ég var 4 ára og ég hélt að
Bítlarnir væru flamenco-stúlkur í
kjólum. Platan hafði farið í vit-
laust hulstur í síðasta partíi.
Komst að hinu sanna ca. ári
síðar. Ætli uppáhalds-
platan akkúrat núna sé
ekki Before Hollywood
með The Go-
Betweens.
En sú versta?
Það eru margar vondar
hljómplötur á markaðnum. Ég reyni að forð-
ast þær en ég verð að játa að Dejlige Minder
með Jodle Birge kemst ansi nálægt því að
vera leiðinlegasta plata sem ég hef heyrt og
síðan þykja mér reyndar allar plötur Oasis
óendanlega leiðinlegar og ofmetnar með af-
brigðum.
Geturðu lýst dansstíl þínum á djamminu?
Hann er nokkuð óhefðbundinn. Hliðarsaman
sundur with a twist.
Hvað færðu ekki staðist?
New York og Raufarhöfn.
Áttu þér leyndan hæfileika og ef svo er þá
hvern?
Ég hugsa að ég klappi hærra en flestir. Og
síðan borða ég hraðast allra kókosbollur og
kók.
Ef þér hefði staðið til boða að syngja við brúð-
kaup Vilhjálms og Katrínar, hvaða lög hefðir
þú sungið og af hverju?
„Ástfangi“ með Bless og „Is Jesus your Pal“
með Slowblow. Ég myndi reyndar fá Dr.
Gunna til að söbba mig í „Ástfanganum“ og
Orra Jónsson til að taka „Jesus“. Þetta eru
lögin sem sungin voru í brúðkaupinu mínu og
það var frábært. Maður á alltaf að óska öllum
alls hins besta – líka þeim sem eiga það ekki
skilið. Og það er skelfilegt að gifta sig undir
Elton John eða Oasis.
Hvað fær þig til að skella upp úr?
Megas og Þórbergur Þórðarson. Reyndar
þykja mér leiðarar Morgunblaðsins oft svo
fjarstæðukenndir að ég skelli upp úr eins og
einni roku.
Hvað kanntu síst að meta í eigin fari?
Dómhörkuna og skapið.
En best að meta?
Skapið og ómótstæðilegan líkama minn.
Chaplin, Buster Keaton eða Harold Lloyd?
Chaplin by far. Gullæðið og Einræðisherrann
eru stórkostlegar bíómyndir.
Hvað er það fyndnasta sem þú hefur upplifað?
Ormurinn og Dr. Gunni. Það verður ekki op-
inberað frekar fyrr en eftir svona 20 ár.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann?
Hefurðu einhvern tímann vaknað á Rauf-
arhöfn í miðjum júlí í blankalogni og horft út
á hafið?
Allar plötur Oasis óendanlega leiðinlegar
Aðalsmaður vikunnar, Grímur Atlason, er framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves sem haldin verður 12.-16. október.