Morgunblaðið - 07.10.2011, Side 44
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 280. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Moore orðin „skuggalega grönn“
2. Steve Jobs látinn
3. Nektardansmeyjar sviptu sig lífi
4. Setur Cayenne-pipar út í allt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikar til stuðnings Palestínu
verða haldnir á Faktorý á laugardag-
inn. Fram koma Reykjavík!, Prins
póló, Blaz Roca & Sesar A, Nolo og
Futuregrapher, auk þess sem ný
breiðskífa Ghostigital verður flutt.
Tónleikar fyrir
sjálfstæða Palestínu
Tónlistarmað-
urinn Örn Elías
Guðmundsson,
Mugison, heldur í
dag fyrirlestur í
Ketilhúsinu á Ak-
ureyri kl. 14. Yf-
irskrift fyrirlest-
ursins er
„Hljóðbóndinn“.
Mugison mun fjalla um sköp-
unarferlið og hvernig það sé að vera
íslenskur listamaður í ört minnkandi
heimi.
„Hljóðbóndinn“
Mugison í Ketilhúsinu
Akureyrska rokksveitin geðþekka
200.000 naglbítar mun snúa aftur
á heimaslóðir í febrúar 2012 og
leika í Hofi. Að sögn Vilhelms
Antons Jónssonar, leið-
toga sveitarinnar, er
stefnt að því að
frumflytja fjögur ný
lög á tónleikunum og
er eitt þeirra
þegar
komið
niður á
blað.
200.000 naglbítar
í Hofi árið 2012
Á laugardag Suðaustan 13-20 og rigning sunnan- og vestantil að
morgni, síðan suðvestan 8-13 og skúrir. Suðaustan 10-15 og rign-
ing eða slydda norðaustantil um hádegi, síðan hægari sunnanátt.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt á landinu, 3-10 m/s. Skúrir úti
við sjóinn en annars bjartviðri. Suðaustan 13-18 m/s og rigning
suðvestantil í kvöld. Hiti 0 til 8 stig.
VEÐUR
Strákarnir í U21 árs lands-
liðinu í knattspyrnu hittu
fyrir ofjarla sína á Laug-
ardalsvellinum í gærkvöldi.
Íslendingar mættu þá Eng-
lendingum í þriðja leik sín-
um í undankeppni Evrópu-
mótsins og máttu þola tap,
3:0. Alex Oxlade-Chamb-
erlain, leikmaður Arsenal,
skoraði öll þrjú mörk Eng-
lendinga sem höfðu tögl og
hagldir allan tímann. »3
Íslensku strák-
arnir töpuðu illa
„Þótt þetta verði í síðasta sinn sem
ég stýri íslenska landsliðinu þá er
leikurinn eins og hver annar,“ segir
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari
karla í knattspyrnu, sem stýrir ís-
lenska landsliðinu í síðasta sinn gegn
Portúgal í Porto
í kvöld eftir
fjögurra ára
starf. »1
Ólafur kveður landsliðið
eftir leik í Porto
Nýliðar Gróttu máttu sætta sig við 10
marka tap þegar þeir tóku á móti
Haukum í þriðju umferð N1-deildar
karlar í handknattleik á Seltjarn-
arnesi í gærkvöld. Jafnræði var með
liðunum framan af en um miðjan fyrri
hálfleik tóku Haukar öll völd á vell-
inum með Birki Ívar í banastuði á
milli stanganna. »2
Tíu marka sigur Hauka
gegn Gróttu á Nesinu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar herða þarf sultarólina koma
góðir siðir eins og sláturgerð sér vel.
Sprenging varð í sölu á fersku slátri
haustið 2008 og má ætla að a.m.k.
50.000 slátur seljist á landsvísu á
hverju hausti.
Allar verslanir Nóatúns eru með
sérstakan sláturmarkað um þessar
mundir, en í fyrra gaf Nóatún út
bækling um sláturgerð og lét auk
þess gera myndband, þar sem fólki
er kennt að taka slátur. Myndbandið
er aðgengilegt á netinu og segir
Ólafur Júlíusson, innkaupastjóri hjá
Nóatúni, að aukin fræðsla hafi ýtt
undir söluna á fersku slátri. „Slát-
urmarkaðurinn er á fullu og hann
hefur alltaf verið sterkastur þegar
líða fer á októbermánuð,“ segir Ólaf-
ur. Hann bætir við að salan á fersku
slátri hafi verið mjög góð í fyrra og
hafi í raun komið á óvart. „Við bú-
umst samt við aukningu á þessu ári,“
segir hann.
Hátíð í bæ
Þegar rætt er um að taka slátur er
átt við að búa til blóðmör og lifr-
arpylsu. Lengi hefur þekkst að fjöl-
skyldur hafi komið saman og unnið
við sláturgerð, handverkinu þannig
haldið við frá manni til manns, þar
sem ömmur og mömmur hafa verið í
lykilhlutverki. Ólafur segir að allir
aldurshópar taki slátur og algengt
sé að fjölskyldur geri sér glaðan
dag við sláturgerð. „Við
sjáum yngra fólk í auknum
mæli taka slátur og það er
mjög ánægjulegt. Þetta er
ekki frekar bundið við eldra
fólkið. Fólk á öllum aldri
tekur slátur enda er
þetta góður og ódýr
matur.“
Ólafur bendir á
að sláturgerðin sé
mun einfaldari
og auðveldari nú en áður. Kaupa
megi tilbúna próteinkeppi og notkun
þeirra hafi gert alla vinnu mun
þægilegri en ella. „Þetta er mikið
breytt frá saumaskapnum í gamla
daga,“ segir hann.
Sláturgerð í sjónvarpi
Kaupa má frosna lifrarpylsu og
blóðmör allt árið en ferskt slátur er
aðeins til sölu í nokkrar vikur á þess-
um tíma. Ólafur segir að venjulega
taki fólk fimm slátur en stór-
fjölskyldur taki allt upp í 20 slátur.
Sláturgerð hefur verið sýnd í mat-
reiðsluþáttum í sjónvarpi að und-
anförnu og segir Ólafur það af hinu
góða. „Þetta er allt í sömu áttina, að
missa ekki niður þessa góðu, ís-
lensku hefð,“ segir hann.
Sláturmarkaður slær í gegn
Sláturgerð há-
tíð fjölskyldunnar
á hverju hausti
Morgunblaðið/Kristinn
Innmatur Einar P. Pétursson og Fannet Kim Du, verslunarstjóri hjá Nóatúni í Austurveri, með blóð, mör og fleira.
Nemendur í Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur læra sláturgerð og
verður hún tekin fyrir í dag. Mar-
grét Sigfúsdóttir skólastjóri
keypti slátur í gær, tók 10 slátur
fyrir skólann. „Við verðum að
halda hefðinni við, verðum að
kenna þetta,“ segir Margrét.
„Þær gera lifrarpylsu
og blóðmör
núna, en
seinna
sviðasultu og kæfu. Það eru nóg
verkefni að sauma og brytja og
þetta eru fastir liðir.“ Margrét segir
að gervikeppir kosti meira en að
sauma þá upp á gamla móðinn og í
skólanum sé haldið í gömlu siðina.
Nemendum þyki vinnan yfirleitt
skemmtileg og vilji halda í þessa
gömlu siði. 24 nemendur eru teknir
inn hverju sinni og nú eru eingöngu
stúlkur í hópnum en Margrét á von
á einum strák á næstu önn.
Hefðinni haldið við
SLÁTURGERÐ Í HÚSSTJÓRNARSKÓLANUM
Margrét
Sigfúsdóttir