Líf og list - 01.10.1950, Side 8
úr eldhúsinu. Hann hafði sprengt
upp lúkugatið með tómatsósu-
flösku.
— íleyrðu mig, litli minn, sagði
hann við Georg úr eldhúsinu. —
Staltu dálítið fjær við borðið.
Færðu þig svolítið til vinstri, Max.
llann var eins og ljósmyndari, sem
hýr sig til að taka hópmynd af
fólki.
— Talaðu við mig, snillingur,
sagði Max. — Hvað heldurðu, að
sé í vændum?
Georg mælti ekki orð af vörum.
— Ég skal segja þér nokkuð,
sagði Max. — Við ætlum að drepa
einn Svía. Kannastu við stóran
Svía, sem heitir Ole Andreson?
- Já-
— Hann kemur hingað til að
borða á hverju kvöldi, ekki satt?
— Hann kemur hingað stund-
um.
— Hann kémur hingað klukkan
sex, ekki satt?
— Ef hann á annað borð kemur.
— Við vitum þetta allt, snilling-
ur, sagði Max. Tölum um eitthvað
annað. Ferðu nokkurn tímann í
bíó?
— Kemur fyrir.
— Þú ættir að fara oftar í bíó.
Það er gott fyrir snilling eins og
þig að fara í bíó.
— Hvers vegna ætlið þið að
drepa Ole Andreson? Hvað í ó-
sköpunum hefir hann gert á hluta
ykkar?
— Hann hefir aldrei fengið ráð-
rúm til að gera nokkuð á hluta
okkar. .Hann hefir ekki einu sinni
séð okkur.
— Og hann á aðeins eftir að fá
að sjá okkur einu sinni, sagði A1
úr eldhúsinu.
— Hvers vegna ætlið þið þá að
drepa hann? spurði Georg.
— Við ætlum að drepa hann
fyrir vin okkar. Aðeins til þess að
gera vini okkar greiða, snillingur.
— Haltu kjafti, sagði A1 úr eld-
húsinu. — Þú segir of mikið, mann-
djöfull.
— Ojæja, ég verð að skemmta
aiillingnum. Verð ég ekki að gera
pað, snillingur?
— Þú talar alltof andskoti mik-
ið, sagði Al. — Svartur og snilling-
urinn minn eru einfærir um að
skemmta sér sjálfir. Ég hefi fjötrað
þá eins og tvær stúlkur í klaustri.
-- Ég býst við, að þú hafir verið
í klaustri.
— Maður veit það náttúrulega
aldrei.
Georg leit á klukkuna uppi á
veggnum.
— Ef einhver kemur hingað,
verðurðu að segja, að kokkurinn
sé ekki viðlátinn, og ef einhverj-
um er mjög umhugað um að fá
að éta, þá skaltu segja honum, að
þú munir sjálfur fara inn í eldhús-
ið og matreiða. Ertu með á nót-
unum, snillingur?
— Allt í lagi, sagði Georg. —
Hvað ætlarðu að gera við okkur
á eftir?
— Það Cr undir ýmsu komið,
sagði Max. — Það er eitt af því,
sem aidrei er hægt að vjta um fyr-
iriram.
Georg -leit á klukkuna á veggn-
um. Hún var korter yíir sex. Dyr-
unum að matstofunni var lokið
upp. Inn kom bifreiðarstjóri frá
götunni.
— Sæll vertu, Georg, sagði hann.
— Get ég i'engið kvöldverð?
— Sam skrapp frá, sagði Georg.
— Hann vcrður kominn aftur eftir
hálftíma.
— Ég hcld ég ætti þá að reyna
einhvers staðav ofar í götunni,
sagði bifreiðaií.i'órinn. Georg leit á
klukkuna. Hú ■ ,ar tuttugu mínút-
ur yfir sex.
— Þetta var laglega af sér vikið,
snillingur, sagði Max. — Þú ert
sannkallaður heiðurskarl.
— Hann vissi, að ég hefði kálað
honum annars, sagði A1 úr eld-
húsinu.
— Nei, sagði Max. Það var ekki
það. Snillingur er ágætur. Hann
er góður drengur. Mér geðjast vel
að honum.
Þegar klukkan átti eftir fimm
mínútur í sjö, sagði Georg: —
Hann kemur ekki.
Tveir menn höfðu komið inn í
matstofuna á meðan. Georg hafði
einu sinni þurft að skreppa inn í
eldhús til að steikja svínslæri með
eggjum og framreiða samloku
með svínaketi og eggi, sem maður
nokkur vildi fá að taka heim með
sér. Þegar hann kom inn í eldhús-
ið, sá hann A1 sitja á stól við lúku-
gatið með harðkúluhattinn aftur
á hnakka. Hann hélt á afsagaðri
kúlubyssu og lét hlaupið hvíla á
syllunni hjá lúkugatinu. Nick og
negrinn sneru saman bökum úti
í horni; báðir voru þeir með
handklæði bundið um munninn.
Georg hafði framreitt samlokuna,
vafið henni inn í smjörpappír og
stungið henni i poka, farið með
hana fram, og maðurinn hafði
borgað fyrir hana og farið út.
— Snillingur getur gert allt,
sagði Max. — Hann getur búið til
mat og yfirleitt gert allt milli him-
ins og jarðar. Þú átt eftir að gera
einhverja stúlku að góðlri eigin-
konu og húsmóður, snillingur.
— Heldurðu það, sagði Georg.
— Vinur ykkar Ole Andrcson ætl-
ar ekki að sýna sig.
— Við ætlum að gefa honum tíu
mínútur í viðbót, sagði Max. Max
leit í spegilinn og gaf klukkunni
gætur. Vísarnir á veggklukkunni
bentu á sjö, svo fimm mínútur yf-
ir sjö.
— Komdu, Al, sagði Max. — Ég
held við ættum að fara. Hann ætl-
ar ekki að koma.
— Ég held við ættum að gefa
8
LÍF og LIST