Líf og list - 01.10.1950, Blaðsíða 17

Líf og list - 01.10.1950, Blaðsíða 17
Þórðardóttir. Regínu hafa stundum verið mislagðar hendur í hlutverkum, en þessu skilaði hún allsómasamlega. Henni tókst vel að sýna þann hroka, sem af henni var vænzt, en fyrir komu þó dauð atriði í leik hennar, sem að nokkru má um kenna önnum leikstjór- ans. Yfirleitt mátti leikur hennar vera, öllu sterkari en hann var og meiri fyr- irlitning í röddinni í samtalinu við lög- reglufulltrúann. Dóttur þeirra hjóna, Sheilu, lék Hildur Kalnian. Þar var óheppilega valið í hlutverk. Hildur á að leika í hlutverkum sem léttara er yfir. Það skorti tilfinnanlega fjölbreytni í leik hennar. Þegar hún var einu sinni byrjuð að kjökra, þá hélt hún því á- fram leikinn á enda, og mun það þó varla hafa verið ætlun höfundarins, þar sem hún túlkar sjónarmið hans sjálfs. Hún virtist líka vera í vandræð- um með að snúa sér á leiksviðinu, og er það hæpin ráðstöfun, að láta hana snúa jafn oft og lengi baki í áhorf- endur og hún gerði. Þar sem hlutverk hennar er mikið og erfitt, hefði hún þurft allmiklu meiri aðstoð frá leik- stjóranum. Þar með er ekki sagt, að væru ekki glampar í leik hennar, enda hefur Hildur sýnt áður, að hún kann tök á mörgu, sem er við hennar hæfi. Jón Sigurbjörnsson var Gerhard Croft, unnusti Sheilu og sonur með- eiganda fyrirtækis Birlings. Jón sýndi í upphafi og lok leiksins kaldrifjaðan æðristéttarmann og mun þannig vera hugsaður af höfundinum. En um mið- bik leiksins, þegar Croft þarf að standa fyrir sínu máli og skýra frá sínum þætti í hinum döpru örlögum Eric (Baldvin Halldórsson), Birling (Valur Gíslason og Sibyl (Ke- gína Þórðardóttir) Coole (Indriði Waagc), Sibyl (Regína Þórðardóttir) Shcila (Hildur Kalman) og Birling (Valur Gíslason). jafnsterkur í þöglum leik sem í ræð- um. Gætti hér óhrifa frá Max Rein- hardt, sem Indriði hefur margt lært af, og segi ég það sízt til lasts, því að góð list er alltaf góð, hvaðan sem hún kemur. Valur Gíslason lék Arthur Birling verksmiðjueiganda, sem aðeins hugs- ar um eiginn hag. Asamt Indriða bar Valur leikinn uppi og var sköpun Persónunnar Birlings þó þeim mun erfiðari, sem manngerð verksmiðju- stjórans er venjulegri en lögreglufull- trúans Goole. Leikur Vals var lifandi °g sterkur og skilningurinn á hlut- verkinu næmur. Hann gleymdi aldrei, að hann var verksmiðjustjórinn, jafn- vel ekki sem þögull áheyrandi ó aftur- sviði. Þessum þroska í leik verður ekki náð nema með mikilli vinnu, og ættu ungu leikararnir okkar, enda þótt þeir komi heim útlærðir af erlendum leik- skólum, að halda ófram að læra af mönnum eins og Indriða og Val. Hið eina, sem háð hefur Val,. er taltæknin (Diktion), sem er undirstöðuatriði í hverjum leikskóla. En úr því verður varla bætt héðan af. Og þótt nokkuð skorti á hljómmagn raddarinnar, hef- ur Valur Gíslason fyrir löngu hafið sig upp í röð okkar fremstu leikara. Sybil, konu Birlings, lék Rcgína LÍF og LIST 17

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.