Líf og list - 01.10.1950, Side 21

Líf og list - 01.10.1950, Side 21
haldi jafnan virðingu minni. Ég hugsaði mér að ganga niður aftur og út til að líta eftir telpunni. Ég þurfti að ná í hana, áður en börn- in fóru inn og leiða hana fyrir kennslukonuna. Þegar ég stóð þarna fyrir utan dyrnar, fann ég alveg á mér, að börnin voru að gjóta til mín aug- unum og kannske segja hvert við annað: — Sérðu ljóta karlinn þarna við dyrnar? Hvað ætli hann sé að flækjast hér? En það var nú sama. Ég hafði a-‘ðri skyldum að gegna. Loks var hringt inn í tíma. Börnin þyrptust inn um dyrnar eins og kindur út úr fjárrétt. Hvar var nú Edda? Ég kom fyrst auga á hana, um leið og hún tróð sér inn Um dyrnar með hinum, en leit þó hl mín spyrjandi og brosandi um leið, sem mér fannst einhvern veg- mn þýða sama og hvort ég vildi ekki fara að hypja mig heim og kaupa í matinn. Þegar ég kom að kennslustof- unni voru börnin öll setzt, og ég sá þar Eddu vera að tína ritföngin UPP úr skólatöskunni og sýna þau vinkonu sinni. Hún hafði bersýni- gleymt mér, sem stóð þarnS eins og einstæðingur við dyrnar °g vissi ekkert, hvað ég átti af mér gera. Þó vildi ég ekki kalla á hana, því að góður barnasálfræð- mgur truflar aldrei ró barnsins. Svo kom kennslukonan. Ég kynnti mig fyrir henni á ný og mér virtist hún ekki vera neinn sérstak- ur engill í pylsum, eins og ég hafði reynt að telja dóttur minni trú l,m. Ég tjáði henni, að ég hefði koniið með barnið. Hún væri víst kominn inn og sæti hjá vinkonu smni. Kennslukonan sagði, að það væri ágætt. Hún gæti setið þar á- ham. Þetta var óþolandi lilutverk, sem ég var nú að leika í. Engin 'elpa við liönd mér, sera væri hrædd við ógnarvættinn, kennslu- Líf konuna og ég þyrfti að hugga. Ræðuna hafði ég nokkurn veginn ennþá í réttri röð í huga mér. Þá datt mér í liug að kalla á Eddu. Einhvern veginn varð ég að bjarga við virðingu minni, þó að Eddu liði þarna ágætlega og kennslu- konan vissi vel, hver liún væri. — Edda, komdu hingað, kallaði ég óþarflega hátt. Rödd mín glumdi um alla skólastofuna og ganginn. Stelpan hlýddi. Hún tók í hönd- ina á kennslukonunni og hneigði sig. — Þetta er þá hún dóttir mín sagði ég, þó að ég vissi, að nú væri það orðið alveg óþarft. Edda not- aði tækifærið og smeygði.sér aftur inn í kennslustofuna og ég stóð einn gagnvart ófreskjunni. — Hún virðist vera röskleg, sagði kennslukonan. Ég skal hafa auga með lienni. — Já, þakka yður fyrir, sagði ég og kvaddi. Hlutverki mínu var nú lokið, án þess að ég hefði komið að ræðu- stúfnum, huggunarorðum og getað klappað á kollinn á dóttur minni, svo að kennslukonari sæi, eins og föður bar að gera, þegar hann fylgir dóttur sinni í skóla. Ég var í djúpum þönkum á lieimleiðinni. Ég var að hugsa um söguna í barnablaðinu með mynd, þar sem faðiririn leiðir dóttur sína við hönd sér og brúar auðsjáanlega fyrstu torfærurnar á skólagöngu hennar. Skyldu tímarnir liafa breytzt? Nei, það gat ekki verið. Maður er þó alltaf íaðir dóttur sinnar, en ekki öfugt. En mér datt í hug, þeg- ar ég var að kaupa kolann í mat- inn, en það man ég að ég gerði, því að ég hafði nærri gleymt að borga, að ég þyrfti að ná mér í nýjustu rit um barnasálfræði. Þar hlyti að standa einhvers staðar sérstakur kafli um sérkennileg börn. Sveinn Bergsveinsson. Sigurjón frá Þorgeirsstöðum: SVONA ER VORIÐ Smásaga. Hafið niðar dreymandi við sendna ströndina; einstaka hnút- ur springur með þungum dunum í landsoginu, veldur tyuflun í jöfn- um hrynjanda bárunnar. Uppi í blátæru loftinu, bryddu ljósbrúnum flauelsmjúkum bönd- um, sveima kríur yfir grænum töngum og vingjainlegum varp- hólmum. Þær eru háværar, stinga sér eftir æti í lognkyrran fjörðinn; hreyfingar þeirra eru léttar, vængjablakið fjaðurmagnað. Óðinshanar synda á smátjörn- um, kvikir og pattaralegir, — litlir kropparnir iða af lífsgleði. Þeir hnykkja höfðinu, eins og veraldar- vanar hispursmeyjar á kvöldgöngu í Austurstræti. Þeir synda í smá- um hringjum á vatninu, mynda grunna gára, sem eftir augnablik eru horfnir. Og vatnsflöturinn er jafn spegilsléttur og áður. Á eyjum í firðinum liggja mó- brúnar æðarkollur í hreiðrum. Þær kúra sig niður, samlitar sól- brenndu grasinu, þolinmóðar og kyrrlátar. Af fórnfúsri móðurást hafa þær reytt af sér hlýjan dún- inn, til að fóðra innan vögguna, sem geymir aleigu þeirra: grábrún egg, blundandi líf komandi kyn- slóðar. Úti á hleinum við fjörumálið sitja skrautbúnir blikar, með kýtta liálsa, prúðir og áhyggjulausir, eins og heimspekingar, sem njóta unaðssemda hvers dags, er líður. Þegar á daginn líður, kemur hægur andvari utan frá hafinu. Sjávarniðurinn berst lcngra inn yfir landið. Yfir fjöllin leggst þunn þokuslæða, hrynur um herð- ar þeirra og hálsa, eins og fíngert brúðarlín. Það eru regndropar í Frh. á bls. 23. og LIST 21

x

Líf og list

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.