Birtingur - 01.06.1957, Page 11
Jóhannes úr Kötlum:
STEF ÚR GLATAÐRI BÓK
þá þarf enginn listamaður að fara í kaupa-
vinnu eða á togara framar til að kynnast
fólkinu — af þeirri einföldu ástæðu að þá
verða allir orðnir listamenn. Tæknin sér von
bráðar fyrir öllum lífsþörfum fólksins. Og
hví skyldi það þá ekki snúa sér að fögrum
listum? Ég held að ef mannkynið sprengir
sig ekki í loft upp — sem ég veit að það gerir
ekki — þá hljóti öll starfsemi þess að snúast
smátt og smátt til hugrænnar sköpunar,
Maður hver er mold
hljóðlega flýgur nú hrafn yfir skóga
sáran þýtur í sefi
hnígur senn vort hold
maðkarnir nálgast á báða bóga
eina vonin er efi.
Skáld er skammlíft mjög
orð þess sem gári á öreyðu þagnar
tærist og deyr af trega
leysast upp vor lög
reynt er á þol hverrar einustu agnar
ferst hið forgengilega.
hvert verk þess að verða list, vísindi og listir
að sameinast í æðri einingu. Og þá munu af-
komendur okkar sitja í ljúfri leiðslu við tjörn
eða í skógarlundi, milli þess sem þeir bregða
sér milli stjarnanna, t»g brosa góðlátlega að
spani og bisness og morðtólum okkar tutt-
ugustu aldar manna. Ég held sem sé að mikil
aldahvörf séu í vændum: fólk mun að nýju
leita til sjálfs sín og náttúrunnar í kyrrð og
næði og sitja ihamingjusamt á tali við guðina.
9