Birtingur - 01.06.1957, Side 39

Birtingur - 01.06.1957, Side 39
hvort sem þeir lifa undir sól eða sverði. 2: Brynjólfur Bjarnason neitar því, ,,að sá sem ekki fordæmdi aðfarir Sovéthersins í Ungverjalandi hefði engan rétt til að and- mæla hersetu Bandaríkjanna hér og íhlutun þeirra um íslenzk mál“ — og ber fyrir sig ,,sögulegar staðreyndir": Ungverjaland fór með ófriði gegn Sovétríkjunum, en við höfum haldið frið við Bandaríkin. Þetta er rétt, en hitt er spurningin: hve gamlar mega ,,sögu- legar staðreyndir" verða án þess að glata áhrifamætti sínum? Það er til dæmis sögu- leg staðreynd, að fyrir átján árum var á ein- um stað í Evrópu sjálfstætt ríki sem nefndist Eistland. Ættum við kannski að krefjast þess, á grundvelli þessarar sögulegu stað- reyndar, að Sovétríkin veiti Eistlandi aftur fullt og óskorað sjálfstæði? Nei — sá sem ætlar að meta hersetu og íhlutun eftir „sögu- legum staðreyndum" kemst fljótlega í óþægi- legan bobba. Hersetu Bandaríkjanna hér og íhlutun Sovétríkjanna þar er ennfrem- ur það meginatriði sameiginlegt, að báðar tákna yfirgang heimsríkis við smáþjóð — hvor um sig miðar að því að tryggja hags- muni stórveldis í öðru landi. Því er það að sá sem mælir bót sovézkri íhlutun í Ung- verjalandi, á hann verður ekki hlustað þegar hann fer að mæla gegn bandarískri hersetu á íslandi. Þetta þykir kannski einhverjum hart undir tönn, en það er sannreynd eigi að síður. Mergurinn málsins er þessi: sá sem vill reka her úr einu landi, hann þolir ekki heldur þrásetu annars hers í öðru landi. Þeir, sem setja friðinn ofar öðrirm efnum og leyfa hjarta sínu að slá ótrufluðu, viðurkenna ekki að til séu misjafnlega góð hemám: ágætt hernám, sæmilegt hernám, vont hernám, verst hernám; og hvorki Brynjólfi Bjarna- syni né neinum öðrum þýðir að berja höfði við þann stein. Þeir, sem ekki láta sér skilj- ast það, „rökræða ofar skýjum í almennum hugtökum, sem slitin eru úr tengslum við hið raunverulega jarðlíf" — svo enn sé vitnað í þessa ritgerð. Öll herseta stórvelda í öðrum löndum er afturhald, „byltingarsinnað" her- nám væri áróðurslygi. 3: Brynjólfur Bjarnason segir réttilega: „Eins og nú standa sakir er ný heimsstyrjöld mesti háskinn, sem yfir mannkyninu vofir“. Hvaðan stafar stríðshættan ? Fyrst og fremst frá togstreitu Bandaríkjamanna og Rússa um völd og yfirráð (og er hér enginn dómur á það lagður, hvorir tefla fram betri málstað eða hvort unnt hefði verið að koma í veg fyrir þessa togstreitu í upphafi). 1 raun og sannleik ættu þeir að vera einir um þennan leik, en það er öðru nær en svo sé. Um víða veröld er ekki aðeins f jöldi manna sem stund- ar það eins og atvinnu að dýrðast yfir öllum gerðum hvorrar þjóðarinnar um sig og kynda þannig undir ofstopa þeirra, heldur sýnast jafnvel hálfir og heilir stjórnmálaflokkar ekki hafa annað við tímann að gera en bá- súna frelsishug þeirra og friðarást, mann- helgi þeirra og framleiðsluprósentu, eldflaug- ar þeirra og kaupmátt. Ofsi hvorrar þjóðar- innar um sig á ekki sízt rætur að rekja til þess, að þær eiga í nærfellt hverju landi vísa lárétta aðdáendur, viðbúna á nótt sem degi að kalla ögranir þeirra einbeitni, hótanir þeirra hugrekki, ofríki þeirra réttlæti. Ekk- ert mætti draga eins varanlega úr óbilgirni þessara hervelda og það, ef eflzt gæti sem víðast með þjóðum sjálfstætt viðhorf til þeirra, óblandað byltingarrómantísku og lýð- ræðisþusi: bakþankalaus hlutleysisstef na. Menn geta aðhyllzt bandarískt lýðræði og 33

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.