Austurland - 20.12.1989, Síða 27
JÓLIN 1989.
27
Úr handraða Helga Seljan
Af þeim kumpánum Karvel og Helga
Oskum starfsfólki okkar
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
með þökk fyrir viðskiptin á árinu
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
Eskifirði
Hugljúf mér er minning hrein
er morgunsól í hernsku skein.
Og kyssti mína kinn.
Þá vildi ég sýna dáð og dug
og dirfskufullan ofurhug.
Hve dýr var draumur minn.
Svo komu stundir hverdags þar
og hvergi afl né dugur var.
Þá smátt og smátt ég fann.
Að hurt hinn dýri draumur fló
og dapurleikinn um mig smó.
Og heltók hugarrann.
Samt enn í vöku vitjar mín
sú vorsins bjarta hugarsýn.
Um sálu þá fer þeyr.
Þó segir samviskunnar raust:
Nú sestu bráðum í þitt naust.
Þú megna áttir meir.
Helgi Seljati
Eins og fólk veit hafa þeir
Helgi Seljan og Karvel Pálma-
son oft skemmt saman - skemmt
fólki eða skemmt fyrir fólki
hvort sem menn nú vilja hafa
það. Misjafnlega hafa þeir verið
kynntir og eru aukin heldur ef-
laust misvel kynntir hjá fólki
einnig.
Einu sinni fór fram svofelld
kynning í upphafi samkomu:
Fyrst koma hér skemmtilegir
skemmtikraftar - svo koma þeir
Helgi og Karvel.
Undirleikari þeirra er Sigurð-
ur Jónsson tannlæknir og er
gjarnan kynntur af Helga sem
tengdasonur Reyðarfjarðar, en
kona hans er Kristín Beck.
Einu sinni kom maður við
skál upp til þeirra félaga og
þrumaði yfir þeim: Sigurður -
getið þið Helgi ekki haft hlut-
verkaskipti. Lengi getur vont
versnað. Manninum var boðið
að syngja og fór við það búið
burt. En Helgi hefur ekki náð
sér enn, svo tók hann þetta til
sín.
Til marks um það er það, að
Helgi kvartar gjarnan í upphafi
yfir því að nú vanti sig röddina,
sem hann hafi einu sinni haft.
Pá drynur í Karvel: Hvaða
rödd?
Einu sinni sungu þeir með
kúrekahatta á höfðinu í Stein-
gríms-stíl og sögðust þá gjarnan
heyra klið fara um salinn: Denni
- Denni.
Helgi kvað konu sína hafa
sagt, að sá einn væri nú munur
á því, þegar þeir Karvel tækju
hattana að Karvel þyrfti ekki að
greiða sér, en þess þyrfti hann.
Helgi kvaðst hafa vitað hvað
hún væri að meina og ansaði:
þetta er nú spurning um gæði -
en ekki magn.
Talandi um konu Helga þá
segir hann gjarnan þá sögu af
henni, að einu sinni þegar hann
hafði játað einhverju kvabbinu
og nagaði sig í handarbökin fyrir
á eftir. Þá sagði eiginkonan með
undarlegum svip: Það er gagn
að þú ert ekki kvenmaður sem
getur aldrei neitað neinum um
neitt.
Á dögunum voru þeir Karvel
og Helgi að syngja fyrir sundur-
leitan hóp vestur í safnaðar-
heimili Neskirkju. Eftir að hafa
sungið eina þrjá bragi af miklum
móð, gamanvísubragi að sjálf-
sögðu, þá reis upp einn í salnum
og sagði: Strákar mínir - getið
þið ekki farið með sosum eins
og eina gamanvísu áður en þið
hættið. Pá missti Helgi málið.
Og mun nóg kveðið um þá
kumpána.
Hins vegar nefnir Helgi það til
marks um af hvaða þjóðflokki
Karvel sé, hversu Vestfirðingar
séu illa að sér í prósentureikningi
og segir þá sögu þessa: Bóndi
nokkur vestra var að kaupa sér
dráttarvél og sölumaður spurði
hann að því hvað hann ætlaði að
borga mikið út: Hvað segirðu um
50%? 50% -sagði bóndi. Kemur
ekki til mála. Annað hvort helm-
inginn eða ekki neitt.
*
Hin létta lund Helga Seljan er
löngu landsfrœg. Hér slá þeir á
létta strengi við konurnar ífrysti-
húsi SVN. Helgi og Guðmundur
Sigurjónsson. - Myndin er tekin
fyrir 3 árum. Mynd hb
Og Karvel svarar með því að
hann hafi heyrt auglýsingu frá
KHB á Reyðarfirði eitt haustið
svohljóðandi: tökum hausa af
bændum. Kaupfélagið.
LJr hugarfórum