Austurland - 23.12.1993, Side 4
4
JÓLIN 1993.
Austurland
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Útgefandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson, Smári Geirsson
og Steinunn Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Elma Guðmundsdóttir (ábm.) H@ 71532
Auglýsingastjóri:
Rannveig Þorbergsdóttir HS 71514
Ljósmyndari:
Ari Benediktsson H® 71664
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 • Pósthólf 75 • 740 Neskaupstaður
S 71750 og 71571 - Fax: 71756
Útgáfudagar: Miðvikudagar
AUSTURLAND er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða
Prentun: Nesprent
*
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
GhflC© Sf
Nesgötu 7 Neskaupstað
Þegar fyrsti vörubíllinn kom
til Norðfjarðar
Óskar Jónsson
Jón Helgason, Sigurður Jensson og Reynir Zoéga fyrir framan
Ford '35.
Fyrsti vörubíllin kom til
Norðfjarðar 1929, árið sem bær-
inn fékk kaupstaðarréttindi.
Það var Jón Þórðarson á Akri
og hans fjölskylda sem keypti
bílinn, sem var af Fordgerð ár-
gerð 1925 og bar hann eitt til
eitt og hálft tonn.
Þórður, elsti sonur Jóns fór
til Reyðarfjarðar til að læra á
bílinn en þar var bílamenning
nokkuð meiri en hér. Á meðan
Þórður var á Reyðarfirði kom
skip með bílinn. Skipið lagði að
Sigfúsarbryggjunni og þar var
bíllinn hífður í land. Þegar það
var búið og átti að fara að ýta
bílnum kom í ljós að afturhjólin
voru föst og ekki hægt að mjaka
bílnum aftur á bak eða áfram.
Ýmsir spekingar voru leiddir
til en enginn gat leyst vandann.
Þá var brugðið á það ráð að ná
í kerru. Skipskrókurinn hífði
bílinn upp að aftan og kerrunni
var skellt undir bílinn. Svo voru
tóg fest í hliðar bílsins, þrjú
hvoru megin að mig minnir og
mönnum raðað á tógin, einum
á hvert tóg. Síðan var lagt af
stað með bílinn í togi með kerru
undir afturhjólunum og Jón
Þórðarson sat uppá og stýrði.
Svona var bíllinn dreginn inn að
Vík. Þegar kom að veginum
sem lá upp að Akri var fleiri
mönnum raðað á tógin og bíll-
inn dregin heim í hlað.
Þar fór Jón að smíða stýrishús
og pall á bílinn en Jón var húsa-
smíðameistari og þótti afburða
fljótur að vinna t. d. við að
byggja timburhús.
Þessi fyrsti vörubíll var ekki
með gírum, heldur með tveimur
hraðastigum áfram sem hétu hæ
og ló og einu hraðastigi aftur á
bak og stóð bíllinn fastur í ein-
hverju hraðastíginu. Þegar
Þórður kom heim, fyrsti bíl-
stjórinn, settist hann upp í bíl-
inn tók bílinn úr hraðstiginu og
afturhjólin voru laus og bíllinn
tilbúinn til notkunar.
Starfsfólk Landsbanka íslands
Neskaupstað þakkar
Norðfirðingum ánægjuleg
viðskipti á árinu sem er að líða.
Landsbanki íslands
Neskaupstað