Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 16

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 16
una og togaði í neðrivörina, eins og spilamaður, sem er að velta fyrir sér sögn. Venjulega komst hann að réttri niðurstöðu. — Stundum skemmtum við gestum — og Solo sjálfum — þvi að ég faldi banana, til dæmis í skrifstofuskápn- um, læsti lykilinn að skápnum niðri í skjalaskúffu og lykilinn að henni í borð- skúffu og síðasta lykilinn í öðrum skáp. Solo brást aldrei að finna lyklana í réttri röð, hvernig svo sem ég brengl- aði röðinni á hirzlunum og svo þegar bananinn var fundinn, dansaði hann eins og Háskoti og skellihló. Ég átti kött, sem var geðspektardýr og þoldi Solo margt, en hann vissi ekki alltaf afl sitt og fór oft illa með kisa. Þegar kisa þótti úr hófi keyra, þá hætti hann að leika við apann og skrefaði burt með þessum einstaka reigingi, sem kett- ir geta sýnt. Dag einn sá ég apann finna upp nýjan leik. Hann klifraði upp á borðið mitt með pappírskörfuna í fang- inu, tók hvern snepil upp úr henni og rýndi í þá, eins og nærsýnn maður, sem er að læra eitthvað utanbókar. Þegar Solo hafði stundað þessa iðju í tíu mínútur kom kisi inn í skrifstof- una. Solo hvolfdi körfunni, stökk ofan á gólf og skellti henni eldsnöggt yfir kisa. Svo lagðist hann ofan á körfuna og gægð- ist milli táganna á hvæsandi fangann og hló svo tárin runnu niður vanga hans. Solo fór með mér í allar veiðiferðir og hljóp þá ýmist með okkur, reið á áburðardýrunum eða sveiflaði sér milli greinanna. Ef ég blístraði, kom hann í hendings kasti ofan úr trjánum, stökk ofan á lendina á hestinum mínum og þreif utan um hálsinn á mér, svo að hatturinn steyptist fyrir augun á mér. Þegar ég tjaldaði á kvöldin, fylgdist Solo með því, er ég fékk mér bað, náði svo í pípuna mína og bók og kom mér notalega fyrir. Þá rauk hann í dótakass- ann sinn, sótti tannbursta, sápu, þvotta- klút og stundum handklæði og stökk með allt upp í baðkerið. Honum var alltaf jafn skemmt af ölduganginum, sem varð í baðkerinu. Apakrílið var aldrei til óþæginda. Hann var alltaf tilbúinn, ef maður vildi skrafa við hann, en væri ég að lesa eða skrifa, þá gægðist hann við og við inn til mín og sýndi mér eitthvað af dótinu, sem hann var alltaf að safna og þegar ég var búinn að skoða það, fór hann aftur út, eða hnipraði sig saman við hlið mína og virtist í þungum þönkum. Stundum sátum við sinn með hvora bók langtím- um saman. Þau þrjú ár, sem hann var hjá mér, skildum við naumast oftar en þremur sinnum. I síðasta sinnið vildi það svo til, að mér var fyrirskipað að mæta við rétt- arrannsókn alllangt í burtu og ferðalagið var of erfitt til, að ég vildi hafa apann með. Ég man enn, að hann stóð i dyrunum og hélt í höndina á svörtum aðstoðar- manni minum, veifaði hinni hendinni og grét. Sex dögum síðar kom ég aftur heim og kallaði á Solo, eins og ég var vanur, en enginn svaraði. Þegar ég kom, sá ég, að allir voru með áhyggjusvip. „Solo er veikur, herra“, sögðu blökkumennirnir. Flóð hafði hlaupið í á rétt hjá. Solo hafði verið úti með þjóni mínum, en áin hafði grafið undan bakka, sem hann stóð á. Hann komst upp á trjábol úti í straumiðunni og þar varð hann að halda sig alla nóttina, því ómögulegt var að ná til hans. Hann ofkældist og fékk lungna- bólgu. Ég fór inn til mín, þar sem hann kúrði undir ábreiðu sinni og andaði ótt og títt. Ég kraup hjá honum. Það birti yfir dapurlegum augúnum og hann rétti mér lúkuna. Ég tók utan um hann. Hann lagði hausinn að vanga mínum, titraði og dó. Ég held að viljastyrkur hans hafi treint lífslogann. þangað til ég kom. Ég vona, að við lögreglustöð, langt frá allri mannabyggð í Rhodesíu, standi enn trjábútur, sem á er skrifað: „Solo — api, en góður vinur“. S. Th. þýddi. 16 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.