Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 32
okkur og tilnefndi fjórar konur til að sjá um
þáttinn ,,afi og amma“, sem hún nefndi því
nafni, og gat verið anzi fróðlegt að vita, hvaðan
af landinu allar þessar konur væru, því að eins
og Aslaug sagði, er Kópavogskaupstaður svo
ungur, að ekki gátum við rakið ættir okkar
þaðan.
Við hófum kvöldvökuna með söng, Valborg
Böðvarsdóttir lék undir á gítar. Við sungum lög-
in: Sjáið, hvar sólin hún hnígur o. m. fl. Þvínæst
hófst þátturinn ,,afi og amma". Byrjað var aft-
ast á stafrófinu og Þrúður Briem talaði fyrst
og rakti ætt sína með mestu prýði.
Eftir þóttinn sagði Áslaug Eggertsdóttir okkur
frá Ragnheiði Brynjólfsdóttur í Skálholti og las
kvæðið „í leyni“, eftir Þorstein Erlingsson.
Kl. 10 drukkum við kvöldkaffi og síðan var
sungið af öllum lífs- og sálarkröftum við undir-
leik Kristínar Gísladóttur.
Þá var þessi fyrsti dagur okkar á enda og
gefur hann ofurlitla hugmynd um, hvernig við
eyddum dögunum.
Kvöldið eftir, fimmtudagskvöldið, las Helga
Ámundadóttir upp kvæðið um Helgu Jarlsdótt-
ur, eftir Davíð Stefánsson, og Ólafía Jóhanns-
dóttir las um Huldu skáldkonu, eða réttnefnda
Unni Benediktsdóttur Bjarklind.
Föstudagurinn 3. ágúst ’(>2
Dagurinn leið að kvöldi ó venjulegan hátt.
Konur fóru ýmist í gufuböð, sund eða göngur.
Um kvöldmat var byrjað á því, að láta orðið
ganga, og þegar „kókósúpan" verður að „engli”,
getur margt undarlegt skeð.
Einnig náði spámennskan heljartökum á
mannskapnum. Spádómur Emelíu varð á þann
veg, að ekkert sást nema dauð kind í bollanum
hennar, svo að hún mátti til með að hvolfa aft-
ur, til að vita úr hverju kindin drapst.
Um kvö.ldið var kvöldvaka. Byrjað var á
þættinum um „afa og ömmu“. Síðan sagði Gerð-
ur Jóhannsdóttir okkur frá Bandaríkjaför sinni,
sem hún fór ásamt öðrum kennurum víðs vegar
að úr heiminum.
Sýndi hún okkur skuggamyndir úr þeirri för,
sem bæði voru litauðugar og fallegar. Varð þetta
bæði fróðlegt og skemmtilegt kvöld.
Sunnudagurinn 5. ágúst ’62
Við vöknuðum í björtu og yndislegu veðri.
Nokkrar konurnar reru út á vatnið, strax kl. 7
um morguninn, og fóru alla leið út í Útey. Eftir
morgunmat rerum við svo fleiri út á vatnið.
Eftir hádegið gengum við nokkrar konur upp
að styttu Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Þar voru
teknar nokkrar myndir, bæði af Jónasi og kon-
unum. Síðan ákváðum við að sækja hlutaveltu,
sem kvenfélagið hér á staðnum hélt. En er
þangað kom, voru miðar allir uppseldir. Tveir
drengir héðan fengu happdrættisvinningana
32
og voru þeir, hvor um sig, lambinu ríkari eftir
hlutaveltuna. Allan daginn streymdi fólkið að
og frá Laugarvatni, og voru töluverðar tjald-
búðir inni í dalnum, enda sú helgin, sem mest er
um að vera á sumrinu, „Verzlunarmannahelgin”.
Bátar voru leigðir út, bæði árabátar og hrað-
bátar.
Um kvöldið var kvöldvöku sleppt og hlustað
á útvarpið í staðinn. Einnig sungum við mikið
og Ragnheiður Magnúsdóttir spilaði á píanóið,
eins og svo oft áður. Ragnheiður spilar snilldar-
vel og í hópnum okkar eru margar góðar raddir.
Á mánudagskvöldið var einnig hlustað á út-
varp og þegar danslögin byrjuðu, stigu sumar
konurnar dans.
Á þriðjudagskvöldið var kvöldvaka. Nefndist
só þáttur „Duldar frásagnir”. Nokkrar konur
sögðu frá ýmsum atburðum. Ein þeirra sagði frá
atburði, sem hún nefndi „Hver vakti mig?“
Stemmingin var góð, og síðast var sunginn sálm-
ur.
Miðvikudagurinn 8. ágúst ’62
Veðrið var alveg dásamlegt. Eftir morgunmat
flýttum við okkur í gufubað og sólbað til skiftis.
Fyrir hádegisverð var okkur tilkynnt, oð Hall-
dóra Eggertsdóttir námsstjóri ætlaði að borða
með okkur, ásamt vestur-íslenzkri konu. Við
sungum fyrir þær nokkur lög við undirleik
Ragnheiðar.
Kl. 2 var svo lagt af stað að Gullfossi og
Geysi, í boði Ólafs Ketilssonar. Höfðum við með
okkur nesti héðan úr skólanum, en Ólafur gaf
gosdrykki og bauð einnig upp á kaffi í veitinga-
húsinu við Geysi. Flytjum við honum kærar
þakkir fyrir.
Föstudagurinn 10. ágúst ’62
í dag á að fara í Skálholt og skoða hinn
mikla biskupsstað. Presturinn á Torfastöðum,
sr.Guðmundur Óli Ólafsson ætlar að messa fyrir
okkur. Ólafur Ketilsson ekur, og er jafnframt
leiðsögumaður góður. Einnig ókum við að Hvítá
og skoðuðum nýju brúna hjó Iðu. Um kvöldið
héldu þær Gerður og Jensína forstöðukona okk-
ur kvöldvöku í sínum húsakynnum. Sungu þær
Gerður og starfsstúlkurnar fyrir okkur, og var
kvöldstundin ákaflega ónægjuleg. Einnig bóru
þær okkur veitingar.
Laugardagur 11. ágúst ’62
Á morgun höldum við heimleiðis og ljúkum
okkar orlofsferð hingað. Allar erum við ánægðar
með ferðina og höldum heim glaðar i bragði,
þangað sem bíður okkar hið daglega líf húsmóð-
urinnar. Hjartans þakkir flytjum við öllum
þeim, sem að því stóðu, að við nutum þessarar
orlofsferðar húsmæðra í Kópavogi.
Valborg Böðvarsdóttir.
HÚ8FREYJAN