Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 18
heimilisþáttur
hjálpað við
Almenningi
gerð fjárhagsáætlana
SAMTAL VIÐ DANSKAN
FJÁRHAGSRÁÐUNAUT
(Áður birt í Vísi 21. des. síðastliðinn)
Á vegum peningastofnunar einnar í
Danmörku, sem heitir ,,Bikuben“, starfar
kona, sem er ,,budgetkonsulent“. Þar sem
ég hafði ekki heyrt getið um slíkt starf
áður, fór ég á stúfana til þess að forvitn-
ast um, hvers konar atvinna þetta væri.
,,Budgetkonsulenten“ í ,,Bikuben“
heitir frú Kirsten Hellner. Hún er hús-
mæðrakennari að menntun og hefur einn-
ig í mörg ár verið ritstjóri fyrir blað, sem
danska húsmæðrakennarafélagið gefur
út handa félagsmönnum sínum. Frú Hell-
ner veitti mér góðfúslega viðtal og fara
hér á eftir þær upplýsingar, sem hún lét
mér í té.
Orðið ,,budgetkonsulent“ er erfitt að
þýða á íslenzku. ,,Budget“ þýðir fjár-
hagsáætlun og ,,konsulent“ ráðunautur.
Fáum við þá strax einhverja hugmynd
um það, hvers konar starf frú Hellner
stimdar. Enn fremur sagði frú Hellner að
hún starfaði í þágu heimilanna. Það, sem
ráðunauturinn þarf að gera, er að reyna
að hjálpa fólki að taka peningamál sín
föstum tökum.
AÐSTOÐ VIÐ ALMENNING
,,En hvernig farið þér að því?“
„Það er orðið kunnugt, að við hér í
,,Bikuben“ hjálpum fólki, sem er í fjár-
hagslegum vandræðum. Þess vegna er
það algengt, að fólk hringi til okkar og
spyrji, hvort við hjálpum þeim að gera
fjárhagsáætlun fyrir sig. Getur hver og
einn pantað viðtal hjá okkur sér að
kostnaðarlausu. En fyrst sendi ég viðkom-
andi aðila eyðublað, þar sem hinir ýmsu
útgjaldaliðir heimilisins eru á prentaðir.
Getur hann þá fyllt út blaðið upp á eigin
spýtur eins vel og hann getur. Ef hann
vill fá áframhaldandi hjálp, getur hann
komið til viðtals og rætt um vandamál
sín við mig. Slíkt samtal getur oft staðið
i 2—3 klukkustundir, eftir því hve flókin
fjárhagsvandamálin eru. Þegar búið er
að athuga öll útgjöldin og bera þau sam-
an við tekjurnar, vill það oft verða svo,
að öll útgjöldin eru hærri en tekjumar.
Þá kemur aðalvandinn að athuga hvern
gjaldalið um sig og minnka hann, ef hægt
er þannig, að koma jafnvægi á, á milli
tekna og gjalda.
Það er auðvitað ágætt að hafa slíka
tillögu á pappírnum, en tillagan verður að
vera þannig úr garði gerð, að hægt sé að
framkvæma hana, annars er ekkert varið
í slíka fjárhagsáætlun".
SAMNING FJÁRHAGSÁÆTLANA
,,En hvernig er farið að því að semja
f járhagsáætlun ? ‘ ‘
Framhald á bls. 28.
KIRSTEN HELLNER
18
HÚSFREYJAN