Húsfreyjan - 01.01.1963, Page 20
Prjónaíöf
í vetrar-
kuldanum
Húsfreyjunni hafa borizt ósk-
ir um prjónauppskriftir, og birt-
ir heimilisþátturinn því nokkrar
mismunandi peysur, svo að hægt
sé að velja úr. Alls konar prjóna-
flíkur eru mjög í tízku og ís-
lenzki lopinn er mjög eftirsóttur
og fallegur til að prjóna úr hon-
um. Vel þykir fara á því nú á
dögum að hlutirnir hafi sinn
náttúrulega lit, og því njóta
sauðarlitirnir einnig mikilla vin-
sælda. Hæfilegt er að prjóna tvö-
faldan lopa á prjóna nr. 3-3V2, en
þrefaldan lopa á prjóna nr. 4-
4Y2, sé prjónað hæfilega þétt.
Bezt er að vinda lopann sam-
an nokkrum sinnum, svo að smá-
snúningur komi á hann. Sumir
snúa jafnvel upp á hann á hala-
snældu. — Sumir þvo lopann áður en
prjónað er úr honum. Það er þá gert í
volgu sápuvatni og síðan skolað vel. Forð-
ast verður að sjálfsögðu að láta hann
flókna, og bezt er að kreista vatnið var-
lega gegnum lopaplöturnar, svo að þær
gangi sem minnst úr skorðum. En lopinn
verður mýkri, gljáameiri og fallegri áferð-
ar við þvottinn.
Falleg kvenpeysa og húfa
Stærð: Brjóstvídd — 96 sm eða 88 sm (tölurn-
ar í svigum).
Litir: Aðallitur er grátt (eða ljósdrapplitt).
° brúnt
X mosagrænt (eða ólívugrænt)
/ blátt (fremur ljóst)
Efni: 350 (300) g grátt, 150 g mosagrænt
— 150 g brúnt og 50 g blátt
— meðalgróft og mjúkt garn, eða þrefaldur,
fremur fínn lopi
— Prjónar nr. 3 og 4, rennilás 12 sm langur
21 1 á prj. nr. 4 — 10 sm
Peysan er prjónuð fram og aftur á tvo prjóna
með sléttu prjóni, en auðvitað má einnig prjóna
á hringprjón upp að handveg. — Peysan er sí-
munstruð og eitt munstur sést á milli örvanna
neðst á myndinni á bls. 24. Ef prjónað er á tvo
prj. er 1 aukalykkja á báðum jöðrum, sem ekki
er talin með í munstrinu. Þegar búið er að
prjóna munstrið einu sinni, er byrjað á ný.
Bak: Fitjið upp 121 (109) 1. með gráu garni
á prj. nr. 3 og prj. 4 prj. stuðlaprjón 1 sl. og
1 br. (1 sl. og 1 snúin). Prj, síðan 1 prj. á prj.
Framhald á bls 24.
20
HÚSFREYJAN