Húsfreyjan - 01.01.1963, Síða 30
Orlofsdvölin að Varmalandi
Orlofsvika fyrir húsmæður í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu, á vegum orlofsnefnda fyrir Akra-
nes, Borgarnes og sveitirnar, auk mæðrastyrks-
nefndar Akraness, var haldin í barnaskólanum
að Varmalandi dagana 19.—26. júní 1962. Tóku
þátt í henni 27 konur, 5 úr Borgarnesi, 10 frá
Akranesi og 10 úr sveitunum. Heldur var kalt
í veðri þessa daga, eins og oft á þessu vori, en
inni var hlýtt og vistlegt, þó voru tveir sól-
bjartir indælir dagar og nutu konur þá veður-
blíðunnar með því að sitja úti í brekkunni skrúð-
grænni fyrir ofan skólann, liggja í sólbaði eða
fara í gönguferðir um nágrennið. Konurnar voru
á aldrinum frá 30 ára til 82 ára og því all sund-
urleitur hópur, en það kom ekki að sök. Ánægja
ríkti yfirleitt með tilhögun og viðurgjörning,
enda allt i bezta lagi, Virtust þátttakendur njóta
vel hvíldarinnar, lausar við amstur og áhyggjur
hversdagslífsins, og kunna vel að meta þá til-
breytingu, sem þarna stóð til boða, enda hver
dagur eins og hátíð. Útisundlaug, sem þama er,
var talsvert notuð og steypiböð í kjallara skóla-
hússins þó enn meira, enda ómetanleg hressing
fyrir líkama og sál.
Ingveldur Guðjónsdóttir, formaður orlofs-
nefndar í sveitum, var þarna fyrstu þrjá dagana
og svo aftur síðustu tvo dagana og sá um aðstoð
við konurnar og umsjón alla með frábærri fórn-
fýsi og lipurð. Sömuleiðis var Eyvör Eyjólfsdóttir
formaður mæðrastyrksnefndar á Akranesi, síð-
ustu fjóra daga orlofsins og gegndi sama hlut-
verki með prýði. Skólastjóri barnaskólans, Ólaf-
ur Ingvarsson, var svo vinsamlegur að lána kon-
unum bækur úr bókasafni Stafholtstungna, sem
þarna er til húsa. Sömuleiðis sýndi hann skugga-
myndir frá Ameríkuför sinni og ýmsar fleiri,
eitt kvöld, og var gerður að því góður rómur.
Ráðskona var Elísabet Jónsdóttir og rækti
hún það hlutverk með sérlegri alúð og kost-
gæfni ásamt aðstoðarstúlku sinni, Sigrúnu
af sér, að tennurnar og tannholdið fá
ekki það álag, sem nauðsynlegt og eðli-
legt er. Tennurnar verða óhreinar og
tannholdið bólgið. Tennurnar losna jafn-
vel og detta úr vegna notkunarleysis.
Auk þess verður meltingin öll erfiðari
og ófullkomnari.
Þeim tíma væri ekki illa varið, sem
notaður væri í að kenna börnum í
barnaskólum að tyggja fæðuna, því að
Kristjánsdóttur. Skemmtanir voru þarna í þrjú
kvöld og sáu konur úr orlofsnefndum um
skemmtiatriði til skiftis, eitt kvöld hver nefnd.
Auk þess var á miðvikudagskvöldið, þ. 20. júní
smá-leikþáttur leikinn af þeim Sigurbjörgu Sig-
urðardóttur, Króki og Guðrúnu Jónasdóttur
Akranesi, getraunaþáttur, upplestur og smáveg-
is annað til skemmtunar undir umsjá Ingveldar
Guðjónsdóttur. Spilað var á spil, setið með
handavinnu, hiustað á útvarp og sitthvað annað
um hönd haft til dægradvalar. Guðrún Arna-
dóttir, formaður orlofsnefndar Borgarness, kom
tvisvar í heimsókn meðan Ingveldur var fjarver-
andi og dvaldi um stund til umsjónar og að-
stoðar.
Fimmtudagskvöldið 21. júní var spiluð félags-
vist á vegum orlofsnefndar Borgarness. Stjórn-
endur voru Guðrún Árnadóttir og Margrét
Gísladóttir. Verðlaun hlutu þessar konur:
1. verðlaun: Sigurbjörg Sigurðardóttir og Guð-
rún Jónasdóttir, þær sömu sem skemmtu með
leikþætti kvöldið áður, og þótti það einkennileg
tilviljun og vel til fallið. 2. verðlaun hlutu Anna
Jónsdóttir, Akranesi og Ragnheiður Ólafsdóttir,
Borgarnesi. Sunnudagskvöldið 24. júní var
kvöldvaka á vegum orlofsnefndar Borgarness,
og orlofs- og mæðrastyrksnefndar Akraness. Til
skemmtunar var þetta: Freyja Bjarnadóttir,
Borgarnesi og Jakobína Hallsdóttir, sama stað,
léku smá-leikþátt, Eygló Gamalíelsdóttir, Akra-
nesi las upp kvæði, Herdís Ólafsdóttir las upp
sögu, þá léku þær Herdis Ólafsdóttir og Ásgerð-
ur Gísladóttir, Akranesi, smá-leikþátt: kvenrétt-
indakonu frá Grænlandi, dverg, sem hélt fyrir-
lestur um áhugamál sín. Ennfremur sýndi Ás-
gerður ágætar skuggamyndir frá ýmsum fögrum
stöðum hér á landi. Sigríður Sigurðardóttir
Akranesi stjórnaði almennum söng, lék á orgel
og söng milli skemmtiatriða.
Spurningaþáttur, Já eða Nei, var á vegum
ástandið er sízt betra hjá okkur í þess-
um efnum en t. d. Norðmönnum og Sví-
um, áður en þeir tóku skipulega á þess-
um málum. Einmitt nú er auðvelt að
kenna þetta, þegar það sjálfsagða fyrir-
komulag er að komast á, að börnin fá
mjólk í skólunum og borða bitann sinn
með, í stað þess að hlaupa út í næstu
búð, drekka gosdrykki og borða vínar-
brauð.
30
HÚSFREYJAN