Húsfreyjan - 01.01.1963, Page 37
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Adalfundur
Aðalfundur H. F. Eimskipafélags Islands, verður haldinn í fundarsalnum
í húsi félagsins í Reykjavík, föstudaginn 3. maí 1963 og hefst kl. 1:30 eftir
hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum
á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar
endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1962 og efna-
hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum
stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á reglugerð Eftirlaunasjóðs H. f.
Eimskipafélags íslands.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt lundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum
hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 29. apríl — 2. maí næstk.
Men geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrif-
stofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir
eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt
er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 12. febúrar 1963.
STJÓRNIN
HÚSPREYJAN
37